Tíminn - 18.02.1961, Page 11

Tíminn - 18.02.1961, Page 11
TÍ;M IN N, laugardagmn 18. febrúar 1961. Síðasta seglskipið komst heiilt úr hnatt- ferðinni, en strandaði við New York Á leiðinni austur á bóginn frá New York eftir nýju bíla- brautinni Connecticut Turn- pike hef ég oft undrazt vegar- skilti nokkurt með þessari und arlegu áletrun: „Mystic Sea- port — Töfrahöfn." Loks varð mér þó Ijóst, að hér var engin höfn, heldur safn nokkurt. Safn þetta er allt búið sem smáhöfn frá seglskipaöld. Það eru heldur emgir töfr- ar þarna á ferð, því að „mystic“ er aðeins indverskt orð, sem þýðir „sléttur sjávar flötur“. Þessi tilbúna höfn er einmitt við fjörð með sama nafni og þar er svo skjólsælt að sjávarborðið er nær ætíð slétt. Það eru Nýj a-Englamdsrík- in, sem að þessu standa og hefur verið unnið að því að gera þetta seglskipasafn sið ustu áratugina. Þangað hef- ur verið bjargað ýmsu úr seglskipahöfnunum gömlu jafmóðum og þar umbreytist allt, og gengur vélaöldinni á vald. Á safnsvæðið hafa ver ið flutt 30—40 gömul hús, sér staklega tengd seglskipaút- gerð, og ýmsir gamlir far- kostir. Þarna er upprisið fal- legasta skútuþorp. Þar eru gömul vöruhús, netagerð, — seglasaumarar að verki, reipa gerðarmenn, gömul sjávar- þorpskifkja, elökkvistöð, — brennivinskrá, siglingatækja búðir, smiðja og tréskurðar- verkstæði til skreytingar á skipum. Það eru einkum tveir menn, læknir og li^gfræðingur, eem hafa sökkt sér niður í sjó- ferðasöguna og unnið að því öllum árum að koma safni þessu upp. Þeir stofnuðu fé- lag og hófu fjársöfnun, sem gekk mjög vel, þegar fólk vissi til hvers verja skyldi fénu. Gjafir streymdu að — bæði í reiðu fé og gömlum kjörgripum. Svo gáfu erfingjar gamals Seglskipasafnið í Mystic á austur- strönd Bandaríkj- anna, geymir marga merki- lega hluti. sævíkings lóð undir safnið, einmitt þar sem útgerðarhús gamla mannsins höfðu staðið. Útgerðin hafði verið lögð nið ur 1879, en þar voru hús, bryggjur og ekip. Þetta var hresst við og myndaði kjarna safnsins. Bn þó vantaði mörg skip. Eitt fyrsta skipið sem safnið fékk, var skonnortan Ástralía, sem orðið hafði ihnlyksa á þessum slóðum í bandarísku borgarastyr j öldinni. Árið 1941 fékk safnið loks grip, sem lengi hafði verið þráður — fullbúið briggskip, j aldargamlan hvalfangara, sem hét Charles W. Morgan, eftir eiganda sínum, og hafði farið 37 hvalveiðiferðir í öll um heimshöfum og aflað eig anda sínum fnilljóna í doll- Gömul sjómannakirkja I Mystic, en íjœr sér á gamla hvaivelðiskipiS Charles W. Morgan. urum. J Fimm árum síðar fékk safn ið annað briggskip, Jósep! Conrad, gamalkunnan far- kost í norðurhöfum, enda er þetta gamla danska skólaskip ið George Stage. Það var 52 ára gamalt og þar höfðu 4000 danskir piltax Isert sjó- mennsku. Breti nokkur, Alan Viliexs, keypti gamla skóla- ! 'Skipið 1934, skírði það upp og kallaði Jósep Conrad, eftir hinum heimsfræga sægarpi og rithöfundi og sigldi síðan á því kringum jörðina. Ferð in tók 555 daga og er nærri I 60 þús. sjómilur, og Jósep Conrad er ríðasba seglskipið, sem sigldi fyrir Góðrarvonar höfða en það er talið ein- hver hættulegasta siglinga- leið á heimshöfunum. Skipið: i komst heilu og höldnu gegn um allar hættur ferðarinnar, | en loks við leiðarlok strand- aði það við innsiglinguna til New York. Og síðan eftir ýmsa þjónustu við strendur Bandaríkjanna meðan á síð- afi heimsstyrjöldinni stóð, var gamla skipið gefið í safn ið í Mystic. En gömlu seglskipin í Myst ic eru þó ekki aðeins safn- gripir. Hvert sumar eru þau notuð til að kenna drengjum sjómennsku, sem dvelja þar um borð og læra að handleika hin gömlu siglingatæki og kynna sér boðorð sjómennsk- unnar. Að vísu láta gömlu skipin aldrei úr höfn, en þau eru samt miklu betri skóla- stofur en húskumbaldi uppi j í skógi. Gunnar Leistilcov, VMJ rÍMUJMlk Seglskipið Jósep Conrad í Mystic-safninu — síðasta seglskipið, sem sigldi fyrir Góðrarvonsrhöfða. Tréskurðarmynd á stefni Jóseps Conrad.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.