Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 5

Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 5
TIMINN, Iangardagiiin 1. júlí 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Amason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Fulltrúi rit stjómar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egili Bjamason. — Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusimi: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. - ________________________________________________/ Ömurleg þrjózka Líf færðist að ný.iu í. allar athafnir í gær og var það öllum fagnaðarefni eftir þrjátíu og tveggja daga verk- fall. Morgunblaðið segir í aðalfyrirsögn í gær: „Þessu samkomulagi var hægt að ná fyrir 2—3 vikum“. Þetta er vafalaust rétt, og þá vaknar sú spurning, hvers vegna það náðist ekki. Saminnumenn sömdu við verkamenn fyrir þrem vik- um um réttlátar og raunhæfar kjarabætur. Vinnuveit- endasambandinu stóðu til boða sömu samningar. Þvi . samkomulagi gat það þá náð. eins og Mbl. segir. Það hafnaði því hins vegar að boði ríkisstjórnarinnar, sem skipulagði nýja hatursherferð gegn samvinnufélögunum fyrir þessa samninga. Síðan stóð verkfall í þrjár vikur, og þá gekk Vinnu- veitendasambandfð loks að sömu samningum og sam- vinnufélögin höfðu gert. Og nú er mörgum spurn: Hvers vegna var betra að viðurkenna samning samvinnufélag- anna þrem vikum síðar? Tilboð verkamanna stóð allan þennan tíma. Hefði ekki verið skynsamlegra að losna við þriggja vikna verkfall og ganga strax að því sam- komulagi, sem samvinnumenn náðu, og nú er orðið algilt? Sannleikurinn er sá, að ríkisstjórnin og afturhalds- klíka hennar horfði ekki í það að fórna bjóðarhagsmun- um í þriggja vikna verkfalli í von um að ná ráðum vfir styrktarsjóði verkamanna. Svona föðurleg var forsjá landsins. Og niðurstaðan er svo engin. Deilan um sióð- stjórnina er óleyst, með stjórn án úrskurðargetu er tog- streitunni um yfirráð sjóðsins aðeins skotið á frest til síðari átaka. , Misheiting Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, hefur nú veitt yfirsakadómaraembættið í Reykjavík Loga Einars- syni, fulltrúa í dómsmálaráðuneytinu. Vafalaust er Logi Einársson sæmilega til starfsins hæfur og nýtur lögfræð- ingur, en það breytir ekki þeirri staðreynd, að með veit- ingunni hefur dómsmálaráðherra misbeitt veitingavaldi sínu á freklegan hátt og látið pólitíska blindu leiða sig til rangsleitni gegn öðrum manni. Þetta mál er ofur augjóst. Sá, sem átti að öllum sið- mannlegum veitingareglum að fá embætti þetta, var Þórður Björnsson, sakadómari, og það veit Bjarni Bene- diktsson og finnur manna bezt sjálfur. Þórður Björnsson lauk lögfræðiprófi 1940 og varð fulltrúi hjá sakadómara 1941. Hefur hann starfað þar í 20 ár, og síðan 1947 verið þar elzti fulltrúi í starfi. Þessi síðustu fjórtán ár hefur Þórður jafnan verið settur sakadómari í forföllum Valdi- mars Stefánssonar, og oft og langtímum saman verið stað- gengill sakadómara. Dómarastörfunum hefur Þórður gegnt við virðingu og óskorað traust, og viðurkennt er, að hann er manna hæfastur til að taka við embætti yfirsaka- dómara, og hefur að baki mesta starísreynslu til þess. Það, sem hér hefur gerzt, er ofur augljóst. Dómsmála- ráðherra veit og finnur, eins og aðrir, hvaða manni ber að veita embættið, sé tekið réttmæft tillit til starfsaldurs, hæfileika og reynslu. En þessi maður er bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík, svo að ekki kemur til mála að láta hann njóta réttlætis. Þess vegná er annar maður, sem betur fellur við pólitískan lit ráðherrans, fengmn til að sækja, og honum veitt starfið, þó að hann hafi síðasta áratuginn ekkert fengizt við dómarastörf. Þetta er engin afrekssaga af manninum í ráðherra- stólnum. t ) t ) ) ) ) ) ( t ) ) ) ) t < t ) t ) ) ) ) ) ) ) ) ) i t ) ) ) ( / / ) / / / / / ) ) ) ) / / / / / / / / / / / / / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) Saga allsherjarverkfallsins 'i • - , Grein úr Information um drauminn um hiÖ aljijóðlega allsherjarverkfall t ) ) ( ( ( t ) ) ) Grein þessi birtist í danska blaðinu Informat- ion, er verkföllin stóðu sem hæst þar í landi. Greinin er stytt í þýðingu. Verkalýður allra landa hefur hvað eftir annað beitt verkfalls vopninu til þess að ná fram umbótum sér til handa. En spurningin um hina miklu end- anlegu orrustu til umbyltingar þáóðf élaginu, allsherj arverk- fallið, hefur hvað eftir annað valdið miklum umræðum, hörð um deilum og illvígum orða- skiptum. í fyrsta lagi skal getið um þá, sem halda því fram, að fyrsti maðurinn, er sýndi fram á mátt allsherjarverkfallsins, án þess að nefna þó það orð, sé Mirebeuf, en hann mælti eftirfarandi orð á tímum frönsku stj ói narbylting arinnar: Sýnið því fólki fyllstu nær- gætni, sem framleiðir alla hluti og ekki þarf annað en að haf- ast ekkert að til þess að verða máttugt. Er verkalýðurinn stofnaði sín fyrstu alþjóðlegu samtök, skaui strax upp kollinum hug- myndin um allsherjarverkfallið. Einn af áköfustu fylgjendum þess' var Karl Marx ásamt Rúss- anum Bakunin. Sá síðarnefndi var sérstæð manngerð og at- hafri=amur fram úr hófi. Hann var jafnan þar, r em bylting var, og væri engin bylting, reyndi hann að skapa hana. Þetta tókst honum t. d. í Lyon meðan á styrjöldinni milli Frakka og Þjóðverja stóð. Hann var dæmd ur t:l dauða af dómstólum tveggja landa, en tókst að sleppa frá böðlunum. í heima- landi sínu sat hann hins vegar þrjú ár í fangelsi, hlekkjaður við fangaklefavegginn. Friedrich Engels sagði urn allsherjarverkfallshugmynd Bakunins, að hann virtist al- viss um það, að með því að hefja allsherjarverkfall á ákveðnum tíma á ákveðnum degi um allan heim, yrði sósíal- istísku þjóðskipulagi komið á á örfáum klukkustundum. Á fyrsta þingi alþjóðasam- taka verkalýðsins í Genf 1866 var mikið rætt um allsherjar- verkfallið og hið sama varð uppi á teningnum á þinginu í Brussel, en þar var rætt um þann möguleika, að nota alls- herjarverkfallið sem hið mátt- uga vopn. Menn komust þó að þeirri niðurstöðu á Brussel- þinginu, að allsherjarverkfallið gæti ekki losað verkalýðinn undan allri áþján, en viður- kenndu hins vegar, að ekki væri óhugsandi að beita þessu vopni í því skyni að mótmæla styrjöldum. Á alþjóðaþingi verkalýðsins í París 1889, þar sem m. a. var ákveðið að gera 1. maí að há- tíðisdegi verkalýðsins, kom allsherjarverkfallið einnig til umræðu. Þar kom fram tillaga um að beita allsher.iarverkfalli sem úrslitavopni í baráttu verkalýðsins. Þessari tillögu var hafnað eftir stutta ræðu Þjóðver jans Liebknecht, er hélt því fram, að samtök verkalýðs- ins í einstökum löndum myndu aldrei verða svo vel skipulögð, að hægt væri að framkvæma allsherjarverkfall með góðum árangri. Hann taldi einnig, að ekki væri unnt að koma á svo náinni samvinnu milli verka- lýðssamtaka einstakra landa, að allsherjarverkfall næði til- gangi sínum. Á alþjóðaþingi verkalýðsins í Amsterdam 1904 var' allsherj- arverkfallið enn til umræðu. Á þessu þingi greindust menn í þrjá^ hópa í afstöðunni til þess. í fyrsta lagi voru það „hægrisinnar", einkum þýzkir verklýðsleiðtogar, sem litu á allsherjarverkfallið eins og hverja aðra fjarstæðu. Nokkru róttækari voru svo menn eins og Hollendingurinn Roland- Holst, sem taldi, að reynsla af nokkrum stórátökum á síðusbi árum í nokkrum löndum, heföi sannað, að allsherjarverkfall- inu skyldi fyrir borð kastað sem byltingaraðferð, en hins vegar væri það nothæft sem neyðarúrræði til þess að koma fram mikilvægum félagslegum umbótum eða til þess að standa gegn ofstækisfullum árásum á réttindi verkalýðsins. í hópi þeirra, er lengst voru til vinstri á þessu þingi, var Frakkinn Briand, sem síðar var rekinn úr franska sósíálistaflokknum. Á þessu þingi var eftirfar- andi tillaga 'samþykkt með 36 atkvæðum gegn fjórum: Þar sem það er æskilegt, að sósíal- istar láti uuppi skoðun sína á allsherjarverkfalli og þar sem nauðsynleg skilyrði fyrir því, að meiriháttar verkföll nái til- ætluðum árangri, er öflugt skipulag og óþvingaðar skyldur meðal verkamannanna, lýsir hið alþjóðlega þing sósíalista því yfir, að allsherjarverkfall, ef með því er meint stöðvun allrar vinnu á ákveðnum tíma, er óframkvæmanlegt, þar sem slíkt verkfall myndi gera jafnt verkamönnum sem öðrum ókleift að lifa. Jafnframt þessu er þó gert ) ráð fyrir því í ályktun þingsins, ) að mikið verkfall, sem annað ) hvort nær til fjölda iðnfyrir- ) tækja eða mikilvægustu at- ) vinnuvega viðkomandi lands, ) sé nothæft sem lokaráð til þess ) að ná fram félagslegum umbót- ) um, sem miklu varða, eða sem ) vörn gegn yfirvofandi ofbeldis- ) aðgerðum gegn verkalýðnum. ) Þingið leggur áherzlu á, að ) endanlegt frelsi verkalýðsins i náist þó ekki með þessum að- ) gerðum. Á það er bent, að ) verkalýðurinn eigi ekki að láta ) hugmyndina um allsherjarverk ) fallið hafa áhrif á sig, heldur ) byggja upp samtök sín stjórn- ) málalega, stéttarlega og auka ) samvinnu milli einstakra sam- ) taka og efla þannig styrk sinn. ) Það voru einkum margs kon- ar vinstrisinnuð öfl, sem litu á ) allsherjarverkfallið sem hið ) mikia og afgerandi sigurvopn. ) Það, sem rakið hefur verið hér ) að framan, sýnir, hversu hug- ) myndin um allsherjarverkfallið ) hafði mikil áhrif meðal sósíal- ) demókrata á sínum tíma. 'f Árið 1905 er allsherjarverk- ) fallið til umræðu á þingi verk- ) lýðssamtaka í Köln í Þýzka- ) landi. Þar er þessan baráttuað- ) ferð hafnað með miklum at- ) kvæðamun. En skömmu síðar ) halda þýzkir jafnaðarmenn ráð ) stefnu, þax sem þeir samþykkja ) með 287 atkvæðum gegn 14 að ) mæla með allshcrjarverkfall- ) inu, ckki semv' hinu endanlega \ vopni til þess að ná völdum, ) heldur sem varnartæki, ef • gengið skuli á hin almennu ■ manhréttindi, leynilegar kosn- • ingar afnumdar, samningsréttur ^ forsmáður o. s. frv. ^ Á alþjóðaþingi sósíalista í Stuttgart 1907 var enn ræ‘4 um • 'F^-amhald á 13 ■u’1" . )

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.