Tíminn - 17.03.1961, Side 3

Tíminn - 17.03.1961, Side 3
TÍMINN, föstudagLan 17»«iara 1961. 9 Suður-Afríka dæmdi sig úr samveldinu Engir lýsa vonbrigðum nema MacMillan. en mikii ólga er í SuSur-Afríku London 16. 3. (NTB). Þeir at- burðir hafa gerzt, að Suður-Af ríka hefur lýst yfir því að hún muni ekki óska eftir aðild að brezka samveldinu eftir að land ið verður lýðveldi, 31. maí n.k. Forsætisráðherra stjórnar Suður Afríku, dr. Henrik Vervoerd, skýrði frá þessu á ráðstefnu for- sætisráðherra samveldisland- anna, en hún hefur staðið yfir í Lundúnum að undanfömu. Á- stæðan til þessa er sú, að önn- ur samveldislönd hafa lýst yfir megnustu óbeit sinni á stefnu stjómar Suður-Afríku í kyn þáttamálunum. Reyndi MacMill an forsætisráðherra Breta, að miðla málum í þessu efni, þann ig að Suður-Afríka gæti verið áfram í samveldinu enda þótt kynþáttastefnu stjómar lands- ins yrði mótmælt. í dag tilkynnti dr. Vervoerd Elisa- betu drottningu ákvörðun sína, en hún hefur þegar haft víðtæk áhrif fjárhagslega og stjómmálalega. Þá var það einnig kunngert í dag, að dr. Verwoerd hafi hætt við fyrir- hugaða heimsökn sína tH Frakklands og Þýzkalands að ráðstefnunni lok- inni. Forsætisráðherrann telur nauð synlegt að halda beinustu leið heim. Talið er fullvíst, að dr. Verwoerd muni ávarpa þjóð sína frá Lundún- um annað kvöld. náðist um eftirfarandi atriði í Kongó. Stuðning við aðgerðir S. Þ. í land- inu. Þingið í Leopoldville verði kall- að saman og her Móbútó endurskipu lagður. í sambandi við umræður um fram tíð S. Þ. hafa komið fram kröfur um að ýmsar nefndir samtakanna verði endurskipulagðar, s.s. Öryggisráðið, með það fyrir augum, að hin nýju ríki fái meiri áhrif á gang mála þar. MacMillan, forsætisráðherra Breta flutti ræðu á brezka þinginu í dag um ákvörðun stjórnar Suður-Afriku og kvaðst harma það, að hálfrar aldar samband landsins við brezka samveldið væri úr sögunni og kvaðst vona, að þau yrðu fyrr en síðar tekin upp að nýju. Forsætisráðherrann kvaðst vona, að Suður-Afríka myndi áfram vinna með samveldinu, þótt landið væri ekki formlegur aðili að því. Gaitskell, foringi stjórnarandstöð- unnar, sagði, að margir litu svo á, að með úrsögn Suður-Afríku væri brezka samveldið að liðast í sundur. Það er misskilningur sagði Gaitskell. Þetta staðfestir aðeins, að brezka samveldið hefur mannréttindi í heiðri. Suður-Afríka er velkomin í samveldið að nýju, en fyrst verður að breyta kynþáttastefnunni í Suður Afriku. Mikil ólga er í Suður-Afríku vegna ákvörðunar stjórnarinnar. Stjórnar- andstaðan krefst þjóðaratkvæðis og er talið, áð stjórnin myndi bíða lægri hlut í henni í þessu máli enda þótt hún myndi ekki tapa þingkosn- ingum. Stjórparandstaðan segir, að með ákvörðuninni um úrsögn úr brezka samveldinu rói nú Suður-Af- ríka vinalaus ein á báti. Belgar sýknaðir í Rúanda-Urundi En mikil ólga í landinu og meira eftirlit S.Þ. nauftsyn TJndirtektir misjafnar Sir Eoy Velensky forsætisráðherra Mið-Afrikusambandsins sagði, að á- kvörðun stjórnar Suður-Afríku að draga sig út úr samveldinu væri til komin vegna baráttu foringja innan samveldisins við draug. Sir Velensky sagði, að menn væru á móti kyn- þáttamismunun, en hér væri um inn anríkismál Suður-Afríku að ræða og hætt væri við, að öll samveldislönd- in hefðu eitthvað óhreint í pokahorn- inu, ef vel væri að gáð. Annars eru skoðanir mjög skiptar innan samveldisins um ákvörðun stjórnar Suður-Afríku. Sir Edgar Vhitehead, forsætisráðherra í Suður Rhódesíu, sagði, að hann væri sam- mála dr. Verwoerd um það, að sam- veldið færi nú villur vegar. Talið er, að ákvörðunin verði til þess, að þjappa hvítum mönnum í Suður- Rhodesíu enn meir um foringja sína. Forsætisráðherra Tanganyika, Jul- ius Nyerere, sagði, að ákvörðun stjórnar Suður-Afríku væru góðar fréttir og Sir Abukabar Balewa, for- sætisráðherra Nigeríu, tók mjög svo í sama streng. Talsmaður Nehru, for- sætisráðherra Indlands, sagði, að Nehru teldi þessi tíðindi gleðileg. Hin sömu voru viðbrögð Tom Mboya, foringja þjóðernishreyfingarinpar í | Kenya. Hann sagði, að nú yrði hert á baráttunni gegn Suður-Afríku, er j nú tæki sæti á bekk með öðrum of- beldisríkjum. Aukin áhrif nýju ríkjanna hjá S. Þ. Ráðstefnu forsætisráðherranna var annars áfram haldið í Lundúnum í dag og rætt m.a. um ástandið í Kongó, afvopnun og framtíð S. Þ. Dr. Verwoerd sat þennan fund og tók af og til til máls — sérstaklega þegar rætt var um Kongó. Jafnframt greiddi forsætisráðherran atkvæði j með því, að Sierra Leone verði aðili að brezka samveldinu, er það gerizt Jýðveldi 27. apríl n.k Yrði það þá 13 ríkið í samveldinu, en Kýpúr var á þessari ráðstefnu formlega sam- þykkt í samveldið. Fréttamönnum ber saman um, að umræðurnar á ráðstefnunni hafi nú fengið allt annan svip eftir ákvörðun stjórnar Suður-Afríku. Samkomulag N®» York 16, 3. (NTB). Nefn S. Þ., er rannsakað hefur ástand ið í Rúanda Úrúndi, s em er verndargæzlusvæði Belga, hefur sent samtökunum skýrslu, þar sem segir, að nefndin hafi ekki fengið neinar sönnur á því, að Belgir noti þetta verndargæzlu- svæði sem hernaðarmiðstöð. Segja nefndarmenn, að þeir geti ekki afsannað þá fullyrðingu Belga, að þeir hafi ekki nema 1200 hermenn í Iandinu, sem sé óhjákvæmilegur fjöldi til þess að halda uppi iögum og reglu. Rannsóknarnefnd þessi tók til starfa 27. janúar s. 1. og lauk störf- um 13. febrúar s. 1. Formaður nefnd arinnar er frá Haiti en aðrir nefnd- armenn frá Iran og Tógó. Nefndar- menn segja, að Belgar noti her sinn eingöngu til þess að halda uppi lög- um og reglu. \ Ýmislegt að athuga Hins vegar bendir nefndin á, að mýKlTsifenna sé í landinu í sambandi vtð kosningar, sem þar eiga að fara £ram í sumar undir eftirliti S. Þ. Segja nefndarmenn, að nauðsynlegt sé, að eftirlitsmenn með kosnlngun- um verði fleiri en gert er ráð fyrir. Nefndarmenn segja og, að kosninga lögin séu óljós í mörgum atriðum og nauðsynlegt sé, að S. Þ. athugi þau gaumgœfilega, svo að hið sanna komi örugglega fram í kosningun- um. Nefndarmenn iýsa ýmusm vand- kvæðum við rannsókn sína. Segja þeir, að það hafi ekki bætt úr skák, að 28. janúar hafi Gitramas nokkur gert stjórnarbyltingu, lýst landið iýð veldi og rekið Klgell einræðisherra frá völdum. Stingur nefndin upp á þvi, að þjóðin fái að segja álit sitt um örlög einræðisherrans um leið og hún velur sér þingmenn. Nefndarmenn harma óvild í garð S. Þ. og þekkingarjeysi um samtök- in og telja athugandi að koma á fót upplýsingaþjónustu í iandinu. Flugfélagiö eykur fSugvélakost sinn Ný Cloudmasterflugvél í vændum hjá Flugfélagi íslands Innanlandsflug lá að kalla alveg niðri í gærdag vegna \ eðurs. Hríðarveður var á víð- ast, og töluverð úrkoma var sums staðar fyrir norðan og austan. Voru allir flugve'ur landsins iokaðir nema Reykia- víkurflugvöllur og ef til vill Keflavíkurflugvöllur. í gærmorgun Iagði Dakotafiug- vél frá Flugfélagi íslands af stað í venjulegt áætlunarflug til Akur- eyrar. Flaug hún norður þangað, en ekki var lendandi og sneri hún því aftur með farþegana. Tókst vélinni síðau að lenda á Sauðár- króki, og þar var hún enn veður- teppt, er síðast fréttist. Um annað flug var ekki að ræða inanlands. Áætlunarflugið milii landa mun hins vegar ekki hafa tafizt af veðri. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, tekur á mótl Nkruma, forsætisráðherra Ghana. Bandarikin styðja rannsókn í Angóla S.Þ. ámimiir Suður-Afríki? New York 16. 3. (NTB). AIls- herjarþing S. Þ. samþykkti á fundi sínum í dag að skora á brezku samveldisríkin, að beita áhrifum sínum til þess að fá Suður-Afríku til þess að breyta stefnu sinni í kynþáttamálum. Formlega er þessari áskorun þó ekki beint til brezku samveldis- landanna einvörffungu, heldur til allra landa, sem sé í nánu sambandi við stjórn Suffur-Af ríku á einhvern hátt. 74 ríki greiddu tillögu þessari atkvæði, en 9 sátu hjá. Fulltrúi Suður-Af ríku svaraði ekki, er hann skyldi grciða atkvæði. í ályktun allsherjarþingsins er sagt m.a., að Suður-Afríka framfylgi stefnu, sem brjóti í bága við grund- vallaratriði S. Þ. Það er harmað, að Suður-Afríkustjórn skuli hafa bann- að rannsóknarnefnd frá S. Þ. að kynna sér ástandið í Suðvestur-Af- ríkusambandinu, sem er verndar- gæzlusvæði Suður-Afríku. Harmað er að Suður-Afríka skuli reyna að’ inn- lima þetta svæði og hafi látið fara þar fram kosningar í fýrra, sem sóu hreinasta markleysa, þar eð aðeins hvítir menn hafi haft atkvæðisrétt. Öllu þessu segjast S. Þ. ekki geta unað lengur. ins um Kongó í þessari viku. Segir fulltrúinn, að ástandið í landinu sé alvarlegt og fyrri tillögur Öryggis ráðsins séu hundsaðar og reynt að skipta iandinu að skipunum er- ■)endra afia. Nefnd til að dæma hæfni umsækjenda um prófessorsemb- ættið i íslandssögu Skipuð hefur verið dóm- riefnd t.il þess að dæma um hæfni umsækjenda um próf- essorsemóætti í sögu við heim- spekideild Háskóla íslands í nefndinni eiga sæti: dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, Breytt afstaffa Bandaríkjanna Allsherjarþingið hefur rætt á- standið í portúgölsku nýlendunni Angóla að tillögu Líberíu og Ara- bíska sambandslýðveldisins. Sam- þykkt var að stofna nefnd, er kynnti sér ástandið í nýlendunni. Það vakti athygli, að Adlai Steven son, fulltrúi Bandaríkjanna, studdi j tillöguna um rannsóknarnefndina. ’ Kvað Stevenson nauðsynlegt, að! Portúgalir væru áminntir um það i hlutvcrk sitt að búa nýlenduna und- j ir að taka við sjálfstæði svo fljótt; sem verða mætti. Þykir þessi af- j staða enn ^löggur vottur um stefnu breytingu þá, sem orðið hefur í Bandaríkjunum eftir stjórnarskiptin, Fulltrúi Sovétríkjanna hjá S. Þ, hefur krafizt fundar allsherjarþings- prófessor, af hálfu heimspeki deildar, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar, dr. Kristján Eldjárn, þjóðminja- vörður, af hálfu háskólaráðs, og Finnur Sigmundsson lands bókavörður, skipaður af menntamálaráðuneytinu. Sex umsóknir bárust um embættíð, en einn umsækj- enda, Gunnar Finnbogason, cand. mag., hefur tekið um- sókn sina aftur. (Frá menntamála- ráðuneytinu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.