Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 9
í HÁLFA ÖLD það, sem nú skortir mest á til þess að læknadeildin geti veitt eins fullkomna fræðslu og tímarn- ir krefjast. Þegar deildin var stofn uð 1911, var gert ráð fyrir 5 ára námi. Nú er gert ráð fyrir 6—7 ár- um. Ein er sú breyting, sem gjör- breytti aðstöðunni til læknanáms 19 árum eftir stofnun háskólans, en það var tilkoma Landsspítalans 1930. Fyrstu kennarnir í læknadeild komu þangað beint frá Læknaskól anum gamla, allir nema tveir af níu. Sýnir þetta glöggt tengslin milli þessara stofnan. Þegar há- skólinn var stofnaður, voru aðeins tvö föst kennaraembætti við lækna deildina, en aukakennarar 7 og gegndu allir öðru aðalstarfi. Það var því lán háskólans, að prófess orarnir tveir vonr vel starfi sínu vaxnir, en þeir voru Guðmundur Magnússon og Guðmundur Hann- esson. Fjöldi þjóðkunnra lækna hefur kennt við læknadeild þessi fimmtíu ár, sem nú eru liðin frá stofnun hennar. Má þar m. a. nefna Guðmund Thoroddsen, Níels P. Dungal, Jón Hj. Sigurðsson, Gunnlaug Claessen, Jóhann Sæ- mundsson, Snorra Hallgrímsson o. fl. Tannlæknadeildin tók tO starfa 1945, en nokkrar breytingar voru gerðar á skipan hennar tveim ár- um síðar. Lyfjafræðingaskóli ís- lands, sem stofnaður var með lög- um 1940, var lagður undir lækna- deildina 1957, og hefur svo staðið síðan. Kennarar í læknisfræði eru nú 27 talsins, nákvæmlega þrefalt fleiri en 1911, er háskólinn tók til starfa. Eins og í öðrum greinum hefur sérhæfing aukizt i læknis- fræði upp á síðkastið, greinunum fjölgað og inn komið fög, sem ekki þekktust áður. Þetta kallar á aukna kennslu og aukið húsrými, ef vel á að vera, og í náinni fram- tíð standa vonir til, að byggt verði yfir þær greinar, sem enn eru kenndar í háskólabyggingunni. Ætti þá um leið að skapast bætt aðstaða til verklegrar kennslu. LAGA- OG VIÐSKIPTADEILD Fimm -deildir starfa nú innan vébanda Háskóla íslands. Ein þeirra er Laga- og viðskiptadeild, en stofn hennar er Lagaskólinn, sem tók til starfa skömmu á undan háskólanum eða 1908. Viðskipta- deildin er hins vegar yngri að ár- um. Núverandi forseti deildarinn- ar er Ólafur Björnsson, prófessor í viðskiptafræðum, en um þau mál er sérstakl. varða laganámið. fjall ar próf. Ólafur Jóhannesson vara- deildarforseti. Sambúð laga og við skipta hefur gengið vel, enda mál in töluvert skyld. Við lagadeildina störfuðu fyrst þrír kennarar, pró- fessorarnir Lárus H. Bjarnason, sem verið hafði forstöðumaður Lagaskólans, Einar Arnórsson og Jón Kristjánsson. Lagaskólinn hafði ekki starfað nema 3 ár, þeg- ar háskólinn var stofnaður, svo að þaðan brautskráðust engir lög- fræðingar, en lagadeild háskólans útskrifaði þá fyrstu 1912. Fyrstu áirin var lögfræðideildin fremur fámenn. Fram til 1918 voru flest 17 stúdentar í deildinni. Á árun- um 1920—30 var stúdentatalan milli 31 og 45 á ári. Síðan 1944 hafa stúdentar í lagadeild verið frá 106 til 142 á ári að undanskild- um árunum 1954—55, er þeir voru litlu færri en 100. Nú eru þeir um 130 að tölu. Á tímabili óx aðsókn að deildinni til muna, en hefur staðið nokkuð í stað á seinni ár- um. Kennarafjöldi stóð lengur í stað í lagadeild en öllum öðrum deildum. Fastir kennarar urðu ekki 4 fyrr en 1954, er Theódór B. Líndal varð prófessor. Nú eru innritaðir í deildina um 120—130, auk þess um 80 í viðskiptadeild. Haustið 1938 var fyrir forgöngu Jónasar Jónssonar frá Hriflu stofn- aður nýr skóli, sem nefndur var Viðskiptaháskóli íslands. Steinþór Sigurðsson var ráðinn til að veita honum forstöðu. Hlutverk þessa skóla var að veita menntun í hag- fræði og almennum viðskiptafræð- um. Voru þá hagfræðingarnir Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Björnsson ráðnir kennarar við skólann. Þegar háskólabyggingin reis af grunni og rýmkaðist um háskólann, óskaði há skólaráð eftir því að fá að taka upp svipaða kennslu og tíðkaðist í viðskiptaháskólanum, og sömu- j leiðis gengu óskir stúdenta þar ein ; dregið í þá átt. 27. júní 1941 voru svo samþykkt lög um að innlima viðskiptaháskólann í lagadeild há- skólans, sem eftir það nefndist laga- og hagfræðideild. en nú laga- og viðskiptadeild í september 1941 luku 9 stúdentar, sem allir höfðu stundað nám í viðskiptahá- j skólanum. prófi í laga- og hag- fræðideild háskólans, en aðrir stú dentar viðskiptaháskólans gengu sjálfkrafa inn i deíldina. Þegar deildin tók til starfa fyrir 20 ár- um. voru ráðnir við hana tveir fastir kennarar o.g nokkrir auka- kennarar. Var þetta starfslið að mestu óbreytt til 1958. en síðustu þrjú árin hefur heldur rætzt úr, enda nemendum fjölgað, og á síð- asta Alþingi var heimilað að stofna þriðja prófessorsembættið. Nám í lagadeild tekur nú yfirleitt 5—6 ár, en í viðskiptafræðum 4—4% ár. Forráðamenn deildanna munu hafa hug á að reyna að miða nám- ið þar sem mest við innlendar að- stæður í framtíðinni. HEIMSPEKIDEILDIN VAR NÝMÆLI Heimspekideild Háskóla íslands er nú,-ifjölbr«yttasta og fjölmenn- asta deildin;--sem þar starfar, og má flokka þær greinar, sem þar eru kenndar í þrjá höfuðflokka. Kjarni deildarinnar er og hefur frá fyrstu tíð verið íslenzk fræði- (norræna), sem skiptast innbyrðis í þrjá flokka: íslenzka málfræði, íslenzka bókmenntasögu og ís- landssögu. Auk þess eru kennd al- menn heimspekileg forspjallsvís- indi, sem allir verða að ljúka, sem lengra ætla að halda, aðrir en verkfræðingar. Kennarar í þeim greinum eru nú tveir, doktorarn- ir Símon Jóh. Ágústsson og Matt- hías Jónasson. Auk þess eru þar kenndar milli tíu og tuttugu mis- munandi greinar til B.A.-prófs, en það nám veitir réttindi til kennslu í þessum greinum við framhalds- skóla landsins. Þegar háskólinn var stofnaður 1911, var heimspekideildin eina raunverulega nýjungin. Meira að segja höfðu forspjallsvísindin áð- ur verið kennd í Prestaskólanum, svo að íslenzk fræði voru það eina, sem þá bættist nýtt við. Hins vegar hafa þau síðan verið og verða það, sem fyrst og fremst halda uppi deildinni. Nemendur voru fáir fyrstu árin, enda þjóðin ekki búin að átta sig á þessari nýju grein, þó að engin námsgrein standi henni nær Að vísu höfðu nokkrir íslendingar stundað' nám í íslenzkum fræðum í Kaupmanna höfn, en fyrir þá var lítið að gera að loknu námi, svo að eðlilegt var, að fáir yrðu til að leggja stund á norrænu fyrst í stað. Framan af var skilningur stjórnarvaldanna á þessu menningarfyrirtæki líka vægast sagt takmarkaður. sem sjá má af því. að tveir menn voru ráðnir til að kenna nokkurn veg- inn hið sama og sex fást við í dag. Þar af var ekki nema annar þeirra fastráðinn prófessor og var það dr Björn M Ólsen, fyrsti rektor há- skólans. Hinn var Jón J Aðils, sem aðeins var dósent og kenndi íslandssögu. Og þessir tveir menn lifðu það ekki að brautskrá neina nemendur. Það gerðist ekki fyrr en 12 árum eftir að skólinn var stofnaður. Þeir fyrs-tu, sem út- skrifuðust árið 1923 voru Pétur Sigurðsson, núverandi háskólarit- ari og Vilhjálmur Þ. Gíslason út- varpsstjóri. Upp frá því hafa all- margir numið þessi fræði og út- breitt þekkingu á þeim með kennslustörfum við íslenzka skóla og í ræðu og riti. Er það orðið mikið lesmál, sem eftir íslenzku- fræðingana liggur. Nú er miðstöð íslenzkra fræða flutt heim til ís- lands frá Kaupmannahöfn. Og vit- anlega á hún hér heima og ann- ars staðar ekki. Sex fastráðnir pró fessorar kenna nú íslenzk fræði við Háskóla íslands. Þeir eru: Halldór Halldórsson, Hreinn Bene- diktsson, Einar Ólafur Sveinsson, Steingrímur J. Þorsteinsson, Guðni Jónsson og Þór'hallur Vilmundar- son, allir virtir fræðimenn í sín- um greinum. Enginn vafi leikur á því, að það yrði til að stórauka veg og virðingu deildarinnar, ef íslenzku handritin kæmu heim frá Kaupmannahöfn, og um leið batn- aði aðstaða til náms í íslenzku, auk þess sem það mundi ýta undir menn að sinna náminu af meiri kostgæfni, en um leið er vandi á höndum. DR. SIGURÐUR NORDAL Ekki verður svo skilizt við ís- lenzk fræði á fyrri hluta þessarar aldar, að dr. Sigurðar Nordal sé getið að engu. Hann var eftirmað- ur Björns M. Ólsen á kennarastóli með nokkrum frávikum fram um 1950, er hann varð sendiherra ís- lands í Kaupmannahöfn, og eftir að hann kom heim, hefur hann verið á föstum launum sem pró- fessor við háskólann. án kennslu- skyldu. Um þetta voru á sínum tíma samþykkt sérstök lög, en hon um á þann veg vottuð virðing þjóð arinnar fyrir margvísleg bók- mennta- og menningarstörf í þágu hennar á starfsferli hans. Það þarf ekki að vera last um neinn annan,’ þótt sagt sé, að hann hafi borið hróður sinn og íslands um víða veröld með ritum sínum og rann- sóknum öðrum fremur og sé einn víðkunnasti vísindamaður íslend- inga á þessari öld. Hann hefur ára- tugum saman verið páfinn meðal annarra fræðimanna í sinni grein. og í rannsókn íslenzkra bók mennta er óhjákvæmilegt að taka tillit til kenninga hans, gamalla oe nýrra. AÐHLYNNING NAUÐSYNLEG Það á vel við að enda þetta spjall um heimspekideildina á orð- um dr. Guðna Tónssonar, núver- andi forseta hennar á afmælinu 17. júní s. 1.: „Eg álít, að það sé nauð- synlegt að hlynna vel að þessari deild og þó íslenzkum fræðum al- veg sérstaklega. Þama eru iðkuð þau fræði, sem eru íslendingum hjartfólgnust og ættu að gefa okk- ur færi á að leggja eitthvað sjálf- stætt fram til vísindanna. Og sú kennaramenntun, sem menn fá þarna, er svo nauðsynleg, sem mest má vera; öllum ætti að vera Ijóst, hvers virði það er, að kenn- arar við framhaldsskóla landsins séu vel menntir“. YNGSTA DEILDIN — VERKFRÆÐIDEILD Verkfræðideildin er yngst af há- skóladeildunum fimm. Kennsla í verkfræði hófst hér 1940, en það var ekki fyrr en um styrjaldar- lok, sem deildinni var formlega gefið nafn í lögum háskólans og skipaðir 3 prófessorar til að kenna þar. Fyrst var Finnbogi Rútur Þor- valdsson forstöðumaður deildarinn ar.Kennsla var í upphafi sniðin eft ir danskri fyrirmynd, enda höfðu flestir, ef ekki allir þeir íslend- ingar, sem fóru utan til verkfræði (Framhald á 7. síðu) Dr. Sigurður Nordal Próf. Ármann Snævarr núverandi rektor

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.