Tíminn - 06.10.1961, Síða 6
(
T í M I N N , föstudaginn 6. október 1961.
Karlmanna-
Obreytt
verð
•'IlOJíl Otí’l v
.Bíaebúiv.
V "
Frá landsbyggðinni
Mikil úrkoma
Fáskrúðsfirði, 26. sept. — Rignt
hefur óhemjumikið í sumar og
haust, og hafa akvegir farið illa
út úr vatnsflaumnum, þar sem
þeir eru ekki öflugir, svo sem
hreppavegir og heimreiðir með
litlum ofaníhurði. Er sums staðar
illfært eftir slíkum leiðum nema
á dráttarvélum.
Hér hefur annars verið ákaflega
mikil og góð atvinna í sumar. Til
dæmis um það má segja, að grafa
átti fyrir símajarðstreng hér eftir
annarri aðalgötunni, en ekki feng
ust menn til að vinna það verk
fyrr en nú nýlega, er dofna tók
yfir athafnalífinu að loknum sum
arönnum. — Furðuiitlar skemmd-
ir hafa annars orðið af völdum
vatnavaxtanna, aðeins fallið úr
brekkum hér og þar, og allir aðal
akvegir hafa haldist færir, enda
eru þeir alltaf að batna og verða
traustari með hverju ári. S.Ó.
Lítil næturfrost
Ströndum, 2. okt. — Veður er
sæmilegt í dag, en rignt hefur
látlaust hér í hálfa aðra viku. —
Hafa göngur og réttir gengið erfið
lega af þeim sökum. Slátrun er
hafin ».já Kaupfélagi Stranda-
manna og verður slátrað um 4 þús.
fjár. VCænleiki fjárins er minni
en í fyrra. Ekki tókst að ljúka
frystihúsi því, sem verið er að
byggja á Norðurfirði, fyrir slátur
tíð. Garðavinnu er víðast að
mestu lokið. Kartöfluuppskera var
í góðu meðallagi. Næturfrost hafa
engu spillt. G.P.V.
Dilkar fremur rýrir
Vopnafirði, 3. okt. — Byrjað var
að slátra hér 18. sept. Búið er að
slátra um 6500 fjár, og er þá eftir
að slátra 13—14 þúsundum. —
Verður slátrun sennilega lokið um
næstu mánaðamót. Dilkar eru
heldur rýrir. Meðalvigt er um
14,5 kg. 60—70 manns vinna hér
að slátrun. — Veðrátta hefur ver-
ið stirð undanfarið. Lítið hefur
verið farið á sjó. Heybirgir eftir
sumarið munu þykja nægilegar í
meðalári. K.V.
Ógæftir
Raufarhöfn, 2. okt. — Fiskafli er
í meðallagi hér, þó að ógæftasamt
hafi verið í september. Áttin hef-
ur lengst af verið á austan og
norðaustan. Atvinna hefur verið
næg við ag ganga frá síld til út-
flutnings, en fer nú að minnka.
Lítið hefur verið flutt út, en von
er á mörgum skipum á næstunni.
Tungufoss er hér í dag að taka
400 lestir af mjöli. — Göngum og
réttum er lokið, og verður slátrun
hafin á morgun í nýja sláturhús-
inu. Slátrað verður rúmlega þrjú
þúsund fjár. H.H.
Votvi'Sri
Djúpavogi 2. okt. — Hér eru stöð
ugar rigningar og vatnavextir af
þeirra völdum. Hefur það valdið
miklum erfiðleikum við smala-
mennsku og réttir. Slátrun er í
fullum gangi og verður slátrað
um 10 þús. fjár. Sláturfé er ekki
eins vænt og í fyrra. Ekki hefur
gefið á sjó í langan tíma. Þ.S.
Uppl. í síma 34073.
til leigu í lengri eða
skemmri tíma.
Skurðgrafa
— ámokstursvél —
ALLT Á SAMA STAÐ
SENDUM GEGN KRÖFU
í WILLYS JEPPANN:
Jeppakörfur
Jeppastálhús
Bretti
Húdd
EGILL VILHJÁI-M^SDN H,F.
Laugavegi 118 — Simi 22240
Bifreið til sölu
Til sölu er Chevrolet bifreið árgerð 1955, 10 far-
þega. Bifreiðin verður til sýnis laugard. 7. þ. m.
kl. 2—5, við gamla flugturninn.
Tilboð sendist skrifstofu mihni fyrir 14. þ. m.
Flugmálastjóri.
-v • -v.