Tíminn - 04.10.1961, Síða 13

Tíminn - 04.10.1961, Síða 13
Tjjtt.IJjJN,, migyikndagian 4. október 1961. Orðið er frjálst: Sending til Péturs Sigurgeirssonar skrifstofustjóra á Raufarhöfn Um þessar mundir gefa Þingey- ingar út ársrit, sem nefnist „Ár- bók Þingeyinga". Eru þegar komn- ir út þrír' árgangar. Vonandi er, að rit þetta verði langlíft, þvi að þetta er að mínum dómi eitt bezta ritið, sem nú kemur út á landinu, og verður sennilega tekið til fyrir myndar, þegar önnur héruð fara að feta í fótspor Þingeyinga og gefa út rit um sína heimabyggð. Ár'bókin flytur stuttar en fróðleg- ar og skemmtilegar ritgerðir, svo og smásögur og kvæði eftir beztu skáld og rithöfunda Þingeyinga. Hins vegar forðast það svo sem vera ber, að flytja langlokur, sem enginn hefur tíma til að lesa. En því miður vill það enn þá brenna við hjá stöku tímaritum enn í dag, þótt það sé gjörsamlega þýðingar- laust og úrelt. Árbók Þingeyinga er því að mínum dómi bæði gott og virðulegt rit, sem ekki má falla blettur á. Þegar vakað er yfir vel- ferð góðra rita, kemur það afar sjaldan fyrir, að þau geri nokkr- ar skyssur eða flytji bull og þvætt ing. Eg minnist þess, að þau rúm- lega 30 ár, sem Sveinn Sigurðsson, cand. theol. var ritstjóri Eimreið- arinnar (sem löngum hefur verið okkar allra vii'ðulegasta tímarit), kom það aðeins einu sinni fyrir, að ritinu skrikaði fótur. Þegar rit Nýjung! Gangsetningar- vökvinn sem þegar hefur sannað ágæti sitt hér á landi sem annars stðaar. START PILOT GASOHATIC ■ eaMf Mahtmg o* e* Fyrirliggjandi: nýr gangsetningarvökvi fyrir allar vélar. Efnasamsetning vökva þessa gerir notkun hans hættulausa en endingu vélanna meiri.—Enn fremur tilheyrandi dælur af ýmsum stærðum og gerðum, sem hægt er'að dæla gangsetningarvökvanum úr beint inn í innsogsgreinar við- komandi véla. Þessum dælum fylgja tilheyrandi leiðslur og ventlar (spíssar), sem skrúfaðir eru í innsogsgrein vélanna. Eigum einnig til, sérstakan út- búnað íyrir allar minni bifreið- ar viðvíkjandi vökva þessum. — Útsölustaðir í Reykjavík: Columbus h.f. Varahlutaverzlunin Brautar- holti 20. Benzínstöðvar B.P. — Shell — Esso Munið nafnið START PILOT Umboðsmenn óskast. Columbus hf. Brautarholti 20. stjórinn komst að hinu sanna í málinu, bað hann lesendur rits- ins auðmjúklega afsökunar á mis- tökunum. Þannig hélt ritið fullri virðingu sinni. Nú í sumar kom út III árg. af Árbók Þingeyinga. Þar birtist m. a. frásögn eftir Pétur Siggeirsson, skrifstofustjóra á Raufarhöfn, þar sem hann segir nokkuð frá ömmu sinni, Margréti Hálfdánardóttur, sem var yfir 40 ár húsfreyja að Oddsstöðum á Melrakkasléttu. Jafnframt minnist hann á afa sinn, Pétur Jakobsson, sem var maður Margrétar. Yfirleitt er grein þessi frekar ómerkileg, þar sem höf. virðist ekki hafa reynt að afla sér heimilda, til að bæta það, sem hann hefur að segja fr'á eigin brjósti. Eftir stuttan inngang byrjar höf. greinina með því að segja, að ég hafi skrifað „níð“ um afa sinn, Pétur Jakobsson, og bend ir á, að þetta „níð“ standi í „Sönn um sögum“ eftir mig. Rétt er það, að til er sagnaflokkur eftir mig, er nefnist „Sannar sögur", sam- tals rúmlega 500 bls. En þar er ekki, að því er ég bezt man, minnzt einu orði á Pétur Jakobs- son, afa Péturs skrifstofustjóra. Hins vegar er til annar sagnafl. eftir mig, og nefnist hann „Sagna- þættir“, og kom út í þremur bind- um, tæpar 1000 bls. samtals. Og þar er lítillega minnzt á P. J. Þótt það skipti ekki miklu máli, í hvor- um sagnaflokknum frásögn mín i birtist, þá sýnir þessi' ónákvæmni höf., að honum er ekkert áfram um, að segja satt og rétt frá. Og sá, sem ekki hirðir um, að skýra rétt frá smá-atriðum, getur hæg- lega sniðgengið sannleikann þegar um veigameiri atriði er að ræða. Og það hefur greinarhöf. hent í þetta sinn. — í áðurnefndri frá- sögn minni um Pétur gamla á Oddsstöðum, segi ég frá því, að hann hafi verið sonur stórbónd- ans Jakobs Péturssonar á Breiði- mýri í Reykjadal, sem var stór- merkur maður, stór-auðugur, vel skáldmæltur og gáfaður. Hann var fyrsti alþingismaður Norður-Þing- eyinga. Þá segi ég lítils háttar frá syni hans, séra Sigurgeir á Grund, sem var mikill drykkjumaður, og missti síðast hempuna fyrir þær sakir. Þá minnist ég á Pétur bróð- ur hans og segi: „Hann þótti ó- heimskur, en hæglátur mjög og j óframgjarn". Þetta er ekkert „níð“ | eins og hver maður getur séð. Og | þess ber að gæta, að þetta er lýs- ingin á honum, þegar hann var | enn þá ungur og heima í föður- garði. Vitanlega gat honum vaxið I ásmegin með aldri og þroska. Þá I get ég þess, að Pétur hafi orðið nokkuð ölhneigður með aldrinum, eins og algengt var um „heldri“ bændur á þeim árum. Ef þetta er „níð“, þá hefur sonarsonur hans, Pétur skrifstofustjóri, skrifað um hann enn þá meira „níð“, því að hann segir í áðurnefndri ritgerð hina hressilegustu drykkjusögu um afa sinn. Þarf ekki mörg orð um þetta að hafa, því að hér hef- ur skrifstofustjórinn skotið óþægi- lega fram hjá marki. Þá stendur ' í þætti mínum eftirfarandi frá- sögn: „Svo sem til var ætlazt, komst Pétur fljótlega til nokkurra mannvirðinga, því að eftir nokk- 1 urra ára búskap varð hann hrepp- 1 stjóri Presthólahrepps. Enginn I skörungur þótti hann í því emb- J ætti, en sanngjarn og réttlátur". | Nú vildi ég spyrja: Hver finnur ' „níð“ í þessum ummælum? Það er vitanlega ekki níð um nokkurn ' mann, þótt sagt sé um hann, að ! hann hafi ekki verið skörungur. Þetta gæti miklu fremur bent til ' þess, að hér sé um góðmenni að ræða. Og þegar því er bætt við, að maðurinn sé sanngjarn og rétt- látur í embætti sínu, þá er það auðsjáanlega eitthvert hið mesta lof, sem hægt er að hlaða á nokk- urn mann. — Hvað finnst ykkur, sýslungar mínir, um þetta? Bezt gæti ég trúað því, að bless- aður skrifstofustjórinn hafi aldrei lesið umræddan þátt minn, heldur hafi einhver illviljaður maður log ið því að honum, að ég hafi skiif- að „níð“ um afa hans, og hann tekið það sem heilagan sannleika. I Þegar svo er í pottinn búið, er j ekki von á góðu. Að endingu ætla ég að leyfa mér að skora á skrifstofustjórann, að sýna það drengskaparbragð, að biðja hið virðulega rit — Árbók J Þingeyinga — afsökunar á því, að , hafa sent því til birtingar marg- 1 nefnda ritgerð. Mig þarf hann ekki að biðja af- sökunar, því að ég þekki mann- inn ofurlítið. Benjamín Sigvaldason fornbókasali. / Ferðafélag Islands heldur kvöldvöku 1 Sjálf- stæðishúsinu fimmtudaginn 5. október 1961. Húsið otm- að kl. 8. FUNDAREFNI: 1. Kvikmynd af slóðum Fjalla-Eyvindar, tekin af Ósvaldi Knudsen, mál- arameistara, texti eftir dr. Sigurð Þórarinsson, jarðfræðing. 2. Myndagetraun, verðlaun veitt. 3. Dans til kl. 24. Aðgöngumiðar seldir í Bóka verzlunum Sigfúsar Ey- mundssonar og ísafoldar. Verðkr 35.00/ Hvers vegna heims- styr jöld ? i : Framhaid al 7 síðu) í lofti, á láði og í legi, sem líkleg- ast er. Hver vill svo verða til að ikasta fyrstu sprengjunni? j Nei, nú verður að spyrna við jfótum áður en í óefni er komið. ! Trúarbrögð, þjóðskipulag, hag- jkerfi o. fl. geta verið með ýmsu móti, þar á hverjum að vera frjálst að aðhyllast það, sem hann telur bezt. Það á ekki að beita vopna- valdi til þess að ryðja þessum og öðrum stefnum og kenningum braut, enda tíðum skammfenginn sigur. Stefnurnar eiga sjálfar að fela í sér lífsmáttinn. Það, sem gildi hefur lifir, hitt deyr fyrr eða síðar. Vopnuð átök hafa þar enga úrslitaþýðingu. Sumt er þann ig, að það á við á takmörkuðum tímum mannkynssögunnar. en úr- eltist svo og deyr Annað er sígilt Eins og ólík trúarbrögð, og margs konar lífsviðhorf geta þrifizt í einu bjóðfélagi, svo hlýtur það sama að gilda um heiminn í heild, án þess 13 Kastakjör Ódýra bóksalan Dýður yður hér úrvaJ skemmti- bóka á gamla lága verðinu Bækui þessar fást yfirleitt ekki í bókaverzlunum og sumar þeirra á þrotum hjá foriaginu Sendið pöntun sem fvrst. Dularblómið. Heillandi ástarsagá eftir Pearl S. Buck. 210 bls. Ób. kr. 25.00. Ib. kr. 35.00. Eftir miðnætti. Skáldsaga eftir Irmgard Keun. 198 bls. Ib. kr. 25.00. Borg örlaganna. Stórbrotin ástarsaga e. L. Brom- f'ield, 202 bls ób. kr 23 00. Nótt I Bombay, e sama höf Frábærlega spenn- andi saga frá Indlandi 390 bls ób kr 36 00 Njósnari Cicerós. Heimsfræg og sannsöguleg njósnarasaga úr síðustu hermsstyrjöJd, 144 bls., ib kr. 33.00 Á valdi Rómverja. Afar spennandi saga uir bar- daga og hetjudáðir 138 bls ib kr 25 00 Leyndarmál Grantleys, e A Rovland Hrifandi, rómantísk ástarsaga 25? bls ób ki. 25 00 Ástin sigrar allt, e. H Greville. Ástarsagy sem öllum verður ógieymanleg 226 bls ób kr 20 00. KafbátastöS N Q. Njósnarasaga, viðburðarík og spennandi. 140 bis. ób. kr 13.00. Hringur drottningarinnar af Saba, e. R. Haggard, höf Náma Salómons og Allans Quatermains. Dularfull og sérkennileg saga. 330. bls. ób kr. 25.00.. Farós egypzki. Óvenjuleg saga um múmíu og dul- arfull fyrirbrigði 382 bls. ób kr 20 00 Jesús Barrabas Skáldsaga e Hjalmai Söderberg. 110 bls. ób kr 10.00 Dularfulla vítisvólin. Æsandi leynilögregiusaga. 56 bls. ób kr 10.00. Hann misskildi mágkonuna. Ásta- og sakamálasaga. 44 bl. ób. kr. 10 00 Leyndardómur skógarins. Spennandi ástarsaga 48 bls kr. 10.00 TekiS í hönd dauðans, Viðburðarík sakamálasaga. 48 bls. ób kr 10 00 MorS í kvennahóp' Spennandi saga með óvæntum endi 42 bls ób kr 10 00 MorS Óskars Brodkins. Sakamálasaga. 64 bls kr 1000. MaSurinn í ganginum. Levnilögreglusaga. 60 bls. kr 10.00 Loginn helgi e Selmu Lagerlöf 64 bls. ób kr. 1000 Njósnari Lincolns. Spennand) saga úi þrælastríð- tnu 144 bls. íb kr. 35 00 Kviksettur. Spennandi sakamálasaga « stóru broti. 124 bls. kr 15 00 Smásögur 1—3 96 bls. kr 10 00 Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merldð x við þær bæk- ur, sem þér óskið að fá sendar gegn póstkröfu. Merkið og skrifið greinilega nafn og heimilisfang. Undirrit óskar að fá þær bækur. sem merkt er við í auglýsingu þessari sendar gegn póstkröfu. að vopnin þurfi þar að skera úr. Vafalauít eru mörg vandamál í sambandi við afvopnun, en sé góð- ur vilji fyrir hendi, ætti að mega sigrast á þeim. Eitt af því, sem talað er um, að verða mundi mikið vandamál hverrar þjóðar, ef hætt væri vopnaframleiðslu, er atvinnuleysi þeirra, sem að vopnaframleiðsl- unni vinna, o.g atvinnuhrun sjálf- stæðra vopnaframleiðenda. En hvernig er það, borga ekki ríkin allt að lokum? Sýnist þá ekki vand inn annar, en að ríkið greiði. bæði verkafólki og vopnaframleiðend- um svo sem þarf, meðan verið er að koma breytingunni á, sem mundi koma smátt og smátt. Vafa- laust mundi þessi ráðstöfun, af- vopnun, hljóta fullan skilning, og verða fagnað af hverri þjóð. Ætti því að verða auðvelt að ná sam- komulagi um nauðsynlegar ráðstaf anir í sambandi við breytinguna. Ætti það að verða fögnuður hverj- um manni, að hverfa frá þjónustu við framleiðslu morðtóla og vítis- véla, yfir til jákvæðrar menningar legrar og siðferðilegrar uppbygg- ingar. Stefán Kr. Vigfússon. i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.