Tíminn - 15.11.1961, Page 7

Tíminn - 15.11.1961, Page 7
T í MIN N, miðvikudagitui 15. nóvember 1961 7 GuSmundur í. Guðmundsson, uianríkðsráðhsrra gagnrýndur á þingfundi; Hermðnnum að bjóða stúlkum á dans- leiki, sem snúast í drykkjusvall og átðk Á fundi efri deildar alþingis í gær kvaddi Sigurvin Einars- son sér hljóðs utan dagskrár. Óskaði hann þess að forseti deildarinnar hlutaðist til um, að utanríkisráðherra mætti á þessum fundi stutta stund, þar sem Sigurvin kvaðst þurfa að leita nokkurra upplýsinga hjá honum. Var þingmaður þá sendur til ráðherrans, en hann neitaði að mæta á fundi efri deildar, því að hann væri við umræður í neðri deild. Ekki tók ráðherrann þó neinn þátt í umræðunum í neðri deild og sat þar aðgerðalaus, þótt hann neitaði að mæta í efri deild. Mun það vera eins- dæmi að ráðherra neiti að mæta á deildarfundi þegar þingmaður óskar þess, hafi hann ekki gildar ástæður fyrir þeirri neitun. Þegar svo var komið fLutti Sigurvin mál sitt og fer ræða hans hér á eftir: Eins og rnönnum er kunnugt, skýrðu fl'est dagblöðin í Reykja- vík frá því s.I. sunnudag, að gerzt hefð’i allóhugnanlegur atburður suður á Kef 1 avíkurflugvelli s.l. föstudagskvöld. Og mér þótti á- stæða til þess að spyrja hæstv. utanríkisráðherra spurninga og fá hjá honum svar um nokkur at- riði þessu. viðvíkjandi, en þar sem þess er ekki kostur, hef ég ekki önnur ráð en flytja þetta mál í trausti þess, að hæstv. ráðherra geri, þótt síðar verði, einhverja grein fyrir málinu. í Alþýðublaðinu s.l. sunnudag 12. nóv., er forsiðugrein með risa fyrirsögn um atburð, sem gerðist á Keflavíkurflugvelli. Þessi for- síðugrein Alþýðublaðsins hljóðar þannig með leyfi forseta: „Dansleikur á Vellinum. Ein fór í Steininn". Þetta er fyrirsögnin. Landgöngu liðar úr sjóher Bandaríkjamanna á Keflavíkurvelli héldu eins kon ar afmælishátíð í fyrrakvöld, hafi liermönnunum í deildinni verið veitt undaniþága og leyft að bjóða íslenzkum stúlkum á dansleikinn, sem haldinn var í tilefni hátíðar- innar. Nokkrir tugir stúlkna úr Keykjavík mættu á dansleiknum. sem endaði þannig, að a.m.k. ein stúlka var sett i fangageymslu lögreglunnar á Vellinum. fslend- ingur sem starfar á Keflavíkur- flugvelli, hringdi til blaðsins í gær og sagði hann, að íslenzkir starfs- menn á Vellinum, er fylgdust meff skemmtuninni og endalokum henn ar, hefðu fýllzt viðbjóði á aðför- unum. Lét hann blaðinu í té eftir- farandi upplýsingar: „í fyrrakvöld komu um 50 stúlk ur úr Reykjavík á hátíðina, sem einnig var sótt af stúlkum, sem starfa á flugvellinum. Aldur þeirra var allt niður í 13 ár. Dans- leikurinn var haldinn í Vikings scrvice club og átti vegabréf stúlknanna að gilda til kl. 1 um nóttina. Þá var stór áætlunarbif- reig höfð til taks fyrir framan klúbbinn og átti hann að flytja RátJherrann neitaði a'S koma á fund í efri deild, jiótt hann sæti aftgerftarlaus á fundi í neftri deild. stúlburnar í bæinn. Tveir lögreglu þjónar voru á.staðnum til að fylgj ast með því, að allt færi fram eins og skyldi. Þegar skemmtuninni lauk var erfitt að fylgjast með stúlkunum og hurfu nokkrar þeirra út í myrkrið ásamt her- mönnunuim. Fáeinar stúlkur, secn voru of drulkknar til ag1 hlaupa í burtu, fóru upp í bflinn, en æs- ingurinn í þeim var svo mikill, að þær brutu 3—4 rúður í bifreiðinni. í fyrrinótt var svo verið að færa eina og eina stúlku út af vellinum og voru nokkrar þeirra illa til hafg ar, eins og þær hefðu leut í ein- hverjum átökum. Deildin, sem há- tíðina hélt, er landgönguiliðadeild. Alþýðublaðið ræddi í gær við full | trúa lögreglustjórans á Keflavíkur flugvelli og spurðist fyrir um þetta cnál. Sagði hann, að um 20 —30 stúlkur hefðu fengið sér- staka undanþágu til að sækja hóf þetta. Þó hefði verið vandlega fylgzt með því, að þær væru orðn ar 18 ára, en ef yngri stúlkur hefðú verið þarna, væri það ékki sök lögreglunnar. Ekki taldi hann, að nein ólæti hefðu átt sér stað þar að skemmtuninni lok- inni og hefði lögreglunni að- eins borizt ein skýrsla um stúlku, sem setja varð inn vegna ölvunar. Var hún eitthvað blá og marin í framan og gleraugu hennar brot- in. Af hvaða sökum það var vissi hann ekki, en taldi, að það hefði orðið vegna ölæðis hennar. Ekki vissi hann um, að neinar stúlkur hefðu verig fluttar út af vellin- um seinna um nóttina og ekki heldur, hve margar fóru með áætl unarbílnum í bæinn.“ Þetta eru orð Alþýðublaðsins, sem það hefur eftir fréttamanni sínum á Keflavíkurflugvelli. Þarna segir fréttamaðurinn, að íslenzkir starfsmenn á flugvellinum hafi fylgzt meg skemmtuninni og enda lokum hennar, og segir, að þeir hafi fyllzt viðbjóði. Hann segir, að 50 stúlkur úr Reykjavik hafi sótt þessa samkomu, en auk þess þær stúlkur, sem starfa á Kefla- víkurflugvelli, svo að það lítur út fyrir, að landgönguliðunum hafi tekizt sæmilega vel ag verða sér úti um dömur. Þá segir þessi frétta maður í Alþýðublaðinu, að stúlk- urnar hafi haft vegabréf til að dvelja til kl. eitt á þessari hátíð, en þegar þær áttu að fara í bæ- inn með bifreið, sem þar var til staðar, þá varð minna úr ferð þeirra í bæinn. Hurfu nokkrar þeirra út í myrkrið með hermönn unum, fáeinar stúlkur, sem voru of drukknar til að hlaupa í burtu, fóru upp í bílinn og brutu þar rúðu.r. Loks segir þessi fréttamað ur í Alþýðublaðinu, að ein og ei.n af þeirn stúlkum, sem hlupu út í myrkrið með hermönnunum hafi verið færð út af vellinum síðar um j nóttina ,og hafi verið illa til hafð i ar .eins og þær hafi lent i átök um. f i SIGURVIN EINARSSON ekki' fram, að hann hafi verið þarna viðstaddur, þótt að hann skýri ag sjálfsögðu frá því, sem hann veit. Hann telur, að stúlk- urnar hafi ekki verið svona marg ar, en 20—30. Hann veit það aug sjáanlega ekki nákvæmar en það. Hann segir, að vandlega hafi ver- ið fylgzt með því, að ekki væru yngri stúlkur þarna en 18 ára, en bætir við: „En hafi þær verið yngri, þá er það ekki sök lögregl- unnar.“ Hann segir, að það hafi ekki verið ólæti þarna að skemmt uninni lokinni, en þó hafi lögregl- an orðið að setja eina stúlkuna í tukthús, og var hún marin og blá í frainan og meg brotin gler- augu. Ekki vissi þessi fulltrúi lög reglustjóra um það, að stúlkur hefðu verið færðar út af veilinum ein og ein síðar um nóttina, en hann vissi heldur ekki, hve marg- ar fóru með bifreiðinni f bæinm. Og allar áttu þær ag sjálfsögðu að fara út af vellinum með þess- ari bifreið, eins og vegabréf þeirra sögðu til uim. Það sem er sameiginlegt í frá- Sögn þessara tveggja manna, fréttamanns Alþýðublaðsins og fulltrúa lögreglustjórans, er eftir- farandi atriði ag því er mér virð- ist. f fyrsta lagi nokkrir tugir af fslenzkum stúlkum úr Reykjavík fá leyfi stjómarvaldanna, sem mun vera utanríkisráðun., til að sækja einhvers konar afmælis- hátíð landgönguliðs Bandaríkja- sjóhers á KeflavíkurflugveUi. f öðru lagi, að ötvun hefur orðið í svo ríkum maeli, að íslenzk stúlka er sett í fangelsi, og í þriðja lagi, að komið hefur a.m.k. til þeirra átaka, að ein stúlka er blá og marin eftir. Eg vil auk þess benda á, að fréttamaðurinn segir, að sumar stúlkurnar hafi verið allt niður í 13 ára að aldri. Það eru telpur á bamaskólaaldri, en fulltrúi lög- reglustjórans segir hins vegar, að hafi þær verið yngri en 18 ára, þá sé þag ekki sök lögreglunnar. Hann segir því ekkert um það, að einhverjar stúlknanna hafi eklci getað verið 13 ára gamlar. Eg býst við, að flestum hrjósi hugur við að lesa þessa lýsingu Alþýðublaðs ins á því skemmtanalífi íslenzkra æskukvenna, sem utanríkisráðun. veitir leyfi til að sækja skemmtan ir á Keflavíkurflugvelli. Það má minna á það í þessu sambandi, að fjöldi æskukvenna hér í Reykja- vík er víðs fjarri heimilum sín- um og foreldrum og því aðhaldi og þeirri handleiðslu, sem foreldr ar geta veitt þeim, þar sem þær dvelja hér um stundarsakir við nám eða við atvinnu. Og það má nærri geta, hvort slíkar unglings- stúlkur, ef þær eru nú allt niður í 13 ára gamlar, eru ekki í hættu fyrir ginniboðum landgönguliðs Bandarikjasjóhers á Keflavíkur- flugvelli, eins og hér hefur verið skýrt frá. Hér virðlst enginn vera til and- svara um þetta mál, og hér þýðir ekki að spyrja um neitt. En ég vil þó Ijúka máli mínu með því, að það er vægast sagt krafa fjölda manna í þessu landi, að slíkt geti ekki endurtekið sig, eins og nú hefur átt sér stað þarna syðra, jafnvel þótt eitthvað beri á milli í frásögnum, þá er svo margt sam eiginlegt af þeim frásögnum, sem fram eru komnar, að hér er alvara á ferðum. Eg tel það skýlausa kröfu allra heiðviðra manna, að þetta mál verðl rannsakað og nið- urstöður þeirra rannsókna verði birtar opinberlega. En umfram allt, að stjómarvöldin hætti að veita leyfi íslenzkum æskustúlk- um tifl þess að sækja skemmtana- líf að þessu tagi. Og ekki virðast borfurnar batna, þegar það hef- ur nú borizt, ag utanríkisráðuneyt- ið hefur leyft x'immfalda stækkun á sjónvarpsstöð þessa herliðs, sem er ekki í þágu hermannanna, það sjá allir, heldur til þess að geta náð til fslendinga og ef slík sjón- varpsstöð verður kannske notuð í svipaða þágu og það boð, sem hinum ungu, ísflenzku stúlkum var sent með tilstyrk utanríkisráðun., þá er uggvænlegt framundan í þessum atriðúm uppeldismálanna í Tandinu. Frv. um komrækt endurflutt Öll er þessi lýsing svo greini- leg, að ætla mætti, að áhorfendur segðu hér frá. En Alþýðúblaðið talaði við fulltrúa lögreglustjór- ans um þetta mál, og það lcemur Þeir Ásgeir Bjarnason og Páll Þorsteinsson endurflytja frumvarp sitt um kornrækt. Frumvarp þetta var samþykkt í efri deíld en varð ekki út- rætt í neðri deild í fyrra. Frumvarpið er svohljóðandi: 1. gr. Búnaðarfélag Islands fer með stjórn þeirra mála, er lög þessi varða, undir yfirstjórn landbún- aðarráðherra. 2. gr. Aðilum, sem mynda með sér fé- lagssamtök um að gera kornrækt að framleiðslugrein, þar sem bygg, hafrar eða aðrar korntegundir eru ræktaðar svo, að þær nái þroska, skal gefinn kostur á sérstökum stuðningi samkvæmt lögum þess- um. 3. gr. Skilyrði fyrir því, að framlag sé veitt til kornræktar. eru: 1. Að akurlendið sé þar í sveit sett, að vænta megi í öllu venju- legu árferði, að korn nái fullum þroska. 2. Að aðilar myr.di með sér fé- lagssamtök, kornræktarfélag, er skuldbindi sig til að rækta um 10 ára tímabil á minnst 10 ha lands. Búnaðarsamböind, ræktun- arsambönd eða búnaðarfélög geta gerzt aðilar að vélakaupum og leigt vélarnar kornræktarfélögum. Nú tekst einstaklingur á hend- ur skuldbindingar samkvæmt 1. málsgr., og skal þá veita honum sama stuðning og félagi, enda jhlíti hann sömu skilyrðum og I kornræktarfélag. | 3. Að hlutaðeigandi félag eða 1 einstaklingur ráði yfir landi, sem sé að minnsta kosti helmingi stærra en það land, sem samið er um að rækta korn á, og að allt landið sé nægilega þurrt og hæft Itil kornræktar. 4. Að aðilar skuldbindi sig til !að hlíta reglum þeim, sem settar |verða um vinnslu landsins, áburð- ’ arnotkun, tegundaval sáðkorns, I uppskeru, meðferð alla og annað itil tryggingar því, að framleiðslan jverði sem bezt vara. 1 5. Að aðili geri skýrslur, sem íyrirskipaðar verða, um allt, er varðar reksturinn. Einnig geri hann úppskeruskýislur og ná- kvæmt yfirlit um kornræktina og einstaka þætti hennar, svo að séð verði, á hvaða tíma hvert verk er unnið. 6. Að samningsaðili skili aftur ti) þess, er annast framkvæmd laga þessara, þeim vélum og tækj- um, sem stofnstyrkur hefur verið greiddur á, ef kornrækt fellur niður, og skulu þá dómkvaddir menn meta endurgreiðslu. 4. gr. Þeim, sem tekið hafa að sér samningsbundna kornyrkju, skulu árlega og í tæka tíð tryggð kaup á sáðkorni af þeim stofnum, er bezt hafa reynzt í hérlendum til- raunum, enda fylgi skiMd frá seljanda um uppruna sáðkornsins, og ber hann ábyrgð á gaeðum þess, hreinleika og spírunarhæfm. Samningsbundnir kornræktarað- ilar skulu hafa forgangsrétt til að rækta útsæði af völdum stofnum, enda hlíti þeir reglum, er um þá ræktun gilda á hverjum tíma. 5. gr. Framlög til eflingar kornræktar skulu vera sem hér segir: 1. Styrkur til kaupa á kornyrkju vélum, allt að 50% af kaupverði þeirra, þar með talinn kostnaður við samsetningu félanna og flutn- ingskostnaður til kaupanda, enda standi eitt félag eða fleiri að kaup- unum. Sama gildir um einstak linga, eftrr því sem við á. Rækt- únarsambönd, búnaðarfélög eða einstaldingar geta notið sömu (Framhald á z. sié” *

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.