Tíminn - 09.04.1961, Qupperneq 3

Tíminn - 09.04.1961, Qupperneq 3
3 TÉMINN, sunmudaginn 9. aprffl 1961. Eining leiðin til að stand- ast framsókn kommimismans sagði Macsnillan í stórmerkri ræðu vestan hafs ImTB—Boston og Washington 8. apríl. í gær gerði Macmillan for- sætisráðherra eins dags hlá á viðræðum sínum við Kennedy Bandaríkjaforseta til þess að fara til Cambridge í ríklnu Massachusetts að halda ræðu við hátíðahöld í tilefni af 100 ára afmæli tækniháskólans Massachusetts Institute of Technology. Ræða hans er af ýmsum talin merkilegasta iæða um alþjóðastjórnmáiin, sem haldin hefur verið af for- ystumanni stórveldis hin síð- ari ár. Sagt er, að Macmillan hafi boríð ræðu sína undir Kennedy forseta, og hafi hann fallizt á hana, í dag lýkur við- ræðum Macmillans og Kerrn- edys í Washington MacMillan sagði, að samtök vestrænna þjóða hefðu staðizt á- tökin við kommúnistaheiminn nokkuð vel síðustu þrjú árin, en ekki nógu vel. Sovétheimurinn væri •sifellt að verða öflugri, og áhyggjur þeirra rikja, sem ekki vildu standa með honum væru sí- fellt að aukast. Skipulag vest- rænna samtaka, sem væru kjarni mótstöðu hinna andkommúnist- ísku ríkja, hefði ekki styrkzt, hvorki á sviði landvarna, efna- hagsmála eða stjómmálanna. Þetta skipulag og samvi'nnan á stjórnmálasviðinu yrði að bátna og aukast, annars yrði um eftir- gjöf að ræða við kommúnismann. Frammi fyrir þessari kröfu stæðu vestrænar þjóðir í dag, Eining í framtíð Forsætisráðherrann lagði áherzlu á, að vesturveldin yrðu að skapa sterkari einingu og samstarf inn an Atlantshafsbandalagsins. „í fyrri heimsóknum mínum til Bandaríkjanna hef ég talað um að ríkin hlytu að treysta hvert öðru og vera hvert öðru háð (interde- pendence)“, sagði MacMillan. „í dag er þetta hugtak úrelt. Þetta er ekki nóg .Við þörfnumst ein- ingar meiri en áður hefur þekkzt, einingar um markmiðið, aðferð- ina og skipulag baráttunnar". Kjarnorkuvopnin Hann ræddi herbúnaðarmál og þann ugg, sem vart verður hjá ýms um Evrópuþjóðum vegna þess, að kjarnorkuvopn séu í höndum Breta og Bandaríkjamanna einna af vestrænum þjóðum. Taldi hann að veita yrði þeim þjóðum, sem ekki hefðu slík vopn, hlut- deild í ráðum yfir þeim, þó þann ig, að ekki yrði til máttlausrar stjórnar. Annars vildi hann leggja höfuðáherzlu á venjulegan víg- búnað með kjarnorkustyrk Breta og Bandaríkjamanna á bak við. Tónleikar Pólýfón- kórsins í Kristskirkju Macmillan: Við þörfnumst einingar um markið, aðferðina og skipulagið. Baráttan á efnahagssviðinu En sem betur færi, ætti aflraun austur og vesturs sér ekki stað á sviði hermálanna fyrst og fremst heldur efnahagsmálanna. Barátta framtíðarinnar yrði hág fyrst og fremst á mörkuðunum og ef til vill einnig í skólastofunni. Á þess um vettvangi væri vandinn þrí- þættur fyrst og fremst: hvernig hægt væri að auka heimsverzlun 1 ina, hvernig bezt yrði skipulögð j hjálp og fjárframlög til skammt ! kominna ríkja og hvemig hægt | væri að tryggja sífelldan fram- . vöxt verzlunar og hjálparstarf- semi, þar sem yfirstjórn fjármála vesturlanda væri nú tvístruð, göm ul og úrelt. Peningarnir yrðu að verða þjónar mannsins en ekki herrar hans. Stjórn fjármálanna yrði að sameina að einhverju leyti Afar mikilsvert taldi Mac- Millán einnig að sameina mark- aðsbandalögin tvö í Evrópu. — Viðræðum Macmillans og Kenne dys lýkur í dag í Washington, og munu þeir þá gefa út um þær sam eiginlega tilkynningu. í kvöld klukkan níu heldur Pólýfónkórinn tónleika í Kristskirkju í Landakoti. Flvitt verða verk eftir tónskáldin Buxtehude fyrirrennara Bachs og Hugo Distler, og hef- ur ekkerí beirra verið flutt áð- ur af ísienzkum kór. — h>á hyggur kórinn á utanferð á utanferð á næsta sumri og tekur þátt í alþjóðlegri söng- stefnu í Wales. Buxtehude og Bach Eftir Buxtehude, fyrirrennara Bachs, flytur kórinn Magnificat an- ima mea fyrir 5 radda kór, strok- hljóðfæri og sembaló. Þar kemur fram strokkvartett Musica Nova. Þá flytur kórinn sálmaforleik, mótettu og fúgu eftir Johan Sebastian Bach, einleikari á orgel er Haukur Guð- laugsson. Þetta er í fyrsta sjnn, sem Haukur kemur opinberlega fram 1 heimalandi sínu, en hann lauk námi við Tónlistarháskólann í Hamborg. Hefur hann haldið eina tónleika þar í borg við góðan orðstír og þykir með efnilegustu orgelleikurum. Dauðadansinn Loks flytur Pólýfónkórjnn Dauða- í kvöld klukkan 9. dansinn úr Geistliche Chormusik eft ir Hugo Distler. Verkið er samið fyrir blandaðan kór og tal og ann- ast Lárus Pálsson leikari framsögn textans. Hjörtur Kristmundsson hef ur þýtt hann á snjalla og þróttmikla íslenzku. Textjnn er frá 15. öld en færður til nútímamáls. Söngtextinn er úr Der Cherubinische Wander- man eftir lækninn og skáldið Ange- lus Silesius og verður sungið á frum málinu. — Hugo Distler hóf feril sjnn sem tónskáld 22 ára gamall og hófst til álits og metorða, varð pró- fessor við Tónlistarháskólann í Ber- lín en andaðist aðeins 33 ára að aldri, árið 1942. Alþjóðleg söngstefna Pólýfónkórinn flytur 6 tónleika alls og verður hinn síðasti þeirra fyrjr almenning, en hinir fyrir styrktarfé- laga, sem eru orðnir um 1100 að tölu. — Eins og áður segir hyggur kórinn á utanför í sumar og tekur þátt í alþjóðlegri söngstefnu í Llang ollen í Wales. Er hér um samkeppn- ismót að ræða, all fjölsótt, og lætur nærri að alls konar kórar frá 40 löndum taki þátt í því og er keppt í söng, dansi, hljóðfæraleik o. fl. Síðast voru um 200 þúsund áheyr- endur að mótinu. ÖUum hjólunum stolið! í fyrrinótt voru bíræfnir þjófar á ferð inni í Laugarnesi. Fyrir ut- an bifreiðaverkstæði á Laugarnes- tr.nga stóð varnarliðsbíll af Nash- gerð, VL—E 2094, og hafði staðið um inánaðartíma til viðgeröar Öllum dekKjum var stolið undan bíinum og felgunum líka, svo vart \erður haan ferðafær á næstunni. Eru þeir, sem einhver deili kynnu atf vita á verknaði þessum, vin- samlegast beðnir að gera rann- sóknarlögreglunni aðvart. Sjóherinn tekur við stöðvunum á íslandi í samræmi við fyrirhugaða ytir- töku flota Bandaríkjanna á varnar- stöðvum á Jslandi, sem áður voru í höndum ílughers Bandaríkjanna mun Robarf B. Moore sjóliðsfor- ingi, yfirmaður framvarðasve,ta flota Banda íkjanna á Atlantshuii taka við yfirstjcrn varnarliðsins á ísiandi af i' enjamin G. Willis hers- iiöfðingja í íúlímánuði 1961. Jain fiamt muTi Moore sjóliðsforingi flytja aðaiscöðvar sínar til íslands. Gert er ráð fyrir að flotinn hafi að íullu tekið við varnarstöðvunum 1. júlí 1962. Þriðji bruninn á Akureyri í gærmorgun á 9. tímanum kviknaði í lítilli veitingastofu á Akureyri. Hét veitingastofan Hressingarskálinn og var í Strandgötu 13 b. VarS þarna mikill eldur og reykur. Slökkvi- liðinu tókst þó fljótlega að slökkva eldínn, en skemmdir urðu miklar af reyk og vatni. Talið er sennilect að í hafi kviknað út frá olíukyndingu. J. S. Einkennilegt flugslys: Sprengjuþota skotin til jaröar af slysni Washington, 8. apríl. Einkennilegt slys varð í lofti yfir Nýju Mexíkó í dag. Tröll- aukin sprengjuþofa af gerð- inni DS2, en slíkar þotur mynda kjarnann í loftvörnum Bandaríkjanna, var skotin nið- ur af orrustuþotu, er báðar vélarnar voru að æfa bardaga snilli í ioftinu. Fimm menn fórust af átta manna áhöfn sprengjuflugvélarinnar. Þotur af gerðinni D52 geta bor- ið vetnissprengjur um óravegu og eru mjög hraðskreiðar. Flugmenn ori'ustuþotunnar höfðu gert fimm hríðir að ferlikinu til þess að æfa sig í árásarsnilldinni en flugmenn sprengjuflugvélarinnar í vörnum, og bar ekkert sérstakt til tíðinda. En í sjöttu atlögunni losnaði af einhverjum orsökum Sidewinder- skeyti undan væng orrustuþotunn- ar, og þá var ekki að sökum að spyrja, því að þessi skeyti eru með þeim ósköpum gerð að þau leita sjálf uppi skotmarkið og missa þess ekki. Var í dag ekki ljóst, hvernig á þessu hefur staðið. Ástæðurnar geta bæði verið mann- legar, þ. e. mistök þeirra, sem hleyptu af skotunum, eða vélrænar og hefur þá eitthvað bilað í vopna búnaðinum. Þrír björguðust Æfingar þessar fóru fram yfir miklum fjöllum. Þrír af áhöfninni Mörg hundr uðfyrirborð London 8. apríl. í morgun kviknaði í brezku flutningaskipi, Dara að nafni, er það var á leið um Persaflóa til indverskrar hafnar. Gerðist þetta í þrumuveðri. Eftir há- degið í dag var ekki vitað um, hversu margir myndu hafa farizt. Allir farþegar og áhöfn urðu þegar í scað að yfirgefa skipið. Áhöfnin ?ar 137 menn. en auk þeirra voru á skipinu a.m.k. 560 Irdverjar, : em voru þilfarsfarþeg- ar til lanó.s síns. Fjögur sKip, þeirra á meðal brezk herskip, voru komin til bjargar slðdegis í dag, og vitað var um um það bil fjörar hundruð manna, sém þannig höfðu bjargazt. komust úr sprengjuflugvélinni og svifu til jarðar í fallhlífum, og var þeim síðan bjargað úr torkleifum hamrahlíðum með þyrilflugum. Liggja þeir nú í sjúkrahúsi nokk- uð lemstraðir. Félagar þeirra fór- ust allir fimm, en sprengjuþotan steyptist til jarðar. Kapteinslausa iierskipið farið NTB—Visby 8. apríl. Sovézka kafbátabirgðaskip- ið, sem kom til hafnar á Got- landi í gær, lét í haf aftur í dag eftir hádegið, og var flota- málafulltrúi rússneska sendi- ráðsins í Stokkhólmi tekinn við skipstjórninni í stað lithau- iska sjóliðsforingjans, sem í gær notiærði sér skipstjóra- vald sitt til þess að komast í land á Gotlandi og biðiast hælis sem pólitískur flótta- maður. Sænskt herskip fylgdi hinu rúss neska út að landhelgismörkunum, en þar afhenti sænski skipstjór- inn hinum rússneska lykilinn að vopnaskemmu skips síns, en strok kapteinninn hafði læst vopnin inni og haft með sér lykil þennan í vasanum, er hann stakk af í land til þess að biðjast hælis sem p&Ji tízkur flóttamaður. Afhopparar Strok af skipum frá austanjárn tjaldslöndunum við strendur Norðurlanda hafa verið alltíð um mörg undanfarin ár, og kalla Skandínavar slíka menn afhopp- ara. Einna tíðust voru slík afhopp lengstum við dönsku eyna Borg- undarhólm, þar sem sjómenn á bátum frá Eystrasaltslöndunum stukku fyrir borð og syntu til lands upp á líf og dauða. Urðu stundum harðir og sögulegir elt- ingaleikir við slík tækifæri, og stundum gáfust menn upp og voru ■slæddir upp í svoétsælu sfna á nýj an leik við lítinn orðstír. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.