Tíminn - 04.10.1961, Page 12
X7
T f MIN N, miðvikudaginn 4. október 1961.
RITSTIOM HALLUR SIMONARSON
NorSurlandsmótinu í knattspyrnu er nýlokið meS sigriSiglfirðinga. Þegar leikjum i mótinu var lokið, voru þrjú
félög jöfn að s'tigum, SiglfirSlngar, Þór og KA og léku þau því aukaleiki. SiglfirSingar sigruSu þá bæði Akur-
eyrarliðin, en Þór vann KA. Alls tóku sex félög þátt i mótinu, auk þeirra, sem hér eru nefnd, Skagfirðing-
ar, Eyfirðingar og Þingeyringar. Mynd þessi er frá leik KA og Þór í mótinu. Frá vinstri eru Jón Friðriksson,
markvörður Þórs, Gissur Jónasson, KA, Sveinn Eggertsson, Þór, Björn Olsen, KA, og Magnús Jónatansson,
Þór. Þór sigraði í leiknum með 2—0, og í sfðari ieik félaganna sigraði Þór með 5—1. Landsliðsmenn KA, þeir
Jakob Jakobsson, Jón Stefánsson, og Kári Árnason gátu ekki leikið í mótinu vegna Engiandsfararinnar. — Ljós
mynd: GPK.
Nýtt Norðurlanda-
met í 200 m. hlaupi
íslendingarnir eru of góðir til
að leika í varaliði SíJirren
segir skozkt blatS. Varali'Si'S tapa^i á laugar-
daginn, en Þórólfur Beck skora’bi
íslenzku knattspyrnumenn-
irnir þrír, Kári Árnason, Orm-
ar Skeggjason og Þórólfur
Beck, sem að undanförnu hafa
dvalið á Skotlandi, léku á laug-
ardaginn með varaliði St. Mirr-
en á leikvelli liðsinsíPaisleyog
þó varaliðið tapaði hlutu þeir
ágæta dóma fyrir leik sinn.
Þeir Kári og Ormar komu
heim á mánudagskvöldið, og
blaðið náði í gær tali af Orm-
ari og spurði hann frétta af
dvölinni hjá St. Mirren.
Ormar sagði, að mjög mikið
hefði verig skrifað um þá í skozk
blöð, einkum Þórólf, síðustu dag-
ana fyrir leikinn, sem varð til þess
að áhorfendur fjölmenntu mjög á
völlinn. Paisley Daily Express
skrifaði um leikinn á sunnudag.
„Það var greinilega eitthvað ó-
venjulegt á seiði á Paisley-leik-
vanginum í gærdag, því helmingi
fleira fólk streymdi þangað en
venjulega á leik varaliðana. Ástæð
an var sú, að íslendingurinn Beck
lék með varaliðinu sem hægri inn
herji í fyrsta sinn. Og áhorfendur
komust fljótt að því hvers vegna
St. Mirren hafði ekki gengið bétur
í íslandsförinni Þórólfur og Orm-
ar voru mun betri en venjulegt
gerist með leikmenn í varaliðun'-
um“.
Þetta segir blaðið, en Ormar
bætti því við, að þó minnst væri
á hann og Þórólf í greininni hafi
þó Kári átt einna beztan leik
þeirra félaga. Ormar lék hægri
framvörð, en Kári var hægri út-
herji og Þórólfur hægri innherji
og mynduðu þeir þarna þríhyrn-
ing. Nokkrir af þeim leikmönnum,
sem hingað komu með St. Mirren
í sumar, léku í varaliðinu. Mót-
herjarnir voru frá Raith Rovers.
en aðallið St. Mirren lék * onnan
sama dag gegn Raith á útivelli og
tapaði illa eða fjögur gegn engu,
og voru leikmennirnir mjög nið-
urdregnir, þegar þeir komu heim
aftur.
Þórólfur skorar
Um Ieik varaliðsins sagði Orm-
ar. — Miklu meiri hraði var í
þessum leik en við eigum að
venjast hér heima. Taklingar voru
fastar, en engan veginn grófar
Raith Rovers skoraði fyrsta mark
ið í leiknum en á 11. mín. tókst
Þórólfi að jafna. Hann fékk knött
inn fyrir markið og spyrnti þegar
með vinstri fæti og knötturinn
þaut í netið.Markinu var mjög fagn
að, og áhorfendur tóku yfirleitt
mjög vel á móti okkur þremur.
Það slys varð í leiknum, að einn
leikmaður Raith Rovers fótbrotn-
aði síðast í fyrri hálfleik og urðu,
þeir að leika 10 í síðari hálfleik i
Þeir höfðu þá náð tveggja marka
forustu og þó við „pressuðum“
nær allan siðari hálfleikinn tókst
okkur ekki að skora Þórólfur var
þá miðherji. og hefur honum oft
tekizt betur upp, enda mætti hann
bezta manni Raiths í leiknum. —
I Hann var líka talsvert taugaóstyrk
I ur fyrir leikinn, enda búið að gera
ORMAR SKEGGJASON
mikið veður út af honum í blöð-
unum fyrir leikinn.
Var í 17 daga
Eins og kunnugt er, var þeim
Ormari og Kára boðið til að taka
þátt í námskeiði hjá St. Mirren.
Ormar var 17 daga hjá félaginu
og var búinn ag vera í viku, þeg-
ar Þórólfur og Kári komu frá Eng
landi. Aðbúnaður allur af hálfu
félagsins var eins og bezt mátti
vera. Þeir bjuggu á ágætu hóteli
við bezta viðurgerning. Æfingar
ic Ungverjar sigruðu Svía í lands |
keppni í frjálsum íþróttum í
Búdapest um helgina, hlutu 110
stig gegn 102 stigum Svía. Þrjú
ný landsmet voru sett í keppn
inni. Owe Jonsson hljóp 200
m. á 20.8 sek., sem er nýtt
Norðurlandamet, og Svíþjóð
setti einnig nýtt landsmet í
4x100 m. boðhlaupi, hljóp á|
40,5 sek., sem er 2/10 betra|
en eldra metið. í 3000 m. hindrj
unarhlaupi unnu Ungverjar tvö |
faldan sigur. Josef Macsar setti
nýtt ungverskt met, hljóp á
8:34,0 mín. Þetta er í 14. skipti,
sem þessar þjóðir heyja lands-
keppni í frjálsum íþróttum og
fjórði sigur Ungverja.
★ Undanúrslit í norsku bikar-
keppninni fóru fram á sunnu-
daginn. í Bergen léku Brann
og Fredrikstad og fóru leikar
þannig, að Fredrikstad sigraði
með 1—0. f Haugasundi léku
Haugar gegn Steinkjer frá
Þrándheimi og sigraði heima-|
liðið með eina markinu, sem
skorað var í leiknum. Árangur
Haugar, sem leikur í 2. deild,
hefur komið mjög á óvart, og
1 iðið er nú komið í úrslit keppn
innar, og hefur sigrað í fyrri
umferðum nokkur 1. deildarlið
t.d. Víking með 3—1, Skeid
með 2—1 og Frigg með 1—0.
Þetta er ein mesta „sensation"
sem um getur í sögu keppninn
ar. Úrslitaleikurinn milli Haug
ar og Fredrikstad verður í Osló
15. þessa mánaðar.
★ Finnar og Júgóslavar kepptu í
voru þrisvar í viku, þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga. Fyrir
hádegi var æft frá 10—12 og síðan
farið í mat, og aftur tekið við æf-
ingar frá 2—4.
Ormar sagði, að æfingarnar
hefðu verið strangar og óvana-
legt fyrir þá, að æfa fyrir há-
degi. Mest voru þetta þrekæfing-
ar, en knattmeðferð æfð tiltölu-
lega lítið. Nær undantekningar-
laust var skipt liði á hverri æf-
ingu. Þórólfur æfði einnig auka-
lega, og Ormar sagðist búast við
því, að hann yrði ag æfa mjög vel
í tvær til þrjár vikur til að kom-
ast í aðalliðið og þjálfararnir voru
að tala- um, að hann væri nokkuð
þungur.
Vilja fá þá aftur
Paisley er 100 þús. manna bær
— nær samvaxinn Glasgow — og
er St. Mirren eina liðið i bænum
Þegar Glasgow Rangers lék þar
fyrri laugardag voru áhorfendur
35 þúsund, og gífurleg læti, þeg-
ar St. Mirren náði jafntefli. —
Jimmy Brown, markvörður og
fyrirliði St. Mirren, reyndist ís-
lendingunum mjög vel og sýndi
hann þeim hi’ð markverðasta í
Skotlandi. St. Mirren hafði mik-
inn hug á því, að þeir Ormar og
Kári yrðu lengur hjá félaginu, en
vinnu sinnar vegna gátu þeir það
ekki. Miklar líkur eru þó til þess,
að Kári fari aftur utan einhvern
tíma í vetur.
Að lokum sagði Ormar, að förin
hafi verið mjög lærdómsrík, og
ánægjulegt að hafa fengið tæki-
færi til að dveljast hjá og æfa
með þetta góðu liði.
landskeppni í frjálsum íþrótt-
um um helgina í Belgrad. Finn
ar unnu stórsigur, hlutu 129
stig gegn 81. Finnar sigruðu í
17 greinum af 20. Júgóslavar
unnu tvöfaldan sigur í sleggju-
kasti, sigruðu einnig í 110 m.
grindahlaupi og langa boðhlaup
Ársþing F.R.Í.
Stjórn FRÍ hefur ákveðið að
Ársþing FRÍ 1961 verði haldið dag-
ana 18.—19. nóvember n. k.
Málefni, er sambandsaðilar óska
að tekin verði fyrirá þinginuskulu
lilkynnt FRÍ minnst 2 vikum fyrir
þingið.
Frjálsíþróttasamband íslands
Breyting
Vegna veðurofsans á fyrri laug-
ardag varð að fresta nokkrum
leikjum í haustmótum yngri flokk-
anna og fara þeir leikir fram
sunnudaginn 8. október á sömu
völlum og á sama tíma og átti að
vera á laugardag. Þó er undanskil-
inn leikur Fram og Víkings í 2. fl.
A., sá leikur fer fram á Háskóla-
vellinum sunnudagsmorgun 8. okt.
og hefst kl. 10.30.
Þá fórsí leikur Í.B.Í. og Fram B
í Bikarkeppninni fyrir, en hann
átti að fara fram á ísafirði s. 1.
laugardag. Lið Fram komst ekki
vestur og er Ieikurinn ákveðinn
n. k. laugardag á ísafirði og hefst
kl. 17.00.
Meistaramót
í handbolta
Meistaramót íslands í Hand-
knattleik 1961 hefst að Hálogalandi
21. októ'oer. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borizt HKRR í síðasta
lagi miðvikudaginn 11. október
ásamt 35 kr. þátttökugjaldi fyrir
hvern flokk. Þátttaka annars ekki
tekin til greina.
Ársþing H.S.Í.
Ársþing H.S.H. 1961 verður hald-
ið í Reykjavík dagana 7. og 8.
október n. k. í Félagsheimili K R
við Kaplaskjólsveg, og hefst kl. 2
e. h. þann 7.
I Stjórnin.