Tíminn - 09.03.1961, Blaðsíða 16
/
Hundrað þúsund páskaegg
Spænskur listamaður
- hjá fólki með hjartað á réttum stað
Heilds'öluverð páskaeggjanna
niun vera 10—170 krónur að þessu
sinni, en búðarverðið er um það
bil 50% haerra. Það fer því varla
hjá því, að páskaegg seljist fyrir
nok'krar milljónir króna, jafnvel
margar milljónir.
Dymbilvikan er ekki fyrr en um
mánaðamótin næstu, en eigi að
síður eru allar hillui' í sælgætts-
gerðunum orðnar hlaðnar pás!ka-
Ljósmyndari blaðisíns brá sér
í gær í sælgætisgerðina Freyju.
Myndin hér að ofan ber með sér,
'hvernig skreyttum eggjum er þar
raðað í hillurnar. Þau eru af ýms-
um stærðum, svo að hver og einn
geti fengið eitthvað við sitt hæfi.
Myndin að neðan er af frú Sigríði
Jónsdóttur, konu forstjóraijs. Hún
er að setja eggin í umbúðir og
skreyta þau slaufum.
Það er ikvartað um fólksfæð í
Freyjk um þessar mundir, og það
er ef til vill vegna þess, að for-
stjórafrúin hefur sjálf starfað þar'
síðustu mánuði. Unglingarnir eru
í skólurrí á veturna, svo að þær
starfsgreinar, sem byggja mikið á
vinnu þeúra, lenda þá stundum
í mannahraki, að minnsta kosti
þegar annattma ber að um það
leyti. En það er sannarlega anna-
tími í sælgætisgerðunum fyrirj
páskana.
Skemmtikvöld
Skógræktar-
félagsins
í Storkklúbbnum
Skógræktarfélag Reykjavikur
efnir til skemmtikvölds í Stork-
klúbbnum í kvöld, og hefst sam-
koman klukkan hálfníu.
Hákon Bjarnason skógræktar-
sijóri mun sýna litmyndir frá
Alaska og víðar, og Gunnar Eyjólfs
son leikari skemmtir.
Skógræktarfélagið væntir þess,
•að fólk fjölmenni á þennan
skemmtifund sinn.
Hann heitir aðeins Baltasar,
spánskur aS þjóðerni og sýnir
teikningar í Mocca-kaffi á
Skólavörðustíg. Hann var í
fylgd með bróður sínum, Joan
en þeir hafa undanfarið verið
á heimshornaflakki og hafa
nú borið niður á íslandi.
Baltasar, sem er 23 ára að aldri,
lízt svo ljómandi á sig hér á landi
að hann er staðráðinn í að setjast
að hér ævilangt. „Það sem Spánn
er fyrir Salvador Dali, það er ís-
ik-nd fyrir mér“, segir Baltasar við
blaðamenn. Joan, bróðir hans, sem
er tveimur árum yngri, er þó
ekki á því að setjast hér að, hann
vill sjá meira af heiminum, áður
en hann snýr sér að helzta áhuga-
niáli sínu: skáldskapnum.
Höfðað ti! hjartans
Baltasar sýnir í Mocca allmarg-
ar svaitkrítarteikningar, manna-'
myndir, götumyndir úr Reykjavík:
og nautaat á Spáni. Hann hefur;
ekki' gleymt heimalandi sínu, þótt j
I hann hafi hrifizt af íslandi. Hann
j segist fara sfnar eigin götur í
myndlistinni og fylgir engum stefn i
i um, abstrakt-list á ekki upp á pall,
iborðið hjá honum, að því er hann i
isegir. Hann höfðar til hjartansl
meira en heilans og segir, að það
eigi betur við skapsmuni suð- \
rænna þjóða. Hann túlkar viðfang^ j
cfni sín með sterkum einföldum
dráttum, * myndum hans er líf og
hreyfing fremur en köld athugun.
Það kæmi ekki á óvart, að fólki
þætti gaman að sjá, hvernig blóð
heitur Spánverji túlkar kaldrana-
lega fegurð íslenzkrar náttúru. En
Baltasar hefur einmitt í hyggju
að ferðast um landið strax og
færi gefst. Hann kann vel við ís
lendinga — segir, að þetta sé
fólk með hjartað á réttum stað.
í
\