Tíminn - 17.12.1961, Page 9
T í MIN N, sunnudaginn 17. desember 1961.
9
Urr?
ipm
☆
Þegar Unglingurinn haf'ði mat-
azt, reis hann á fætur til að blása
rjóður í þykka héluna á gluggan-
um. Faðir hans var nýgenginn út
að gefa fénu dagsgjöfina áður en
presturinn og kirkjufólkið kæmi.
Móðir hans kom framan úr eld-
húsinu með kolafötu að bæta í
ofninn í stofunni. Hann var ekki
farinn að sjá út, þegar hún fór
að bera matarílátin fram af borð-
inu. Hann hélt áfram að þíða klak
ann á rúðunni með gegnköldum
vörunum, unz móðir hans sagði:
— Presturinn kemur áreiðan-
lega ekki str’ax.
— Hann kemur alltaf fyrir tím
ann.
— Eg hélt þú visir, hvernig fær
ið er orðið.
— Það hamlar ekki för hans.
Hann fer bara þeim mun fyrr af
stað og svo verður hann á Rauð.
— Eins og hann sé ekki alltaf
á Rauð.
— Eg ætla nú samt að fara út
og gá, hvort eg sé hann koma.
— Mokaðu þá mesta snjónum
frá bæjar'dyrunum um leið og
mundu að láta hann ekki standa
opinn á meðan.
Unglingurinn lét á sig húfu og
vettlinga og gekk út á hlaðið. Það
mótaði óglöggt fyrir bæjunum í
kring, en sást vel, hvar mykjunni
hafði verið kastað út á haugana
um morguninn. Það sást einnig í
dökka vökina fyrir neðan bæinn,
hið eina, er gaf til kynna
þungt og hljóðlaust rennsli ár-
innar undir ísnum. Það voru tveir
/írafnar á flögri í kringum hross-
in yfir á Tungunni. Þau litu naum
ast upp frá jörðunni, og Ungling-
urinn vissi, að þau höfðu loðið
undir snjónum og að enn var létt
að krafsa niður, nema þar sem
gamli snjórinn var harður undir.
Hann sá ekkert til prestsins. Ungl
ingurinn gekk eftir skóflu suður að
fjósdyrunum. Snjórinn var hvítur
og ósnortinn máðum megin við
slóðina, er myndazt hafði suður að
fjósinu. Þegar hann kom frá því,
að fara með skófluna sá hann föð-
ur sinn ganga niður að kirkjunni
með olíudunkinn í annarri hend-
inni. Unglingurinn var búinn að
sópa af sér framan við dyrnar, þeg
ar mórauður uppkveikjureykurinn
tók að lyppa sig ólundarlega upp
um reykháfinn á kirkjunni. Stuttu
síðar sá hann föður sinn koma
neðan að og hafði skilið dunkinn
eftir. Hann sagði:
— Þú verður viðlátinn að taka
hestinn, þegar presturinn kemur.
— Já, sagði Unglingurinn.
— Og manst að gefa honum.
— Eg er búinn að því, sagði
Unglingurinn.
— Hafðu gætur á, hvort rýkur
neðra, og láttu mig strax vita, ef
það hættir, sagði faðir hans um
leið og hann gekk inn í forstof-
una. Unglingurinn kunni hinum
sífelldu áminningum föður síns
illa. Hann fann andúð sína vaxa
upp í löngun til að þverskallast
gegn þeim og vir'ða þær að vett-
ugi. Hann hafði margofl fundið
að þær gerðu hann æstan og ork-
uðu truflandi á það, sem hann var
að hugsa til að geta skrifað, er
hann var setztur um kyrrt á
kvöldin. Hann kunni því heldur
ekki vel að þurfa að fara með
Rauð prestsins út í húsið, og þeg-
ar hann kom sér ekki hjá því með
einhverjum br'ögðum, hraðaði
hann sér til að missa ekki af, ef
presturinn segði eitthvað um
bækur. Hann vissi, að presturinn
var skáld og til hans komu oft
rithöfundar og dvöldu hjá honum
í sumarleyfum sínum. Hann hafði
sagt margar sögur af undarlegri
háttsemi sumra þessara manna í
áheyrn Unglingsins, er hann gat
ekki gleymt.
Það komu oft menn af næstu
bæjum, en þeir töluðu aðeins um.ar. Hann tók fast og fljótt í hönd-
tíðarfar og skepnuhöld hjá sér og ina á Unglingnum, færði sig
ná.grönnum sínum, en næstum! snöggt aftur með hestinum að
aldrei um bækur eða fjarlæga at-1 hnakktöskunni og losaði ólina
burði. Þótt Unglingurinn .teldilmeð einu handtaki.
sig ekki eiga samleið með j — Eru ekki allir frískir? sagði
hugðarmálum þessara manna,: presturinn, á meðan hann beið
þótti honum vænt um komur þess órólegur, að Unglingurinn
þeirra. Nokkrir af þessum mönn- i spennti hana frá sín megin.
um bjuggu frammi við heiðina og — Jú, sagði Unglingurinn.
áttu langa leið til kirkjunnar og — Nokkuð komið af fólki?
erfiða í snjófæri eins og nú. Ung- — N.ei, tírninn er heldur ekki
lingurinn hafði tekið eftir, að kominn.
Guðmundur Halldórsson.*
vísi Rauðs og lagði á hjarnskafl-
inn. Eg hef orðið að gera það
fyrr og ekki orðið hált á því.
— Maður er með lífið í lúkun-
um í hvert skipti, sem einhver
fer þarna yfir, þangað til maður
veit, að hann hefur komizt klakk-
laust, sagði faðir Unglingsins.
— Vonandi lagast þetta. Nú
eru komin tæki, sem gera kleift
að leggja hættulausa og góða vegi
eftir svona stöðum. Þið megið
bara aldrei lina á kröfum ykkar
að fá þetta gert.
— Ætli það verði ekki dregið
þangað til mannskaði hefur orðið,
vanir eru þeir því, sagði móðir
Unglingsins, hætti malverkinu og
fólkið frá þessum afskektu bæj-
um kom oft fyrst á staðinn,' og
jafnvel presturinn, sem einnig
átti um langvegu að sækja, hafði
stundum ekki ætlað sér nægan
tíma að ná þangað á undan því.
Síðar hafði honum skilizt, að
snemmtekinn dagur var það vopn,
er það sigraði með allar vega-
lengdir og torfæiur.
Það hélt áfram að rjúka neðra.
Ungltngurinn var í þann veginn
að ganga í bæinn, þegar hund-
arnir á bæjunum yfir á Tungunni
fóru að gelta. Hann vissi, að þeir
höfðu séð til ferða prgstsins eftir
Ófærunni og ákvað að bíða komu
hans úti. Það yoru menn með
poka á bakinu að hraða sér heim
frá fjárgeymslu á bæjunum hin-
um megin, af því að þeir voru
að verða of seinir til að búa sig
og ganga þennan spöl eftir ánni
og túnunum að kirkjunni, áðut
en tekið yrði til. Stuttu síðar sá
hann prestinn koma úr Hvarfinu
sunnar Ófærunnar, fór hann mjög
hratt og var innan lítillar stundar
kominn að heimreiðinni.Hesturinn
bar sig ekki ýkja hátt, en lá þungt
í taumnum, rennilegur og hraður
á þýðu brokkinu. Hann fékk slak-
an tauminn neðst í götunni og
hægði á sér síðasta spölinn heim
á hlaðið.
Presturinn losaði báða fæturna
samtímis úr ístöðunum og lyfti
þeim hægri hratt yfir makka hests
ins og lét sig falla ofan á snjó-
lausan blettinn framan við dyrn-
Pr’esturinn var kominn inn í
bæjardyrnar með töskuna í ann-
arri hendinni og byrjaður að
klæða sig úr skjóllegri yfirhöfn-
inni, áður en Unglingurinn hafði
lokið við setninguna.
Unglingurinn var snúinn heim
frá að láta inn hestinn, þegar
sást til kirkjufólksins koma fram-
an móinn. Það sást einnig til þess
handan við ána og til eins manns
koma yfir Tunguna. Hann fann
hlýjuna leggja á móti sér, er
hann opnaði eldhúsdyrnar og hélt
áfram inn í stofuna. Hélan hafði
runnið af glugganum, meðan hann
var úti og sást greinilega niður
á túnið og kirkjuna. Presturinn var
búinn að hafa fataskipti og setzt-
ur við endann á borðinu undir
glugganum. Faðir Unglingsins
sagði:
— Komstu Ófæruna?
— Já.
— Var hún sæmileg?
— Það sást hvergi fyrir vegin-
unr.
— Hún hefur auðvitað fyllzt r
suðaustanáttinni um daginn.
— Þetta var einn harðfennis-
skafl ofan frá brún og niður í á.
— Það er meiri guðsmildin, að
þar skuli aldrei hafa orðið slys,
sagði móðir Unglingsins frammi í
eldhúsinu og byrjaði að mala
kaffið.
— Var ekki betra að fara eftir
ánni?, sagði faðir Unglingsins.
— Mér sýndist áin vera ótrygg
við landið, svo að ég treysti á fót-
reis á fætur til aö láta á könnuna.
Unglingurinn stóð úti við glugg
ann og hlustaði á þau ræða um
Ófæruna. Hann var hálfvegis að
vona, að presturinn segði eitthvað
við hann persónulega, en í stað
þess tók hann handbókina af
borðinu og blaðaði í henni fram
og aftur. Unglingurinn sá smátt
skrifaða ræðuna fremst í bókinni.
Honum lék forvitni á að vita.
hvað hún hefði að geyma. Hann
fór að hugsa um, hvort prestur-
inn hefði vitnað mikið í skáldskap
i henni og hvort þröngsýnir menn
yrðu til þess nú, eins og komið
hafði fyrir áður, að saka hann
um að tala um pólitík af stólnum,
af því að hann eirði ekki rang-
læti, var aldrei myrkur í máli og
meiri ræðumaður en svo, að lík-
legt gæti talizt að fámennum út-
kjálka-söfnuði héldist á honum til
lengdar.
Unglingurinn fékk sér bók og
hallaði sér út af í rúmið.
Hann var ekki búinn að opna
bókina, þegar það, sem fyrst kom
af kirkjufólkinu, gekk fyrir glugg-
ann.
Stúlkurnar fóru í eldhúsið, þar
sem þær fengu að dóta sig til.
Það stóðu opnar hurðir eftir þær
út. Hann heyrði, að karlmenn-
irnir fóru úr utanyfirjökkunum
frammi á ganginum og hengdu
þá á uglurnar og færðu sig aftur
fram að þröskuldinum, þar sem
þeir voru lengi að bisa við að ná
af sér frosnum gúmmístígvélun-
um, er þeir bör'ðu síðan harka-
lega við dyrastafinn til að ná úr
þeim snjónum, er komið hafði oní
þau á göngunni. Hann vissi að þeir
höfðu ekki haft með sér buxur
eins og á sumrin, þegar þeir komu
ríðandi og höfðu skipti í sólskini
sunnan undir húsvegg, heldur létu
reiðbuxurnar duga gyrtar ofan í
mórauða ullarsokka með fagur-
lega utprjónaðri fit.
Unglingurinn fylgdist óglöggt
með orðræðum þess, eftir að hann
opnaði bókina. Karlmennirnir
sögðu þæfingsófærð, síðan dyngt
hefði niður í suðaustanáttinni um
daginn. Fé komið á gjöf. Annars
ekkert títt.
Þegar heyrðist til hrossabónd-
ans framnri á ganginum, lagði Ung
lingurinn frá sér bókina. Hrossa-
bóndinn bar aldur sinn vel og
heilsaði brattur í baki, þótt hann
ætti langan veg genginn um morg-
uninn. Menn báru ósjálfráða virð-
ingu fyrir óþvingaðri framkomu
hans. Og þegar hann snéri sér
hratt á hæli til að heilsa prest-
inum, sá Unglingurinn, að bænd-
urnir vildu fyrir enga muni missa
af neinu, er þeim færi á milli.
— Nú er hann svalur, klerkur.
— Ekki finnst mér það nú mik-
ið umfram það, sem búast má við
á vetrardegi.
— Það er alls staðar að verða
jarðl&ust.
— Mér er sagt, að hrossin
gangi samt hjá þér enn.
— Já, en það verður „stuð“ að
fá þau öll á hús.
— Þér væri þá nær að eiga þau
svolítið færri.
— Eg kem bara með þau út í
hálsinn til þín, ef hann hlánar
ekki.
Presturinn anzaði þessu engu,
en brosti. Hrossabóndinn og hann
voru miklir vinir og töluðu saman
í hálfkæringi, þegar fleiri heyrðu
til. Og allir vissu, að Hrossabónd-
inn yrði manna síðastur uppi-
skroppa með fóður handa skepn-
um sínum, hvernig sem vetur réð-
ust með tíðarfar.
Það var áliðið kvölds, þegar
Unglingurinn beið með Rauð týgj-
aðan á hlaðinu. Frostið hafði hert
og glugga lagt, svo að ekki sást
nema veikur roði af ljósinu inni í
gegnum hélaðar rúðurnar. Sumt
af kir'kjufólkinu þurfti að reka
einhver erindi við prestinn, svo
að það gat dregizt, að hann kæmi
út.
Unglingurinn var farinn að
berja tánum við dyrahelluna og
veifa höndunum fram og aftur til
skiptis til að fá í sig hita, þegar
hann heyrði hratt fótatak pr'ests-
ins eftir ganginum. /
— Jæja, loksins er eg búinn.
Var þér ekki orðið kalt?
— Nei, laug Unglingurinn.
-i- Gakktu rneð mér ofan á veg-
inn, sagði presturinn og tók í
tauminn á hestinum.
— Hefur þú ekki skrifað eitt-
hvað í vetur? sagði presturinn,
þegar þeir voru stanzaðir.
— Það er fremur lítið, sagði
Unglingurinn ofan í snjóinn.
— Blessaður haltu áfram að
skrifa. Enginn verður óbarinn
biskup. Reyndu svo öðru hvoru
að senda einhverju tímariti eitt-
hvað eftir þig. Kannske birta þau
það. Þú hefur allt að vinna, en
engu að tapa. Mundu það.
— Eg er vonlítill um, að þau
taki það, sagði Unglingurinn og
horfði enn ofan í snjóinn.
— Þú mátt senda mér það áður
en þú lætur það fara lengra. Eg
get alltaf leiðrétt stafsetningar-
villur, sagði presturinn óbifanleg-
ur.
— Þakka þér fyrir, sagði Ung-
lingurinn og horfði nú ekki leng-
ur ofan í snjóinn.
— En blessaður haltu áfram
að skrifa.
Presturinn tók þétt í hönd
(Framh. á 13. síðuj