Tíminn - 08.09.1961, Qupperneq 2
11
T í MIN N, föstudaginn 8. september 1961
Aðalfundi Stéttasambands bænda lokið:
Bændur þurfa aukin lán
Hvetja til varfærni í efnahagsbandalags-
málunum - mótmæla bindingu sparif jár
Aðalfundi Stéttarsambands bænda
að Bifröst lauk í gærmorgun. For-
maður sambandsins, Sverrir Gísla
son í Hvammi, hélt Iokaræðu.
Þakkaði hann Ingólfi Jónssyni,
landbúnaðarráðherra, Steingrími
Steinþórssyni búnaðarmálastjóra,
og Hannibal Valdimarssyni for-
seta ASÍ komu þeirra til þlngsins.
Sverrir ávarpaði cinnig Jón Sig-
urðsson á Reynisstað og þakkaði
honum lanigt og gifturíkt starf í
stjórn stéttasambandsins, en Jón
baðst nú undan endurkosningu
fyrir aidurs sakir. Jón flutti
kveðjuræðu ofif þakkaði samstarf-
ið á liðnum árum.
Kvöidið áður hafði verið gengið
til kosninga. Var Bjarni Halldórs
son á Uppsölum kjörinn í stað
Jóns Sigurðssonar. Aðrir í stjórn
voru endurkjörnir, Sverrir Gísla-
son í Hvammi formaður, Einar
Ólafsson í Lækjarhvammi, Bjarni
Bjarnason á Laugarvatni og Páll
Metúsalemsson á Refsstað. f vara
stjórn voru kjörnir þeir Sigurður
Snorrason, Ólafur Bjarnason, Jó
hannes Daviðsson, Sveinn Einars
son og Gunnar Guðbjartsson.
Á þinginu voru samþykktar um
25 ályktanir. Fara þrjár þeirra
| hér á eftir, en aðrar munu birt-
| ast í blaðinu innan tíðar.
Lánsfé og lánskjör
i Aðalfundur Stéttarsambands
| bænda 1961 lítur svo á, að þær
' stórstígu breytingar í verðlags-
i málum í landinu sem átt hafa sér
stag að undanförnu, einkum þó
á síðasta ári, hafi svo neikvæð
áhrif á þróun landbúnaðarins með
al þjóðarinnar, sér í lagi, að því
er snertir byrjendur í búskap að
ekki sé unandi við það ástand er
ríkir í þessum málum nú. Sem
tilraun til ag draga nokkuð úr
þeim erfiðleikum, sem þarna er
við að stríða, telur fundurinn nauð
synlegt að Stéttarsamb. bændai
beiti sér fyrir eftirfarandi:
1. Veðdeild Búnaðarbankans
verði efld svo ag hún verði fær
um að veita frumbýlingum nægi-'
leg lán með hagstæðum kjörum
til kaupa á jörð, búi og landbún
aðarvélum.
2. Að tryggt verði fjármagn til
stofnsjóðalána landbúnaðarins. i
3. Að lausaskuldir bænda fáist
yfirfærðar í bankana og verði lán
Útboðslýsing
á Þorlákshöfn
Frá fréttaritara Tímans
í Þorlákshöfn.
Vitamálastjóri hefur sagt,
að hann verði tilbúinn að gefa
útboðslýsingu á fyrirhuguðum
hafnarframkvæmdum í Þor-
lákshöfn nú um næstu helgi.
1 Tveir bátar eru nýbyrjaðir með
dragnót og tveir aðrir byrja næstu
daga. Tveir bátar verða með fiski-
vörpu og er annar þeirra byrjaður.
Dragnótarbátarnir fiska sæmilega
en trollbáturinn miður. Það stend-
ur þó til bóta, er þorskur og ýsa
fara að ganga eftir miðjan þennan
mánuð. Á.B.
aðar til langs tíma með lágum
vöxtum.
4. Að ríkissjóður taki að sér
greiðslu hinna erlendu lána sem
sjóðir Búnaðarfélagsins hafa feng
ið.
5. Að vextir stofnlána verði
lækkaðir og lánstiminn lengdur
í það sem áður var.
Efnahagsbandalagið
Stéttarsamband bænda litur svo
á að hugsanleg aðild fslendinga
að erlendu efnahagsbandalagi sé
svo stórfellt og vandasamt mál,
að brýna nauðsyn beri til að skýrt
verði ýtarlega fyrir þjóðinni hvað
í slíku felst, og að ekki komi til
mála ag veita útlendingum jafn-
rétti til atvinnureksturs eða at-
vinnu á fslandi eða í íslenzkri
landhelgi.
Ennfremur bendir Stéttarsamb.
bænda á að gæta verður vandlega
hagsmuna landbúnaðarins í sam-
bandi við allar ákvarðanir nýja
samningsins um viðskiptatengsl
við aðrar þjóðir og telur nauðsyn
legt að samráð verði höfð við aðal
bændasamtök landsins, ,áur en til
slíkra samninga komi.
Bundið spariféS
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1961 mótmælir harðlega
þeitn lögskipaða fjárflutningi frá
sparisjóðum og innlánsdeildum til
bindingar í Reykjavík sem fram
hefur faiið og skorar á þing og
stjórn að aflétta þessu nú þegar.
Þessar tillögur voru allar sam-
þykktar samhljóða.
Fundur utanríkisráðherra
Norð'urlandanna, sem lauk í gær
í Kaupmannahöfn, lýsti vonbrigð
um yfir því, að kjamorkuvopna- j
tilraunir skyldu hafa verið tekn-,
ar upp að nýju, og ráðherrarnir
leggja áherzlu á, að nú beri
meiri nauðsyn en nokkru sinni
til raunhæfra samninga um al-
menna afvopnun undir virku
eftiriiti.
Söguleg fjallreiÖ
(Framhald af 1. síðu).
flutningurinn leikur einn, saman-
borið við það erfiði, sem þeir, er
fyrr vöndust upprekstrum á Holta
mannaafrétt, áttu að venjast. Þó
munu engin slys hafa orðið á þess
um ferjustað, en mælt er, að Guð
mundur góði hafi vígt hann, er
hann lét yfirreiðast um landið og
blessaði marga staði, þar sem
hætta steðjaði að mönnum.
f voru hlóðu Áshreppingar upp
fjárbyrgið á syðri baka árinnar,
og í haust munu þeir fara með
staura, net og borðvið til að setja
upp aðhald við ferjustaðinn að
norðan.
Líkt við kafbát
(Framhald af 1. síðu).
Líklegt er, að þeir Hafsteinn og
Viktor, sem voru tveir einir á Eld
ingunni, verði látnir bera vitni
fyrir rétti um ferðir sínar þetta
kvöld, og ætti þá við samanburð
á frásögn þeirra og skipverja á
Mími að fást úr því skorið, hvort
það var aðeins Eldingin, sem
þarna var á ferð, eða hvort
enn eru einhverjar líkur til, að
Mímismenn haifi séð óþekktan
kafbát.
Bændasamkoma
(Framhald af 16. siðu).
Ævar R. Kvaran leikari skemmti
með upplestri og Hallgrímur Jóns
son frá Ljárskógum flutti frumort
kvæði. Þá var og almennur söng-
ur meðal annars var sungið ljóð,
er Hallgrímur Jónsson hafði sam
ið í tilefni dagsins. Konur úr
Haukadaishreppi stóðu fyrir veit
ingum. Um kvöldig var svo dans-
að.
BúnaðarsambamL Dalamanna
gekkst fyrir þessari samkomu
eins og undanfarin ár, ,en sérstök
nefnd sá um framkvæmdir eins
og áður. f nefndinni áttu sæti þess
ir menn: Guðm. Halldórsson,
bóndi, Magnússkógum, Kristm.
Jóhannsson, bóndi, Giljalandi,
Guðmundur Gíslason bóndi í
Geirshlíð Guðm. Guðbrandsson
bóndi á Hóli, og Bjarni Finnboga
son ráðunautur, er var formaður
nefndarinnar.
Samkomuna sóttu um 400 manns
og fór hún vel fram, þrátt fyrir
nokkuð óvæntan fólksfjölda og
slæmt veður.
Lánsfé að fjárhæð 52 milljónir
er til reiðu til framkvæmdanna,
en gert er ráð fyrir, að fyrirhug-
aður áfangi muni ekki kosta svo
mikið. Vonir standa því til, að
framkvæmdir verði hafnar næsta
Vor.
Bygging fiskverkunarstöðvar er
nýhafin, en hún verður 400 fer-
metrar að stærð. Byrjuð var smíði
á tólf íbúðarhúsum hér í sumar.
Barnungar telpur
fara um hnuplandi
@ UTAVURHEm^ 1
| Fyrir skömmu fékk lögregl-
an til meðferSar afbrotamál
itveggja ungrá telpna, sem
KENNEDY Bandaríkjaforseti til- mál að taka franska liðið frá Bi-|. „
kynnti í gær, að gerður hefði verið zerte, en á þennan veg túlkaði Bo-'^13^3 01 uppvisai að hnupll
samningur um það við Frakka, að urgiba ummæii de Gaull'e á blaða- j úr búðum Og skrifstofum.
tilskildu samþykki Bandaríkjaþings,, mannafundinum um daginn. ÞótUu ... R na 1 f) árn
að Bandaríkjamenn kenni frönskum | Frökkum þessi afstaða Bourgiba j ®
hermönnum meðferð bandarískra | benda til sætta.
kjarnorkuvopna. Sendi Kennedy 1 JAPANSSTJÓRN hefur lýst harmi Telpurnar hnupluðu pemngum,
samning þennan fyrlr þingið í dag, ■ vegna ákvörðunar Bandaríkjastjórn-' samtals um tvö þúsund krónum,
vitnaði til festu de Gaulle í heims- ar að taka upp aftur tilraunir með og smávarningi úr búðum. Þær
málunum og þess, að slíkir samn
ingar hafa áður verið gerðir við
önnur NATO-ríki.
JOAO GOULART var í gær hátíð
kjarno.rkuvopn Hefur ambassador ^yrjuðu þessa iðju seinnipartinn
Japans í Washinston afhent orðsend
sumar og gerðu sér oft erindi í
ingu um þetta og lýst von Japans,
að ákvörðuninni verði breytt ^uðir eða sknfstofur, báðu um að
lega settur í embætti Brazilíufor- INNAN FÁRRA VIKNA mun verða fá að fara á salerni eða tala í síma.
seta, og ætti þá að vera enduð (i'logið til Suðurskautslandsins með Á þennan hátt komust þær stund-
kreppan í landinu. Goulart verður steinvarða til minningar um leið. um j peningakassa, án þess að því
fyrsti Brazilíuforseti, sem fær ríkis- angra Rmundsens og Scott fyrir værj Veitt athygli, enda fólk ekki
stjóm, er styður þingmeirihluta, og, 50 árum. Munu brezkir og norskir tortryggið gagnvart börnum, sem
forsætisráðherra við hlið sína. Erjfulltrúar koma varðanum fyrir, lik- standa varla upp fyrir búðarborð-
framkvæmdavald nú tekið af forset- léga í einhverju þeirra húsa, sem ið. Stundum náðu þær fé úr kven-
anum og fengið slikri ríkisstjórn. | heyra til vísindastöð Bandaríkja-' veskjum og eyddu peningunum
SÆTTIR TÚNIS og Frakklands, manna, sem kennd er við Amundsen1 jafnharðan í sælgæti og því um
þóttu liggja í loftinu í París í gær, og Scott og er mj g nálægt þeim Jikt.
eftir að Bourgiba sagðist álíta, að stað, >6em þeir komust næst suöur-
de Gaulle tæki nú í fyrsta skipti í skautinú. I Ekki er þess getið, að telpurnar
Fjölgar í hernum
(Framhald aí 3. siðu)
herskyldutíma sínum síðar í þess-
um mánuði. Yrði þá ef til vill tími
tii kominn að senda menn þessa
til endurþjálfunar. Hins vegar
þyrfti lagabreytingu til að lengja
herskyldutimann.
Adenauer var beðinn að segja
frá þessum málum vegna lausa-j
frétta, sem gengið hafa um það,j
að V-Þýzkaland muni lengja her-j
skyldutímann úr 12 í 18 mánuði.!
Öldungadeild v-þýzka þingsins
ræðir á föstudaginn tillögu um að
veita stjórninni heimild til að her-
væða iðnaðarmenn og iðnsérfræð-
inga á aldrinum 18—60 ára, ef til
alvarlegra tiðinda dragi.
í bo'ðinu hjá blaðamannafélag-
inu sagði Adenauer enn, að hann
hefði enga trú á, að stríð kvikn-
aði út frá Berlínarástandinu.
Enginn maður myndi vilja hefja
styrjöld, sem verða myndi honum
sjálfum að grandi. Það væri að
vísu ekki útilkoað, að stríð gæti
orðið af slysni, en hættan á slíku
geri það að verkum. að þeir
menn, sem stýrðu hinum liræði-
legu vopnum nútínians, væru
afar varkárir Hann sniðisi álíta
Krústjoff nægilega "reindan til
að hefja ekki kjarnorkustyrjöld.
hafi haft neina sérstaka fynnriy.nd
að þessu hnupli úr bíómyndum eða
blöðum og ekki heldur að aðstand-
endur þeirra hafi vanið þær á að
sóa fé. Barnaverndarnefnd hefur
nú fengið mál þetta til meðferðar. i
Brezka verklýíssam-
bandiÖ
(Framhald af 3. síðu).
var til atkvæða urðu mjög lang
ar og heitar umræður á þinginu.
Önnur tillaga, sem var um það,
að ekki skyldi þjálfa þýzka her-
menn á enskri grund, var sam-
þykkt með naumum meirihluta.
Nýlega kom til Bretlands fyrsti
herflokkurinn sem þangag kemur
til hernaðarþjálfunar á vegum
Atlantshafsbandalagsins, og vakti
það nokkra gremju sums staðar.
Ársþing verkalýðssamtakanna
lýsti harmi sínum vegna þess, að
Ráðstjórnarrfkin hafa tekið upp
aftur kjarnorkutilraunirnar, og
skoraði á Krústjoff að stöðva til-
raunimar vegna alls mannkyns.
Þingið skoraði á öll kjarnorku-
veldin að hætta við frekari til-
raunir og að koma aftur saman
til fundar í Genf til þess að koma
á banni við slíkum tilraunum.
Umræðan um kjarnorkumálin
var hafin af alþjóðamálanefnd
verkalýðssamtakanna. Sir Alfred
Roberts mælti fyrir því, að al-
heimsstjórn kæmi í framtíðinni
í staðinn fyrir stjórnleysi valda-
streytunnar. Ákvörðun Sovótríkj-
anna og sfðan Bandaríkjanna um
að taka kjarnorkutilraunir upp
aftur, hefði bæði verig mikið á-
fall og skref aftur á bak. Hann
bætti því við, að hann vonaði, að
í samningunum, sem verða myndu
út af Berlín, myndu stórveldip
skapa kjarnorkuvopnalaust belti,
sem dregið gæti úr hættunni á
því, ag slysni kæmi af stað heims
styrjöld. En hann tók einnig fram,
að Bretar mættu ekki Ifða nein-
um að túlka hina hófsömu stefnu
sfna sem undanlátssemi.
A<S deyja í Róm
(Framhald af 1. síðu).
— Ójá, ég vil nú ekkert við
blaðamenn eiga.
— Er yður í nöp við blaða-
menn?
— Mér fellur ekki við þá. Sér-
staklega ekki hjá Tímanum.
— Hvað er að þeim hjá Tím-
anum?
— Þetta eru flestir Þingeying-
ar og alls konar lýður. Þér getið
komið og heimsótt mig þangað,
sem ég flyt, og þá skal ég taka
vel á móti yður.
—í Róm?
— Já, ég er að fara til Róm í
f fyrramálig klukkan tíu.
— Eg er ekki Þingeyingur. Eg
er Reykvíkingur í húð og hár.
— Það er skárra. Reykjavík er
sæmileg, en ég vil samt ekkert
við yður eiga. Eg vil ekki fá
blaðamenn í minn bisness. Höf-
um við talazt við áður?
— Nei, ég er nýr í stéttinni og
óspilltur.
— Það er nú gott ag vera ó-
spilltur, en ég má ekki vera að
þessu. Eg cr að fara í fyrramálið.
Það þykir nú kannske frekt af
hálfníræðri kerlingu, en ég fer
nú samt. Það þykir svo fint að
deyja í Róm, er það ekki?
— Ætli ftölum finnist það?
— Ójú, ætli það ekki. Það þykir
öllum fint að deyjaýí Róm.
— Þér komið þá'ekki meira til
íslands í þessu lífi?
— Það veit ég ekki. Hvernig
ætti ég að vita það. En ég hef
ekki hugsað mér að koma aftur.
— Mér er sagt að þér hafið
gefið háskólanum ýmislegt, sem
tilheyrði Einari.
— Nei, nei. Það var löngu búið
að ánafna háskólanum það.
— Þér hafið bú i Fossvoginúm.
Kvr og hænsni. Hvað verður um
það?
— Já, ég hef bú, en það er eign
sonar míns. En nú ætla ég ekki
að tala við yður lengur. Eg ætla
að leggja mig og sofa svolítið.
Verið þér blessaðir og sælir.
— Verið þér sælar og góða ferð
til Rómar. Birgir.