Tíminn - 06.10.1961, Qupperneq 1
Háskóii I
í hálfa
bls. 8—9.
Áskriftarsími Tlmans
1-23-23
3®Zrvtbl. — 45. árgangur.
Föstudagur; 6. október -19644*
Gestirnir streyma hingað
Handrita-
frumvarpinu
verííur ekki breytt, segir Jörgensen
Um fimmleytið í gærdag Fulltrúar háskóians tóku á
kom fjöldi erlendra gesta til móti gestunum á Reykjavíkur
Reykjavíkur í boði Háskóla fs- ílugvelli.
lands. Munu þeir verða við- Meðal gestanna ,var Jörgen
staddir fimmtíu ára afmælishá- Jörgensen, fyrrverandi mennta-
tíð háskólans, sem hefst í dag. málaráðherra Dana. í örstuttu
i ' .
WÍ5ÍAj;ysW::íí5í:KSWÍ:WÍÍ:
'/ >' - :
rabbi við fréttamenn sagði
hann, að frumvarpið um af-
hendingu íslenzku handritanna
yrði lagt fyrir næsta þjóðþing
óbreytt til staðfestingar, og
væri enginn vafi á því, að það
yrði samþykkt. Hann sagði
einnig, að ef skotið hefði verið
til hæstaréttar deilunni um af-
hendingu handritanna, hefði
ríkisstjórnin Unnið það mál.
Annars myndi hann ræða frek-
ar um handritamálið á frétta-
fundi í dag.
Aldrei fyrr hefur jafnmargt
þekktra lærdómsmanua og vís-
indamanna verið samankomið
á íslandi og nú þessa dagana,
þar sem eru boðsgestir háskól-
ans, verðandi heiðursdoktorar
hans og fulltrúar erlendra há-
skóla í mörgum öðrum lönd-
um.
Hin myndin er af fulltrúum
fjögurra háskóla á Norðurlönd-
um, sem einnig komu í gær til
þess að vera á afmælishátíð-
inni. Þeir eru, talið frá vinstri:
Nurmela, rektor við finnska há
skólann í Ábo, Hjalmar Frisk,
prófessor, sem kemur sem full-
trúi háskólanna í Lundi, Stokk-
hólmi og Gautaborg, Nikula,
rektor við sænsk-finnska há-
skólann í Ábo og S. P. Ander-
sen .rektor við háskólann i
Þrándheimi.
Atök manns og
sels á sundi
— í Skiálfaneðafljóti á dogunum
Þa8 er kunn saga, þegar
Kjartan Ólafsson þreytti sund-
ið við Ólaf konung Tryggva-
son í ánni Nið. — Af hinu er
spáný saga, er Sigurður á
Björgum þreytti fangbrögð
við sel í Skjálfandafljóti.
Menn frá Björgum, yzta bæ í
Köldukinn, fóru fyrir nokkru út
í Náttfaravíkur til þess að skjóta
kind, seni þar hafði lent í sjálf-
heldu í hömrum, en vonlaust
þótti, að næðist lifandi. Þegar til
kom, hafði þó kindin komizt úr
hömrunum og var á bak og burt.
Þurfti því ekki að hafa áhyggjur
af henni.
Nú bar svo við þessu næst, að
þeir Bjargamenn sáu sel í Skjálf
andafljóti, sem fellur lygnt og
breitt meðfram hlíðum Kinnar-
fjalla. Skutu þeir á hann með
rifflinum, sem ætlaður hafð'i verið
til þess að stytta kindinni í sjáif
heldunni, aldur. Selurinn flaut
á vatninu, en enginn bátur var
nærtækur, svo að einn mannanna,
Sigurður Sigurbjörnsson, ungur
maður og vaskur, lagðist til sunds
í fljótið og synti ag selnum. Náði
hann taki á honum og ætlaði að
synda með hann til lands.
Nú gerðust óvænt atvik. Selur-
inn, sem Sigurður hafði haldið
dauðan, tók hart viðbragð. Urðu
þarna harðár sviptingar með
þeim Sigurði og selnum, og reif
selurinn sig lausan, en Sigurður
synti tómhentur til lands.
Framhald á 15. síðu.
Atvinnuleysi
í Höfnum
Bilaðið átti í gær tal við
Hinrik ívarsson í Merkinesi í
Höfnum. Sagði hann, að nú
horfði þunglega um atvinnu
þar í plássinu.
Frystihúsið hefur komizt í hrá-
efnisskuldir við smábátaeigendur
á staðnum, og hættu þeir að
leggja þar upp í sumar. Síðan
hefur engin teljandi vinna verið
í frystihúsinu. Auk þess hefur
varla fengizt bein úr sjó undan-
farnar vikur. Hinrik taldi vand-
séð, að Hafnamenn byrjuðu aftur
að leggja upp hjá frystihúsinu,
þótt úr r ættist um aflann. Yngra
fólkið reynir nú að leita sér að
vinnu annars staðar.
Þá sa-gði Hinrik, að Hafnabú-
um hefði gengið erfiðlega að fá
(Framhald á 15. siðu).
Arnór Sigurjónsson skýrðé frá því í útvarpserindi í fyrrakvöld.
Mold úr haugi Ketils hængs
í Hrafnistu á StórðlfsvölS
Arnór Sigurjónsson skýrði
frá því í útvarpserindi, sem
hann flutti í fyrrakvöld um
Noregsför sína í sumar, að
hann hefði tekið mold úr
haugi Ketils hængs Hallbjarn-
arsonar í Hrafnistu og haft
með sér heim til íslands. —-
Þessa mold kvaðst hann hafa
selt í hendur Erlendi Einars-
syni, forstjóra Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga, í því
skyni, að hann léti dreifa
henni á akrana á Stórólfsvelli
lí Hvolhreppi.
Erlendur Einarsson tjáði blað-|
inu í gær, að hann myndi ag sjálf
sögðu koma moldinni á hin nýju
akurlönd í Hvolhreppi, en ekki
væri enn ráðið til lykta, hvort
jafnframt verður gróðursett tré
á þeim stað, þar sem moldin verð
ur látin. eða komið fyrir þar (
minningarplötu eða gert eitthvað1
annað, sem minnir á það á kom-
andi árum, ag þangað hefur ver-
ið flutt mold úr haugi Ketils
I gamla hængs, forföður hinna
rangæsku landnema.
Að sögn Landnámu og Egils
sögu, var Ketill hængur í Hrafn-
. istu, tengdafaðir Þorkels Naum-
dælajarls og móðurafi Ketils
hængs, er nam land á Rangár-
völlum og bjó á Hofi. Er svo að
skilja, að hann hafi helgað sér
og skylduliði sínu mestöll lönd
milli Þjórsár og Markarfljóts. —
Hafði hann ætlað til liðs við Þór-
ólf Kveldúlfsson, er Haraldur
konungur hárfagxi tók hann af
lífi, en sneri sfðan hefnd sinni
á hendur Hildiríðarsonum, sem
hann brenndi inni. Eftir það sigldi
hann til íslands og kom skipi
sínu í Rangárós.
Sonur KetUs hængs landnáms-
manns, var Stórólfur — „hann
átti hvolinn og Stórólfsvöll," segir
í Egils sögu.
12 kg. og
enn minna
Hóli, Svarfaðardal, 5. okt.
Sauðfjárslátrun stendur nú
yfir á Dalvík. Þar verður slátr-
að 10 þúsund fjár, en í fyrra
var slátrað þar 8 þúsund fjár.
Þessi mismunur stafar að
nokkru leyti af því, að óvenju-
mörg lömb voru sett á í fyrra,
en þó fremur af hinu, að menn
eru varbúnir meiri ásetningi
eftir þetta sumar.
Einstaka bændur hafa jafn-
vel verið að slá fram til þessa
og nokkrir eiga hey úti. Dilkar
eru mjög rýrir og flokkast illa.
Kroppþungi er um 12 kíló og
þar fyrir neðan. Margir dilkar
fara í þriðja flokk.
Veður hefur verið ágætt nú
um hríð, og eru það mikil um-
skipti frá því sem verið hefur.
—F.Z.