Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 13

Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 13
T í M I N N, laugardaginn 1. júlí 1961. 13 # i ip&ÍMM á Landsbanki íslands við Austurstræti. AlIsherjarverkföII V*V*V*V*‘V»VtW*V»X*V»V»V*V*N»V*X»V'X'V»'V»X*X*'V>.»V' V Vinsælar skemmtibækur Eftirtaldar bækur eru að minnsta kosti helmingi ódýrari en ef þær væru gefnar út nú. Flestar bækurnar hafa ekki verið til sölu í bókaverzlunum árum saman, og jafnvel um áratugi. Af sumum bókunum eru aðeins til nokkrir tugir eintaka. Hetjan á Rangá. Norræn hetjusaga úr fornöld. 133 bls. kr. 15,00 Einvígið á hafinu. Óvenjuleg saga um ást, hatur og einvígi úti á opnu hafi. 232 bls. ób. kr. 15,00. Svarti sjóræninginn. Frábærlega skemmtileg sjóræningjasaga. Ób. kr. 15,00. Svarta liljan. Ævintýraleg saga eftir hinn heimskunna höfand Rider Haggard. 352 ób. kr. 25,00. Percy hinn ósigrandi, 5. bók 196 bls. kr. 15,00, Percy hinn ósigrandi, 6. bók 192 bls. kr. 15,00. Percy hinn ósigrandi, 7. bók. 220 bls. kr. 15.00. Úalagaerjur, eftir Zane Grey. Stórbrotin skáldsaga um ástir og bardaga í „villta vestrinu“. 332 bls. ób. kr. 25,00. Hart gegn hörðu. Hörkuspennandi leynilögreglusaga, 142 bls. ób. kr. 15,00. f undirheimum. Saga um hættur og ógnir undirheima stór- borganna. 112 bls. ób. kr. 10.00. Landsbanki Islands er 75 ára í daé í dag, 1. júlí, eru 75 ár liðin síðan Landsbanki íslands hóf starfsemi sína. Var hann fyrsti banki, sem stofnsettur var á íslandi, og er hann langelzta bankastofnun, sem nú er starf- andi í landinu. Landsbankinn var stofnsettur með lögum frá 18. september 1885. Starfsfé sitt fékk bankinn með þeim hætti, að landssjóður gaf út 500 þúsund krónur í seðlum og afhenti þá upphæð bankan- um til ráðstöfunar, og var hér um að ræða fyrstu seðlaútgáfu á íslandi. Starfsemi bankans hófst svo á næsta ári eða nánar tiltekið 1. júlí 1886, og var fyrsti fram- kvæmdastjóri bankans skipaður Lárus Sveinbjörnsson, yfirdómari. Starfsemi bankans var að sjálf- sögðu lítil framan af, enda var þá atvinnulíf í landinu fábreytt og peningaviðskipti lítil, og hafði bankinn ekki opið nema tvisvar í viku og þá tvo tíma í senh. Árið 1887 sameinaðist Sparisjóð- ur Reykjavíkur Landsbankanum, en sparisjóðurinn var stofnaður 1872, og má því rekja þann þátt í starfsemi bankans til þess. Starfsemi Landsbankans jókst ár frá ári, en þó má segja, að þá fyrst hafi komið verulegur skriður á þróun hans, er Tryggvi Gunnars- son varð bankastjóri árið 1893. Því fór þó fjarri, að Landsbankinn gæti, er fram liðu stundir, annað sívaxandi fjárþörf atvinnuveganna, enda hófst á þessu tímabili gagn- ger bylting i sjávarútvegi. Til þess að leysa úr lánsfjárskortinum yarð það loks að ráði að leyfa stofnun nýs banka með erlendu fjármagni, en það var íslandsbanki, er hóf starfsemi sína 1904. Fékk hann rétt til að gefa út seðla og varð brátt mikið afl í fjármálum þjóð- arinnar, svo að Landsbankinn féll um tíma í skugga hans. Nýtt uppgangsskeið Landsbank- ans hófst í lok stríðsins, og þegar komið var fram um 1923. var hann enn á ný orðinn stærsti banki þjóðarinnar. Eftir 1920 áttu sér stað miklar umræður um skipulag bankamála hér á landi, og varð niðurstaða þeirra sú, að sett voru árið 1927 ný lög um Landsbankann, þar sem honum var falinn seðlaútgáfurétt- urinn, en bankinh skyldi starfa í þremur bókhaldslega aðskildum deildum: Seðlabanka, sparisjóðs- deild og veðdeild. Hélzt þetta skipu lag óbreytt til ársins 1957, en þá var bankanum skipt í tvær megin- deildir með sjálfstæðri stjórn: Seðlabanka og Viðskiptabanka.1 Loks vpru svo samþykkt lög á síð- asta Alþingi, þar sem Seðlabankinn var algjörlega greindur frá Lands- bankanum, sem nú er eingöngu við- skiptabanki, en starfrækir jafn- framt veðdeild og annast lán til húsbygginga. Landsbanki íslands hefur vaxið mjög ört á undanförnum árum, og nemur nú heildarupphæð efna- hagsreiknings hans um 2.500 millj- ónum króna. Þar af eru innstæður á sparisjóði um 830 milljónir og, innstæður á hlaupareikningi 490. milljónir. Heildarútlán bankans nema rúmum 2.000 milljónum króna, og er þá veðdeildin ekki meðtalin. Gjaldeyrisviðskipti eru stór þáttur í starfsemi Landsbank- ans, og annast hann um % af gjald- eyrisviðskiptum við almenning. Bankinn rekur nú fjögur útibú ut- an Reykjavíkur: á ísafirði. Akur- eyri, Eskifirði og Selfossi. en auk þess útibú á þremur stöðum í Reykjavík. Ullin fFramhald af 6. síðu) oft langt tog á innra borði reyf- anna. Af því, sem hér hefur verið rakið, ætti að vera ljóst, að vel með farin, eðlisgóð ull er eftir- sótt vara. Mat það á ullimai til einstakra framleiðenda, sem hér hefur verið lvst, miðar að því að verðla^na bá bændur, sem framleið'a slíka ul 1 og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. BÍLASALINN uig Vitatorg Bílarnir eru hjá )kknr Kaunin ?erast hiá okkur BÍLASALINN vi8 Vitatorg. Sími 12 500. Framhald af 5 síðu beitingu alls-herjarverkfallsins, að þessu sinni gegn yfirvofandi styrjöld. Á þessu þingi gerðist þao, að Lenin fékk samþykkt, að ef styrjöld brýzt út, skal verkalýðurinn notfæra sér hið efnahags- og stjórnmálalega öngþveiti, sem af styrjöldinni leiðir. til þess að flýta fyrir falli kapítalismans. Margar til- lögur þessa þings og samþykkt- ir virðast aðeins hafa verið orð- in tóm, en Lenin sjálfur fram- fylgdi þó í raun ályktun sinni Einnig á hinu alþjóðlega þingi sósíalista í Höfn 1910 var allsherjarverkfallið á dagskrá og var nú rætt um það í sam- bandi við ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir styrjöld. Brezki verklýðsleiðtoginn Hardie lagði fram ,á þinginu eftirfarandi tillögu: Þingið lít- ur svo á, að meðal þeirra ráða, sem áhrifamest eru til þess að hindra styrjöld, sé allsherjar- verkfall, einkum í þeim iðn- greinum, sem útvega nauðsyn- leg tæki til styrjaldarreksturs. Þessi tillaga var ekki af- greidd á þinginu, en ákveðið að hún skyldi höfð til athugun- ar og rædd að nýju á næsta þingi, sem vera átti í Vínar- borg 1914. En styrjöldin skall á einmitt þetta ár. Ekkert þing var haldið og draumurinn um allsherjarverkfallið til þess að hindra styrjöld, varð ekki að veruleika. Verkamennirnir börðust hver gegn öðrum, en mynduðu ekki sambönd yfir landamærin. Stórátök urðu í Danmörku 1899. Það var yfirgripsmesta stéttabarátta, sem heimurinn hafði til þessa orðið vitni að — að sjálfsögðu er hér tekið til- lit til stærðar landsins. Þessi átök enduðu með málamiðlun. Svíar fengu hins vegar að reyna það, að allsherjarverk- fall geturverið tvíeggjað sverð, er þeir lögðu út í slík átök 1909. Verkalýðurinn tapaði þess um átökum og það setti sinn svip á gang málanna um fjöl- mörg ár. Meðlimum verklýðs- samtaka landsins fór stöðugt fækkandi eða um rúmlega 100 þúsundir á tveim árum. Þá olli þetta miklum fólksflutningum frá landinu og verulegu fylgis- tapi sósíalistaflokksins, Norðmenn reyndu hið sama á árunum frá 1920—30, er geysivíðtæk verkföll brutust út. Það varð veruleg fækkun í norsku verklýðsfélögunum og norski verklvðsleiðtoginn Ous- land hafði þetta að segja um þróun málanna: Sögnin um alls herjarverkfallið sem áhrifa- mesta vopn verkalýðsins er nú að mestu orðin úrelt. Horfni safírinn. Spennandi saga um gimsteinarán. 130 bls. ób. kr. 15.00. Gullna köngulóin. Leynilögreglusaga. 60 bls. ób. kr. 5,00. Spegillinn í Venedig. Dularfull og spennandi saga. 76 bls. ób. kr. 10.00. Verzlunarhúsið Elysium. Hugnæm ástarsaga. 96 bls. ób. kr. 10.00. Hver vissi hvað sannast var? 94 bls. ób. kr. 7.00. SilfurspegiIIinn. 66 bls. ób. kr. 7,00. Skugginn. 44 bls. ób. kr. 5.00. Hvítmunkurinn. Saga um dularfullt fyrirbæri. 130 bls. ób. kr. 15.00. ! Mynd Abbotts. Stutt en eftirminnileg saga. 40 bls. ób. kr. 5,00. Leyndarmálið í Cranebore. Mjög sérstæð saga um ást og af- brot. 238 bls. ób. kr. 20.00. Morðið í Marshole. Spennandi sakamálasaga. 76 bls. ób. kr. 10.00. Vitnið þögla. Enginn, sem les þessa sögu býst við þeim endi sem hún fær. 142 bls. ób. kr. 10,00. Eigandi Lynch-Tower. Saga um ástir, vonbrigði, undirferli og að lokum sigur hins góða. 232 bls. ób. kr. 20,00. Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið x við þær bæk- ur, sem þér óskið að fá sendar gegn póstkröfu. Merkið og skrifið greinilega nafn og heimilisfang. Undirrit óskar að fá þær bækur, sem merkt er við í auglýsingu þessari sendar gegn póstkröfu. Nafn Heimili Ódýra bóksalan, Box 196, Reykjavík. Listin Framhald af 7 siðu ugum, að við verðum að trúa á þau og elska að fyrrabragði. Þess vegna skiptir uppeldið svo miklu máli. Þá verður að kveikja lotn- ingu fyrir fegurðinni, fyrir hin- um miklu meisturum listanna. — Maður hittir stundum fólk, sem talar um Bach og guð og ást eins og venjulegar vörur í búð. Þetta fólk virðist eiga erfitt með að komast f það upphafningará- stand, sem list og ást og trú krefj- ast. Þó að list og líf sé nátengdara en nokkuð annað, er list og líf ekki það sama. Listin er sköpun, hliðstæð sköpun náttúrunnar, nokkurs konar framhald sköpun- arverksins. Til þes9 að ná tökum á þessari nýju sköpun verða menn að afla sér mikillar þekkingar og tækni. —Varstu ekki orðinn óþolinmóð- ur að bíða eftir að sjá draum þinn um alþýðulistasafn rætast? — Eg hef þreytt ýmsa vini mína mikið um dagana, af þvl að ég hef átt erfiít með að einskorða mig við það eitt, sem ég get lok-, ið á skömmum tíma eða að fullu, en það er hætt við, að þeim mönnum verði lítið úr lífi sínu, sem ætla sér ekki hverju sinni eitthvað meira en þeir ráða við. Eg er vanur að vinna jöfnum höndum að því, sem ég ætla að framkvæma eftir langan tíma, svo að ég er kannski ekki eins vitlaus og ég lít út fyrir að vera ! ! Birgir. Á víðavangi fFramhald af 6 síðu) ust. Láta verkföllin svo standa nógu lengi og kenna síðan verk- 'föllunum og 10% kauphækkun um allan ófarnaðinn! ! Fjármála ráðherrann stendur yfir tómum rikicVassanmn 02 sk-ifar grein ar í Vísi úr aðþrengdu ráðuneyti sínu og boðar nýjar álögur og meiri „viðreisn“. — En að draga úr vaxtaokrinu og lánsfjár- kreppunni hvarflar ekki að hon um.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.