Tíminn - 30.12.1960, Qupperneq 5

Tíminn - 30.12.1960, Qupperneq 5
T í MIN N, föstudaginn 30. desember 1960. 5 Gtgetandi: FRAMSOKNARFtOKKURINN FramKvæmdastióri Tómas Arnason Kn itjórar Þórannn Þórarinsson 'áb i. André- Kristjánsson Fróttastión Tómas Karlsson Augiysmeasti Egill Biarnason Skrilstofui i Edduhúsinu — Simar 18300 18305 Auglýsmgaslmi 19523 Atgreiðslusiml 12323 — Prentsmiðian Edda h.f Vaxtalækkunin Ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér lengur til að haida áfram því mikla vaxtaokr:, sem hún fyrirskipaði á síðastl. vejri, og grálegast hefur leikið afkomu atvir nuveganna á undanförnum mánuðum. Hún hefur því látið Seðlabank- ann fyrirskipa lækkun vaxtanna um 2% eða um helmmg þess, er hækkunin nam s. 1. vetur Þetta er spor í rétta átt, en gengur þó of skammt til þess að koma atvinnu- vegunum að teljandi notum. Til þess að verulega munaði um vaxtalækkunina mátti hún ekki vera minni en svo, að vextirnir yrðu færðir aftur í sama horf og þeir voru fyrir hækkunina, eins og Framsóknarmenn lögðu til í frv. því, er þeir fluttu á Alþingi í haust. Þegar Framsóknarmenn fluttu betta frv. sitt, mátti ríkisstjórnin ekki heyra vaxtalækkun nefnda. Hún var bersýnilega ráðin í því að halda vaxtaokrinu óbreyttu. Reynslan hefur hins vegar stutt baráttu Framsóknar- manna fyrir vaxtalækkun, þar sem augljóst var að vaxta- okrið var alveg að stöðva atvinnuvegina. Ríkisstjórnin hefur því neyðst til að hörfa undan til hálfs. stjórnina brestur hins vegar kjark til þess að /iður- kenna ástæðuna fyrir undanhaldi sínu. Hún birtir hátíð- lega tilkynningu, þar sem hún rökstvður vaxtalækkunina með því, að hún sé möguleg vegna þess, að vaxtaokrið hafi heppnazt svo vel! Meiri öfugmæli hata ekki verið sögð á íslandi. Engin stjórnarráðstöfun hefur borið verri t ) ) ) ) ) ) ) ) ) t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ávexti og það er þess vegna, sem stjórnin neyðist til að láta undan. Vaxtaokrið hefur lagt svo þunga bagga á framleiðsl- una, að mörg atvinnufyrirtæki eru alveg að stöðvast af þeim ástæðum. Vaxtaokrið hefur ekki aukið sparifjársöfnunina, eins og heitið var, heldur hefur dregið úr henni. miðað við fyrri ár, eins og Skúli Guðmundsson sýndi svo Ijóslega á Alþingi fyrir skömmu. Vaxtaokrið hefur ekki dregið úr verzlunarhallanum við útlönd, eins og spáð var. Þvert á móti hefur hallinn á verzlunarviðskiptunum við útlönd orðið mun meiri fyrstu 10 mánuði þessa árs en áður Allar tölur stjórnarinnar um hið gagnstæða byggjast á útúrsnúningum og blekk- ingum. Þannig hefur vaxtaokrið ekki aðeins misheppnazt, heldur orðið til hins mesta böls fyrir framieiðsluna Að óbreyttum vöxtum myndi hún hafa stöðvast. Því lætur ríkisstjórnin nú loks undan, en þó ekki nema til hálfs. Slík vaxtalækkun mun ekki reynast fullnægjandí fyrir framleiðsluna. Enn eru vextirnir of náir. Lágmarksþörf framleiðslunnar er að þeir verði ekki hærr' en þeir voru fyrir gengislækkunina. Þrátt fyrir það væru vaxtagreiðsl- ur atvinnuveganna hér hærri en víðast annars staðar. Þess vegna verður nú að fylgja eftir þeim flótta, sem ríkisstjórnin hefur hrakizt á í vaxtamálinu og knýja fram meiri vaxtalækkun. t t ) t ) ) ) ) ) t ) ) ) ) t ) ) t ) ) t ) ) ) ) ) ) ) ) t t ) ) ) ) ERLENT YFIRLlT Mistekst Hammarskjöld í Kongó? Belgíumenn og leppar þeirra valda mestu erfiðleikunum SAMKVÆMT fregnum, sem hafa birzt í erlendum blöðum, mun Hammarskjöld, fram- kvæmdastjóri S. Þ., ráðgera að heimsækja Kongó um eða eftir áramótin. Slíkt er ekki óeðli- legt, því að mjög hefur halla'ð undan fæti hjá Hammarskjöld í Kongómálinu undanfarið og hann hlotið vaxandi gagnrýni fyrir skort á ákveðinni stefnu og festu. Sú gagnrýni hefur einnig faiið vaxandi, að hann væri of hliðhollur Belgíumönn- um og vesturveldunum í Kongó málinu. Það er nokkurt dæmi um þessa þróun, að þegar Kongó- málið kom fyrst til meðferðar á allsherjarþinginu um miðjan september síðastl. og Rússar hófu árásir sínar á Hammar- skjöld, var tillaga, sem var óbein traustsyfirlýsing til hans, samþykkt með 70:10 atkv., en þetta var áður en þjóðunum fjölgaði í S. Þ. á síðastl. hausti. Aðeins kommúnistaríkin voru á móti. Þegar allsherjarþinginu var frestað rétt fyrir jólin, fékk tillaga frá Bandaríkjamönn um og Bretum, sem talin var túlka stefnu Hammarskjölds í Kongómálinu og njóta óbeins stuðnings hans, ekki nema 43 atkvæði, 22 atkvæði voru á móti og 27 sátu hjá. Tillagan fékk því ekki tilskilinn meiri- hluta eða % greiddr'a atkvæða. Meirihluti þátttökuríkjanna ýmist greiddu atkvæði gegn til- lögunni eða sátu hjá. Þetta sýnir vissulega mikla breytingu, sem er óhagstæð Hammarskjöld frá því þegar honum og stefnu hans var vott- að traust með 70:10 atkvæðum á allsherjaiþinginu í septem- ber síðastliðnum. Fyrir Hammarskjöld er það þó óhagstæðast, að meðal þeirra ríkja, sem ýmist greiddu nú atkvæði gegn umræddri til- lögu eða sátu hjá, voru öll áhrifamestu ríkin í Afríku og Aísu, en stuðnings þeirra þarfn ast Hammarskjöld alveg sérstak lega, ef hann á að standast árás- ir kommúnista. Athygli vakti, að meðal þeirra ríkja, er sátu hjá, var Frakk- land. Ástæðan er talin sú, að de Gaulle liti þannig á, að ras- að hafi verið um ráð fram, er S. þ. sendi her til Kongó. Slíkt hefði þurft vandlegri undirbún- ing, m.a. hefði þurft að marka starfssvið hersins miklu betur áður en hann var sendur til landsins. Fyrir Bandaríkin var um- rædd atkvæðagreiðsla mikill ósigur, því að þetta er í fyrsta sinni í allri sögu S. Þ., sem þau bíða ósigur við atkvæðagreiðslu í meiriháttar máli. Þess má geta, að tillaga frá Indlandi. Ghana o.fl., sem gekk í nokkuð aðra átt, féll með enn ý..X'. ... 'I:'Cv HAMMARSKJÖLD meiri atkvæðamun. Alls hei'jar- þingið gat því ekki mótað neina stefnu í Kongómálinu og lét sér að lokum nægja að vísa til fyrri ályktana Öryggisráðsins um það, en þær miðast við annað ástand en nú er. GAGNRÝNI gegn Hammar- skjöld af hálfu Afríku- og Asíu- ríkja felst einkum í því, að her S. Þ. í Kongó hafi ýmist með óbeinni íhlutun eða afskipta- leysi orðið til þess að draga taum Belgíumanna í þeirri við- leitni þeirra að ná aftur völdum í landinu. Einkum hafi þetta komið komið fram á þann hátt, að Mobutu hafi verið látið hald ast uppi að koma í veg fyrir, að þing Kongó yrði kallað sam- an, en það sé sá aðili, er hafi úrslitavaldið samkvæmt stjórnarskrá landsins og eitt geti myndað löglega stjórn. Mobutu hafi hindrað þetta með aðstoð málaliðs þess, sem hann ræður yfir, en það sé raunveru- lega grein af Belgíumönnum og Mobutu sé aLger leppur þeirra. Ef rétt hefði verið farið að, hefði átt að afvopna ,,her“ Mo- butus, láta Belgíumenn, sem væru með óeðlilega íhlutun fara úr landi, og reyna að koma á samkomulagi að nýju milli þeirra Kasavuhu og Lumumba um ríkisstjórn, sem hvorki væri með austri eða vestri. Vegna þess, að þessi stefna hefur ekki fengizt fram, hafa mörg ríki, sem hafa lagt S. Þ. til her i Kongó, hótað að kalla lið sitt heim, eins og t.d. Mar- okkó, Indónesía, Túnis, Ceylon og Mali. Indland og Ghana, sem hafa tekið undir framangreinda gagnrýni, hafa hins vegar feng- ið þau til að fresta slíkri heim- köllun I von um að S. Þ. breytti um vinnubrögð í Kongó. HLUTLAUSUM áhorfanda dylst það ekki, að1 það eru Belgíumenn, sem mestum vand- ræðum hafa valdið í Belgíu í seinni tíð. Ritchie Calder pró- fessor, sem fór nýlega á vegum Heilbrigðismálastofnunar S. Þ. til Kongó, lýsir vel í greinar- gerð sinni hinu glæfralega at- hæfi Belgíumanna í Kongó. Eftir að þeir gáfust upp við að stjórna Kongó sem nýlendu og veittu landinu sjálfstæði, fluttu þeir alla opinbera fjármuni í burtu og fluttu í burtu flest tæknimenntað starfslði, svo að jafnvel var útílokað fyrir Kongómenn að halda uppi nauð synlegustu þjónustu eins og síma og samgöngum, því að Belgíumenn höfðu ekki mennt- að þá til þess. Ætlun Belgíu- manna var, að allt félli í rúst, þegar Kongó fengi sjálfstæði, og Kongóstjórn yrði að biðja þá strax um aðstoð. Þannig gætu þeir raunverulega ráðið áfram bak við tjöldin. Þegar þetta br’ást og S. Þ. skárust í leikinn, efldu Belgíumenn leppa sína eins og Tehombe og Mobutu til áhrifa og hafa þannig haldið glundroðanum í Kongó áfr’am. Ætlun þeirra er að tryggja sér völdin aftur á þennan hátt. Það hefur svo aukið á erfið- leikana, að vesturveldin veita Belgíumönnum óbeinan stuðn- ing í þessari viðleitni, en Rúss- ar nota hins vegar framferði þeirr’a til að ýta undir sundr- ungu og klofningu í landinu. AFSTAÐA Hammarskjölds er að sjálfsögðu hin örðugasta undir þessum kringumstæðum. Umboðið, sem hann hefur frá Öryggisráðinu til að starfa eftir, er lika mjög óljóst og teygjanlegt. Samkvæmt því á herlið S. Þ. að hjálpa til að halda uppi lögum og reglu, en jafnframt að forðast öll afskipti af innanlandsdeilum. Erfitt er að þræða þarna á milli. Við þetta bætist svo, að bæði Vest- urveldin og Rússar vilja beina þróuninni í þá átt að fá vin- veitta stjórn í Kongó, og þannig verður Kongó einn vígvöilurinn í kalda stríðinu. Eina vonin um lausn í Kongó málinu er sú, að aftur verði komið á samvinnu milli fylgis- manna Kasavubu og Lumumba um stjórn, er starfi á hlut- leysisgrundvelli. Líklegt þykir nú, að Hammarskjöld vinni að því bak við tjöldin og njóti til þess stuðnings margra leiðtoga í Asíu og Afiíku, t.d. stjórn- enda Indlands og Nígeríu. Ef það tekst ekki, er ekki annað framundan í Kongó en borgara- styrjöld, þar sem stórveldin standa á bak við deiluaðilana. Fari svo, hefur S. Þ. misheppn- azt í Kongó. Þ.Þ. ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ') ) ) i ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) i t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) t t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) t ) t ) ) ) ) ) ) Ekki nógu íhaldssamur AlþýðublaSið birtir í gær grein um Gunnar Thorodd- sen í tilefni af fimmtugsatmæli hans og segir þar m. a : ,,Ef brjóta má kurteisisvenjur og nefna ávirðingar af- mælisbarnsins, þá finnst jafnaðarmönnum Gunnar varla nógu íhaldssamur af forustumanni íhaldsfloKks að vera, þegar þeir standa andspænis honum á stjórnmálasviðinu.“ Vafalaust er hér túlkað réttilega viðhori Emils. Guð mundar í og Gylfa. En skyldu þeir .lon Baidvinsson. Sig- urjón Á. Ólafsson og Héðinn Valdimarsscn hafa tekið undir þetta? Meðal merkra bóka, sem út hafa kom:8 fyrir jólin má nefna þar framarlega í flokki Æskudaga, eftir Vigfús Gcð- mundsson, sem kunnastur er undir gestgjafanafninu hin síðari árin. Æskudagar er eins og nafnið Ler með sé. frásögn af unglings- ua uppvaxtararum v.gfúsar fram a manndómsar Þarna gerir Vigfús greinargóð skil ævterni rínu og uppvexti, þar sem manndóm.-'mikl- Góðrar bókar getið ir foreldrar koma stórum barna-! yíirstétt, að vísu er þetta misskiln hopi til manns, þott þau búi við ingur, því beir, sem þekkji Vig kröpp kjör og er þetta öllum fús vita, að þar slæ: hlýtt og beíg gcð lesning. eldn, fólkina sem lr-ust hjarta við staxkinn. en i bók r. innist uppvaxtarára sinna og, ii ni kemur þó fram skýrmg i ekkj síður lærdónrsrík frásögn þessu. Þegar Vigfos var halfvax tyrir unga íólkið sem alið er upp irn drengur denti faðir Vrgfúsai ■ skjóli str:ðsgróðans og peninga- : höndum „t;Iistea“ af Akranesi í’óðs eftirstriðsáranna Þeir sem 'em var þáverandi reiti hinna svo eski þekkja ' igfú. mi finnst sum fcölluðu fjármálamanna nútíðar- i:rr hverjum zrets nokkurs kulda irnar, með þeim 3fleiðingum ac í fari hans gagnvart svokallaðril (Framhald a 13. siöul. t

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.