Tíminn - 17.12.1961, Blaðsíða 3
T í MI N N, sunnudaginn 17. desember 19G1.
3
ennmgar-
stofnun
NTB-París, 16. desember.
Ráðherranefnd Evrópuráðsins
samþykkti í dag, að koma á fót
sérstakri menningarstofnun Evr-
ópuráðsins. Skyldi stofnunin
starfa í þremur nefndum, einni
um æðri menntun og rannsóknir,
önnur um tæknimenntun og hin
þriðja um kennslu utan skóla.
Stofnunin á að hefja starfsemi
sína í janúar næstkomandi.
Norstad en
ekki Strauss
vildi kjarnorkuveldi
NATO
NTB-Bonn, 16. desember..
Það er ekki Franz Josef Strauss
varnarmálaráðh. Vestur-Þýzka-
lands, sem á uppástungtma um
að gera NATO að kjamorkuveldi,
heldur er það Lauris Norstad,
hershöfðingi, yfirmaður NATO-
herjanna, sagði Felix von Eehart,
blaðafuiltrúi vestur-þýzku stjórn-
arinnar I gær.
Norstad lagði þessa uppástungu
sína fyrir Bandaríkjaforseta fyrir
ihálfu öðru ári síðan, og Strauss
hefur aðeins vakið málið af
svefni, sagði von Eckhart.
Lutuli heima
NTB—Jóhannesarborg, 15. desJ
Luthuli friðarverðlaunahafi
kom í dag til Jóhannesarborgar
frá Osió. Stjórnarvöldin héldu hon
um kyri'um í tollinum til þess að
koma í veg fyrir, að blaðamenn og
Ijósmyndarar kæmust til hans.
100 Afríkumenn tóku á móti
Luthuli.
@ um un mimi
Frakkar ræða
vantraust
NTB-París, 16. desember.
f gær hófst í franska þinginu
umræða um vantrauststi'liögu jafn
aðarmanna og sósíalradikala á
hendur stjórninni fyrir stefnu
hennar í heild. Tillagan er svo
óljóst orðuð, að talið er, að hún
fái mikinn stuðning bæði hægri
og vinstri afla,
Ef vantrauststillagan fær meiri
hluta atkvæða á þinginu, verður
stjórnin að segja af sér.
De Gaulle
NTB-New York, 16 desember
í stjórnmálanefnd S.Þ. var í
gær Alsírmálið á dagskrá og réðst
fulltrúi Saudi-Arabiu, Ahmed Shu
kairy, harðlega á stefnu DeGaulle
í Al'sír.
Hann sagði, að takmark Frakk-
lands væri að sundra Alsír, æsa
deiluaðila hvorn gegn öðrum. Síð
an væri ætlunin að skipta land-
inu í tvennt. Fengju frönsku land
nemarnir þá auðugustu svæðin,
750—1000 kílómetra af strand-
lengjunni, stærstu borgirnar og
frjósömustu héruðin.
Hreinar Rússa- ! Austurríki og Sviss
sprengjur
í kvöld kemur nýtt skip tll fslands, Drangajökull, elgn Jökla h.f. Skip
þetta er smíðaS I staö Drangajökuls gamla, sem fórst á Pentlandsfirðl
fyrra. Nýi Drangajökull er smfðaður í Deest I Hollandl, en var afhentur
Jöklum h.f. I Rotterdam 8. des. s.l., og veltti framkvstjórl Jökla, Ólafur
Þórðarson, honum viðtöku. Sklplð er um 2000 brúttótonn að stærð Sklp-
stjóri er Ingólfur Möller og 1. véltsjórl Höskuldur Þórðarson.
NTB-Stokkhólmur, 16. des.
Rannsóknarstofnun varnarmál-
anna í Svíþjóð hefur upplýst, að
kjamorkuspreugingar Sovétríkj-
anna í haust hafi verið tiltölulega
hreinar. Ber stofnuninni saman
við Miðstæðar bandarískar stofn-
anir, að óhreinindin hafi aðeins
verið 15—20% í stað 50—55%
áður.
Samanlagður styrkur sovézku
sprengjanna var 125 megalestir
og myndast hefur hálft tonn af
geislavirkum efnum, en mest af
því er nú horfið.
Ekki hefur reynzt unnt að
ganga úr skugga um, hvort ein-
hverjar sprengjanna hafi verið
nevtrónusprengjur eða venjulegar
kjarnasprengjur.
NTB-Bruxelles, 16. desember.
Austurriki og Sviss hafa, auk
Svíþjóðar, sótt um, að viðræður
hefjist við Sammarkaðslöndin um
mögulega þátttöku þessara ríkja
í Sammarkaðnum.
Hafnar viðræður
við Sovét
Árangurinn af sóknarlotu
Sameinuðu þjóðanna i Elisa-
bethville í gær virðist hafa
orðið mjög góður. Herlið sam-
takanna hefur náð ýmsum
ioröurlðndin
sammarkaöurinn
mikilvægur stöðum í borginni
á sitt vald, án þess að verða
fyrir manntjóni og án þess að
valda skemmdum á eignum.
Tsjombe á leið ti! Rhodesíu
Tsjombe Katangaforseti er
sagður flúinn úr Elisabethville á-
samt aðstoðarmönnum sínum. Eru
þeir taldir vera á leið til n'ántu-
bæjarins Kiphusi við landamæri
Rhodesiu. Sir Roy Welensky for-
sætisráðherra Rhodesiu hefur boð
ið Tsjombe skjól í landi sínu.
— og hinir réðh. horfnir
Allir meðlimir Katangastjórnar-
innar eru nú í felum. Hefur ekki
reynzt uhnt að ná sambandi við
neinn þeirra.
NTB—Stokkhólmur, 16. des.
SérfræSingar ríkisstjórna
Norðurlandanna fimm komu í
gær saman til fundar j Stokk-
hólmi. Umræðuefnið er mögu-
leg norræn samvinna í við-
ræðunum við Sammarkaðs-
löndin.
f gær voru sjónarmið hintia
einstöku landa lögð fram. Sér-
fræðingafundurinn mun síðan
næstu daga reyna að vinna sam-
eiginlega stefnu úr sjónarmiðun-
um. Ef árangurinn af fundinum
.verða ákveðnar tillögur, verða þær
lagðar fyrir næsta fund Norður-
landaráðs, sem haldinn verður í
Helsingfors í marz.
Mikill áhugi ríkir fyrir því, að
efnahagsleg norræn samvinna
haldi áfram, þrátt fyrir tilkomu
Sammarkaðsins.
U Thant, framkvstj. S.Þ., sagði
í dag, að aðgerðir samtakanna í
Katanga mundu halda áfram unz
markmiðinu væri náð, en það
væri að tryggja athafnafrelsi sam
takanna í Kongó til þess að koma
á friði þar.
Union Miniére útvegaði vopn
U Thant skrifaði Spaak utan-
ríkisráðherra Belgíu, bréf í dag.
Segist Ú Thant hafa öruggar heim
ildir fyrir því, að Union Miniére,
námufé.'agið belgíska, hafi staðið
að baki framferði Tsjombes, námu
félagið hafi séð Katangaher fyrir
sprengjum og skotfærum.
NTB-París, 16. desember.
í yfirlýsingunni, sem ráðherra-
fundur NATO gaf út í gærkvöldi
eftir þriggja daga fund sinn, seg-
ir, að Vesturveldin hafi þegar haf
ið viðræður við Sovétríkin um
lausn Berlínardeilunnar.
Almenn eining ríkti á fundin-
um um afstöðuna til Berlínar.
Aðeins Frakkland skarst úr leik.
Hins vegar voru ráðherrarnir
mjög ósammála um Kongódeil-
una, enda var ekki nein samþykkt
gerð þar að lútandi á fundinum.
Kennedy í Caradas
NTB-Caracas, 16. desember.
Kennedy Bandaríkjaforseti er
nú í Caracas, en hann er á ferð
um mörg Suður-Ameríkuríki til
þess að vekja at.hygli á framsókn-
arbandalagi Ameriku. Bandaríkja-
menn hafa komið þessu bandalagi
' á fót til þess að efla Ameríkuríkin
: efnahagslega og félagslega. Kenne
dy hefur fengið betri móttökur
i í Caracas, en Nixon um árið, en
! bann var grýttur þar.
YerSIagsráSiS
Fundir voru í sameinuðu þing:
og efri deild Alþingis í gær. i
efri cTfcild var frumvarpið um heiir
ild til handa ríkisstjórninni un
að taka allt að 2 milljón króna
lán hjá Alþjóðabankanum afgreitl
sem lög. Frumvarpið u.m Verð
lagsráð Gjávarútvegsins var til 2
umr. e.d. Sjávarútvegsnefnc
hafði k'lofnað um málið. Meirihlul
inn lagði til að frumvarpið yrði
samþykkt óbreytt frá því sem þaí
kom frá n.d. Minnihlutarnir, Sig-
nrvin Ei.narsson og Björn Jóns
(Framhald á 15 síðu)
Það verður til nýbreytni í Bú-
staðasókn í dag, að efnt verður
til almenns jólasöngs í Bústaða
sókn. Verður samkema þessi í
Réttarholtsskólanum og hefst
kl. fjögur. Til þes ser ætlazt, að
sóknarfólk komi þangað með
sólmabækur sínar og syngi þar
saman jólasöngva. Séra Bjarni
Jónsson mun flytja stutta hug-
leiðingu, og Lúðrasveitin Svanur
leikur syrpu af jólalögum frá
ýmsum löndum undir stjórn
Jóns G. Þórarinssonar, Myndin
var af lúðrasveitinni við æfingu.
(Ljósmynd: TÍMINN — GE).