Tíminn - 08.09.1961, Page 5

Tíminn - 08.09.1961, Page 5
TÍMINN, fostadaginn 8. september 1961 Otgefandl: FRAMSÚKNARFLOKKURINN Framlrvæmdast.ióri: Tómas Arnason Rit stjórar Þórarinn Þórarmsson (ábj, Andrés Kristjánsson Jón Helgason Fulltrúj rit stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsmga stjóri: EgiB Bjarnason — Skriístofui i Edduhúsinu — Simar 18300— 18305 Auglýslngasimi 19523 Algreiðsiusimi 12323 — PrentsmiðjaD Edda h.f. Verðlagsmál landbúnaðarins Á hinum nýlokna aðalfundi Stéttarsambands bænda bar tvö mál langhæst. Annað þeirra var verðlagning land- búnaðarafurða. Hitt þeirra var lánsfjárskortur landbún- aðarins og versnandi lánakjör. Sameiginlega valda þessi mál því, að bændur búa nú við mjög versnandi afkomu og að uppbyggingin í land- búnaðinum er óðurn að stöðvast. Bæði þessi vandkvæði hafa aukizt stórkostlega við „viðreisnina“ svonefndu. Á aðalfundinum var mikið rætt um verðlagningar- málin og bar öllum saman um, að verðgrundvöllurinn hefði mjög raskast seinustu árin og gæfi vísitölubúið því ekki lengur rétta hugmynd um raunverulegan reksturs- kostnað landbúnaðarins. Þannig fer t. d. þáttur véltækn- innar í landbúnaðinum sívaxandi en kostnaðurinn við hann hefur alveg sérstaklega aukizt af völdum hinna miklu verðhækkana, sem orðið hafa seinustu misserin á vélum, varahlutum, benzíni, olíum o. fl. Þá hefur kostn- aðurinn við viðhald fasteigna og fyrningu útihúsa mjög aukizt af sömu ástæðum, en til þessa útgjaldaliðar hefur verið tekið allt of lítið tillit í rekstrarkostnaði vísitölu- búsins og reynist það miklu tilfinnanlegra nú en áður, sökum verðhækkananna. Adrei hefur heldur fengist tekið nægilegt tillit til vaxta af eigin fé, sem bændur hafa lagt 'í framleiðsluna, né til vaxta af rekstursfé. Vinna fjölskyld- unnar hefur og ekki fengizt tekin nægilega til greina, þegar vinna bóndans er undanskilin. Allt þetta veldur því, að „viðreisnin" bitnar með enn meiri þunga á bændum en öðrum stéttum og að þeim er það hið brýnasta hagsmunamál, að eðlilegar breytingar fáist á verðlagsgrundvellinum, þ. e. vísitölubúinu, í sam- ræmi við það. Þessi mál hafa undanfarið verið til umræðu í sex manna nefndinni svokölluðu, þar sem fulltrúar bænda og neytenda eiga fulltrúa. Heldur horfir þunglega um samkomulag þar og hafa fulltrúar neytenda enn sem komið er ekki sýnt þann skilning, sem vænta mátti. Út- séð er þó ekki um það, hvort samkomulag næst, og væri það vissulega ánægjulegast, að samkomulag gæti orðið í nefndinni. Ef samkomulag næst ekki í nefndinni, ganga deilu- atriðin undir úrskurð yfirnefndar, þar sem hagstofustjóri er oddamaður. Á aðalfundi Stéttarsambandsins var sam- þykkt að láta deiluatriðin heldur ganga til yfirdóms en að víkja að ráði frá þeim óskum, sem fulltrúar bænda hafa sett fram í sex manna nefndinni. Á aðalfundi Stéttarsambandsins kom fram mikill ein- hugur um þetta mál. Og glöggt kom fram, að umræddar kröfur bænda eru ekki settar fram af neinum pólitískum ástæðum, því að stjórnarsinnar, sern áttu sæti á fundin- um, tóku ekki síður undir þær en hinir. Þá veldur lánsfjárskorturinn og óhagstæðari lánakjör bændum miklum erfiðleikum. Af þeim ástæðum eru fram- kvæmdir í landbúnaðinum mjög að stöðvast. Síðar mun rætt hér í blaðinu um aðstöðu aðalfundar Stéttarsam- bandsins til þess máls. Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að bændastéttin býr nú við versnandi kjör og vaxandi erfið- leika af völdum stjórnarstefnunnar. Landbúnaðurinn stendur höllum fæti, ef ekki fást úrbætur á þessu hið fyrsta. i 5 Fólk, sem taiað er um Lokið er nú fundi æðstu manna óháðu ríkjanna, sem haldinn var í Belgrad. Ein helzta ályktun fundarins var sú að skora á þá Krustjoff og Kennedy að hittast f.jótlega til að ræða heimsvandamálin. Nehru og Nkrumah hafa þegar farið með þessa orðsendingu á fund Krustjoff, en Sukarno og forsætisráðherra Mali munu flytja Kennedy hana innan viku.. Bæði þeir Kennedy og Krist- joff sendu fundinum ávörp og líkaði ávarp Kennedys betur. Því var og sérstaklega vel tek- ið vegna þess, að Bandaríkin höfðu sýnt óháðu ríkjunum óvild í stjórnartíð Eisenhow- ers, en Kennedy hefur tekið miklu vinsamlegri afstöðu til þeirra. Það spillti svo enn við- horfinu til Sovétríkjanna, að þau tilkynntu rétt um það leyti, sem ráðstefnan var að hefjast, að þau myndu hefja tilraunir með kj arnork'usprengingar á nýjan leik, en það hefur verið eitt helzta baráttumál óháðu ríkjanna, að þessum tilraunum yrði alveg hætt. Ríkin, sem tóku þátt í ráð- stefnunni, voru upphaflega 24, en síðar bættist 25. ríkið í hóp- inn, en það var Kongó Komu þeir allir þrír á ráðstefnuna Adoula forsætisráðherra, Gi- zenga varaforsætisráðherra og Bomboko utanrikisráðherra. Adoula lýsti yfir því, að Kongó myndi taka upp óháða utan- ríkisstefnu og ekki bindast neinum stórveldasamtökum. Ræða Adoula bar þess þó vitni, að í mörgum helztu ágreinings- málum, sem nú eru uppi, steíid ur hann miklu nær vestri en austri. FORSETADEILAN í Brazi- líu virðist nú leyst á þann hátt, að Goulart tekur við forseta- embættinu, en völd hans verða verulega skert á þann hátt, að við hlið hans kemur allvalda- mikill forsætisráðherra, sem þingið velur. Ástandið í Brazi- líu er því talið ótryggt enn. Joao Goulart á flugvellinum í New York á heimleið til Brasilíu. Adoula, Gizenga og Bomboko í Belgrad. Frá Belgradfundinum: Sukarno og Nehru. ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? i ? ? ? > / ? ? ? ? j / ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? •">-W\..VVV\.VVVVWVVVWVVVV ;.jíistu manna óháSu ríkjanna í Belgrad: Nasser og Bourguiba sátu hlið við hlið, þótt oft hafi -:mt á því góða milli þeirra.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.