Tíminn - 22.09.1961, Page 1
316. tbl.
45. árgangur.
Föstudagur 22. september 1961.
Dofri dró her-
pramma í
Patreksfirði 21. sept.
Vélbáturinn Dofri hefur
bjargaö stórum járnpramma,
sem slitnaði aftan úr dönsku
flutningaskipi á siglingaleið út
af Vestfjörðum, og liggur nú
prammi þessi í f jöru hér á Pat
reksfirði.
Dan.ska flutningaskipið kom
með ferlíki þetta í eftirdragi úr
Aðalvík, og mun það vera í eigu
bandaríska hersins. Pramminn
bilaði og varð lekur, svo að hann
sökk nær alveg í sjó og var mjög
hættulegur skipum, þar sem hann
maraði í kafi á siglingaleiðinni
hér út af fjörðunum.
Var nærri sokkinn
Prámminn hafði sokkið að aftan
verðu en hékk uppi á framend-
anum. Slík tæki eru með loft-
hólfum, er halda þeim á floti og
munu afturhólfin hafa eyðilagzt.
Eins og fyrr segir, slitnaði pramm
inn aftan úr danska flutningaskip
inu, og var þá útvarpað auglýs-
ingum til skipa um að vara sig
á járnferlíki þessu í sjónum. Dofri
frá Patreksfirði fór síðan til og
dró prammann til Patreksfjarðar,
og liggur hann þar í fjörunni. —
Pramminn er með tveimur vél-
um og tveimur skrúfum og ein-
hverri yfirbyggingu að aftan.
Hann var tryggður hjá Sjóvátrygg
ingarfélagi íslands. — Skipstjóri
á Dofra er Jón Magnússon.
Ofsaveður
í Mýrdal
— í austanátt
Mýrdal 21. sept.
Fyrir rúmri viku gerði hér
óvenjulegt veður. Þetta var
dagana 13. og 14. sept. Storm-
ur var með því versta, sem hér
hefur komið, og sjógangur af-
skaplegur.
Grandinn milli Dyrhólaeyjar
og Reynisfjalls var allur einn ið-
andi sjór, og í Vik gekk sjór upp
að fremstu húsum. Bárur frá sjó
bárust upp eftir ánni alla Ieið að
Víkurbrú. Var að vísu stórstreymt
um þessar mundir, en samt er
þetta óvenjulegt. Það merkilega
var, að þetta gerðist ekki í opinni
hafátt, heldur í austanveðri.
S.E.
VttíHl ' Dalsfirði var afhjúpuS og afhent Norðmönnum við hátiðlega athöfn á mánudaginn.
® * Haukur Bjarnason, iögreglumaður, fréttaritari Tímans I Noregsferðinni, tóíc þessa
mynd við það taeklfæri. Sjá frásögn Hauks og myndir á blaðsíðu 9 [ dag.
Forsetinn í Vatna-
byggðum og Alberta
HundruS skólabarna meí íslenzka fánann
Edmont, 20. september.
Forsetinn og föruneyti hans
fór á þriðjudaginn í flugvél
frá Winnipeg fil Regina. Það-
an var síðan ekið um Vafna-
byggðirnar til Wynyard, þar
sem margt býr af fólki af ís-
lenzkum ættum.
Mörg hundruð skólabörn með
ísleuzka fána fögnuðu komu for-
setans til Wynyard. Var samkoma
í íþróttahöll bæjarins, og kom
þar saman rösklega tvö þúsund
manns úr öllum Vatnabyggðun-1
um. Sérstakt hátíðablað hafði
verið gefið út þennan dag, og
myndir af forsetahjónunum
skreyttu víða glugga.
Á miðvikudaginn var haldið
til Markerville, þar sem forset-
inn heimsótti búgarð Stephans |
G. Stephanssonar. Lagði hann
blómsveig á leiði skáldsins, sem |
hvílir þar í ættargrafreit, og ann
an að minnisvarða, sem Kanada-!
stjórn hefur látið reisa.
Meðal þeirra, sem tóku á móti
forsetanum í Markerville voru
dætur Stephans G. og niðjar hans
margir.
Kindurnar
níu voru
EKKI
mæðiveikar
Á miðvikudaginn var sagt
frá því hér í blaðinu, að tekn-
ar hefðu verið 9 grunsamlegar
kindur til slátrunar í Suður-
Dölum. Voru teknar 2 grun-
samlegar kindur úr Haukadals
rétt, tvær í Fellsendarétt og 5
í Hólsrétt. Allar þessar kind-
ur voru rýrar og veikindaleg-
ar.
,
I gær spurðist blaðið fyrir um
það hjá Gísla Þorsteinssyni í Gröf,'
fulltrúa sauðfjárveikivarnanna í
Suður-Dölum, hver niðurstaðan
hefði orðið af þessu úrtaksprófi,
en menn voru hræddir um, að
kindurnar kynnu að vera mæði-
veikar.
Nið'urstaðan varð sú, að engin
þessara kinda reyndist mæðiveik,
en sjúkar voru þær af ýmsum
öðrum kvillum. Var þar um að
ræða onna í lungum og görnum
og ýmsa fleiri sjúkdóma.
Gísli tók fram, að þetta hefði
aðeins verið litið próf og því ékki
hægt að byggja á því fullnaðar-
dóm. Verða úrtakspróf um mæði-
veiki gerð víðar á þessu svæði
næstu daga á vegum sauðfjárveiki
varnanna.
Litlir bílar og jeppar
seljast mjog vel nuna
Volkswagen: 160, Opel 95, Land-Rover: 35
Síminn hefur hringt látlaust
hjá bifreiðainnflytjendum síð-
an bifreiðainnflutningurinn
var gefinn frjáls. Margir hafa
pantað sér bíl, en þeir eru ó-
teljandi, sem gert hafa fyrir-
spurnir og safnað að sér aug-
lýsingabæklingum um hinar
og þessar bílategundir.
Blaðið hefur haft sambaud við
mörg helztu bifreiðaumboðin og
spurzt fyrir um eftirspurnina. —,
Niðurstaðan virðist vera sú, að
fjögurra manna bílar séu lang-
mest eftirsóttir, svo og jeppar af
ýmsum gerðum. j
Hekla h.f. telur sig hafa selt i
160 Volkswagen síðan á föstudag. |
Eftirspurn eftir bílum af sömu!
stærg frá öðrum verksmiðjum
hefur einnig verið mikil, þótt ekki
sé vitað um sölur.
Menn eru jafnvel farnir að
hneigjast að enn minni bílum en
Volkswagen; Renault-Dauphine,
Austi-n 7 og Fiat 1100. Fiat-verk-
smiðjurnar framleiða ýmsar enn
smærri gerðir, en Fiat 1100, og
hjá Orku h.f. hefur langmest ver
ið spurzt fyrir um vasabílinn
Fiat 500, sem mun vera ódýrasti
bíllinn á markaðnum.
Af jeppum hefur einnig verið
geysileg sala undanfarna daga.
Sala á Land-Rovernum hefur auk-
izt sérstaklega og hafa 35 slíkir
selzt síðan á föstudag. Willys er
alltaf vinsæll og þar að auki hafa
tvær nýjar jeppategundir bætzt
í hópinn, sem ekki hafa sézt hér
áður, Gypsy frá Austin-verksmiðj
unum og Scout frá International-
verksmiðjunum.
Af stærri bílum en fjögurra
manna hefur sala yfirleitt ekki
aukizt, nema á Opel-bílum, en 95
Opelar hafa selzt þessa vikuna.
Þó er mikið spurt eftir Ford-
Consul og Ford-Taunus. Hinir
stóru bandarísku bílar virðast
ekki eiga upp á pallborðið núna.
Innbrot í Vestur-
höfn
í fyrrinótt var brotizt inn í
verzlunina Vesturhöfn. Þar
var stolið áttatíu vindlinga-
pökkum. Annað innbrot var
framið í sömu verzlun fyrir
stuttu og þá stolið nokkru af
vindlingum og öðru tóbaki.
Það er orðið mjög algengt í
seinni tíð, að innbrotsþjófar_kom-
(Framhald á 2. síðu.)