Tíminn - 15.07.1961, Síða 11

Tíminn - 15.07.1961, Síða 11
T í MI N N, Iaugardarr:nn 15. júlí 1961. 11 Á Hótel Reynihllð við Mý- vátn hefur nú verið aukið við húsakost; þar var í vet- ur byggt ofan á veitingasal- inn og innréttuð 11 gesta- herbergi, 9 eins manns her- bergi og 2 tveggja manna. Hótelherbergin eru þá alls 30 og rúm fyrir 56 manns. Fréttamaður gisti fyrir skömmu i Reýnihlíð og átti þá tal við Arnþór Björnsson, hótelstjóra, og spurði hann um reksturinn. Hótel Reynihlíð var reist 1949—’50 með 19 gestaher- bergjum. Amþór tók við hót elstíórn árið 1955. Hann er kvpentvr dóttur Péturs Jóns sonar, vegaverkstjóra í Reynihlíð, en hótelið er fjöl skyldufyrirtæki Péturs, barna hans og tengdabarna. I Væntanlegir hópar Þann 5. apríl á s.l. vetri réðust þeir í Reynihlíð í að rífa ofan af veitingasalnum en þar var áður svefnloft fyrir hópa ferðafólks, sem j lá við svefnpoka. Herbergja' skortur var orðinn tilfinnan legur, sérstaklega á eins manns herbergjum, en það, sem réð baggamuninn að ráðist var í framkvæmdir við erfiðar aðstæður að vetrar- lagi, var að ferðaskrifstof-1 an Lönd og leiðir í Reykja-! vík hafði beðið um gistingu fyrir þrjá hópa erlendra ferðamanna, sem voru vænt anlegir i sumar, 30—40 manns í hverjum cg viku- dvöl fyrir hvern hóp. Fyrsti hópurinn átti að koma 26. júní. Unnið i stórhríð Undirbúningi í Reynihlíð var lokið á hálfum þriðja af bátsferðum á vatninu, fuglalífinu, og af því að skoða Námaskarð. Margir fara í fjallgöngur eða reika úti við allan daginn og hafa nesti með sér. Sú nýbreytni var tekin upp í sumar, að leigja gestum hesta til stuttra ferðalaga, þrisvar í viku. Hefur Sigfús Jónsson frá Einarsstöðum í Reykja- dal séð um það. Lengstu ferðimar sem Sigfús skipu- leggur eru í Gæsadal, sex tíma ferð og kostar 300 kr. fyrir manninn. Þá eru mönn um leigðir hestar til ferða á eigin spýtur. Sumt það fólk, sem farið hefur í þess- ar ferðir, hefur aldrei fyrr komið' á hestbak. Námaskarð er einn þeirra staða í nágrenni vatnsins sem hrífur erlenda ferðamenn hvað mest. r /r KOMA AR EFTIR AR TIL AD DVELJA VID MÝVATN Hótel Reynihiíð eykar húsakostinn til muna. Þeir ferðamenn, lengst að komnir, sem dvalið hafa i hótelinu eru Ástralíubúar, en fólk úr þeirri álfu hefur komið þar á hverju sumri undanfarin ár. Því má skjóta hér inn í, að í Reynihlíð er mikið á borðum hinn á'/eti silung- ur sem kenndur er við Mý- vatn, soðinn eða hrár og reyktur, skyr með rjóma og hangikjöt. Þennan mat kunna íslendingar vel að meta og ekki ber á öðru en útlendingum lærist það einn ig- mánuði — fyrir tilgettan tíma. Fyrsta hálfan mánuð- inn, sem unnið vaí að bygg- ingunna, var stórhlíð á hverj um degi, en aðeins einn dag var felld niður vinna af þeim sökum. Efni til bygg- ingarinnar hafði verið dreg ið að fyrir febrúarlok, enda kom það sér vel því að í apr íl var engu farartæki fært um nágrennið nema snjó- bílum. Þegar allt var til reiðu að taka á móti gestunum, af- pantaði ferðaskrifstofan gistingu fyrir fyrsta hóp- inn vegna verkfallsins. Á sömu leið fór um hina hóp- ana tvo. Hótelið var þá bú- ið að neita öðrum um gist ingu þá daga, sem útlending arnir áttu að dvelja, svo að af þessu hafa hlotizt mikil, óþægindi, sagði Arnþór. Engu að síður var þörf á að stækka hótelið því ferða- Slútnes, gróSursælasta eyjan í Mývatni. Frá Mývatni er skammt að Dettifossi og margir gera sér ferð þangað til ag skoða þetta tröllaukna vatnsfall. mannastraumurinn til Mý- vatns er mikill og vaxandi. Komu snemma Útlendingar byrjuöu venju fremur snemma að koma til Mývatns í ár, sagði Arnþór, en Mývatn er einn þeirra staða, sem virðast orka með hvað mestu aðdráttarafli á erlenda ferðamenn. Margt eldra fólk, erlent, hefur gist í Reynihlíð undanfarin sum ur, sérstaklega eldri konur frá Þýzkalandi. Sumir koma gagngert til landsins i þvL skyni að dveljast við Mý- vatn, sérstaklega þeir, sem hafa komið þar áður. Dval- artími útlendinga er oft 2—4 dagar en á þeim tíma vinnst flestum tími til að skoðá lauslega næsta um- hverfi vatnsins. Sumir dvelj ~ast allt að þrjár vikur. Ferðir á hestum Þetta fólk er mjög hrifið Ferð um Fjalla- baksveg Ferðaskrifstofa Úlfars Jakobs- sonar efnir til 9 daga ferðar um Fjallabaksveg, og hefst hún um næstu helgi. Verður lagt af stað á laugardaginn, eða morgun. Verður farið í Landmannalaug- ar, Eldgjá og Kirkjubæjarklaust- ur, síðan í Núpsstaðaskóg og á heimleiðinni stanzað í Vík í Mýr- dal.Loks verður farið í Þórsmörk og dvalið þar einn dag. Þetta er fjölbreytt og fögur leið. Þá efnir Úlfar til tveggja ann- arra ferða um helgina, í Land- mannalaugar og Þórsmörk. Á þriðjudögum í viku hverri er lagt af stað í veiðiferð á Arnarvatns- heiði. Er það fjögurra daga ferð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.