Tíminn - 28.07.1961, Qupperneq 4

Tíminn - 28.07.1961, Qupperneq 4
4 T f M I N N, föstudaginn 28. júlí 1961. > Fiskibátarnir liggja við bryggjurnar, værðarlegir eins og sofandi þorskar, og það kumrar letilega í böndunum, sem halda þeim fö.stum, — þessum trúlofunarböndum, sem alltaf er verið að festa og leysa á víxl. Landkrabbarnir eru önnum kaflir vig að afgreiða bátana og una sér engrar hvíld ar, fyrr en þeir hafa leyst trú- lofunarböndin og hrundið bát- unum frá bryggjunum. Sjó- krabbarnir eru einhvers stað- ar í landi að reyna að gleyma sjónum og sjálfum sér og þorsk arnir í djúpinu eru s.tikkfrí á meðan. Blaðamaðurinn reikar um meðal manna og véla og hefur á tilfinningunni, að honum sé fullkomlega ofaukið í tilver- unni. Stór maðúr og bringubreiður stendur á Loftsbryggju og ber hönd upp að enni og horfir út á sjóinn. Blaðamaðurinn g'láp- ir í sömu átt, en sér ekki neitt. Á hvag skyldi maðurinn vera að horfa? Hann vakkar dálitla stund umhverfis manninn, áður e>n hann áræðir að spyrja: — Á hvað ertu að horfa? Stóri maðurinn lítur snögg- lega á blaðama'nninn: — Á sjó- inn. — Bara sjóinn? spyr blaða- maðurinn. Stóri maðurinn horfir með vanþóknun á blaðamanninn og virðir hann ekki svars. — Ertu sjómaður? — Ekki er ég landkrabbi, Við erum ara skófluþrælar . . . . Konungar moka ekkiís - . CíikXáki AúJÓ segir sá stóri meg lítilsvirð- ingu. — Er þér illa við land- krabba? — Onei, þetta eru meinleys- isgrey. Ertu að krota eitthvað niður? Ég kæri mig ekkert um að komast í blöðin. — Bara svolítið, segir blaða- ■ maðurinn varfærnislega. — Nei, segir stóri maðurinn grimmdarlega og snýr sér snöggt við. Blaðamaðurinn horfir á breitt bak hans og áræðir ekki að ónáða hann frekar. Lengra niður á bryggjunni eru tveir landkrabbar í óða önn að moka ís af bíl ofan i bát.. Annar stendur uppi á bíln um og mokar ísnum ofan í rennu, sem liggur niður í maga bátsins, eins og vélinda. Hinn ýtir á eftir ísnum í vélindanu með kústi. Það er engu líkara en hann sé að mata óþægan krakka. ísi:nn á bílpallinum hefur 5vitnað í sólskininu, og bíllinn pissar á bryggjuna Sá á pallinum stekkur niður og verður undir bununni um leið og hann lokar pallgaflinum. — Ert þú með bátinn, spyr blaðamaðurinn pallbúann — Ég er nú bara skófluþræll. — Ertu þá með bílinn? — Já, ég læt mér nægja að vera með þessa bíltík. — Við erum nú ekki alltaf með skóflur, segir félagi hans ofurlítið ásakandi. — Hann er svo ungur enn þá og skilur þetta ekki, segir pallbúinn til skýringar og snýr sér að félaga sínum: — Skóflu þrælar eru þeir kallaðir, sem vinna stritvinnu. Hann stingur skóflunni í ís- inn: — Hann skilur þetta ekki. greyið. Siá ungi heldur áfram að troða ís ofan í maga bátsins og þegir. — Hvað heitirðu? spyr blaða maðurinn hann. — Sverrir. — Sverrir konungur? — Nei, konungar moka' ekki ís. — Við erum báðir skóflu- þrælar og mokum ís. segir hinn. — Á hvaða veiðum er bát- urinn? — Hann er á snurvoð Þeir fiska margir í snurvoð núna — Hvað mega þeir vera lengi úti á veiðum í einu? — Þrjátíu tíma. — Jæja, þá erum við búnir. — Farig þið heim núna? — Heim, nei aldeilis ekki Nú förum við að taka salt- fisk úr öðrum bát. — Er aldrei fri? — Það er aldrei fri hjá skóflu....... Og bíllinn brunar upp bryggj una og skilur eftir sig — ísinn. sem heldur áfram að svitna í sólskininu. Birgir. eins og þú sérS. Gróðrarstöðin við Miklatorg. Símar 19775 og 22822. K U R með afborgunum. Notið góða veðrið. Notið sumarfríin. Standsetjið lóðina meðan enn er sumar, greiðið í haust og vetur. af hvoru tagi Með auglýsingu þessari viljum við gefa mönnum kost á að eign- ast neðantaldar bækur meðan enn er kostur að fá þær. Kápur sumra bókanna eru ekki vel hreinar. Tónlistin. Sígild bók um tónlist og tónskáld, þýdd af dr. Guð- mundi Finnbogasyni. 190 bls. Ób kt 25.00. Darvinskenning, þýdd af dr. Helga Pjeturss, 84 bls. Ób. kr. 10.00. Germania, þýdd af Páli Sveinssyni. 88 bls Ób. kr. 10.00. Um frelsið, e. J Stuart, þýdd af Jóni Ólafssyni ritstj. 240 bls. Ób kr. 30.00. Mannfræði e. R Merritt. þýdd af dr. Guðmundi Finnbogasyni, 192 bls Ób kr 15.00 ^ Býflugur e M Materlinck. þýdd af Boga Ólafssyni. 222 bls. Ób. kr 25 00 Æska mín, e Leo Trotski. í þýðingu Karls ísfelds.' 190 blsT Ób. kr 15.00. Æringi. Gamanrit í bundnu og óbunfnu máli um stjórnmál og þingmál um aldamótin. 48 bls. Ób. kr 20.00. Æska Mozart Heillandi frásaga um æskuár undrabarnsins Moz- arts 80 bls Ób. kr 10.00. Uppsprettulindir. Fyrirlestrar e. Guðm Friðjónsson frá Sandi. 90 bls Ób kr 10.00. Um vinda Alþvðleg veðurfræði. útg 1882 102 bls. Ób. kr. 25.00. Matur og drykkur, þýð. dr. Björg Þ. Blcndal. 222 bls. Ób. kr. 30.00 Litii varningsbók, samin af Jóni Sigurðssvni, forseta. Útg. 1861. Fáséð 150 bls. Ób. kr 100.00. Páli postuli. e. próf Magnús Jónsson. 316 bls. Ób. kr. 50.00. Galatabréfið. e próf. Magnús Jónsson 128 bls. Ib. kr. 40.00. Noregur undir oki nazismans, e. J. S. Worm-Muller. 168 bls. Ób kr 20.00. Ferðasa ea Árna Magnússonar frá Geitastekk. 200 bls. Ib. kr. 50 00 Ættgengi og kynbætur e. F. K. Ravn. Margar myndir. 118 bls. Ób kr 20.00. Merkið X við þær bækur sem þér óskið að fá. Skrifið nafn og heimilisfang greinilega. BARNABÆKUR: Rófnagægir. Fræg, þýzk barnasaga. 38 bls., ób. kr. 5.00. Sögurnar hans afa og fleiri ævintýri, e. Sólveigu Eggertz Péturs- dóttur. 88 bls. Ib. kr 20,00. Rósalind. Skemmtileg og falleg saga fyrir telpur. Með myndum. 48 bls. Ib. kr. 10.00. Piltur eða stúlka. Fjörleg og gamansöm saga fyrir pilta og stúlkur. Með myndum. 170 bls. Ib. kr. 25,00. * Odýra hóksalan Box 1%, Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.