Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 11
TIMI N N , föstudaginn 6. október 1961. Minkurinn stelur úr neti — atriði úr Sumar á fjöllum Góö dýramynd í Stjörnubíói Stjörnubíó er um þessar mundir að hefja sýningar á sænsku kvikmyndinni Sum- ar á fjöllum (Vildmarks- sommar). Þetta er ævintýra- mynd í litum, og aðalhlut- verk leika Ulf Strömberg og dýr náttúrunnar. Þessi mynd er fyrst og fremst dýralífs og landslagsmynd frá norðurhluta Skandinavíu, en inn í hana er fléttað söguþræði. Matti, ungur finnskur piltur, var ásamt föður sínum tekinn og fluttur til Englands, þegar þeir feðgar flúðu land i stríðsbyrjun Faðir hans deyr þar í loftárás, og eftir stríðið fréttir Matti, að heimili nans hafi orðið illa útj í stríðinu og móðir hans sé dáin, en Silkka litla systir hans sé á lífi einhvers staðar heima í Finn- landi. Matti laumast um borð í norsk- an fiskibát, og leggur síðan af stað beint yfir fjöll til Finnlands Margir verða örðugleikarnir á ferð hans, því þótt vor sé komið er vetrarríkið enn við völd. Um síðir á Matti þó skammt eftir, en skrikar þá fótur er hann reynir að veiða sér í matinn við stóra og straumþunga á, meiðist og kemst ekki lengra. Piltur á svip- uðu reki finnur hann, hefur heim með sér og leynir í hlöðu Systir þessa pilts verður kunn- kona Matta, og faðir þeirra syst- kina býður honum að dveljast hjá þeim um sinn. En hann vill heim, heim, heim, og að lokum flytja þau systkinin og faðir þeirra hann yfir til Finnlands. Og að lokum ná systkinin saman. Framhald á 15. síðu. FEIFFER Hvenær held- urSu, að hún koml? Ég veit það ekki. Fljótlega, hugsa ég. Hvar held- urðu að hún komi? í Berlín? Já, Berlfn, kannske Formósu, kannske Viet Nam. Þelr finna einhvern stað. Ætlar þú að berjast? Það virðist vera réttast. Ég er samt ekki búinn að ákveða það. Ég ætla að fara eftir for- ustumönnun- um okkar. Þelr vlta bet- Auðvitað vfta þelr, hvað þelr eiga að gera. Þetta eru allt menntaðir menn. Ef þeir vilja láta mig berjast, ætla ég að gera það. Lýðveldi er fólgið f því, að fólkið ræður, þarf ekki að hlýða stjórninni i einu og öllu. Það á að hafa frumkvæðið, en ekki stjórnin. Það skiptir ekki svo miklu máli með mig. Ég er bara vesall syndari. En ég vona að þeir sprengi Rík- ið ekki í loft upp. Ef þeir nota Neutron- sprengjur, sprengja þeir ekki svo mikið sem eina Ríkinu. Neutron- sprengjur? Hvernig sprengjur eru það? Þær drepa bara fólk. Þær skemma hvorki hús eða vélar. Skemma ekkl vélar, segirðu? Það er mlkil raunabót. Af hverju þá? Af því þá slepp- um vlð næstum þvi öll. iaisiiifeia-:-!:;:,™?,,:5;: _ . ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.