Tíminn - 30.07.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.07.1961, Blaðsíða 3
T f M IN N, sunnudaginn 30. júlí 1961. 3 Kínverjar stórorð- ir í garð Kennedys Kínverskt blaS segir forsetann hafa aukiS strííshættuna með boðskap sínum um auk- inn vígbúnatS fullyrðir, að með því að hafna til- Ibgum Sovétríkjanna í Bei'línar- málinu og svara þeim með hótun- um um að beita hervaldi hafi Kennedy og Bandaríkin aukið er hjá ICennedy að beita hótunum gegn Sovétrikjunum, segir blaðið. Þessi stefna og þær aðgerðir, sem Kennedy hefur nú boðað, eru svo fjarri því að vera nokkur á- vinningur fyrir bandaríska heims- valdasinna, þvert á móti mun þetta NTB—Peking, 29. júlí. Kínverska frétastofan Nýja Kína segir frá því í dag, aS Pekingblaðið Ta Kun Pao lýsi því yfir í forystugrein, að kín- stríðshættuna stórlega. Það verska þjóðin standi einhuga vafasöm stjórnmálastefna að baki tillögum Sovétríkj- anna um friðarsamninga til þess að leysa Berlínar- og Þýzkalandsvandamálið. Kínverska þjóðin er reiðubúin ....... að berjast við hlið Sovétrikjanna; skaða þá. Ummæli Kennedys for- sri °9 tonskald, og sest hann hér úti fyrir svaladyrum og annarra ríkja í Austur-Evrópu seta sýna einungis betur en ’á þessarl mynd, því að Páll og kona hans voru að legg fyrir varanlegum friði og bættri nokkru sinni fyrr, að hinir banda- itaðnum. Stokkseyrlngafélagið í Reykjavík og Stokkseyrarhreppur gáfu Páli sumarbústað þennan fyrir nokkr sambúð ríkja í milli, segir blaðið. r/sku heimsvaldasinnar eru í aug-1 jm árum, í tilefni sextugsafmælis hans, en hann er fæddur og uppalinn á Stokkseyri sem kunnugt er. Blaðið fordæmir harkalega þann um fólksins lítilfjörlegir stríðsæs-1___________________________________________________________________________________________ aukna vígbúnað, sem Kennedy ingamenn, segir í forustugrein Bandaríkjaforseti hefur boðað og Ta Kun Pao að lokum. Nýlega átfu Ijósmyndari og fréttamaður blaðsins leið um Árnessýslu, ásamt fleira fólki. Skammt austan við Stokkseyri varð þessi skemmtilegi sumarbústaður á vegi þeirra. Eigandi hans er dr. Páll ísólfsson, organleik- sínum. Ljósmyndarinn mátti ekki seinni vera til að i af stað til Reykjavíkur eftir hálfs mánaðar dvöl í bú- Sjór flæddi inn, tveir drukknnðu NTB—Bremen, 29. júlí. Einn verkamaöur drukkn- aöi og annars er saknað, er sjór flæddi allt í einu inn um gat á múrvegg á vitabyggingu sem þeir voru aö vinna við. Auk þessara tveggja manna unnu sex aðrir að vitabygging- unni, en þeim tókst að bjarga við illan leik. Ekki er nákvæmlega vitað, hvernig þessi sviplegi atburðúr varð, en mennirnir átta, sem voru að byggja lítinn vita við þýzku ána Weser, Viss-u ekki fyrr til en mikill sjór flæddi inn á þá, þar sem þeir voru að hlaða vegg. Færð- ust mennirnir allir í kaf, en þegar flóðbylgja þessi var farin hjá, voru tveir mannanna horfnir. Fjöldi smábáta, sem þarna voru nærri, fóru á vettvang til hjálpar mönnunum, sem eftir lifðu, og tókst að bjarga þeim eftir mikla erfiðleika. Þyrilvængja hafði fyrst freistað þess að bjarga mönnun- um, en ekki tekizt. Þarna er straumþungi mikill, en nú var auk þess hvasst og öldu- gangur mikill. Turninn stóð af sér ólagið og er talið, að hægt verði nieð lítilli fyrirhöfn að gera við skemmdirnar á honum. Bizerte-málið: Sovétríkin krefjast að- gerða S.Þ. gegn Frökkum Bandaríski fulltrúinn og Hammarskjöld fóru hins vegar mildari or'ðum um Frakka á fundi öryggisráftsins verkfræðingar byggja Aswanstífluna Enn sprengju- tilræði í Parísarborg París, 29. júlí. Sjö plasfsprengjutilræði voru gerð í nótt í París. Svo brá nú við, að f jórum þessara tiiræða var beint gegn hægri- mönnum í borginni, en til þessa hafa það verið hægri- sinnaðir öfgamenn, sem beitt hafa vopni þessu gegn and- stæðingum sínum. Nokkrar skemmdir urðu af tilræðum þessum, en ekki var vitað um slys á mönnum. NTB—Kaíró, 27. júlí. Kaíró-blaðið Al Ahram segir frá því í dag, að bráðiega verði undirritaður samningur milli Sovétríkjanna og Arabiska sambandslýðveldisins um, að 402 sovézkir tæknifræðingar og iðnfræðingar vinni við byggingu Aswanstíflunnar miklu. Hinum sovézku tæknifræðkig- um munu verða til aðstoðar 124 verkfræðingar af hálfu Arabíska sambandslýðveldisins. í samning- unum mun felast, að sovézku verk fræðingunum verði algerlega falið a?j sjá um vissa hluta mannvirkis ins og skila fullbyggðum. Má þar nefna byggingu stífluveggjanna og vatnsþróa, en einnig útvegun túrbína og rafala. i gær. New York, 29. júlí. i Fundur öryggisráðsins um ! Bizerte-deiluna, sem hófst eft- ir nokkrar vöflur af hálfu (Frakka klukkan um 8 í gær- kveldi, stóð til miðnættis, en var þá frestað til morguns. í dag hófust svo viðræðurnar að nýju. Á fundi ráðsins í gærkveldi fluttu fulltrúar Araiska sambands- lýðveldisins, Ceylons og Líberíu tillögu þess efnis, að báðir deilu- aðilar í Bizerte flyttu herlið sitt til þeirra bækistöðva, sem þeir höfðu áður en til bardaga kom. Er þetta í annað sinn, sem þessi riki bera tillöguna fram. Fréttamaður brezka útvarpsins hjá Sameinuðu þjóðunum segir, að vafasamt sé, að þessi tillaga nái þeim sjö atkvæðum, sem nauðsyn leg eru ttil þess, að hún nái sam- þykki. En þótt svo fari, að tillag- an fengi þessi atkvæði, gætii Frakkar alltaf beitt neitunarvaldi sínu. Til þessa hefur franski fulltrú- inn neitað að taka þátt í umræð unirm og heldur því fram, að þetta mál liggi fyrir utan vald- svið Sameinuðu þjóðanna og eigi aðeins að ráða því til lykta með viðræðum á milli deiluailanna sjálfra. Hafa Frakkar enn einu sinni lýst því yfir, a þeir muni virða að vettugi allar samþykktir öryggísráðsins, og þess vegna sé fundur þess raunverulega gagns- laus. Halda þeir því fram, að þetta sé einungis mál, sem varði Frakk- land og Túnis og komi öðrum ekki við. Einnig hefur franski stjórnar fulltrúinn sagt enn einu sinni, að Túnisbúum muni ekki haldast uppi að reyna með aðstoð Sameinuðu þjóðanna, að fá því framgengt, sem þeim tókst ekki með vopnum. Fulltrúi Túnis hefur hins vegar borið Frakka þeim sökum, að franskir fallhlífahermenn í Túnis hafi myrt heilar fjölskyldur í Biz- erte. Á fpndinum í gær tóku full- trúar flestra ríkja til máls, og voru skoðanir noklkuð skiptar. Brezka útvarpið segir, að full- trúi Bandaríkjanna í ráðinu hafi farið frekar mildum orðum um Frakka, en hins vegar hafi full- trúi Sovétríkjanna verið mjög harðorður í garð Frakka og kraf izt aðgerða Sameinuðu þjóðanna gegn þeim. Þá hefur brezka út- varpið það og eftir fréttamanni sinum, að Hammarskjöld hafi ver ið miklu mildari en menn höfðu vænzt, er hann flutti skýrslu um för sína til Túnis.______ Brúarvígslunni frestað Vígslu hinnar miklu brúar á Hornafjarðarfljóti, sem fara átti fram í gær, var frestað þar til í dag. — Veður var hið leiðasta þar eystra í gær, suddi og kalsi. Vegamálastjóri og samgöngumála ráðherra höfðu acílað að koma austur með flugvél Björns Páls- sonar, cn komust ekki vegna bræl unnar. Bindindismannamót í Húsafellsskógi Lögregluþjónn inn látinn Ásmundur Sigurðsson lögreglu- þjónn, sem slasaðist mikið fyrir skömmu í umferðaslysi, lézt í fyrri nótt. Hann mun hafa verið rænu- lítill allt frá því, að slysið átti sér stað og þar til hann iézt. I Um Verzlunarmannahelgina verður haldið mót bindindismanna í Húsafellsskógi. Umdæmisstúkan nr. 1 í Reykjavík, sem er samband ailra stúkna á suðvesturlandi hef- ur haft forgöngu um mótið og kos- ið nefnd til að annast undirbúning þess, og hafa stjórn þess á hendi. Umdæmisstúkan gekkst fyrir móti bindindismanna um Verzlunar- mannahelgina á síðast liðnu sumri 1 Húsafellsskógi. Það mót var í alla staði hið ánægjulegasta. Var það fjölmennt og þótti fólki ánægjulegt að dveljast í skóginum, enda var veður sérstaklega hlýtt og sólríkt um þá helgi í fyrra. Mótið verður sett á laugardags- kvöldið þann 5. ágúst n. k. Verður ; gist í tjaldbúðum á afgirtu svæði við Selgil. Á mótinu verða nokkur stutt dagskráratriði til skemmtun- ar. Á laugardagskvöldið verða varðeldar og almennur söngur. Á , sunnudag verður efnt til göngu- ferða um nágrennið, meðal annars verður farið að Surtshelli. Á kvöld- in vejður dansað úti ef veður leyf- ir. Á mótsstað verður til sölu mjólk, gosdrykkir og sælgæti. Mótinu verður slitið fyyir hádegi a mánudaginn 7. ágúst. Sætaferðir verða frá Bifreiða- stöð íslands.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.