Tíminn - 30.07.1961, Blaðsíða 11
11
Þessl mynd hefur borizf frá Angóle. Innbornir fangar með hendur bundnar á bak aftur bíða yfirheyrslu hjá Gestapolögreglu Salazars.
Glæpur á 15
sekúndna
fresti
Skýrslur um afbrot í Banda
ríkjunum á s.l. ári sýna yfir
100% aukningu frá árinu 1950
að telja. Á árinu 1960 var
framið morð á 58. hverri mín
útu í Bandaríkjunum, nauð'g-
un á 54 mínútna fresti, líkams
árás fjórðu hverja imínútu og
rán á sex mínútna fresti —
að meðaltali. Alls voru framd
ir 1.863.300 alvarlegir glæpir
í landinu á þessum tíma, en
það þýðir einn glæp á 15
sekúndna fresti.
Castro reisir minn
ismerki
Fidel Castro hefur ákveðið
að reisa Hemingway minnis-
merki. Ekkja Hemingways hef
í ur tilkynnt þetta, en sagði
jafnframt, að sér væri ekki
kunnugt um í hvaða formi
minnismerkið ætti að vera,
myndastytta eða bókasafn. —
Hemingway hafði búsetu á
Kúbu á síðustu árum og
studdi Castro í orði og verki
i byltingunni.
Idsprengjumorðingjam-
r - tapa þeir í Angóla?
Nýlega birti brezka blaðið
Observer lýsingu á atburðun
um í Angóla, en greinarhöf-
undur er fregnritari blaðsins
í Luanda, höfuðstað lands-
ins. Þessi lýsing er ein þeirra
fáu, sem hafa sloppið gegn-
um fingurna á eftirliti Portú-
gala.
Fregnritarinn fullyrðir að
Portúgal sé að tapa þessu
stríði, en fullyrðir jafnframt,
að einræðisherrann Salazar
muni einskis svífast í sinni
vonlausu baráttu.
Hann segir að þurrkatim-
inn, sem nú hefur staðið yfir
á þriðja mánuð, hafi ekki
fært portúgölsku herjunum
þann sigur, sem þeir vonuðust
eftir, og að mánuði liðnum
byrjar regntími á ný.
Nú eru um 20 þúsund portú
galskir hermenn í Angóla, en
það er um það bil helmingur
þess mannafla, sem her lands
ins hefur á að skipa yfirleitt.
Takmark Portúgala var að
umkringja uppreisnarmenn
og loka landamærunum gegnt
Kongó, en talið er að upp-
reisninni sé stjórnað þaðan.
Hvorugt þetta hefur tekizt og
Portúgalar í landinu, eink-
um plantekrueigendur á svæði
uppreisnarmanna kvarta nú
æ meir undan dugleysi herj-
anna.
Blaðið Journal do Congo,
sem kemur út í bænum Car-
mona, hefur jafnvel gengið
svo langt, að láta í Það skína,
að fimmta herdeild sé að
verki innan herja Portúgals.
Það hefur því vakið furðu,
að grein fregnritarans skyldi
sleppa óskert út úr landinu. j
j
Fregnritarinn lýsir vinnu-'
brögðum uppreisnarmanna,;
svo sem brúasprengingum.
Hafi þeir ekki dynamít við,
hendina, nota þeir aðrar að-j
ferðir, svo sem að grafa skurð'i |
utan brúarstöplanna og veita
vatninu þar í, en síðan gref-
ur það undan stöplunum og
brúin hrynur. Önnur aðferð
þeirra er að kynda bál undir
brúnum og sprauta vatni á
steypuna, þegar hún er orðinn
nægilega heit. Þá springur
steypan. |
Þá minnist fregnritarinn á
hergagnaflutninga Portúgala
til Luanda .Þangað streymir
i sífellu mikið magn af eld-
sprengjum, fylltum benzín-
hlaupi, og á bryggjunum í
Luanda eru heilir skipsfarm-
ar af þessum ógeðslegu vopn-
um. Þá segir, að ein af þeim
mörgu flugvélum, sem komiðj
hafa til landsins upp á síð-
kastið, hafi tekið þátt í hern-!
aðaraðgerðum undir kanadísk
um merkjum. Enn fremur að,
„í ráði sé að kaupa nýjar
brezkar sprengjuflugvélar, því;
gömlu vélarnar, sem nú erul
í notkun í Angóla, séu illa
fallnar til að varpa niður eld-
sprengjum.
Það kemur einnig fram í
greininni, að portúgalski her-
inn hefur þegar beitt þessum
sprengjum, því þar segir, að
komið hafi í ljós, að skógar-
kjarrið hindri tilætluð áhrif
sprengjanna, sem orsaka mik
ið eldhaf, en brennandi ben-
zínhlaupið læsir sig í föt og
skinn.
í þessu sambandi má minna
á, að brezkur prestur, Michael
Scott, sem kom til stöðva
angólskra flóttamanna í
Kongó fyrir skömmu, skýrði
svo frá á blaðamannafundi í
London, að margir flótta-
mannanna væru illa haldnir
af brunasárum.
Læknar voru þeirrar skoð-
unar, að þeir hefð'u brennzt
af log i ’i benzínhlaupi, sagði
presturinn. Einn flóttamanna
skýrði sVo frá. að flugvélarnar
hefðu kastað logandi benzíni
á húsið hans.
Fregnritarinn segir að
Gestapo-lögregla Salazars,
PIDE, hafi komið upp nýjum
bækistöðvum í fjölda þorpa í
landinu, og þar séu látlausar
og skipulagðar handtökur. Af
leiðingar þeirrar skálmaldar,
sem nú geisar í landinu eru
hvergi nærri komnar á dag-
(Framhald á 15. síðu)
Bandaríska söngkonan Grace Bumbry fer um þessar mundir með hlutverk
Venusar í Tannháuser eftlr Wagner á tónlistarhátíð í Bayreuth. Stjórn-
andi óperunnar er sonarsonur Wagners gamla, Wleland Wagner. En ekki
voru landar hans allir ánægðir með Grace Bumbry [ hlutverki Venusar.
Sönghæfileikar hennar voru ekki dregnir í efa, en litarhátturinn varð til-
efni magra mótmælaorðsendinga og skammarbréfa, sem stjórnandanuni
bárust. Söngkonan er sem sé svört á litinn Einn bréfritara komst svo að
orði: „Afi þlnn mundi snúa sér við í gröfinni". Annar sagði: „Smekkleysa,
hneyksli, óvirðing við bæinn" o. s. frv. En stjórnandlnn lét þetta ekki á
sig fá. „Afi minnmun ekki snúa sér við í gröf slnnl", sagði hann. „Ég
j kem með svarta, brúna eða gula söngvara, þegar mér hentar; ég er ekki
j á höttunum eftir hávöxnum, Ijóshærðum „ídeal-manneskjum", en ég hef
' leitað a* beztu söngkonunni til að fara með hlutverk Venusar og það hefur
j sýnt sig- að Grace Brumby er kvénna bezt fallin til þess".