Tíminn - 17.10.1961, Qupperneq 8
T í MI N N , þriSjudaginn 17. október 1961
Bókauppboð föstudaginn
13. október klukkan fimm
eftir hádegi stundvíslega.
Það er fyrsta uppboðið í
haust. Sigurður Benedikts-
son stendur í anddyri Sjálf-
stæðishússins og andar að
sér góða loftinu meðan
hann, bíður eftir viðskipta-
vinunum.
— Það verður ekki mikið um
að vera hjá mér í dag, segir
Sigurður, lögfræðingastéttin er
öll í kokkteilpartíi hjá dóms-
málaráðherra svo þeir láta ekki
sjá sig.
Prófessorar og þjóðskáld
Þó iögfræðingastéttina vanti
á uppboðið, virðist enginn hörg-
ull á fólki, litli salurinn í Sjálf-
stæðishúsinu er orðinn troð-
fullur klukkan fimm og menn
velta fyrir sér skránni yfir þær
bækur sem boðnar verða upp.
Þarna eru staddir nafnkunn-
ir bókasafnarar, þeir taka líf-
inu með heimsmannslegri ió og
spekt eins og rollukóngar í rétt-
um, einnig fræðimenn og grús-k-
arar af ýmsu tagi, virðulegir
prófessorar og þjóðskáld, stúd-
entar og stjórnarráðsfulltrúar,
bankastjórar og bakarameistar-
ar. Þarna eru líka örfáar konur
með i hópnum.
Kveikjari fyrir hamar
Tómas Guðmundsson fær sér
duglega í nefið og víkur síðan
pontunm að prófessor Sigurði
. Nordal, sessnnaut sínum. Jakob
Thorarensen togar í sitt síða
skegg og Þorsteinn M. Jónsson
hefur tryggt sér sæti á fremsta
bekk. Helgi Tryggvason setur
sig aldrei úr færi um að auka
við sitt mikla bókasafn og er
þama mættur til leiks ákamt
Stefáni Rafn og fleiri góðum
bókamönnum.
W Bókunum er raðað á langt
borð fyrir enda salarins og
tveir skrifarar bíða reiðubúnir
með vopnin á lofti. Og áður en
varir er Sigurður farinn að
bjóða upp, hann reiðir ekki
hamar til höggs, en þess í stað
slær hann rammbyggilegum
sígarettukveikjara í borðplöt-
una.
Sama eintakið
Það leynir sér ekki að Sig-
urði finnst ókarlmannlega boð-
ið, undirtektir dræmar og dauft
yfir mannskapnum. Vorljóð
Gunnars Gunnarssonar, gefin
út á Akureyri árið 1906 fara á
150 krónur og Þorsteinn M.
Jónsson hreppir Vikusálma
Guðmundar Gíslasonar frá 1862
á aðeins 50 krónur. Stjórnar-
óður Gísla Konráðssonar (1858)
lúxuseintak í fallegu skinn-
bandi fer á 150 krónur. Og
Stefán Rafn kaupir Kvæði H. S.
Blöndals, prentuð í Winnipeg
1901, það kemur í ljós að hann
hafði keypt þetta sama eintak
á uppboði í fyrra fyrir mun
meira verð.
Nú kemur að bók sem búast
má við að bitizt verði um, Að-
vörunar- og sannleiksraust Þórð
ar Diðrikssonar, prentuð í
Khöfn 1879. Sú bók er orðin fá-
gæt mjög og í háu verði. Enda
fyrsta,
annað
og
- þriðja
hefur Sigurður bókina hátt á
loft og setur sig á hátíðlegar
stellingar.
— Jæja, hva'r skal byrja?
Þúsund krónui?
— Tvö hundruð og fimmtíu,
segir einhver í hópnum.
— Nei. Það hefur mörgum
orðið dýrt þetta kver, svarar
Sigurður, við skulum gera sam-
komulag, fimm hundruð.
Menn sættast á þáð og bókin
hækkai' um hundrað kail í senn
þangað til komið er í 900. Þá
verður þögn.
— Þið farið þó í þúsund með
þetta, segir Sigurður hálf-
hneykslaður, á ég að trúa þessu
eftir svona gott síldarár?
En Sigurður fær ekkert svar
og hann reiðir „hamarinn“ til
höggs, fyrsta, annað og þriðja
boð. Páll Jónsson hreppir Sann-
leiksraust Mormónaprestsins á
900 krónur sem er „alltof lítið“.
Grímur Thomsen á
fimmtíu kall
Nú hampar Sigurður ljómæl-
um Steingríms Thorsteinssonar,
útgefnum í Reykjavík 1881.
— Fimmtíu krónur, segir ein-
hver. N
— Nei, nú lízt mér ekkert á
þetta, segir Sigurður/ hún\ er
vön að fara á 500 krónur.
— Tvö hundruð, er kallað
framan úr sal og Tómas Guð-
mundsson bætir við fimmtíu
kall og er þar með slegin bókin.
Þá eru næst ljóðmæli Gríms
Thomsen, fáséð bók, prentuð
1880 í Rvík. Það líður drykk-
löng stund án þess að berist
nokkuð boð í bókina, þar til
Þorsteinn M. býður 50 krónur.
Enginn hefur neitt við það að
athuga og ljóð Gríms hafna hjá
Þorsteini.
— Annars átti ég hana fyrir,
hvíslar Þorsteinn að sessunaut
sínum.
Svo er það Kvæðakver Kilj-
ans.
— Þið byrjið nú ekki á fimm-
tíukalli í þetta sinn, segir Sig-
urður og er svo ákveðinn á svip-
inn að fyrsta boð hljóðar upp
á 300 krónur, nú færist dálítið
líf í hópinn og margir bjóða
hver í kapp við annan, unz Ól-
afur Haulrur Ólafsson læknir
P 'amna11' a. i,-. -i’"
Dularfuílir fyrirburðir
hversdagslegir atburðir
á bókauppboði
hjá Sigurði Ben.
Svipmyndir af bókauppboðinu hjá Sigurðt.
Sigurður Benediktsson: Fyrsta, annað og —
/