Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 16

Tíminn - 06.10.1961, Blaðsíða 16
Föstudaginn 6. október 1961. 257. biaff. óskoðuðum vörum ur vöruskemmum Tveir skrifstofumenn hjá Eimskip veittu þeim liSsinni vi«S verknat$inn Það hefur nú sannazt, aS skrifstofumenn hjá Eimskipa- félagi íslands hafa þrívegis haft hönd í bagga um það, að vörur, sem ekki var búið að tollafgreiða, væru iátnar af hendi' í vöruskemmum félags- ins. Voru vörur þessar eign tveggja verzlana, og virðist þó samband á milli þeirra, því að með þær vörur, sem eignaðar voru annarri, var í einu tilfell- inu farið með til hinnar. Fyrsta brotið var framið í febrú- ar í vetur, er skrifstofumaður gekkst fyrir því, að átta ballar af ótollskoðaðri metravöru væru látn- ir af hendi við íslenzk-erlenda verzlunarfélagið. í ágústmánuði í sumar gerðist það, að annar skrifstofumaður gekkst fyrir því, að verzlun úti á landi fékk að taka í vöruskemmu Eimskipafélagsins tólf ótollskoð- aða kassa, sem í voru nælonsokk- ar. Ekki hefur blaðinu tekizt að fá vitneskju um, hvaða verzlun þetta er, en hún mun vera í þorpi á Miðvesturlandi. Með nælonsokk- ana var farið til hins fyrrnefnda fyrirtækis í Reykjavík. Síðustu dagana í september gekkst sami skrifstofumaður fyrir því, að verzlunarfyrirtæki úti á iandi næði ótollskoðuðum níu böll- um af gluggatjaldaefni. Ekki var þessi varningur fluttur úr bænum, fyrr en rannsókn á málinu var haf- in að frumkvæði tollgæzlunnar. Þá var lagt af stað með hann í skyndi, en menn úr rannsóknarlögreglunnf eltu bílinn og náðu honum, áður en hann var kominn á áfangastað. Dr. Richard Beck og Margrét kona hans. Rætt vié dr. Richard Beck prófessor: Fimmta íslandsförin á fjörutíu árum Dr. Richard Beck prófessor og frú hans, Margrét Beck, eru meðal gesta, sem Háskóli íslands býður á afmælishátið sína. Prófessorinn verður á hátíðinni gerður að heiðurs- doktor við Háskóla íslands. Dr. Richard Beck sagða á fundi með fréttamönnum í' gær, að ann arra væri að dæma, hvort hann verðskuldaði að verða gerður að heiðursdoktor. En hann væri há-1 skólanum innilega þakklátur fyrir að bjóða þeim hjónum á hátíðina 1 og fyrir að fá tækifæri til að heim sækja ísland einu sinni enn. Hjón in munu dveljast hér í viku. Sagði prófessorinn, að þetta væri fimmta ferð sín til íslands, síðan hann fluttist vestur fyrir nær 40 árum. Ferðalög hans milli Vestur heims og fslands væru alltaf heiman og heim. Kona hans, Margrét, heimsækir nú ísland í annað sinn. Hún er af íslenzkum ættum, en fædd í Kanada. Hún var áður kennari í San Fransisco. Richard Beck er, sem kunnugt er, prófessor við ríkisháskólann í Norður-Dakóta. í haust eru rétt 70 ár síðan kennsla í norrænum fræðum hófst þar, en Beck hefur kennt þar í 32 ár. Hann sagði, að aðaláherzla væri lögð á að kenna norsku, en einnig væri þar kennd íslenzka og bókmenntir allra Norðurlandanna. Um 100 stúdent ar eru nú innritaðir í þessa deild. Fjölmargir íslenzkir stúdentar liafa stundað nám við ríkisháskól- ann í Dakota. Kunnastir munu vera Vilhjálmur Stefánsson og Guðmundur Grímsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. Framhald á 15. síðu. „Það er ekki langt milli mín og hans” Offjölgun mannkynsins mesta hættan i heiminum Bein Javamannsins fundust 1892, og leifar af hauskúpu hans eru varðveittar i Leyden í Hollandi. Eftir þessum beinaleifum var teikn- ingin gerð. Mig langaði til þess að rannsaka heila í bláhval — stærsta heila, sem til er. Ég hef meiri löngun til þess heldur en kynnast þeirri hlið tunglsins, sem snýr frá jörðu. Ég býst við, að hún sé svo svipuð hinni hliðinni, sem við höfum alltaf horft á. Mig fýsir að vita meira um hnött okkar sjálfra og það líf, sem dafn- ar á henni. Þannig komst náttúrufræð- ingurinn og úthafskönnuðurinn Anton F. Brun að orði í út- varpsþætti í danska útvarpinu fyrir nokkrum dögum. — Við viljum, að fólk læri að skilja lífið, og ég gerðist náttúrufræðingur af því, að í rauninni erum við öll dýr. Þorskurinn hefur að vísu hald- ið áfram að vera þorskur, en hitt mætti rökræða, hvað orðið hefur úr mér og mínum. Það er eigi að síður staðreynd, að þorsk, sem fengið hefur sykur- sýki, má lækna með insúlíni, sem annars er ætlað mér og mínum líkum. Stjórnandi útvarpsþáttarins spurði náttúrufræðinginn, hvort maðurinn væri vitrasta dýr jarðarinnar. — Já, hann er það, svaraði Bruun. En það eru fyrst og fremst heilar, sem ég vil rann- saka betur. Einkum heilar úr bláhvölum. Seinustu árin hefur sannazt, að höfrungar og mar- svín eru gædd mikilli gr'eind. Sennile-ga eru þessi sjávardýr jafnokar greindustu mannapa að vitsmunum. Þegar hér var komið, vék Brunn talinu að öðru: — Ég sá Javamanninn í Leyden. Hann dó fyrir einum fjórðungi ármilljóna. Hann hefði ekki gétað komið gervi- tunglum á loft, en hann gat samt notað verkfæri. Eftir ann- an fjórðung ármilljóna verður s-agt um okkur: Hamingjan góða! Þeir voru ekki komnir lengra en það, að þeir gátu bara fundið upp kjarnorku- sprengjuna, þó að þeir reyndu að gera betur. Það er talsvert bil á milli okkar og Javamannsins. En ekki langt. Heilinn í Javamann- inum var um eitt þúsund ten- ingssentimetrar. Heilinn í okk- ur hérna í Vestur-Evrópu er núna um 1400—1500 tenings- sentimetrar. (Framhald a 'í si'u ) Dr. Anton F. Bruun náttúrufræð- ingur: Javamaðurinn dó fyrlr fjórSungi ármilljóna. Hvernig skyidum við verða ásýndum að jafnlöngum tínia liðnum? — Það er von, að maðurinn spyrjl. flBSjgBræ::

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.