Tíminn - 07.03.1961, Blaðsíða 1
55. tbl. — 45. árgangur.
Þriðjudagur 7. marz 1961.
Mótmælaalda ris-
in í Olafsvík
Faritf fram á þjó$aratkvæ<Sagreiðslu
Síðast liðinn sunnudag var
fundur haldinn um landhelgis
málið í Ólafsvík, mesta út-
gerðarbænum á Snæfellsnesi.
Var hann hinn fjölmennasti
og fundarmenn mjög einhuga
i andmætum sínum gegn und-
anslætti og uppgjöf.
Framsögumenn á fundinum voru
alþingismeanirnir Daníel Ágústín-
usson og Halldór E. Sigurðsson og
auk þeiri'a Ingi 'R. Helgason lög-
fræðingur. Var ræðum framsögu-
manna mjög vel tekið, og auk
þeirra töluðu á fundinum Hjörtur
Guðmundsson, Kristján Jónsson,
Edilon Kristófersson, Alexander
Stefánsson og Kjartan Þorsteins-
son. Allir ræðumenn voru and-
vigir samningagerðinni, nema
Hjörtur, fréttaritari Morgunblaðs-
ins í Ólafsvík.
Svolátandi mótmælasamþykkt
var gerð á fundinum með öllum
greiddum ntkvæðum gegn atkvæð-
um fréttaritarans og Eliníusar
Jónssonar, fyrrverandj verzlunar-
stjóra:
)rAlmennur kjósendafundur í
Ólafsvík, haldinn sunnudaginn
5. marz 1961 mótmælir liarðlega
þingsályktunartillögu þeirri, sem
ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Al-
Nýr skólastjóri
Gunnar Bjarnason hrossa-
ræktarráðunautur hefur nú
verið skipaðúr skólast jóri
bændaskólans á Hólum í
Hjaltadal. — Gunnar er fædd-
ur í Húsavík, 13. desember
1915, sonur hjónanna Bjarna
Benediktssonar, póstafgreiðslu
manns, og konu hans, Þór-
dísar Ásgeirsdóttur frá Knarr
arnesi.
Gunnar tók gagnfræðapróf á
Akureyri 1933, lauk búfræðinámi
á Hvanneyri 1936 og prófj frá
landbúnaðarkáskólanum í
rnannahöfn 1939. Er Gunnar
heim frá námi, gerðist hann ráðu
r.autur Búnaðarfélags íslands
hrossarækt og hefur gegnt þvi
siarfi síðan. Mun hann nú lá'ta
af því. Kennari við bændaskólann
á Hvanneyr-i hefur hann verið
síðan 1947.
Snjókerlingar eru ekki nein nýj-
ung — þaS er aS segja, þegar
snjóföl kemur. En snjóhestar eru
nýjung. Þessi snjóhestur, sem hér
sést á mynd, var gerSur á Vestur
brún í Laugarásnum núna um
helgina. Ung stúlka hefur brugS-
iS sér á bak á þennan hvita fák.
Kannske hefur einhver aSdáandi
hennar staSiS álengdar og raul-
aS: Þú komst í hlaSiS á hvítum
hésti. (Ljósmynd: TÍMINN — GE.
þingi, um samninga við Breta
um landhelgismálið og skorar á
þingmenn Vesturlandskjördæmís
að greiða atkvæði gegn tillög-
unni eða hlutast til um að þjóð-
aratkvæðagreiðsla farj fram um
málið.“
Flestir bátar voru á sjó, er fund
urinn var haldinn, en formenn
þeirra flestra, ásamt nokkrum út-
gerðarmönnum í Ólafsvík, sendu
fundinum mótmæli sín gegn samn
ingum við Breta. Meðal þeirra
skipstjóra, sem það gérðu, var
einn, sem Morgunblaðið hefur í
fréttum sínum talið fylgistnann
samninganna. Mótmæli skipstjóra
og útgerðarmanna voru á þessa
leið:
Við undirritaðh skipstjórar og
úigerðarmenn í Ólafsvík mótmæl-
um hér með framkominni þingsá-
lyktunartillögu ríkisstjórnar ís-
lands um samninga og eftirgjöf
við Breta um landhelgi íslands.
Skorum á Alþingi að fella tillög-
una eða láta fram fara þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið.
Magnús Kristjánsson, Konráð
Gunnarsson, Jón St. Halldórsson,
Haraldur Guðmundsson, Guðm H.
Jensson, Guðmundur Kristjáns-
son, Kristmundur Halldórsson, Víg
lundur Jónsson, Guðl. Guðmunds-
son, Leifur Halldór'sson, Bjarnþór
Valdimarsson, Bjarni Bjarnason.
Ekki náðist til allra skipstjóra
og útgerðarmanna í Ólafsvík, þeg-
ar þessi mótmæli voru gerð. Auk
þessara manna hafa 203 kjósendur
í Ólafsvík undirritað mótmæli,
scm send hafa verið alþingi, og
er undirssriftum enn haldið áfram.
Áhöfnin á hinni nýju flugvél Loftleiða, Þorfinni karlsefni, gengur út úr flugvélinni. Flugmálaráðherra,
Ingólfur Jónsson, og stjórnarformaður Lolftleiða, Kristján Guðlaugsson, fagna heimkomu hcnnar.
Loftleiðir fá þriðju
Cloudmastervélina
Síðari hluta dags á sunnu-
daginn lenti „Þorfinnur karls-
etni", hin nýja Cloudmaster-
flugvél Loftleiða, á Reykja-
víkurflugvelli, og út stigu
kaffibrúnir, íslenzkir flug-
menn, enda ekki amalegt að
dveljast é Flóridaskaga í
nokkra daga, en Loftleiðir
Verður viðhald og eftirlit véla félags-
ins flutt til Keflavíkurvallar að nokkru
þegar á næsta ári?
tóku við hinni nýju flugvél af
Pan American í Miamiborg.
'Flugvélinni var flogið til
New York og þaöan til Reykja
víkur, og var Einar Árnason
flugstjóri í þessari fyrstu
ferð.
Áfanga nað
Þorfinnur karlsefni er þriðja
Loftleiða,
fyrir voru Snorri Sturlu-
son og Leifur Eiríksson. Með
jkoinu hinnar nýju flugvélar
er blað brotið í sögu Loftleiða,
og frá og með 1. apríl n. k.
mun félagið einvörðungu hafa
Cloudmasterflugvélar í ferð-
um.
cioudmasterflugvélarnar
bera 80 farþega og fljúga með
245 mílna hraða á klst. til
jafnaðar. Farþegaklefi er loft
þéttur, og er þar jafnan hald
ið loftþrýstingi sem samsvar-
ar 8 þús. feta hæð. Flugþol
þessara véla er um 14 klst., en
gömlu Skymastervélarnar
(Framhald á 15. síðu).
Hákarlaveiðar hafn-
ar á Vopnafirði
Hákarlinn tvöfalt dýrari í Reykjavík en eystra
Frá fréttaritara TIMANS
á Vopnafir'ði.
Nokkrar trillur eru nú að búast
hákarlaveiðar frá Vopnafirði.
Þar hafa hákarlaveiðar verið
s'íundaðar að nokkru marki und-
anfarin ár, en í fyrra var það þó
aðeins einn. maður, sem reri með
hakarlavað á trillu sinni.
Nú verða hákarlaveiðar stund-
aðar á fjórum trillum, og hafa ein-
hverjar þeirra þegar róið, en að-
cins tveir hákarlar hafa veiðzt
ernþá. Aðalveiðitíminn er ekki
kominn, þvi að mest hákarlagengd
er í kringum pás'ka.
Ekki þarf að róa langt til þess
a‘I leggja /aðinn, að jafnaði aðeins
spottakorn úti á firðinum. Þó
kemur fyrir að hákarlavaður er
lagður út undir Héraðsflóa, en
sjaldgæft er að fara svo langt.
Fréttaritarinn á Vopnafirði taldi
(Framhald á 15. síðu).