Tíminn - 15.06.1961, Blaðsíða 5
TÍMINN, fimmtudaginn 15. júní 1961.
Otgefandi: PRAMSOKNARFlOKKURINN
FramKvaemdastjóri: Tómas Amason Rit
stjórar ÞórarinD ÞórarmssoD (áb.j. Andrés
Kristjansson, Jód Helgason Fulltrúi rit-
stjórnar- Tómas Karlsson Auglýsmga
stjórt: EgiB 8jamason - SKrifstofur
1 Edduhúsmu — Slmar- 183UO- 18305
Auglýsmgasimi 19523 Afgreiðslusimi:
12323 — Prentsmiðjan Edda hi
Strandkapteinn nr. 2
Alþýðuflokkurinn hélt fund í Revkjavík í fyrrakvöld.
Aðsóknin var slík, að Alþýðublaðið veigrar sér við að
segja frá því, að hann hafi verið vel sóttur. Blaðið hefur
þó ekki kallað allt ömmu sína í þeim efnum.
Alþýðublaðið segir hins vegar frá því, að Emil Jónsson
hafi haldið ræðu á þessum fundi, og þar hafi hann lagt
áherzlu á, að Framsóknarflokkurinn bæri ábyrgð á þeirri
kauphækkunarbylgju, sem nú væri hafin.
Þetta var alveg það, sem búast mátti við af Emil. Litlir
karlar kenna jafnan öðrum um það, sem þeir eru valdir
að sjálfir.
Engar blekkingar munu hins vegar fá dulið þær or-
sakir, sem valda þessari kauphækkunarbylgju.
Fyrri orsökin er sú, að með „viðreisninni" hefur ríkis-
stjórnin skert kaupmátt verkamannalauna um 15—20%.
Önnur orsökin er sú, að ríkisstjórnin hefur neitað
launþegum um kjarabætur í öllu öðru formi en kaup-
hækkun.
Þetta tvennt hafði leitt til þess, að hér hafa hafizt al-
mennari verkföll en nokkuru sinni fyrr og síðar.
Þegar út í slíkt óefni var komið, lét ríkisstjórnin bjóða
6% kauphækkun strax; 4% til viðbótar eftir eitt ár og
aftur 3% eftir tvö ár, samtals 13% á tveimur árum. Þetta
var fellt, enda hafði ríkisstjórnin lagt blessun sína yfir
14.9% kauphækkun í Vestmannaeyjum á síðastl. vetri.
Þegar svo var komið, að þetta tilboð hafði verið fellt,
stóð ríkisstjórnin ráðalaus uppi eins og illa gerð þvara.
Nær allt atvinnulíf í landinu var stöðvað og horfur á, að
svo gæti orðið vikum saman.
Það var fyrst eftir að ríkisstjórnin var þannig búin
að sigla öllu í strand með kreppustefnu sinni og ráðaleysi,
að samvinnufélögin skárust í leikinn og náðu samkomu-
lagi við verkalýðsfélögin, sem var mun hagkvæmara fyrir
atvinnuvegina en það, sem atvinnurekendur í Vestmanna-
eyjum gerðu á síðastl. vetri með fullu samþykki ríkis-
stjórnarinnar og Vinnuveitendasambands íslands.
Þetta samkomulag mun tryggja það, að framleiðslan
mun hefjast af fullum krafti að nýju. Síldarfréttirnar að
norðan benda til þess, að þar muni miklum fjármunum
mokað upp úr sjónum næstu vikur í stað þess, að skipin
hefðu verið bundin við hafnarbakka og verksmiðjur stöðv-
aðar, ef verkföllin hefðu haldið áfram.
Og enginn mun þora að fullyrða, að samið hefði verið
um minni hækkanir, þegar verkföllin hefðu loksins verið
leyst. En þjóðin hefði getað verið búin að tapa hundruð-
um milljóna.
Svo kemur strandkapteinninn úr Hafnarfirði, sem er
nú kallaður strandkapteinn nr. 2, — því að fyrsta sætinu
heldur Ólafur Thors enn — og hyggst skella allri skuld
af strandinu á björgunarmennina. Óþarft er að rifja upp
það álit, sem íslenzka þjóðin hefur haft á þeim, er þannig
hafa reynzt björgunarmönnum. Ótrúlegt er, að þjóðin
hafi breytt nokkuð um álit á þess konar fólki.
Fordæmíð í Eyjum
Ríkisstjórnin lagði blessun sína yfir það, að Vest-
mannaeyingar sömdu um 14,9% kauphækkun í vetur,
en almenn 14,9% kauphækkun eykur útgjöld atvinnu-
veganna um 450 millj. kr., samkv útreikningi Mbl.
Gat ríkisstjórnin búizt við því, að aðrir landsmenn
sættu sig við minna en Vestmannaéyingar? Var hægt að
halda uppi langvinnum verkföllurn til að neita öðrum
um það, sem búið var að veita Vestmannaeyingum?
V»'V»V*V«V*V*V»V*V»V»V«X.»,V»V»%»V»X»V»%»V»V»Vi.»V‘,V*V*X*V»V*V»V»V»V*V'V'V*V*V*‘\.*V»‘
/
i Nokkur dæmi um talna-
| biekkingar ríkisstjórnarinnar
'/
't
‘/
'/
/
/
'/
/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
t
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
Haft er eftir Bismarck, að
ekki væri eins auðvelt að ljúga
með neinu og tölum.
Það er bersýnilegt, að forustu
menn stjórnarflokkanna trúa
þessari kenningu. Þeir hafa allt
síðan núv. ríkisstjórn kom til
valda beitt talnablekkingum
sem meginrökum sínum.
Þegar þeir lögfestu „viðreisn-
ina“, birtu þeir útreikninga,
sem áttu að sýna, að henni
myndi ekki fylgja nein kjara-
skerðing. Um réttmæti þeirra
útreikninga getur nú hver og
einn dæmt.
Þeir töldu sig einnig hafa
reiknað það út þá, að útflutn-
ingssjóðurinn myndi verða með
120 millj. kr. halla. Reyndin
varð hins vegar sú, að hann
hafði 50—60 millj. kr. tekju-
afgang.
Þannig mætti telja upp dæm-
in frá undanförnum misserum
og mánuðum um talnablekking-
ar stjórnarliðsins.
10—11%, en ekki 18%.
Aldrei hafa þó forustumenn
stjórnarflokkanna gengið
lengra í talnablekkingum sín-
um en síðan verkföllin hófust
og samkomulag náðist milli
samvinnufélaganna og verka-
lýðsfélaganna.
Sá söngur er nú t. d. mjög
sunginn í málgögnum beggja
stjómarflokkanna, að samvinnu
félögin hafi samið um 18%
allsherjar kauphækkun, sem
svari til 540 millj. kr. árlegra
útgjalda fyrir atvinnuvegina.
Þetta er byggt á því, að 1%
allsherjar kauphækkun svari til
30 millj. kr. útgjalda fyrir at-
vinnuvegina.
í þessum útreikningum eru
tvær skekkjur, sem skipta hvor
hundruðum milljóna.
Samvinnufélögin hafa ekki
samið um nema 10—11% kaup-
hækkun, þ. e. 10% beina kaup-
hækkun og 1% í styrktarsjóð,
þar sem sú greiðsla var ekki
greidd áður, én hún var komin
á hjá mörgum félögum. Til við-
bótar koma svo 4% að ári liðnu.
Fyrir næsta ár er því ekki rétt
að reikna með nema 10—11%
kauphækkun, en ekki 18%, eins
og stjórnarblöðin gera. Hér
skakkar því strax um 210—240
millj. kr.
18%, sem ríkisstjórnin læt-
ur reikna með, eru fengin þann
ig, að látið er eins og 4%, sem
fekki bætast við fyrr en að ári
liðnu, komi strax til útborgun-
ar. Þá er hækkun eftirvinnu-
taxtans úr 50% í 60% reiknuð
sem 2% almenn kauphækkun,
en til þess þyrfti eftirvinnan
að vera tvær klst. á dag alla
daga ársins, og sjá allir hvílík
fjarstæða það er, þar sem stjórn
arstefnan er nær búin að
þurrka út alla eftirvinnu. Loks
er það reiknað sem 1% kaup-
hækkun, að verkamenn skuli
fá fæði, er þeir vinna utanbæj-
ar, en slíkt kemur ekki fyrir
nema endrum og eins og er
vitanlega fjarstæða að telja það
beina, almenna kauphækkun.
En útreikningar ríkisstjórnar-
.innar eru allir á sömu bókina
lærðir Með þessum hætti tekst
henni að gera 10—11% kaup-
hækkun að 18% kauphækkun.
Aðeins samið við þá
láglaunuðustu.
En sagan er ekki öll sögð,
þótt þegar sé búið að sýna, að
hinn 540 millj. kr. reikningur
stjórnarinnar sé ofreiknaður
um 210—240 millj. kr., þar
sem reiknað er með 18% í stað
10—11%.
Samvinnufélögin hafa nefni-
lega ekki samið um neina alls-
herjar kauphækkun, þ. e. um
kauphækkun handa öllum. Þau
hafa aðeins samið um kaup-
hækkun handa láglaunaðasta
fólkinu, verkamönnum, verka-
konum og iðnverkafólki. Kaup-
hækkun hjá þessu fólki hækkar
ekki nema lítinn hluta af kaup
greiðslum atvinnuveganna.
Þannig nemur þessi kauphækk-
un hjá öllum Dagsbrúnarmönn-
um, ef miðað er við að þeir hafi
fulla dagvinnu, ekki nema um
15 millj. kr. á ári. 10—11%
kauphækkun til þessa fólks í
öllu landinu, nemur alltaf tals-
vert innan við 100 millj. kr. á
ári.
Ríkisstjórnin reiknar hins
vegar eins og samvinnufélögin
hafi samið um að veita öllum
sömu kauphækkunina, jafnt
þeim hálaunuðustu sem hinum
láglaunuðustu. Þannig fær hún
út 540 milljónirnar, jafnframt
því sem hún reiknar með 18%
kauphækkun í stað 10—11%.
tala um gengis^ækkun í þessu
sambandi, sést bezt á því, að
4—5% kauphækkun hjá frysti-
húsunum svarar til 1% lækk-
unar á útflutningsverði. Hver
lætur sér detta gengislækkun
í hug, þótt útflutningsverðið
lækki um 1%?
Útreikningurinn á vöxtunum.
Stjórnin lætur blöð sín
hamra mjög á því, að það
myndi ekki neinu breyta, þótt
vextirnir yrðu lækkaðir um
2% eða í hið sama og þeir voru
fyrir „viðreisnina". Þau upp-
lýsa þó, að hjá viðskiptabönk-
unum einum myndi þessi lækk
un nema 70 millj. kr. Til við-
bótar kæmi svo vaxtalækkun
hjá sparisjóðum og öllum öðr-
um lánastofnunum, og svo hjá
fjárfestingarlánastofnunum.
Ekki mun fjarri lagi að áætla,
að við það gæti þessi upphæð
allt að tvöfaldazt eða numið
120—140 millj. króna.
Það getur hver og einn sagt
sér það sjálfur, hvort ekki
muni neitt um þetta, þótt stjórn
arblöðin séu látin. tönnlast á
því. Ef það er rétt reiknað hjá
ríkisstjórninni, að 1% allsherj-
ar kauphækkun svari til 30
10-11% kauphækkun reiknuð sem 18%
kauphækkun - Miklum hluta útlána
skotið undan, þegar vaxtaokrið er reikn-
að. - Hvað kostar langt verkfall?
Sannleikurinn er sá, að sam-
vinnuhreyfingin hefur aðeins
samið við þá láglaunuðustu og
samanlögð kauphækkun til þess
fólks í öllu landinu er talsvert
innan við 100 millj. kr.
Ríkisstjórnin hefur þannig
nær sexfaldað þá kauphækkun,
er samvinnufélögin hafa samið
um. Hvað finnst mönnum um
slíka útreikninga?
Aðeins 5—6% munur.
Stjórnarblöðin eru' svo látin
birta alls konar hótanir og út-
reikninga um það, að kaup-
hækkun sú, er samvinnufélögin
hafa samið um, muni leiða til
stórfelldrar veiðbólgu og geng-
islækkunar.
Á sama tíma er það svo sagt,
að miðlunartillaga sú, sem
sáttasemjari flutti, hefði ekki
haft neina verðbólgu eða geng-
islækkun í för með sér. Tillaga
sáttasemjara fjaUaði um 6%
kauphækkun strax og 4% til
viðbótar að ári. Samvinnufélög-
in hafa samið um 10—11%
kauphækkun strax og 4% til
viðbótar að ári. Munurinn er
því 4—5% í báðum tilfellunum.
Hver heilvita maður sér, að
þessi 4—5% munur þarf ekki
að valda neinni teljandi röskun.
Tillaga sáttasemjara var miðuð
við óbreytta vex{i og lánsfjár-
höft. Lagfæring á þessu tvennu
getur bætt atvinnuvegunum
þennan mun og vel það.
Þetta sést t. d. á því, að hjá
þeim fyrirtækjum, sem höllust-
um fæti standa, frystihúsum,
svarar 2% vaxtalækkun til 6—
7% kauphækkunar.
Hvílík fjarstæða það er að
millj. kr. útgjalda fyrir atvinnu
vegina, þá ætti 2% vaxtalækk-
un að jafngilda 4—5% kaup-
hækkun. Vaxtalækkunin ein
getur með öðrum orðum jjafn-
að þann mun, sem var á tillögu
sáttasemjara og því, sem sam-
vinnufélögin sömdu um.
Hvað hefði það kostað?
f öllum skrifum stjórnarblað-
anna örlar ekki fyrir minnsta
rökstuðningi fyrir því, að hægt
hefði verið að ná hagstæðari
samningum en þeim, sem sam-
vinnufélögin náðu við verka-
lýðsfélögin. Þau geta ekki fært
minnstu líkur fyrir því, að eitt-
hvað hefði áunnizt við það að
bíða, nema ef beðið hefði verið
svd lengi, að verkamenn hefðu
alveg gefizt upp, en slíkt hefði
ótrúlega orðið fyrr en eftir
margr'a mánaða verkfall.
Og hvað hefði það knstað, að
nær öll framleiðsla hefði stöðv-
azt í landinu mánuðum saman?
Árleg þjóðarframleiðsla mun
nú ekki innan við 7500 millj.
kr. eða um 150 millj. kr. á
viku. Eftir því geta menn svo
reiknað, hvað margra mánaða
allsherjarverkfall hefði kostað.
Hefði slíkt borgað sig til
þess eins að synja mönnum,
sem hafa um 4000 kr. mánaðar-
kaup, um 400 kr. kaupuppbót á
mánuði?
Og hefði slíkt ver'ið réttlátt?
Hvað finnst mönnum um ríkis-
stjórn, sem var reiðubúin að
stöðva þannig þjóðarframleiðsl-
una og eyða þjóðarauðnum í
heimskulegri styrjöld gegn lág-
launafólki og millistéttum
landsins?
/
/
)
)
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
/
'/
'/
<
/
‘/
J
/
<
<
/
/
>
/
• vx-w*v*
*V*V*V • V VV
•v*w*v*v«v*v*v*v*v*v*v»v*v*v*v*v*v»v»^