Tíminn - 15.07.1961, Page 1
Bezti
þerrir
sumarsins
í gær var sólskin og hiti og
brakandi þerrir um allt Suð-
urlandsundirlendið. „Þetta er
fyrsti góði þurrkdagurinn í
sumar," sagði fréttaritarinn á
Selfossi blaðinu i gær.
... ' .1
í fyrradag var sæmilegur þurrk-
ur á vesturhluta þessa svæðis, en
hann náði ekki nema austur í
miðjan Flóa. í gær náði hann um.
allt Suðurlandsundirlendið og var!
heitur og góður.
Mál til komið
Það var mál til komið, að veður-
farið batnaði. Hey það, sem bænd-
ur áttu flatt, var farið að blikna
og skemmast, enda hefur varla
verið mögulegt að fullþurrka neitt
úti síðan í júní vegna þurrkleysis.
Auk þess hafa bændur hlífzt við
að slá í óþurrk’um, svo að gras er
víða orðið fullmikið sprottið, enda :
þótt sprettutíð hafi verið nokkuð ;
köld lengi sumars.
„Þetta hefur verið afleit tíð og i
er þegar búin að valda tjóni,“ |
sagði fréttamaðurinn.
Þesr eru sex, ein frá hverju Norð
urlandanna. Fánarnir eru einnig
sex á Melaskólanum, einn frá
hverju landi, en ekki í sömu röð
og stúlkurnar. Og nú geta les-
endurnir spreytt sig á að geta,
hver stúlkan sé frá hvaða landi.
(Ljósm.: Tíminn, IM).
Krafan er:
Togarana
austur!
Sjór svartur af síld vií
Austfirði, — löndunarbið
dögum saman, tunnulaust
í landinu — en í Reykja-
vík liggja 4 togarar viÖ
bryggju á ríkisframfæri.
Mönnum svíður sárt fyrirhyggju-
leysi stjórnarinnar í síldarmálun-
um. Sjór er svartur af síld fyrir
Austurlandi. Tunnulaust er að
verða og skipin, sem leigð höfðu
verið til að flytja síldina af miðan-
um í þær verksmiðjur, er fjærst
eru, hafa verið send utan í ofboði
til að sækja tiltölulega fáar
tunnur.
Síldarverksmiðjurnar á Austur-
; landi eru litlar og fáar, og lönd-
I unarbið er nú á öllum höfnum
; austan lands svo að mörgum sólar-
hringum skiptir. Hvern sólarhring,
sem skipin verða að bíða teppt í
höfn tapar þjóðarheildin milljóna-
tugum.
Hér í Reykjavík liggja nú a. m.
k. 4 togarar, sem eru á framfæri
ríkisins, — liggja bundnir við
bryggju, grotna niður og sjúga til
sín almannafé. Þessir togarar eru
allir hinir hentugustu til síldar-
flutninga. Togarinn Sigurður ber
t. d. ekki minna en 4—5 þúsund
mál, og ganghraði skipsins er 16
mílur. Væri ekki viturlegt að rík-
issjóður reyndi að nýta þessi skip,
sem eru á framfæri hans, með því
að senda þau austur til þess að
! flytja síldina í verksmiðjurnar á
Norðurlandi og bjarga þannig
I óhemjuverðmætum, sem eru >inn-
1 an seilingar nú? Ríkisstjórninni
(FramhaJd á 2. siðu).
„Þetta er pó allt
sama sólin”
50 ungmenni frá norrænum lý'ðháskóla
i heimsókn á Islandi
.. 1
— Er sólin eins falleg á íslandi — Af hverju spyrja allir fslend-
og í Noregi? ingar um það?
— Þetta er allt sama sólin. — Þeim þykir svo vænt um
— Hún er ekki eins rauð í Nor- landið sitt.
egi. — Norðmönnum þykir líka vænt
— Jú, miklu rauðari við heims-[um landið sitt.
skautsbauginn. I — Tala þeir aldrei um Noreg?
— Er það þess vegna, sem þú| — Jú, stundum.
ert svona rauð í kinnum?
— Nei, það er af því að ég
púðra mig.
— Nú ertu að gabba.
— Já.
— Finnst þér íslenzkir karl-
menn ekki fallegir?
— Þú ert ekkert fallegur.
— Það finnst kærustunni minni.
— Það er ekkert að marka það.
— Er bara að marka þig?
— Já.
— Finnst þér fallegt á íslandi?
— Hvað þykir þér fallegast á
íslandi?
— Stúlkurnar.
— Eru þær fallegri en fjöllin?
— Það er ekki hægt að bera
stúlkur og fjöll saman.
— Sumar þeirra eru kjötfjöll.
- Ha?
- Kjötfjöll.
— Það skil ég ekki.
— Veiztu hver Snorri Sturluson
var?
- lá er góður!
— Má taka mynd af þér?
— Nei, alls ekki. Ég kem ekki
út á myndum.
— Hvernig þá?
— Ég er ljót á myndum.
— Ekki á íslenzkri mynd.
— Taktu mynd af fjallinu þarna
í staðinn.
— Á ég svo að setja nafnið þitt
undir hana?
— Þú sagðir áðan að kvenfólk
væri fjöll.
— Ég var að gera að gamni
mínu.
— Nei, takk, góði.
☆
Þessa ungu og svaraskjótu
stúlku hittum við í gærdag fyrir
utan Melaskólann, en hún var þar
í 50 manna hópi skandinavískra
ungmenna.
Samnorræni lýðháskólinn í
Kungalv heldur einmitt þessa dag-
ana í Reykjavík árlegt nemenda-
mót sitt. 50 ungmenni á aldrinum
18—25 ára frá Finnlandi, Færeyj-
um, Danmörku, Noregi og Svíþjóð
komu á miðvikudaginn með Hekl-
(FramhaJd á 15. slðu)
LIFANDI ALL
í FLUGFERÐ
Áll veiddur til útflutnings í Skaftafellssýslu
í gær flutti Dakota-flugvél
frá Flugfélagi íslands talsvert
af lifandi ál frá Kirkjubæjar-
klaustri til Hornafjarðar, og
er þetta fyrsti áfangi þessara
fiska á leiðinni á borS vand-
fýsinna sælkera á meginlandi
Evrópu.
Þessa dagana er í Horaafirði
hollenzkt flutningaskip, um 100
lestir að stærð, og mun það inn-
an skamms sigla til Hollands með
fyrsta farminn af lifa-ndi ál, sem,
fluttur er á markag frá fslandi. j
Loftur Jónsson, framkvæmdastjóri j
fyrirtækisins Jón Loftsson h.f. hef •
ur forgöngu um þessa markverðu'
tilraun, og hefur hann fengið
Hollendinga í lið með sér.
Lengi í vor hafa tveir Hollend-
ingar stundað álaveiði austur í
Lóni, en ekki hef.ur blaðinu tek-
izt að fá upplýsingar um afla
þeirra. Þarna hlýtur þó ag vera
um töluvert magn að ræða, úr því
að sérstakt skip er fengið til flutn
ingana.
Álaveiði hefur einnig verið
stunduð í vor í Meðallandi í Vest
ur-SkaftafellssýsIu. Fer veiðin þar
fram í avokölluðu Steinsimýrar-
vatni eða Steinsmýrarflóðum í
fenjum og dýjum, þar sem mikill
gróður er. Hafa þar verið hafðar
29 gildrur af þeirri gerð, sem Hol
lendingar komu með hingað til
þess að veiða álinn í, enda kom
þangað í vor Hollendingur, sem
kenndi bændum á Steinsmýri og í
Króki meðferð þessara tækja.
Veiðisvæðið er töluvert stórt,
miklar vilpur og sefgróður.
(Framhald á 15. síðu).
I