Tíminn - 04.10.1961, Qupperneq 8
8
TÍMINN, miSvikudaginn 4. október 1961.
Ólafsvfk 26. sept 1961.
Fremur hefur tíðin verið van-
stillt undanfarnar vikur og lítið
sem ekkert gefið á sjó, en nokkr-
ir bátar hafa stundað dragnóta-
veiðar í sumar og aflað allsæmi-
lega, enn fremur hafa nokkrar
trillur lagt upp færafisk og aflað
allvel. Nœg atvinna hefur verið
hér í sumar, bæði við nýtingu afl-
ans og við fleira, er síðar verður
talið.
Heyskap er nú víðast hvar lokið
hér um slóðir og er heyfengur
bænda góður eftir vonum. Slátur-
tíð er nú hafin og fyrirhugað er
að slátr'a jafnmörgu fé í slátur-
húsi kaupfélagsins Dagsbrúnar og
var á síðasta ári eða um 5000 fjár,
þó eru þær tölur ekki endanlegar
enn sem komið er.
Byggingarframkvæmdir
Töluvert er um byggingarfram-
kvæmdir hér í kauptúninu og eru
ailmörg íbúðarhús í smíðurn, þrátt
fyrir það eru sífelld húsnæðisvand
ræði, er aðallega stafa af því, að
fólk nefur nú miklu rýmra um sig
en áður var, margt ungt fólk kýs
að setjast að í heimahögum og svo
að gömul hús hverfa og eru ekki
byggð aftur.
Fangahús er í smíðum, 120 fer-
metrar’ að stærð og tvær hæðir,
á neðri hæð er fyrirhuguð fanga-
geymsla og aðstaða til tolleftirlits,
á efri hæð íbúð lögregluþjóns og
fleira. Ný slökkvistöð er og í smíð
um, 80 fermetra hús á tveim hæð-
um, og er það afar mikið nauðsynja
mál fyrir byggðarlagið að vel ræt-
ist úr í þeim efnum, því að að-
staðan hefur verið fremur ófull-
nægjandi.
Búið er að grafa fyrir nýrri
kirkju fyrir Ólafsvíkurbúa, en
gamla kirkjan er orðin gjörsam-
lega óhæf til notkunar, ekki
svo að skilja að hið bráðum sjö-
tíu ára gamla kirkja sé úr sér geng i
in, heldur hitt, að nú er hún kom-1
in svo gott sem inn í mitt athafna-
svæði sjávarútvegsins og er um-
'hverfi hennar orðið heldur ömur-
legt, frá því sem var í upphafi.
Hinni nýju kirkju er ætlað svæði
á mjög fögrum stað í kauptúninu,
ekki aillangt frá þeim stað, er
gamli Ólafsvíkurbærinn stóð og er,
búið að leggja breiðan og góðanj
veg að grunninum. Mun hún eftir
teikningu að dæma verða mjög ný
tízkuleg, en þó þjóðleg um leið og
á vafalaust eftir að laða til sín
margan ferðalanginn, ef vel tekst
til, enda er það hornsteinn menn-
ingar hvers bæjar, að eiga veglegt
guðshús, og er mikill hugur hjá
öllum bæjarbúum, að bæði fljótt
og vel verði unnið, eða eftir því,
sem fjárhagur frekast leyfir.
Á vegum kvenfélagsins hefur ver
r *”v.
■
...•
rnasmM
! ið unnið að því að koma upp barna
leikvelli, og er því nú senn lokið
I og öll leiktæki fengin, og verður
j hann opnaður til afnota strax er
'vorar á ný. Þar hafa konur unnið
' þarft verk og gott, og eiga allir
j aðilar þakkir skilið fyrir.
I í sumar hefur verið unnið við
j byggingu nýs íbúðarhúss að Fróðá
jog eru fyrirhugaðar miklar fram-
kvæmdir af hinum nýju eigendum
þar. Þar stendur enn gamait og
virðulegt ibúðarhús og verður það
I nú leyst af hólmi nýs tíma. Er
tvirkilega ánægjulegt til þess að
tvita, að þessum fornfræga stað
t verður nú lyft upp í þann sess,
er honum sómir, eftir margra alda
niðurníðslu, og hefur þó vorið
þar vel búið í allmarga undan-
gengna áratugi, og stöðugt verið
setið þar á sumrin af góðum ábú-
endum.
Vegaframkvæmdir
Senn förum við að sjá fyrir
endann á vegaframkvæmdum í Bú- Höfnin í Ólafsvík er allmikið og gotf mannvirki, en þarf þó sífelldra bóta við. Þar hafa nokkrar framkvæmdir
landshöfðavegi, og hefur verið unn verið í haust og mælt fyrir öðrum.
Fréttabréf ur Ólafsvík:
Vegi fyrir Búlands-
höfða senn að Ijúka
Við J)aS tengjast kauptún og sveitirnar norðan
á Snæfellsnesi betur saman, og einangrun Ólafs-
\
víkur og Sands minnkar að mun
ið við hann stöðugt í allt sumar,
eins og fyrr getur í fréttum. Upp
úr miðjum ágúst kom brúarvinnu-
flokkur og vann að brúargerð yfir
tvo verstu farartálmana, Maraheið-
argil og Höfðagil, og er því verki
nú lokið. Var síðast, er til fréttist
verið að vinna við brúarsmíði á
Víkurgili, Eyrarsveitarmegin.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að ofaníburði í veginn, þrátt
fyrir mjög óhagstæða tíð. — Það
er okkur hér að norðanverðu mjög
mikið tilhlökkunarefni, að þessum
farartálma er senn rutt úr vegi og
opnast þarna greiðfær leið, er á
eftir að verða mikið notuð af ferða
mönnum, í einhverja allra sér-
kennilegustu og fegurstu sveit
mið-vesturlands, og fjarlægðin
milli bæjanna á norðanverðu nes-
inu er nú úr sögunni.
Allan veg og vanda af þessari
miklu vegagerð hafa þeir haft með
höndum Stefán Kristjánsson og
Þorgils Stefánsson og flokkur
þeirra að vestanverðu. Að austan-
verðu Ásgeir Kristmundsson í
Grafarnesi og flokkur hans. Ber
þeim öllum mikið lof og mikið
þakklæti allra héraðsbúa fyrir
verkið.
Hafnarmál
Ýmsar framkvæmdir hafa verið
gerðar við Ólafsvíkurhöfn nú í
haust. Mælt var fyrir nýju hafn-
arstæði og verður unnið úr þeim
mælingum í vetur, enn fremur er
t búið að steypa 27 metra langan
1 skjólgarð í sambandi við lengingu
á norðurgarði hafnarinnar. Fyrir-
hugað er að sprengja upp með
norðurgarði hafnarinnar 20—25 m
langa rennu og 12 m breiða, eins
og gert var í fyrrahaust og virðisf
gefa góðan árangur, til að auka
rými hins síaukna bátaflota og
gefa hinum nýju bátum betra svig
rúm til að athafna sig, en þeir
stækka ár frá ári.
Útsvarsmál
Nýlokið er niðurjöfnun útsvaia
í Ólafsvíkurhreppi. Var jafnað nið
ur kr. 2.450,000,00 á 264 einstakl-
inga og 11 fyrirtæki.
Hæstu útsvör ber, af fyrirtækj-
um Kaupfélagið Dagsbrún, sem
ber kr. 150 þúsund.
Hæsti einstaklingur: Víglúndur
Jónsson, útgerðarmaður kr. 75 þús.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun-
ar eru kr. 3.775,000,00.
Helztu gjaldaliðir á fjárhagsáætl
un eru:
Til fangahúss m. m. kr. 800 þús. i
Til menntamála kr. 400 þús.
Til trygginga kr. 320 þús.
Til Ólafsvíkurhafnar kr. 300 þús.
Félagsmál
Félagsstaxfsemi hefur verið
heldur lítil á sumrinu, enda frem-
ur fátt fólk heima við, þó var far-
in skemmtiferð á vegum Kvenfé-
lags Ólafsvíkur norður í land og
tók hún fjóra daga, mjög vel
heppnuð. Undanfarnar tvær vikur
hefur staðið yfir sumarnámskeið
á vegum kvenfélagsins. Því hefur
stjórnað frú Guðrún Jónsdóttir úr
Reykjavík. Þátttaka var mjög góð
og komust færri að en vildu. Enn
fremur hafa konur unnið við
blómagarð og svo komið upp barna
leikvelli, eins og áður getur. Er
þetta allt vel gert og til menning-
arauka fyrir kauptúnið.
Formaður kvenfélagsins er frú
Elínborg Ágústsdóttir. Senn fer
Leikfélag Ólafsvíkur að hugsa sér
til hreyfings og er það mikið til-
hlökkunarefni. Nú í haust eru lið
in 5 ár frá stofnun þess og hefur
það starfað mjög vel á þéim tíma,
sýnt mjög góð og stór leikrit og
unnið ýmislegt gott í skemmtana-
lífi Ólafsvíkur.
Leikrit það, sem nú er tekið til
meðferðar, er „Páskar“ eftir Agust
Strindberg. Leikstjóri er Erlingur
Halldórsson úr Reykjavík.
Margt væri enn hægt að segja
frá þessu athafnasama byggðar-
lagi, en það verður að bíða betri
tíma, svo sem um framkvæmdir
við rafmagnsmál og fleira.
M. A.
Endurbyggð kirkja
vígð í Selárdal
- mm1\
ííf-í, :
Kl. 2 sunnudaginn 23. sept.
1961, víg8i biskupinn yfir ís-
landi, herra Sigurbjörn Einars-
son, kirkju í Selárdal aS viS-
stöddu miklu fjölmenni.
Kirkjan á eitt hundrað ára afmæli
á þessu ári. Hún er ríkiseign og
hafði eigandinn sýnt henm lítinn
sóma, enda var hún í afleitu á-
standi, þegar biskup kom þangað
í ágústmánuði i fyrra sumar á vísi
tasíuferð sinni um Barðastrandar-
prófastsdæmi. Var þá þegar eftir
vísitasíuna hafin skipuleg sókn að
því marki að láta gera við kirkj-
e n- , *» - i *
Snæfellsnesiökull — oröan hans eru byggðirnar, sem tengjast sveltum og kauptúnum innar á ströndinni. Veg- una eða endurbyggja hana SVO að
urinn fyrir jökul er að vísu fær af og til og er það eina vegasamband Sandara að kalla, því að Ólafsvíkurenni því yrði lokið í sumar og hægt
er illur þrándur í götu milil grannþorpanna. Þ6 má skrönglast fyrlr það á ieppa um fjöru I ládeyðu. Ólafsvík yrði að endurvígja bana á eitt
hefur hins vegar haft vegarsamband suðuf yfir, um Fró ðárheiði, en hún er snjóþung á stundum. hundrað ára afmælinu Þetta tókst
og nú er þarna hið veglegasta guðs-
hús. Er að sjá, sem viðgerðin hafi
tekizt frábærlega vel.
Auk biskups voru fjónr prestar
viðstaddir vígsluna, gengu þeir í
skrúðgöngu til kirkju, ásamt sókn
arnefndinni og safnaðarfulltrúa og
báru helga muni kirkjunnar.
Framkvæmdi síðan biskup vígsl
una, en settur sóknarprestur, séra
Tómas Guðmundsson á Patreks-
firði, prédikaði og þjónaði ásamt
biskupi fyrir altari.
Sönginn annaðist kirkjukór Pat-
reksfjarðarkirkju undir stjórn hins
ágæta organleikara þeirra.
Var athöfnin öll hin hátíðlegasta
og kii'kjan yfirfull, svo að fjöldi
manns varð að standa.
Á eftir bauð sóknarnefnd öllum
til kaffidrykkju.