Tíminn - 30.12.1960, Síða 14

Tíminn - 30.12.1960, Síða 14
14 TÍMINN, föstudaginn 30. desember 1960. Marty .... Crescent 6-4824. Það var skrifað yfir bæði nafnið og símamúmerið og ég velti vöngum yfir því lengi og oft. Þetta var eina nafnið á siðunni, sem strikað var yfir. Á nokkrum stöðum í minnisbók Miu Mercer hafði ég tekið eftir, að símanúmer ið hafði verið þurrkað út og annað sett í staðinn — það var skiljanlegt, nýtt heimilis fang, nýtt símanúmer. En hvergi hafði verið stjfjkað yfir bæði nafnið og sírna- númerið eins og hér. Hvernig bar að skilja þetta? Það gæti verið um dauðan mann að ræða og mér hraus hugur við tilhugsuninni. Sá möguleiki var og fyrir hendi, að um gamlan unnusta væri að ræða. Og ég vonaði að síð ari tilgáta mín væri rétt. En ég var sannfærð um eitt: Þetta strik táknaði eitthvað. Og þegar ég herti mig loks ins upp í að hringja í númer ið, þurfti ég ekki á hinum fyrirfrairihugsuðu ræðum mínum að halda. Röddin var sérstaklega ópersónuleg. — Halló! — Er Marty heima? spurði ég. — Hvaða Marty? — Bara Marty. — Hvað er þetta, þér verðið liklega að segja mér eftir- nafnið. Eg vissi að þessi spurning myndi koma og ég óttaðist hana. Eg var öll af vilja gerð að svara henni, en ég gat það ekki.. Af þeirri einföldu ástæðu að ég vissi ekki um eftirnafnið. Eg ákvað að spyrja að því, sem ég hafði búið mig undir að verða spurð að sjálf: — Við hvern tala ég? — Þetta er símaþjónustan á Hótel St. Alban. — Ó, já, skiljið þér, sagði ég og reyndi að vera dálítið örvæntingarfull. — Eg veit satt að segja ekki hvað eftir- nafn hans er. Eg er að leita manns, og ég þekki hann bara undir nafninu Marty. Gætuð þér ekki hjálpað mér og gefið mér upplýsingar um hvort það býr einhver á Hótel St. Alban með þessu nafni? — Eg veit svei mér ekkii hvernig ég ætti að gera það, sagði hann óvingjamlega. Eg setti upp minn blíðasta j róm: — Það ríður á miklu| að ég nái í hann. Þetta erj mjög alvarlegt mál, alls eng ir smámunir. Ef ég kæmi nú til yðar í stað þess að tefja yður í símanum, vilduð þér þá kanns'ki hjálpa mér að hafa upp á honum? Maðurinn hafði blíðirast að mun. — Ef þér vildún líta inn skal ég biðja einhvern starfs mann að fara í gegnum gesta bókina. Hótelið var vistlegt og hlý- legt. Ekki íburðarmikið, en smekklegt og traust. uppáþrengjandi, en ef ég biði nú hér meðan þér létuð yfir- fara eldri gestaskrár — bara yfir stuttan tíma — og athuga hvort .... — Tja ...., sagði hann. — Hm .. og svo að lokum — And artak. Forstjórinn gekk í burtu og lét mig sitja eftir í forsalnum. Þá vissi ég að ég hafði að minnsta kosti unnið í fyrstu lotu. HVER VAR Eftir Cornell Woolrich 17 Þeir tóku mér kurteislega. Sjálfur forstjórinn kom til mín: — Mér þykir það leitt, ung frú • • • • ? — Ungfrú French. — Mér þykir það leitt ung frú French, en eins og yður mun þegar hafa verið sagt, býr enginn hér sem heitir Marty eða Martin að for- nafni. Þér eruð vfesar um, að þér getiö ekki gefið okk ur nánari upplýsingar? — Því miður get ég það ekki. — Þér gætuð kannski lýst honum. Ef til vill gæti þá rifjast upp fyrir mér, við hvern þér eigið. — Eg er hrædd um að ég geti það ekki heldur, varð ég að játa. Sjáið þér til, ég þekki manninn alls ekkert. En mér er bráðnauðsyn að hafa uppá honum. Og ég hafði ekki eftir öðru að fara en fomafni hans og síma númeri. — Það hryggir mig vissu- lega, sagði forstjórinn sam úðarfullur. Eg hefði svo gjarn an viljað verða yður að liði, en ég sé ekki hvemig það gæti orðið. E5n það sá ég og hikaði ekki við að bera fram uppástungu mína: — Eg vil helzt ekki vera Eg þurfti að bíða lengi nokk uð og á meðan reyndi ég að gera mér í hugarlund, hvern- ig maöur þessi Marty væri. Eg virti fyrir mér þá gesti hótels ins, sem komu og fóru þessa stund. Þó vissi ég, það var eng an veginn víst að honum svip aði til þeirra, þótt hann hefði búið hér. En ef svo færi, að hann væri líkur hinum gestunum þá hlaut hann að vera miðaldra, sæmilega efnaður, viðfelldinn og álitlegur. Hárið væri kann ske farið að þynnast ögn á hvirflinum en það var leynd armál milli hans og hársker- ans. Hann væri hrifinn af stór um vindlum og kurteis og nær gætinn við kvenfólk. Forstjórinn kom nú í áttina til mín. Hann hélt á bréfmiða í hendinni. — Hamingjan veit hvort það er annar þessara, sagði hann. — Eg lét fletta upp öllum gest um síðustu þrjú árin. Því mið ur — eða kannski ég ætti að segja — sem betur fer höfum við aðeins haft hér tvo gesti með þessu nafni. Hér er Mart in Ebbing, sem bjó hér fyrir skömmu. Hann skildi heimilis fangið eftir, en ég veit nátt úrlega ekki hvort hann býr þar enn. Eg skal láta yður fá það. Hinn hét Martin Blair. Hann skildi einnig eftir sitt heimilsfang, Hotel Senator. Gestgjafinn brosti fyrirlitlega. Það er niðri í borginni. Eg skrifaði bæði nöfnin nið ur og þakkaði fyrir. En það var ekki fyrr en ég fanriHotel Senator og var kom in inn í. forsalinn, að ég skildi hvers vegna forstjórinn hafði sýnt svo augljósa fyrirlitningu þegar hann minntist á hótelið. Mér þætti fróðlegt að vita hvað hefur komið fyrir þenn an Marty Blair, sagði ég við sjálfa mig. — Frá St. Alban að Hotel Senator er ekki bara eitt þrep niður á við, heldur langur stigi. Hér var ekki horft kurteis- lega á kvenfólk, þær voru hreinlega berháttaðar með augnaráðinu einu saman. Og ég sá að ekki myndu allir gest irnir hafa fasta vinhu. En þeir voru aftur á móti grennri en karlmennirnir á St. Alban, og hárið var ekki farið að þynn ast. Þeir slöngruöu um, reyktu ódýrar sígarettur og það var eitthvað fráhrindandi, græðg islegt og dýrslegt í hreyfing- um þeirra. Skrifstofumaðurinn hafði skemmdar tennur og lymsku- leg augu, sem séð höfðu alls ; kyns spillingu og óþverra. — Marty Blair? sagði hann. — já, ég man eftir honum. En hann hafði ekki notaleg ar endurminningar um Marty Blair, því að hann herpti sam an munninn og hnyklaði tbrýnnar. — Býr hann hér ennþá? spurði ég. — Nei, honum var kastað út fyrir löngu. Við vorum orðn ir leiðir á að fá aldrei borgun. Maðurinn glotti. — Og hann kom aftur. Hvað eftir annað reyndi hann að læðast inn, ' meira að segja eftir lokun. En j sem betur fer erum við lausir við hann fyrir löngu. — Þér vitið þá ekki, hvert hann flutti? — Sjálfsagt til manna af hans sauðahúsi, sem komnir eru í hundana. Bovery, gæti ég trúað. — Bovery, sagði ég ráðþrota. — Hvernig er hægt að hafa upp á manni í Bovery-hverf- inu? — Ef þeir eru á annað borð komnir þangað, er yfirleitt ekki ómaksins vert að leita þeirra. Eg hef engan hitt, sem nennti því. Þar er kirkjugarð ur hinna lifandi. — En mér finnst það ó- maksins vert, sagði ég, hvern ig á ég þá að fara að? — Ganga knæpu úr knæpu, þangað til þér finnið hann — ef þér þá þekkið hann aftur. Og ég sem vissi ekki einu sinni hvernig hann leit út. — Já, en ungfrú mín sæl, sagði maðurinn, þegar ég hafði sagt honum það, — þér fáið svei mér nóg að gera. Hann var mjög venjulegur í útliti. Þetta verður skrambi erfitt. En ég kastaði honum tvisvar út, kannski ég geti lýst honum .... nokkuð hávax- inn og grannur. Dökkskollitað hár. Þetta er allt, sem ég man. Hár og grannur. Dökkskol- litað hár. Maðurinn hafði rétt fyrir sér, það yrði býsna erfitt að finna hann. — Kærar þakk ir, sagði ég. — Sjálfþakkað. Og gott gengi, sagði hann dapurlega. Mér fannst ofrausn að kalla húsin hótel, eins og stóð á aug lýsingaspjöldunum fyrir utan. Herbergi voru auglýst fyrir 25 til 30 sent yfir nóttina. Og það var fjöldinn allur af þessum „hótelum". í forstofunum, sem voru óþrifalegar og berar, sá ég þessar vonlausu verur hanga yfir dagblaði eða bara sitja auðum höndum í slitn- um hægindastólum — verur, sem endur fyrir löngu höfðu verið manneskjur, en voru nú aðeins skuggar .... Eg veit ekki, hvað þessi hús voru mörg. Mér fannst þau ó- teljandi, þau voru hlið við hlið heilu göturnar á enda. Því að eitt er það, sem mann Föstudagur 30. desember: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 13,15 Lesin dagstorá nœstu viku. 13.30 „Við vinnuna": Tónteikar. 15,00 Miðdegisútvarp. 18,00 Börnin heimsækja framandi þjóðir. Guðmundur M. Þorláks son talar um Lappa og hrein dýr. 18,25 Veðurfregnir. 18.30 Harmonikulög. 19,00 Tilkynningar. 19/30 Fréttir. 20,00 Daglegt mál. Óskar Halldórs son cand. mag. sér um þáttinn. 20,05 Efst á baugi. Umsjónarmenn Haraldur J. Hamar og Heimir Hannesson. 20.35 Jólatónleikar hljómsveitar Rík isútvarpsins í Dómkirkjunni. Stjórnandi: Bohdan Wodiczko. Einleikur á orgel: Dr. Páll ís ólfsson. Einsöngvari: Sigurður Bjöimsson. 21.35 „Guðsmóðir, gef mér þinn frið“. Eintal'sþáttur eftir Stein gerði Guðmundsdóttur fluttur af höfundi. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Getið 75 ára afmælis þriggja stúkna. Ávörp flytja Þorsteinn J. Sigurðsson, Freymóður Jó hannsson og Gísli Sigurgeirs- son. 22.30 í léttum tón. 23,00 Dagskrárlok. PiRÍKUR YÍÐFÖRLI Merki Jómsvíkinga 44 Sverrir segir nú söguna: — Fyrir fimmtán árum kom ókunnur mað- ur að kofa mínum og bar með sér lítinn dreng. Hann var Jómsvíking ur. Tvíburabróðir hans hafði drep ið mann og varpað sökinni á hann. Jómsvíkingar voni á eftir hon- um en hann flýði til Noregs, en þeir eltu hann stöðugt. Ég tók við honum vegna barnsins og gaf þeim mat. Stuttu síðar róðust fjandmenn hans á okkur og veittu þeir honum bana. Ég drap þrjá, sá fjórði flúði og síðan hef ég alltaf óttast að hann mundi koma aftur og hefn- ast á dr’engnum. Þeir komu hingað til keppninn- ar dulbúnir sem friðsamir menn, þeir sáu merkið á brjósti drengs- ins. Vúlfstan er tvíburabróðir föð ur Axels og frá honum er allt það vonda, sem yfir okkur er komið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.