Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 14

Tíminn - 01.07.1961, Qupperneq 14
T f MIN N, laugardaginn 1. júlí 1961. H þetta er voðalegt! Yður getur ekM verið alvara! Hvernig gettð þér sagt þetta? Tórin runnu niður kinnar henni. — Eg er sannfærður um, aff þaff er satt, sagði John ein beittur. — Það er ástæðan fyrir komu minni hingað. Og meg allri virðingu fyrir yöur, frú de Reveneau, trúi ég ekki þvl, sem þér hafið látið hafa eftir yður, að systir mín hafi verið taugaveikluð. — Þér minntust á bréf, sagffi Robert og reyni að hafa vald, á röddinni, — megum við fá að vita, hvað í því stóð, Jackman? —Eg get ekki sagt yffur meira. — Yður er ljóst, að þér sýn ið ókurteísi? — Það skiptir ekki mali, Reveneau. Eins og málin standa, get ég engum sýnt bréfið. — Veit lögreglan um cfni bréfsins? — Nei, ekki fyrr en ég hef komizt að öllu, sagði John. — En dettur yður í hug, að önnur skýring sé til á þess- um sviplegu dauðsföllum? — Mér þykir leitt að þér takið þessu svona, Reveneau. En það er heilög skylda min að hreinsa systur mína af þvi, að hún hafi framið sjálfs- morð. Það hefur hún aldrei gert. — Allt bendir samt tii þess, að svo hafi verið, sagði Rob- ert. — Þvi trúi ég ekki. — Þér gefiff í skyn, að allt, sem við móðir mín höfum sagt, sé uppspuni frá rótum? Ef ég hefði ekki verið örkumla maður, Jackman, hefði ég skorað yður á hólm. í gamla daga var ég fær um að verja æru mína. Nú get ég aðeins varíð hana með orðum. — Mér bykir leitt, að ég hef móðgað yður, en ég er Am eríkumaður, og við segjum það, sem okkur býr í brjósti. Það eina, sem ég hugsa um, er systir mín, og ég ætla að komast að því, hvernig dauða hennar bar að höndum. Eg get sagt yður svo mikið, að hún endaöi bréf sitt með því, að hún hefði stefnumót við' mann þetta sama kvöid og hann ætlaði að upplýsa sann leíkann um dauða unnusta hennar, Atwells. — Og þér haldið, aö þessi rnaður hafi dreplð hana? Jenniíer Ames: — Það veit ég ekki með vissu. En ef það er einhver hér í þorpinu, sem veit, hver myrti Atwell og seinna Ale- en, vona ég, að hann vilji koma að máli við mig og segja mér það. Hver veit, kannski er það einhver hér i höllinni .... — Kann að vera, og ég vona, að hver svo sem hanu er, vilji hitta yður. Það er ó- skaplegt fyrir mömmu og mig að hlusta á fullyrðingar yffar. Og auðvitað viljum við hjálpa yður að upplýsa málið, fyrst þér eruð svona viss í yðar sök. — Ef þér óskið, skal ég flytja niður' á hótelið, sagði John. — Alls ekki, alls ekki, and- mælti Robert. — Auðvitað viljum við hafa yður hér. — Þér megið ekki misskilja það. sem við höfum sagt um syst- ur yðar. Eg vil svo gjarnan sanna yður, að þér eruff vin- ur okkar. Gjörið svo vel og veitið okkur þá ánægju að dvelja hér yfir helgina. Þegar allt kemur til alls, er ólíkt þægilegra að búa hér en á Hotel de la Poste, skyldi ég ætla. Og auk þess koma gest- ir í kvöld, sem við buðum sérstaklega til þess að hitta ykkur. 15. kafli. Eftir hádegisverðinn sett- ist Shirley I hvíldarstól á ver öndinni. Hún reyndi að vera róleg, en henni vár það um megn eftir þennan voðalega hádegisverð. Og sektartilfininginn hafðí ágerzt hjá henni, því að hún hafði meðan á stóð alltaf ver ið á bandi Johns, þótt hún segði ekkert. „ Eftir kaffið sagðist John ætla að fá sér gönguferð. Hann nefndi ekki, hvert hann ætlaði, en hún hafði séð hann ganga eftir mjóum stígnum sem lá niður að hyldýpisbrún inni. Henni varð órótt yið tilhugs unina, en huggaði sig með því, að varla væri hætta á ferðum um hábjartan daginn. Robert kom höktandi og stanzaði við stólinn sem hún sat í. — Vesalings Jackman. Það er leiðinlegt, að hann skuli ekki þola þá hugsun, að syst ir hans hafi framið, sjálfs- morð. Hann hélt áfram, og Shir- ley lokaði augnum. Sólin skein í heiði og hún var afar þreytt. Hún hlaut að hafa blundað, en hrökk upp þegar hún heyrði mannamál skammt frá sér. — Eruð þér alveg viss, Pi- erre? Þaff var rödd greifynj- unnar, og hún heyrði efa í rómnum. — Alveg viss, frú. Eg tók mér það bessaleyfi að skoða í ferðatösku unga herrans, meðan þið borðuðuð. — En Pierre. Robert sagð- ist ætla að fara. Hann hafði beðið frú van Nestor að aka sér til Nice, þar sem hann þarf að ræðá viðskiptamál við einhverja menn. En Gaston kemur aftur snemma í fyrra- málið og ætlar þá að taka bíl inn og sækja hann. Þér vitlð, að við höfurn gesti. — En frú, ég sagði yður, að herrann hefði sett niður til langferðar. Eg hef verið' í þjón ustu yðar svo lengi, að mér fannst skylda mín að segja yður frá þessu. Shirley hélt niðri í sér and anum. Hún furðaði sig á að heyra, að Robert hefði hugs- að sér að fara burt og yfir- því, að frú van Nestor var boð ið til kvöldverðarins, því að hún mundi vel, að Robert hafði ekkert þótzt við frúna kannast, og höfðu þau þó ræðzt við í spilavítinu. Þau drukku te á verönd- inni. John var ekki kominn aftur úr gönguferðinni, og Robert hló og sagði gaman- sögur, striddi móður sinni cg var nú alveg eins og Shirleyl mundi hann í gamla daga, ' meðan hann var undir lækn- ishendi föður hennar. Þegari , tedrykkjunni var lokiff, af-, | sakað'i greifynjan sig meðl i því, að hún þyrfti að líta eftir ' matnum. í — Skipaðu Pierr.e að fara ij almennileg föt, mamma! hróp . aði hann á eftir henni. — : Hann er eins og flækingur til j fara. í j Svo sneri hann sér að Shir-; ley: — Hvað hefur þú haft fyrir stafni í dag? — Eg hef sofig úti mestall an daginn, sagði hún. — Eg reyndi líka að sofna, en mér tókst það ekki. Eg var að hugsa um Það, sem Jack- man sagði. Harm fer i taug- arnar á mér. Hann er sú manngerð, sem játar ekki staðreyndir, þótt þær blasi við. Eg kalla það heimsku, aðrir kalla það tryggð. En ég fyrirgef honum vitaskuld, því að systir hans hefur sjálf- sagt staðið honum nær — ég reyni að minnsta kosti aö fyrirgefa honum. En hann sagði ýmislegt alveg ófyrir- gefanlegt. Hamingjan veit, hvað þessi vesalings stúlka skrifaði honum. Hefurð'u séð þetta bréf? Veiztu, hvað stóð í því? Hún hristi höfuðið og var fegin að hún gat svarað sann leikanum samkvæmt. — Eg veit ekki meira en þú, Robert. — Þú ert vonandi ekki að skrökva að mér, Shlrley, sagði hann og horfði fast á hana. Sólin var að setjast bak við fjöllin og varpaði gullnum blæ yfir allt umhverfið. Shirley fann augu hans hans hvíla á sér, athugul og myrk. — Eg veit ekki meira um þetta bréf en það, sem Jobn sagði við borðiff, endurtók hún. — Það var auðvitað heiber vitleysa. Einhver hafi beðið hana að hitta sig á afviknum stað og viðkomandi hafi lofað að segja henni sannleikann um dauða unnusta hennar! Brjálæðislgt! Allir vissu, að hann fórst af slysförum. Aum ingja stúlkan var örvita af sorg, en bróðir hennar virðist ekki hafa tekið eftir því -- en kannski er hann eins und ir þessari stimamjúku fram- komu. komu. Hún sagði ekkert, en hún vissi, að John var ekki tauga veiklaður, og hún var sann- færð um, að Aleen hefði ekki verig það heldur. — En hvers vegna sagoirðu mér ekki, hver hann var? spurði Robert, — fannst þér rétt að bjóða honum hingað undir fölsku nafni? Hún reyndi að stilla sig, en bræðin sauð í henni. — Já, en ég bauð honum alls ekki hingað, Robert. Það varst þú, sem gerðir þa„ og ég vissi, ekki, að þú hefð'ir Laugardagur 1. júlí: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. 16.30 Veðurfregnir. 18.30 Tonleikar: Lög ieikin á ýmis hljóðfæri. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20,00 Landsbanki íslands 75 ára: a) Ávörp flytja dr. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráð- herra, Baldvin Jónsson form. bankaráðs og Pétur Benedikts son bankastjóri. b) Sajnfelld dagskrá: Úr starfi Landsbankans. 21,00 Tónleikar: Stutt liljómsveitar- verk eftir Elgar (Hljómsveitin Philharmonia. í Lundúnum leikur; George Weidon stj.). 21.20 Leikrit: „Silfunkannan" eftir Ingimund. Lerkstjóri: Ævar R. Kvaran. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Danslög. 24,00 Dagskrárlok. EIRIKUR VÍÐFFÖRLí H v í t i h r a í n i n n Í26 Lýsing Pjakks á orrustu Axa við menn hrafnsins gerði þá óró- lega, en í sama bili heyrðu þeir eitthvað glamur í skóginum. — Gætið ykkar, hvíslaði Ervin allt í einu, og um leið kom ör fljúg- andi og gróf sig inn í trjástofn við hliðina á Eiríki. — Axi, hvísl- aði Ervin og brosti. — Þetta get- ur ekki verið annar en Axi. Og það reyndist rétt vera. — Fyrir- gefið þið, sagði hann í lágum hljóðum, en ég gat ekki vakið at- hygli á m.ér á annan hátt. Eiríkur brosti og' sló á öxlina á honum. — Eitthvsð nýtt frá prinsessunni? spurði hann í hvíslingum. Axi hristi sorgmæddur höfuðið. — Menn Hrafns voru of margir. Ég gerði mitt bezta, en að lokum varð ég að flýja. Dauður maður verðu.r engum a* gagui, og þið hafið enn þá þörf fyrir mig, því a? skógurinn er smekkfullur al mönnum Hrafnsitis. — Þú erl hraustur strákur, sagði Eiríkur, en nú skulura við fara og fiani prinsessuna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.