Tíminn - 15.06.1961, Side 4
4
T í MI.N.N, finimíudagimi, 15. júnít1961.
,*v*v*v*v»%*
Lárus Jónsson:
landb unaðarmál
Grænfóöurjurtir
Nýlega gat ég þess, að fljót-
l'ega yrði í þáttum þessum
rætt um ræktun fóðurkáls. Síð-
an hefur Jónas Jónsson kenn-
ari á Hvanneyri sent mér tvær
norskar greinar, sem fjalla um
nýja grænfóðurjurt — fóður-
raps. Þakka ég Jónasi hugul-
semina. Einnig hefur mér bor-
izt nýlega í hendur skýrsla um
tilraunir með ræktun á næpu
í Norður-Svíþjóð, til grænfóð-
urs. Gengur næpan undir ýms-
um nöfnum í Skandinavíu, s. s.
silonepe í Noregi, blastrova í
Svíþjóð o. fl. Ég hygg að fóður-
næpa sé nokkuð gott orð og
mun halda mig við það.
Ég hef hoffið að því ráði að
freista þess að gera stuttlega
grein fyrir þessum þrem græn-
fóðurjurtuim í einum þætti.
Raps, sem er náskyldur gul-
rófu, er venjulega ræktaður til
þess að vinna feiti úr fræjum
hans. Eru af honum til afbrigði
ýmist vorsáð eða haustsáð. Hið
haustsáða koma upp að haust-
inu, mynda fáein blöð og yfir-
vetra þannig, er vorar, tekur
rapsinn að vaxa og myndar fræ.
Vorsáðu afbrigðin vaxa hraðar
og þroska fræ samsumar’s.
Póðurrapsinn er haustaf-
brigði, sérstaklega kynbætt
með það fyrir augum að gefa
mikinn blaðvöxt.
Fóðurrapsinn vex mjög hratt
fyrri hluta vaxtarskeiðsins en
hægar, þegar á líður. Þetta ger-
ir, að hann nýtir mjög vel stutt
yaxtarskeið. Norskar tilraunir
sýna að rneð aldrinum minnkar
hráeggjahvítuinnihaldið ört og
um 100 dögum eftir sáningu er
það um 10—12%. Þurrefni og
sykurinnihald eykst aftur á
móti. Þess vegna verkast betur
í vothey, ef rapsinn er ekki
mjög ungur'. Norðmenn telja
fullnægjandi í Austur-Noregi
að sá í júlí eða jafnvel ágúst-
byrjun og fá þó góða uppskeru.
Hafa sænskar og norskar at-
huganir sýnt, að af rapsi með
17% tréni þarf 1,2—1,4 kg.
þurrefni í fóðureiningu. Hinar
norsku tilraunir sýna, að sé
vaxtartíminn skemmri en þrír
mánuðir, gefur rapsinn meiri
uppskeru en fóðurmergkál, en
er ekki samkeppnisfært við fóð
urnæpu. Fóðurkálið vex hægar
í byrjun en sækir sig síðan.
Fóðurnæpan er einnig ná-
skyld gulrófum og öðrum kál-
jur'tum. Eins og aðrar næpur
safnar hún forða í rót sína. Upp
haflega var hún valin með til-
liti til þess að gefa sem allra
mestan blaðvöxt, þar af sænska
nafnið blastrova. Nú er fóður-
næpan reyndar hvaða afbrigði
af næpu, sem vera s-kal; eða
öllu heldur það afbrigðið, sem
á hverjum stað gefur mesta
uppskeru, kál og rót samanjagt.
Mismunandi afbrigði erij
mismunandi hraðvaxin. Þannig
er eitt (Svalöfs fóðurnæpa),
seni gefur nær fulla uppskeru
á tveim til þrem mánuðum, en
önnur þurfa mun lengri vaxtar-
tíma. Að sjálfsögðu verður ekki
að óreyndu sagt, hvaða stofn
henti bezt hér, en næpan virð-
ist eftir þessum skandinavisku
tilraunum að dæma vera mjög
uppskerúmikil.
Mismunandi afbrigði hafa og
mismunandi lögun og vaxtar-
máta. Að sjálfsögðu er minni
vinna að taka upp næpu, sem
vex flöt ofan jarðar en aðra,
sem er djúpt niðri.
Fóðurkálið er einnig af sömu
ætt og hinar jurtirnar tvær, er
það reyndar margs konar': fóð-
urmergjarkál og þúsundhöfða-
kál, svo að eitthvað sé nefnt. Ég
hygg, að fóðurmergjarkálið sé
einna þekktast hér á landi. All-
margir bændur hafa fengið
nokkra reynslu af því, þegar
kálið safnar forðanæringu
(mer'g) í stofninn, sem verður
mjög sver.
Norðmenn hafa borið saman
fóðurmergjarkál, raps og tún-
beit til fitunar sláturlamba að
hausti. Rapsinn reyndist bezt-
ur, en fóðurmergjarkálið reynd
ist engu betri en grasvöllurinn.
Einnig töfdu þeir þessa tilr’aun
sýna, að rapsinn orsaki minni
minnkun í hemoglobin í blóði
lambanna og kunni því að vera
heilsusamara en fóðurmergjar-
kálið.
Hvað ræktun viðkemur eru
allar þessar jurtir nokkuð svip-
aðar. Þær eru áburðar'frekar
nokkuð. Óhætt mun að fara
upp í 600—700 kg. kjama, 600
kg. þrífosfat og 650 kg. kali,
50% borax er alla jafna nauð
synlegt, ca. 15 kg. á ha.
(Framhaid á 13. síðu.)
Efsta myndin var tekin í kjallara Alþýðuhússins fyrlr skömmu. Verkfalls-
verðir ræðast við og skipuleggja gæzluna.
I Mgg
Myndin til vinstri er tekin í Vínarborg á viðræðufundi
þeirra Krustjoffs og Kennedys. Með þeim á myndinni er
Gromykó, utanríkisráðherra Sovétríkjanna.
Lesendur iaðsins eiga að ráða gátuna um myndina hér fyrir neðan: Af
hverju er myndin og hvenær er þpn tekin?
.
... .AS