Tíminn - 17.10.1961, Qupperneq 1
Áskriftarsími Tímans er
1-23-23
266. tbl. — 45. árgangur.
Krústjoff heldur
flokksfund
bls. 5.
Þriöjuuagur 17. október 1961.
Trlllur á Húsavíkurhöfn
hætt komnar í brimgaröi
Húsavíkurhöfn lokuð vegna brims - Klofdjúpt vatn á veginum f30rð þvl olMdandl var a Slglu
sunnan Sveltinga - Siglufjarðarskarð lokaðist, opnaðist og lok-
aðist aftur - Ólafsfjarðarbátar drógu lítið af línum sínum
í gær var norðan og norS-
vestan hvassviðri víSa á NorS-
ur- og Norðausturlandi, víða
hríðarveður eða slydduhragl-
andi og sums staðar brim. Á
Húsavík var meira brim en
nokkurn tíma áður, síðan
hafnargarðurinn var gerður.
í Grímsey var foráttubrim, og
við Sveltinga er vegurinn í
kafi á kafla. Tíminn átti í gær
tal við fréttaritara sína víða
á þessu svæði, og eru frétt-
irnar hér á eftir skráðar eftir
þeim viðtölum:
Á Húsavík var mjög slæ>mt veð-
ur, norðaustan stormur og feiki-
legt brim. Sjórinn gekk látlaust
yfir hafnargarðinn, og voru trill-
ur, sem bundnar voru við hann,
mjög hætt komnar. Þó tókst að
halda þeim á floti. Flestar tókst
að losa frá garðinum og koma á
legu inni í höfðinni eða upp á
land, en fjórum bátum var hald-
ig við hafnargarðinn með því að
ausa þá í lögunum, en það var
kaldsamt verk og óstöðugt, því
þeir, sem jusu, þurftu 'sífellt að
hlaupa undan ólögunum.
Lágu undir Flatey
Fjórir bátar frá Húsavík voru
Útvarps-
umræða
í kvöld
Útvarpsumræ'ða um
fjárlögin, 1. \umr.,
fer fram í kvöld.
Eysteinn Jónsson tal
ar fyrir Framsóknar
flokkinn og vertJur
hann fjór'ði ræíu-
maÖurinn viÖ um-
ræ'Öuna. Fyrstur tal-
ar fjármálará'Öherra
og siÖan fulltrúar
hinna flokkanna hálfa
klukkustund hver, og
loks fjármálará'Sh.
í róðri þegar veðrið skall á. Þrír
þeirra leituðu vars vig Flatey, en
einn, Helga, reyndi að komast inn
í höfnina á Húsavík um klukkan
hálf þrjú í gær, en varð frá að
hverfa. Lá hún síðan úti fyrir og
beið þess að komast inn. Þetta er
í fyrsta sinn, síðan hafnargarður-
inn var gerður, að ekki hefur ver-
ið sæmilegur sjór í höfninni, en
svona brim hefur ekki komið síð-
an 1934, — Veðrinu fylgdi hríðar
hraglandi. Voru þetta snögg um-
skifti, því fram ag helginni var
12—14 stiga hiti á Húsavík og
ágætasta veður.
|
Klofdýpi á veginum
Á Kópaskeri var versta veður,
hvasst og éljagangur, mikið brim
en olli þó ekki skaða. Þar gerðist
það, að menn, sem höfðu komið
með sláturfé til slátrunar, úrðu
veðurtepptir, vegna þess að brim
aði yfir veginn vig Brunná, sunn-
an við Sveltinga. Var þar víðast
hvar klofdjúpt vatn á veginum og
mikill öldugangur vegna roksins.
Þar að auki liggur vegurinn þarna
yfir þröng ræsi, og var því ekki
þorandi að reyna að brjótast gegn
um elginn, þótt hægt hefði verið.
Tefur þetta eitthvað fyrir að slátr
un Ijúki á Kópaskeri, en henni
átti áð Ijúka í vikunni. Skip átti
að koma þangað í gær og taka
kjöt, en það mun dragast eitthvað,
því útlit er fyrir svipað veður þar
á næstunni. Lítill snjór var kom
inn þar, en talið að mikil snjó-
koma væri á hafinu úti fyrir.
Fór til Skagafjarð'ar
Á Siglufirði var kominn snjór
yfir allt, og þar var gríðarlegt
brim um 10 leytig í gærmorgun.
Tveir bátar, sem voru í róðri þeg-
ar veðrið skall á, fóru inn á Skaga
firði, Skarðið fylltist í fyrrinótt,
en var rutt eitthvag í gærmorgun,
pg upp úr hádegi fóru þar bílar
yfir, bæði áætlunarbílar og gestir
af hátíð Bjarna Þorsteinssonar,
sem voru á einkabílum. En síðan
dimmdi aftur yfir og nú er skarð-
ið ugglaust lokað.
Grátt í rót
í Hrísey var óvenjulega mikið
brim, svo sem annars staðar þar
innfjarðar, en engan gerði það
usla ,svo biaðinu sé kunnugt um.
Þar slitraði með slyddu og var
allt orðig grátt í rót. í Grímsey
(Framhald á 2. síðu.)
Síðustu fréttir:
Um klukkan 17 í gær var búið
að bjarga trillunum fjórum, sem
lágu við hafnargarðinn hér á Húsa
vík, og hálftíma síðar komst v.b.
Helga inn á höfnina. Skemmdir
urðu einhverjar á mannvirkjum
en ekki miklar. Það tók uppslátt
af hafnargarðinum, sem nýlega
var búið að setja upp. Veðrið er
heldur að lægja.
Þormóður.
Illa búnir og matar-
litlir á Reykjaheiði
Bíða eftir því að björg-
unarleiðangur frá Húsa
vík nái til þeirra í hríð
og náttmyrkri.
Húsavík, 16. okt. — Mikið
hríðarveður og stormur geis-
aði á Reykjaheiði í dag. Tveir
menn, William Pálsson og
Höskuldur Jónsson, sem voru
á leið yfir heiðina til Húsa-
víkur á Land Rover bifreið,
festu bifreið sína uppi á heið-
inni og eru þar veðurtepptir.
Tveir lögreglumenn, sem fóru
frá Húsavík til aðstoðar við þá í
dag á Dodge lögreglúbO með
drifi á öllum hjólum, festu bíl
sinni i snjóskafli. Annar þeirra
varð eftir : bílnum, en hinn lagði
af stað i'ótgangandi til Húsavíkur.
Var hann tvær og hálfa klukku-
stund á leiðinni móti hríðarveðri
og stormi.
Farinn aftur
Lögreglumaður þessi er nú ný-
farinn (kl. 20,30) af stað aftur,
og með honum Skarphéðinn Jón-
asson bifreiðarstjóri. Eru þeir á
10 hjóla trukk.gr— Mennirnir tveir,
sem á heiðinni bíða, munu fremur
illa búnir og hafa lítinn eða eng-
an mat.
Þormóður.
Skyttur
villtust
í myrkrj
- eftir mikinn feng
í Snjófjallahlíðum
Borgarnesi og Fornahvammi,
16. okt. — Rjúpnaveiðitíminn
hófst í gær, 15. okt., og fór
þá margt manna á rjúpnaveið-
ar upp af Borgarf jarðardölum.
Veiðin var nokkuð misjöfn, en
tveir menn, sem komust í
mikinn fugl í Ijósaskiptunum,
villtust, þegar myrkrið skall
á, og fundust ekki fyrr en í
nótt. Þeir voru vel útbúnir
og amaði ekkert að þeim ann-
að en villan.
í gær voru um fjörutíu menn í
Tröllakirkju á Holtavörðuheiði,
en varð ekki mikið i til fanga.
Tveir skrifstofumenn úr Reykja-
vík tóku sig þá út úr og lögðu af
stað niður af heiðinni, en þegar
þeir komu í Snjófjallahlíðar, var
þar krökt af rjúpu. Þetta var í
rökkurbyrjun.
Vissu ekki hvar þeir voru
Iíófu þeir þegar drápið, og
fengu 15—20 fugla hvor á ör-
skömmum tíma, en urðu að hætta
vegna myrkurs. Hvorugur þessara
manna kannaðist við sig á þessari
leið niður af heiðinni, og nú tók
að rigna í viðbót við myrkrið.
VissU þeir ekki, hvar þeir voru, né
hvert þeir skyldu halda, og héldu
því kyrru fyrir. En eftir svo sem
klukkustund tóku þeir að óttast,
(Framhald á 7. síðu)
Nítján manns hafa slasazt
í árekstrum frá mán.mdtum
113 árekstrar, e'ða 7 á hverjum sólarhring
Frá síðustu mánaðamótum
hafa 18 manns slasazt meira
og minna af völdum umferðar.
Þá hefur dauðaslys átt sér
stað í þessum mánuði, en það
er fjórða dauðaslysið af somu
orsökum i ár. Bókaðir eru 113
árekstrar frá mánaðamótum
eða 7 á dag. Árekstrar á þessu
ári voru í gær orðnir 1546.
Síðasta umferðarslysið átti sér
stað á Kleppsvegi laust fyrir há-
degi í gær. Þar var steypubíl
ekið á 10 ára telpu, sem var á
reiðhjóli, og 5 ára systur telp-
unnar. Telpurnar voru á leið ausf-
ur yzt á vegarkantinum vinstra
megin. Högghlíf bílsins lenti aftan
á reiðhjólinu og ýtti því marga
metra áfram meðan þungskreiður
bíllinn var að stöðvast.
Fát
Bílstjórinn dró í fáti eldri telp-
una undan bílnum. Hann bar hana
hljóðandi afturfyrir og lagði hana
á vegarkantinn. Systurnar voru
fluttar á læknavarðstofuna og
voru athugaðar þar í gær. Sú eldrj,
Sólborg Pétursdóttir, var meidd
á höfði, en meiðsl hinnar, Soffíu,
virtust mjög smávægileg. Telp-
urnar eiga heima 'í Balbókamp 7.
Þær höfðu farið í búð til að sækja
mjólk og voru á ieið heim.
Hvolfdist í skurð
Snemma á öðrum tímanum í
fyrrinótt fór bíll í vegarskurðinn
sunnan við brúna í Fossvogi. Öku-
maðurinn kvaðst hafa tekið fram
úr við lækinn, en síðan hafði
hann misst vald á bílnum, sem
essaði veginn, unz hann skall á
ljósastaur og braut hann og valt
svo á hvolf í skurðinn. Tveir far-
þegar voru í framsætinu. Annar
(Framhald á 2. síðu.)