Tíminn - 17.10.1961, Page 2
>
Karmöy heii
og óbrotin
Báturinn reyndist óbrot-
inn melí öllu, og hefur því
hvolft.
ísafirði, 16. okt.
S.l. laugardag fór v.b. Vinur frá
ísafirði ásamt Guðmundi Marsel-
íussyni kafara inn í Djúp til þess
að ná upp v.b. Karmöy, sem fórst
þar fyrir nokkru. Gekk það vel
og komu þeir með hann hingað á
laugardagskvöldið, og var hann
dreginn upp í fjöru í gær. Þár
var hann ausinn og reyndist vera
óbrotinn. Hefur honum því hvolft,
þegar hann fórst. — Eins og áður
hefur verið sagt frá, fannst lík
annars feðganna, sem á honum
voru, Símonar Ólsen, flækt í net-
um, en lík Kristjáns hefur enn
ekki fundizt. G.S.
EEdur í heyi í um
fiað bil sóEarhring
í byrjun október kom hol-
lenzka skipið „Walcheren" til Ak
ureyrar og tók marga bílfarma
af brotajárni tii útflutnings.
Kenndi þar margra grasa. Ljós-
mynd: G.P.K.
Nokkrir björgunarmanna fengu snert af gaseitrun
í fyrradag kom upp eldur
í hlöðu á Þórustöðum í Ölfusi.
Tíminn hafði tal af bóndan-
um þar, Pétri Guðmundssyni,
seint í gærkvöldi, og fórust
honum orð eitthvað á þessa
leið:
Já, það er nú loksins slokknað
í þessu. Þag urðu engar aðrar
skemmdir en heyskemmdir, og
skaðinn ekki tilfinnanlegur, það
er að segja, hann hefur enga úr-
slitaþýðingu fyrir afkomuna.
Þarna fóru eitthvag 400 hestar,
eða þriðjungurinn af þurrkuðu
heyi. Súrheyfnu var náttúrlega
ekki hætt. Við urðum í gær varir
við að eldur var í heyinu, þag fór
að rjúka úr því, en að líkindum
hefur hitinn verið búinn að búa
um sig áður. Þegar vig fórum að
rífa það upp, kom dálítill eldur
og mikil aska.
Duttu í máttleysi
Veðráttan var mjög góð, svo bú-
ast má við, að góð nýting verði
á því, sem náðist út. Slökkviliðið
úr Hveragerði kom á vettvang og
fólk úr nágrenninu. Allir unnu
mjög vel og þetta var vökunótt,
en sumir fengu gaseitrun, vegna
þess ag við hlífðumst við því að
rjúfa þakið, til þess að örva ekki
eldinn. Lögreglan á Selfossi kom
tmeð súrefnistæki og þeir sem
urðu fyrir gaseitruninni hresstust
fljótt og varð ekki meint af. Það
var verst, að þeir komu kannske
út án þess, ag kenna sér meins,
en duttu svo í máttleysi einhvers
staðar úti í myrkrinu. En allt fór
þetta vel, og nú er eldurinn dauð-
ur, eftir um það bil sólarhring. —
Við erum öll glöð yfir endalok-
unum, því illa horfði í fyrstu.
U. Thant
(Framhald af 3. slðu)
finna hæfan eftirmann að Hamm-
arskjöld látnum. U. Thant er hæg-
látur og prúðmannlegur, en eins
og að líkum lætur hafa sumir látið
orð falla um, að hann muni tæp-
lega reynast eins éinbeittur og
ákveðinn og fyrirrennari hans.
sem bæði var raunsær og ósveigj-
anlegur, ef því var að skipta. U
Thant hefur fylgzt með umræð-
unum um framkvæmdastjórnar-
vandamálið, sig, Mongi Slim og
írann Frederick Boland af stóiskri
ró og hefur látið svo um mælt,
að ef hann yrði kosinn, mundi
hlutverk hans einkum verða að
„varðveita friðinn innan vébanda
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.“
Varað við
geislun
NTB—New York 16. okt.
Kanadamenn lögðu í dag fram
ályktunartillögu I stjórnmála-
nefnd Allsherjarþings S.Þ.,
þar sem áhyggjur mannkyns-
ins vegna hættunnar á geislun
koma skýrt fram.
Það eru 22 lönd, sem að tillög-
unni standa. þ.á.m. Npregur. í til-
lögunni er þess farið á leit, að
veðurstofur um allan heim veiti
upplýsingar um geislun jafnframt
veðurfregnum. Fulltrúi Kanda,
Paul Tremblay fylgdi tillögunni
úr hlaði og kvað hana byggða á
alvarlegum athugunum og um-
hugsun. Það yrði að gera öllum
ljóst, hvílík hætta næstu kynslóð-
um stafaði af geislavirku ryki og
tilraunum með kjarnorkuvopn
Ekkert ríki hefði rétt til að baka
öðru stórhættu með tilraunum1,
sem hefðu í för með sér geislun
og geislavirkt ryk.
KekkoiTen
heimsækir
Washington
NTB—Washington 16. okt.
Kennedy Bandaríkjaforseti og
frú tóku I dag á móti Kekk-
onen Finnlandsforseta og frú
hans á Andrews-flugvelli við
Washington, en þangaS er
Kekkonen komjnn í tveggja
daga heimsókn.
Kekkonan og frú komu með
flugvél frá Kanada, en þar hafa
þau verið í opinberri heimsókn að
undanf.rnu. Dean Rusk, utanrikis
ráðherra Bandaríkjanna, tók einn
ig á móti þeim á flugvellinum
ásamt herforingjum og_ *fleiri
embættismönnum ríkisins. í ræðu,
sem Kekkonen hélt við komuna
til Washington, sagðist hann
vona, að heimsókn sín til Banda-
ríkjanna yrði til þess að styrkja
vináttusambandið milli ríkjanna
tveggja, Finnlands og Bandaríkj-
anna og minntist enn fremur
þeirra hundraða þúsunda Finna,
sem flutzt hefðu til Bandaríkj-
anna og setzt þar að og öðlazt
þegnrétt í bandarísku þjóðfélagi.
f ræðu, sem Kennedy hélt, þar
sem hann bauð Finnlandsforseta
velkominn, sagði hann, að það
væri sér sönn gleði að bjóða hann
velkominn til Washington, og
lagði áherzlu á, hve gott sam-
band væri milli landanna, sem
væri að þakka finnsku innflytj-
endunum. „Árum saman hefur
saga Finnlands sannfært okkur
um, að Finnland er ákveðið í því,
að halda á loft merki friðar og
sjálfstæðis“, sagði Kennedy.
„Margt hefur gerzt siðan Kekk-
onen forseti var síðast í Banda
ríkjunum, en ég er eigi að síður
jafnsannfærður um, að hið góða
samband milli landa vorra mun
haldast áfram“ bætti hann við.
Bókaþáttur til
\
kynningar
Donald Bnander, sendikennari
við Háskóla íslands, O'g Snæbjörn
Jónsson og Co. h'.f., The English
Bookshop, hafa í hyggju ag stofna
í Reykjavík bókaklúbb til þess að
kynna enskar bókmenntir. Með-
limir klúbbsins kaupa eina á-
kveðna bók í byrjun hvers mánað
ar, lesa hana og hittast svo í lok
mánaðarins og ræða innihald henn
ar.
í vetur yrðu lesnar 3 vasabrots-
bækur og 3 nýjar bækur og um-
ræðu-kaffifundir haldnir sex sinn
um, en bækurnar munu meðlimir
klúbbsins fá með 10% afslætti hjá
Bókaverzlun Snæbjarnar. Nóvem-
ber-bók klúbbsins verður „Eating
People is Wrong“ eftir Malcolm
Bradbury. Gert er ráð fyrir, að
20 manns verði í flokki og mun
Brander verða formaður klúbbs-
ins og stjórna umræðu-kaffifund-
unum og fara umræður fracn á
ensku. Þeir, sem áhuga hefðu á
að gerast meðlimir, eru beðnir að
skrifa sig ,á lista, sem liggur
frammi í Bókaverzlun Snæbjarnar,
Hafnarstræti 9, og er síðasti inn-
ritunárdagur laugardágurinn 21.
október.
TfMINN, þriðjudaginn 17. október 1961
Nítján slasazt
(Framhaid af 1 síðu).
þeirra kastaðist út, áður en bíll-
inn valt en hinn, stúlka, sem sat
nær bílstjóranum, lenti undir
bílnum, þegar hann fór í skurð-
inn og lá þar og gat ekki hreyft
sig. Mannsöfnuð dreif á staðinn
og var lögreglunni hjálpað að
lyfta bílnum ofan af stúlkunni. í
honum voru alls sjö manns, 4
karlar og 3 konur. Erfitt var að
athafna sig, því götuljósin höfðu
slokknað vegna staurbrotsins.
Hver þvældist fyrir öðrum og bíla
lestin var óslitin frá Fossvogslæk
suður undir Kársnesbraut. Lög-
reglan tók fasta tvo menn, sem
þráuðust við að fara, þegar verið
var að greiða úr umferðarflækj-
unni.
Allir, sem voru í bifreiðinni,
hlutu einhver meiðsl en ekki al-
varleg.
Á föstudagskvöldið handleggs-
brotnaði stúlka, sem varð fyrir
bifreið á Reykjahlíð. Sama kvöld
mjaðmargrindarbrotnaði 13 ára
drengur, sem varð fyrir bjfreið
á Sundlaugarvegi. Hann liggur nú
á Landakotsspítala, þungt hald-
inn. Þessi árekstur var svo harð-
ur, að bíllinn var ekki ökufær
á eftir. Stjórnandinn sá ekki dreng
inn, fyrr en hann var kominn upp
á vélarhlífina og barst hann þann
ig langar leiðir.
Á laugardaginn stórskemmdist
bifreið, sem var ekið út af vegin-
um skammt fyrir neðan Skíðaskál
ann í Hveradölum. Lögreglan í
Reykjavík fór á staðinn en hitti
þar engan mann. Ökumaðurinn
hafði tekig sér far austur yfjr
fjall. Segir lögreglan, að hann hafi
verið drukkinn.
Trillur á Húsavíkurhöfn
(Framhald af 1. síðu).
var einnig foráttubrim, en ekki
tókst að fá fréttir þaðan frá eynni
áður en símstöðinni var lokað
klukkan fimm í gær.
Fóru frá línunum
Nórðanhríð skall yfir Ólafs-
fjörð seint í fyrrinótt og kom Ól-
afsfirðingum á óvart, því að kvöld
ið áður var rigning og alautt upp
á efstu tinda. Jafnframt versnaði
í sjóinn, og bátarnir, sem réru í
fyrradag, drógu ekki nema lítið
eitt af línum sínum og komu
snemma inn. — Sennilegt er, að
Lágheiði teppist fljótlega, ef hann
heldur áfram að hríða svona.
Slydda í Skagafirði
Vestasti staður, sem blaðið
hafði samband við, var Sauðár-
krókur. Þar var norðanátt og
slydda, og kom Sauðkræklingum
á óvart, því að daginn áður var
glampandi sól og gott veður. Aust-
asti staður var Raufarhöfn, þar
var ofsastormur en ekki mikil
snjókoma, þó orðið gráttt yfir að
líta.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Reykjavíkur verður haldinn í Fram-
sóknarhúsinu miðvikudaginn 18. þ. m. og hefst kl.
20,30. Á dagskrá eru veniuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Flokksstarfiö úti á landi
Rangæingar
Héraðsmót Framsóknarmanna verður að Hvolsvelli n.k.
laugardagskvöld. Meðal dagskráratriða: Ræða, gaman-
vísnasöngur, einsöngur og dans. Nánar auglýst síðar.
Frámsóknarvist - Keflavík.
F.U.F. i Keflavík heldur skemmtun í Ungmennafélagshúslnu f Kefla-
vík föstudaginn 20. október — enn fremur 27. okt., 3. nóv. og 10 nóv.
n.k — Allar samkomurnar hefjast kl. 8.30 s.d.
Til skemtunar — Framsóknarvist og dans. — GóS verðlaun. — Heild-
arverðlaun í lok spilakeppninnar.
Fjölmennið á skemmtikvöld F.U.F.