Tíminn - 01.07.1961, Síða 2

Tíminn - 01.07.1961, Síða 2
2 TÍMINN, laugardaginn 1. júlí 1961, Deilur og hark á fundi Náttúrufræðiféiagsins Amstur kynsIótSanna mliMlr NlOll Til nokkurra tíðinda dró á fundi þeirn, sem Náttúrufræði félagið og náttúruverndarráð boðaði til ( háskólanum í fyrrakvöld, þar sem hinn bandaríski náttúruverndar- frömuður, Richard H. Pough, sýndi skuggamyndir og flutti erindi um náttúruvernd vest- an hafs og sýndi litmyndir. Var tilefni deilna þeirra, sem þarna urðu, ummæli Poughs í viðtali, er birtist í Tímanum í fyrradag. Fólk var frekar fátt á fundin- um, og fór allt fram meS spekt á meðan Pogh sýndi myndir sínar og lýsti náttúrufari og náttúru- vemdarstörfum vestra. Þegar hann hafði lokið máli sínu, var mönnum gefinn kostur á að spyrja hann spurninga. Þá kvadi sér hljóðs Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri, og á- varpaði Bandaríkjamanninn. Vék hann þegar að viðtalinu í Tíman- um og las úr því glepsur á ensku. Dvaldist hann einkum við þá full- yrðingu Poughs, að ekki væri hægi að rækta nytjaskóg á fslandi, og tugmilljónum króna væri sóað í „barnalega hégilju", að ekki væri mark takandi á skýrslum út- lendra skógræktarmanna, sem gert væri heimboð, og þyrfti að fá hingað rússneska eða kandíska sérfræðinga á þessu sviði, og að skógræktarfólk vissi nauðalitið um hina fræðilegu hlið skógræktar- mála. Spurði Hákon, hvaðan Pough, ókunnugum öllum staðháttum á íslandi, hefði komið vitneskja, er bann gæti byggt á slíkar fullyrð- ingar, af svo lítilli kurteisi sem | þær væru gerðar, o.g raunar væru þær móðgun við skógræktarmenn í hans eigin landi sem og þá, sem | að skógræktarmálum starfa í því landi, sem hann nú gisti. Skírskot- aði Hákon og til þess, að hingað I hefðu þegar margsinnis komið hin I ið hinir færustu skógfræðjngar frá , Rússlandi, Kanada, Noregi, Dan- mörku og fleiri löndum og nú síð- | ast frá Chile, og gert þær athug- j anir, sem Pough taldi að gcra þyrfti, ' einmitt af sérfræðingum frá þessum sömu lönduim, og hefðu skoðanir þeirra hnigið í allt aðra átt en hans. Loks spurði Hákon Pough, hversu honum gætizt af þvi, ef út- lendingur kæmi til Bandaríkjanna og lýsti náttúruverndarstarf hans þar „barnalega hégilju“. Hark í salnum Út ar þessu spratt talsvert hark. Pough tók tvívegis til máls, og and æfði Hákoni, brýndi fyrir mönn- um gætni við barrskógarækt og áminnti þá um að hlífa hinum feg- urstu og sérkennilegustu stöðum við henni. Bein svör veitti hann þó við fæstum spurninganna, og endurtók þá Hákon sumar þeirra. Gerðist þá háreysti nokkur í saln- um, stöppuðu sumir og börðu stól- um í gólfið. Þegar hér var komið, sleit þá Eyþór Einarsson, grasafræðingur, fundi. Árekstur tveggja sjónarmiða Deilu þá, sem þarna varð, mun rnega túlka sem árekstur tveggja sjónarmiða — þeirra, sem hafa Engin veiði í fyrrinótt I gærkvöidi var komið dágott veður eftir iliviðri í fyrrinótt var nær engin síldveiði vegna hvassviðris, sem þá gekk yfir veiðisvæðið, en í fyrradag var dágóður afli framan af, þar til veður spillt- ist skömmu eftir miðjan dag. í gærkvöldi var komið dágott veður í landi, en á sjónum var enn bræla, er dró frá landi og alda var mikil. Fóru að- stæður allar þó batnandi. Engin skip höfðu enn tilkynnt afla sinn, er blaðið hafði síðast spurnir af, um kvöldverðarleytið. Mikill fjöldi skipa hafði legið inmi á Siglufirði og Raufarhöfn, en öll voru þau komin út í gær- kvöldi, og voru ekki allir sjó- menn saimmála um aðstöðuna. Sumir kölluðu ófært til veiða, en aðrir ^erðu sér vonir um að geta kastað. Mun þetta hafa verið mis- jafnt eftir því, hve langt skipin héldu sig frá landi. Aflahæstu skipin á skýrslu síld arleitarinnar yfir þau skip, sem annað hvort voru komin að landi eða höfðu tilkynnt afia sinn fyrir klukkan 8 f gærmorgun, voru þassi, en alls komu á þessum sól- arhring 33 skip með samtals 18.600 tunnur: Þorlákur ÍS 1000, Bjarni Jó- hannsson AK 850, Hagbarður ÞH 950, Hringur VE 800, Hannes lóðsj VE 800, Ólafur Tryggvason SF ’ 900, Stapafell 1200, Sæþór ÓF, 1000 og HöfrungurlAK 1000 tn. LANGUR SÖLTUNARDAGUR Söltun stóð yfir á Siglufirði í allan fyrradag fram á nótt, og í: gær var einnig saltað talsvert. Söltunin í fyrradag var 17.738 uppsaltaðar tunnur, Þrjár hæstu söltunarstöðvarnar voru Skafti Stefánsson með 1412 tunnur, Har aldur Böðvarsson með 1335 o Pólstjarnan með 1264 tunnur. Raufarhöfn var ekki söltun að ráði í gær, en þar er nú búið að salta á þriðja þúsund tumnur, mest allt á einum sólarhring, þrátt fyrir manmekluna. Stúlkur vantar þar enn tilfinmanlega til söltunar, þótt einhverjar fari þangað. Flugvél frá Flugfélagi ís lands flaug hiaðin söltunarstúlk- um á leið til Raufarhafnar og Kópaskers sidegis í gær. Meiri er þó fjölgun unglingsstráka, sem reyna sig við að salta. í fyrra- kvöld gerði mesta illindaveður með roki og rigningu og jós upp sjó. Lágu margir bátar inni á Raufarhöfn þá nótt, en í gær fóru þeir út. enda var komið sólskin og blíðskaparveður síðdegis, þótt alda væri enn mikil úti fyrir. framtíðarnytjar að meginleiðar- stjörnu — „allt, sem er nytsam- legt, er fallegt“, sagði skógræktar- stjóri — og þeirra, sem ríkast er í huga að vernda það náttúrufar, ' sem lega íslands í útsævi hefur , búið því frá fornu fari. 1 í framkvæmd verður væntan-| lega, hér sem oftar, farið bil1 beggja. Barrskógar verða ræktað- ir, en stór og smá svæði varðveitt með óbrjáluðu náttúrufari, enda nóg undanfæri á íslandi. Verða vafalaust þar á meðal ýmsir sér-, kennilegir', fagrir og sögufrægir staðir. Fer og bezt á, að menn, sem vinna af dugnaði og staðfestu að mikilvægum verkefnum, hver | á sínu sviði, finni þá leið, er allir mega vel við una. j Sjomenn í USA gera samning NTB—Washington 30. júní. í dag náðist samkomulag með fyrirvara milli bandaríska sjó- mannasambandsins, National Maritime Union, og tveggja útgerðarfélaga um að aflétta verkfalli því, sem verið hefur á bandaríska kaupskipaflotan- um síðustu vikurnar. Útgerð- arfyrirtækin tvö, sem undir- ritað hafa samninga eru, The, American Merchant Marine Institute og The Tanker Lab- our Service Committee. Samkomulag þetta er háð því skilyrði, að samkomulag náist milli atvinnurekenda og tveggja annarra sjómannafélaga. Það var formgjSitr rannsóknarnefndarinnar, sem Kennedy Bandaríkjaforseti hafði skipað, sem gaf út tilkynn- ingu um samkomulag þetta. Mun formaðurinn leggja saimningana fyrir forsetann á mánudaginn kemur. Samningur þessi gildir til fj ög-, urra ára, en aðalákvæði ahns cru þau, að kaup hækkar strax um 4%, en á næstu þremur árum hækkar kauipð til viðbótar um, 214 % árlega. skýrslu um dánarbú Ingibjargar Gísladóttur á Kirkjubóli í Norð- firði, sem dó 18. ágúst 1815. Hún var kona Vilhjálms Árnasonar, er kallaður var hinn ríki. Anmars má segja, að aðalstarf mitt hér á safninu, sé að draga saman heimildir vegna rits, sem ég hefi uTMiið að í i'ikkur ár. Eg kalla það Bændatal Norðurfjarða 1700—1960. Norðfirði, Mjóafirði og Seyðisfirði verða gerð skil í fyrsta bindi. í þessu ri.ti verður greint frá öllum jörðum og smá- býlum á svæðimu, eigendum þeirra og sögulegum atvikum, sem þar eru tengd við bæina, ábúendum öllum og ætt þeirra, uppruna og æviatriðum, konum þeirra, börn- um og fólki, sem þeim var áhang- andi. Eg hefi þegar lokið nákvæmri skrá um alla bændur og húsráð- endur í Norðfirði og Mjóafirði árin 1700—1915 og í Seyðisfirði frá 1700—1872. Auk þessa hefi ég haldið til haga öllum skjallegum upplýskig- um, sem ég hefi fundið, um margt fólk, eftir svipaðri reglu og ligg- ur til grundvallar Ævisögum lærðra manna eftir Hannes Þorst einsson. Þar get ég nefnt Her- mann Jónsson í Firði, Árna Grímsson (þ. e. Einar Jónsson), Fjalla-Ej’vind, Þorgeir Erlendsson Einar Jónsson á Urð og séra Jón Brynjólfsson. Eg hef líka tekið saman nokkur niðjatöl. Raunar Eins árs sjálf- stæðis minnst í Kóngó í gær NTB—Leopoldville, 30. júní. í dag er fyrsti þjóðhátíðar- dagur Kongó, en í dag er ná- kvæmlega eitt ár liðið frá því Kongó hlaut sjálfstæði. Var mikið um dýrðir víðs vegar í Kongó t dag, en ríkisstjórnin í Leopoldville hefur fyrirskip- að fjögurra daga hátíðahöld. í Leopoldville var í dag meðal annars mikil hersýning, og sýndu þar herflokkar frá Kat- anga vopnaburð, en einnig voru þarna mættar fjölmenn- ar lögreglusveitir frá Katanga. Lise Bodin láiin laus NTB—Khöfn, 30. júní. Danska fegurðardrottning- in, Lise Bodin, og fyrrver- andi frönsk nektardansmær voru í dag látnar lausar, eftir að þær höfðu setið í fjögurra mánaða gæzluvarð haldi, grunaðar um hlut- deild í ráni hins fjögurra ára gamla drengs, Peuge- ots, í marz síðastliðnum. Bodin, sem er 21 árs göm- ul, hélt þegar í stað til danska sendiráðsins í París, ásamt móður sinni, er hún hafði verið látin laus. Fundur í gærkvöldi í gærkvöldi stóðu enn samn- ingafundir milli iðnaðarmannafé- laganna, sem eiga í verkfalli og atvinnurekenda. Fundir hófust kl. 4 í gær og síðan aftur kl. 9 að loknu hléi. Miðstöðvarkatlar Fyrirliggjandi: með og án hitaspírals. STÁLSMIÐJAN H.F. Sími 24400 Bifreiöasalan Borgartúni 1 selur bílana. Símar 18085 — 19615 hef ég þrjú rit í undirbúningi: Bændatal Norðurfjarðar, sem ég hef nefnt, frásagnaþætti, sem ég nefni Að austan, og sagnir eftir Eirík ísfeld frá Hesteyri við Mjóa fjörð. ! — Þú nefndir Fjalla-Eyviind áð an — hefur þú ekki fundið ný- lega eitthvert plagg um búsetu hans á Hrafnsfjarð'areyri? — Jú, það var skrá úr ísafjarð arsýslu um þá, s'em borguðu tukt hússtolla árið 1760. 14. júní það ár hefur sýslpimalður ísfirðinga vei.tt viðtöku tukthússtoUi hjá Ey vindi bónda Jónssyni á Hrafns- fjarðareyri. Þetta var gjald af 4 jarðarhundruðum. Af þessu sést að Eyvrndur hefur ekki lagzt út fyrr en eftir miðjan júní 1760 og ■nokkra SÖgu segir það um réttar- gæzluna, að Eyvindur var saka- maður, sem lýst hafði verið eftir á alþingi, þegar sýslumaður tók vi ðtollinum. Saga Reykjavíkur heillar Árni óla sibur gegnt Sigurði, sokkinn niður í lestur elliblakkra skjala. — Eg hef viðað hér að mér ýmsu í þrjátíu ár, sagði Ámi, að- allega viðvíkjandi eögu Reykja- víkur. Eg sinni þessu enn vi.ð og við. Eg hef skrifað tvær ækur um ýmsa þætti í sögu Reykjavik- ur, og hin þriðja á að koma út í ahust. Tvær aðrar bækur ehf ég svo skrifað um önnur söguleg efni úr ýmsum héiuðlum. — Það hefur einhverm tímann orðið löng leit hjá þér héma í sk j a ladyng junum? — Máður leitar stundum að sama atrið'inu dag eftir dag og finnur það ekki. Og þá er oft ekki hægt að nota efni, sem dreg- ið hefur verið saman með mikilli fyrirhöfn, af. því að í þessu eina atriði, sem ekki finnst, er ein- mitt fóligið það, sem ríður bagga munin'n. Þá er ekkert að gera annað en að leggja þetta til hlið ar. En svo getur komið fyrir, að það, sem lemgst var að leitað, komi upp í hendumar á manui' löngu seinna við leit. að eimhverju allt öðru. Hálf þriðja milljón Islendinga í Þjóðskjalasafninu hefur ævi- skrárritari, séra Jón Skagan, einn- ig aðsetur. Hans hlutverk er að skrá og greina æviatriði allra látinna fslendinga, fimmtán ára o-g eldri. — Það má ætla, að alls hafi fæðst frá upphafi hálf þriðja milljón fslendinga, segir s.éra Jón, og af, þeim þykir líklegt, að henda megi einhverjar reiður á einni 1 til hálfri amnarri milljón. Séra Jón fer ekki dult með það að þetta sækist seint hjá einum j mamhi. Hann kveðst hafa byrjað , að skrá þá, sem dóu 1930 og vera kominn fram á árið -1934, en alls hefur dáið á annað þúsund mamms ; á ári á þessu tímabili. Lögurn sam j kvæmt ei'ga sóknarprestar að gera fullmægjandi ævi.skrár allra, sem nú deyja, en það er að heyra að talsverður misbrestur sé á því, að þeirri lagaskyldu sé fullnægt, einkum í kaupstöðum landsins. En það stendur þó til bóta. „Prívaf sekreter" Annars á séra Jón ekki alltaf langt að fara til þess að áminna suma presta. Þeir ei*u tíðir gestir á þjóðskjalasafninu. Einn þeirra, er séra Helgi Sveinsson í Hvera- gerði, sem einmitt ber að í þess- um svifum, kominn alla leið aust an úr sóknum sínum til þess að sitja dagstund í safninu. Og hann kemur heldur betur færandi hendi. Hann hefur sem sé á tak- teinum vísu um fyrrverandi stétt arbróðir sinn og það starf, sem hann nú gegnir: Hér má Skagan hamast við, hleðst og svignar skrifborðið. Daglega skráir dauðra her dauðans prívat sekreter.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.