Tíminn - 12.11.1961, Side 9

Tíminn - 12.11.1961, Side 9
sunnudaginn 12. 9 . ;ber 1961. Bðrn að starfi — Það er mikils virði, að þeim verði samvinnan eðli- leg. Það er líka þjóðfélags- legt atriði að kenna börnum að vinna saman. Á sumum borðunum liggja svartar arkir, og börnin hafa skipt hvítum blöðum í reglu lega hluta með því að brjóta þau og klippa þau siðan eft ir brotunum og raða þeim á svörtu arkirnar og mynda alls konar form. — Þið reikningsfólk. Allir miðarnir eiga að raðast á svarta blaðið og verða voða lega mikið veraldarmunztur, því að í veröldinni eru marg ir menn og konur, sem vinna allan daginn við að gera alls konar munztur í fatnað og teppi og ýmislegt annað. sem við notum. — Þið heyrðuð, að ég kall aði þessi reikningsfólk. Þetta er í raun og veru reikn ingur, sem er fólginn í því að klippa og skipta í jafna hluta. Maður getur hæglega undirbúið reikningsskilning barnanna með myndrænum aðferðum, og það má í raun inni tengja teikningu öllu námi í fyrstu bekkjunum. Þrjár litlar telpur sitja við borðið sitt, handfjatla ótal furðulegar fígúrur, sem eru útklinntar en ómálaðar enn bá, og raða þeim l hring á blaðgrunn og láta fæturna snúa inn að blaðmiðjunni. Það er varla hægt að verj- ast brosi, þegar maður horf ir á þessar skringilegu bréf- verur, sem eru svo gagnólík ar hver annarri, hver með sínum sérstaka persónuleika og lífi. Ein hefur voða langt nef, önnur augu eins og tú- kalla, sú þriðja er i meira lagi hjólbeinótt og þannig fram eftir götunum í óend- anlegum fiölbreytileik. Við annað borð skammt frá Á efstu myndlnnl í siðuhorn- inu er Valgerður að lelðbeina telpunum með nlðurröðun á munstrl. Kennaranemarnir fylgi- ast með. Á mlðmyndinni: Strák- irnlr vlð vegginn, — fyrir ofan bá hanga myndir eftir börn. Á neðstu myndinni eru litiu stúlk- t jrnar að raða bréfverunum sín- um. sitja aðrar telpur, sem eru að skapa þjóðfélag með öllu tilheyrandi, skipa því niður og líma á blaðgrunn. — Sumt af þessu var unn ið í síðasta tíma og nú halda þær áfram við það. Þetta er eins og framhaldssaga, seg- ir Valgerður. Þetta er þeirra eigið verk. Þeirra eigin hug myndir um hlutina. Það er jafn óeðlilegt barni að teikna mynd eftir mynd full orðins manns og að haga sér eins og fullorðinn maður. Það verður gervimennska. — Sjáið þið hérna. Þetta er einkennandi fyrir börn, að raða fólki svona í hring, svo að fæturnir vísi inn í hring- inn. — Eru þetta krakkar í hringleik, spyr Valgerður og beygir sig niður að telp- unum, og ein þeirra teygir upp höfi’ðið, verður svolítið feimin og hvíslar einhverju í eyra Vaigerðar, sem eng- inn heyrir nema hún. Strákarnir við vegginn hafa gleymt öllu nema því, sem þeir eru að skapa. Tveir beirra halla sér upp að hvor öðrum meðan hendur beirra færast fram og aftur um blaðið Einn krýpur á gólf- inu og hefur tunguna í öðru munnvikinu. — Það er gaman að sjá betta, segir Valgerður. Það er eins og guð faðir sé að skana heiminn. Og þessir átta skaparar veraldarinnar setja sólir á himininn, sem eru eins og skordýr í laginu. svört ský, sem elta hvert annað og skyndilega skýzt blá flugvél upp í himininn og tuttug- asta öldin er fædd. Niðri á iörðinni verða til hiíis og tré og skringilegir kallar, sem vappa um í góða veðrinu og bjóða góðan daginn, og hafið kemur með fiskinn og ótal skip. Yfir höfðum skaparanna hanga nokkrar myndir eftir börn, sem eru furðulega lif- andi og sterkar. — Siáið þið þessar mynd- ir. Það er hægt að sálgreina börnin eftir myndunum, sem þau gera. Horfið þið á þessa hérna lengst til vinstri. Svona myndir gera hugsuðirnir (Framh. á 13. síðu.) Við iæðumsi inn í stofuna á milli iítiila borða og stóla og reynum að láta lítið á okk- ur bera. Börnin verða svo- lítið forvitin og spurul í aug- unum, þegar þau sjá okkur, en segja ekki neitt. Von bráð ar eru þau búin að gleyma okkur og horfin inn í sína eigin veröld, sem þau eru önnum kafin við að skapa. Það er teiknitími hjá Val- gerði Briem í einni af æfing- ardeildum Kennaraskólans, og fjórir kennaranemar ganga um í stofunni og fylgj- ast með vinnu barnanna jafn framt því sem þeir hlusta á leiðbeiningar Valgerðar. Átta strakar standa við einn vegginn í kennslustof- unni og snúa andlitunum að þrem, stórum, hvítum blöð- um, sem eru límd á vegginn fyrir framan þá. — Þið vitið, að í veröld- inni þurfa mennimir að vinna saman, og eins eigið þiö að gera á blöðunum ykk ar. Þið eigið að vera þrír við hvert blað, nema tveir við eitt. Og svo verðið þið að tala saman um það, sem þið ætlið að gera, annars verður það ekki gott hjá ykkur, seg ir Valgerður Briem og lýtur niður að þeim, þar sem þeir standa hver við annars hlið, alvarlegir á svip. — Hvað ætlið þið að teikna? Ætlið þið að teikna skipaflota eða skóg eða kannske bara stráka, sem eru í slag? Þeir hlæja, verða undir- leitir og fitla við litina í höndum sínum. — Þegar um svona sam- vinnu er að ræða, verður maður helzt að þekkja teiknarana svolítið og velja þá saman, sem vinna í svip uðum stíl. Og þegar börnin eru að vinna út frá því, sem búið er að kenna þeim, verða þau að fá að gera það sjálf- stætt, annars fá þau ekki eðlilega útrás. Myndir barna hafa ekkert gildi nema þau skapi þær út frá sínum eig- in innra manni. Við boi’ðin í stofunni sitja telpur og drengir, sem öll eru önnum kafin í sínum eig in heimi, þrjú og fjögur við hvert borð með liti eða skæri eftir því, sem við á.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.