Tíminn - 29.07.1961, Side 1
170. tbl. — 45. árgangur.
Lltazt um
á Langanesi
bls. 9.
Laugardagur 29. iúlf ’1961.!
Kortagerö á
Reynisfjörum
Mýrdal, 27. júlí.
Það er draumur manna og
jafnvel von, að höfn verSi í
framtíðinni byggð við Dyr-
hólaós. Fyrir nokkrum árum
var samþykkt á alþingi álykt-
unartillaga um þetta, og síðan
hafa farið fram athuganir á
hafnarstað.
Undanfarið hafa verið hér menn
frá vitamálaskrifstofunni að kort-j
leggja fyrir Dyrhólaey, og hafaj
þeir nú kortlagt allar Reynisfjör-'
ur. Fyrstu mennirnir, sem hingað
Mikill skipafjöldi
• • ^ C f*
mm a oevoishrdi
Seyðisfirði, 28. júlí.
Hér liggja nú svo mörg skip
inni, að ekki verður komið
tölu á þau í skjótri svipan.
Slæmt veður er úti fyrir, en
nokkur skip hafa þó siglt út í
dag. Nokkur norsk skip komu
inn í nótt, en þau færðu sig
út í fjörðinn aftur með morgn-
inum.
Enn bíður mikill fjöldi skipa
löndunar við krana verksmiðjunn-
ar, og er þar milli 10 og 20 þúsund
mál mála í höfninni. Skipin eru
mörg mikið hlaðin og komast ekki
á aðra firði til losunar, enda þótt |
víðast sé nú löndunarbiðinni að,
ljúka.
„Ríkið" lokað
Það er margt um manninn í j
kaupstaðnum, en allur gleðskapur j
hefur farið fram með setningi,.
held ég, enda hefur áfengisverzl-
unin verið lokuð síðan á mánudag. |
GULLMAGN-
ÍÐ FALSAÐ
Að undanförnu hefur rannsóknarlögreglan unnið að
því að afla vitneskju um uppruna hinna margumtöluðu
gullrúblna frá keisaratímanum, sem farið var að bjóða
hér í bænum í vor og seinna kom í Ijós, að fundizt höfðu
í pökkum inn í vatnsleiðslupípum í Gullfossi.
Rannsóknarstofa háskólans var fengin til þess að efnagreina
gullið, og reyndist gullið í peningunum vera 68%. Þag svarar
til þess1, að í þeim sé sextán karata gull.
Efcki er enn vitað, hvernig því vék við, að peningarnir lentu
inn í valnsleiðslupípuum, sem sendar voru með Gullfossi til
fslands né hvar þeir hafa verið látnir í þessar pípur. Hitt er
vitað, að síðastlið'inn vetur var tilraun gerð til þess að smygla
til Svíþjóðar gullmynt með röngu gullmagni. Fyrir atbeina
sænsku lögreglunnar hefur vitnazt, að þessir gullpeningar komu
frá Belgíu, svo að grunur vaknar um, að keisararúblurnar í Gull-
fossi kunni einnig að hafa átt uppruna sinn þar.
Blaðið sneri s.ér til Ólafs Guðmundssonar, lögregluþjóns, sem
er manna fróðastur um mynt, og sagði hann, að venjulega væru
22 karöt gulls í gullpeningum. Á hinn bóginn taldi hann hæpið,
að það borgaði sig að falsa gulirúblur frá þvi eftir aldamótin,
þar eð þær væru ekki verulega fágætar. Þær f'ást nú í Dan-
mörku á 130—140 krónur danskar, en danskur tuttugu króna
gullpeningur, sem er svipaður að þyngd,. er 150 króna virði.
Rannsóknarlögreglan leitast að sjálfsögðu við að komast til
botns í þessu máli, en það tekur talsverðan tíma ag fá nauðsyn-
leg svör við ýmiss konar fyrirspurnum þessu viðvíkjandi frá
öðrum löndum.
Þær voru báðar í Nauthólsvíkinni, tvíburasysturnar, og af því spratt
allur vandlnn. Sá á nefnilega kvöllna, sem á völína. Vlð vlssum
ekki með hvorri systurinni við áttum að skarta á forsíðu. Lesend-
unum skilst betur vandi okkar, ef þeir líta á þriðju síðu, þar sem
við birtum mynd af systrunum, hlið við hllð. (Ljósmynd — TÍM-
INN —
komu til mælinga og athugana
fyrir nokkrum árum, töldu vænleg-
astan hafnarstað fyrir vestan Dyr-
hólaey, en þeir menn, sem undan-
farið hafa verið við þessar rann-1
sóknir, álita heppilegri stað fyrir i
austan hana. Nú ætla þeir að fara
að kortleggja Dyrhólaósinn sjálf-
an, en hann hefur útfall austan við
Dýrhólaey.
Ekki er fréttamanni kunnugt,
hvort kortlagning óssins stendur
aðeins í sambandi við hugmyndir |
um hafnargerð, eða hvort hún er
í einhverjum tengslum við óskir
manna um, að einhverjar lagfær-
(Framhald á 2. síðu.)
Löndun
lokið
RAUFARHÖFN, 28. júlí. — Lönd
un er að verða lokið, útlit er f.yrir
batnandi veður, þótt enn sé storm
ur, og fararsnið sýnist heldur á
þeim skipum, sem hér liggja í
höfninni.
Fólki er nú mjög farið að fækka.
Kvenfólkið hefur flykkzt í burtu,
enda lítur út fyrir, að ekki verði
miklu meira saltað á þessu sumri.
Og svo litið sé á fleira en síld,
sakar^ekki að geta þess, að fisk-
afii néfur verið tregur undanfar-
ið, og heyskapur hefur gengig afar
stirt, enda hef.ur tíð verið vætu-
söm rjr köld. J.Á.—H.H.
Úr þrotabúi viðreisnarinnar
Eftir tveggja og hálfs árs stjórn þeirrar valdasamsteypu,
sem nú ríkir, var búið að leika almenning þannig, að það vant-
aði náléga kr. 2.000,00 á mánaðarlaun verkamanna oig a.m.k.
annað eins á tekj.ur bænda, til þess að keyptar gætu orðið til
hcimilanna þær nauðsynjar, sem Hagstofan reiknar með, þegar
vísitalan er ákveð'in.
I tvö ár var samt beðið, og síðan reynt í marga mánuði, að
fá ríkisstjórnina til að stíga skref til verðlækkunar út úr þessu
kviksyndi „viðreisnarinnar“, — en ríkisstj. sat við sinn keip.
Þá fyrst, eftir meira en tveggja ára bið, og við algera neitun
ríkisstjórnarinnar um að gera nokkug til bóta, skullu verkföllin
á almennt, cg skiptust menn ekki í því eítir pólitík. Rfldsstjórn-
in sat algerlega ráðalaus og gerði ekkert til að leysa verkföllin.
Þau Ieystust samt fyrir atbeina annarra með frjálsum samn-
ingum. (Framhald á 2. síðu).