Tíminn - 21.02.1962, Side 4

Tíminn - 21.02.1962, Side 4
DÓMARINN NURNBERG „Mér þykir það leitt, en maður verður að fara að lögum. Það er ekki rétt að veita* viðtöl, fyrr en málið hefur verið rannsakað." Röddin í símanum var ofur eðlileg. En það er auðheyrt, að maður með svona rödd fer eftir sínum eigin reglum og lætur ekki teyma sig langt. Maðurinn, s-em talar, er dómarinn í Niirn- berg og dómsmálaráðherra Hitlers, hr. próf. dr. Frans Schlegelberger. Emil Janning er hann nefndur í amerísku kvikmyndinni um Niirnberg- réttarhöldin. Hann er einn af æðstu mönnum nazista, en — eins og sagt er í myndinni — „maður með hjartað -á réttum stað“. Maður, sem tekur orðið af verjanda sínum, þegar hann ætlar að sanna sakleysi hans og hreinsa hann af þeim blóði drifnu glæpum, sem hann hefur framið. Maður, sem játar sekt sína, maður, sem iðrast. — Það eru vitni að því, að Schlegel- berger hefur viðurkennt, að Þefta er sá Schlegelberger, sem vlS mætum nú á götu í Flens- borg. Janning í kvikmyndinni og hann eigi eitthvað sameigin- legt. Hann hefur sagt: „Jann- ing, — það er ég“. Það var þessi ráðvandi mað- ur, sem ég fór að finna í Flens- borg. Hvaða mann hitti ég þar? — Því miður er Frans Schleg- elberger svo farið, að það er smánarblettur á annars ágætri kvikmynd að líkja honum við Emil Janning, sem leikur dóm- arann. Hann vildi ekki veita við- tal af lagalegum og persónuleg- um ástæðum. Ekki af því að hann skammaðist sín fyrir það, sem hann gerði einu sinni og hann hélt, að hann kynni að verða spurður um. Hann vildi gjarnan láta hafa við sig viðtal eftir að málarekstrinum er lokið. Málareksturinn er þáttur í langærri deilu milli hr. Schleg- elbergers og hugaðs fjármála- ráðherra stjórnarinnar í Slés- vík-Holstein, sem lýsti því yfir, þó að hann fengi ekki til þess stuðning Bonnstjórnarinnar, að Schlegelberger hefði fyrirgert r'étti sínum til eftirlauna. Hér er um stóra upphæð að ræða, 2.S94 þýzk mörk á mán- uði eða röskar 360.000 íslenzk- ar krónur á ári. Það eru eftir- laun fyriverandi dómsmálaráð- herra. Stríðsglæpamaðurinn Frans Schlegelberger var leidd- ur fyrir dómstól Bandamanna Nurnberg 1947. Þríðja des- ember var hann dæmdur í lífs- tiðarfangelsi. Eftir þrjú ár lét bandarískur umboðsmaður, John McCloy, sem nú er einn af ráðgjöfum Kennedys, hann lausan vegna heilsubrests. Óflekkuð fortíð Þýzkir dómstólar taka nú blátt áfram ekkert tillit til þeirra dóma, sem sameiginleg- ur herdómstóll Bandamanna í Niirnberg kvað upp. Þeir eru ekki skráðir í þýzku saka- skránni, og af þessum sökum hvarf Frans Schlegelberger úr hinu fræga Landsbergfangelsi, — maður með óflekkaða fortíð. Þar að auki fékk hann sex þúsund marka styrk. Þessi sex þúsund mörk voru í upphafi styrkur, er var veittur stríðs- föngum, sem sneru heim frá Rússlandi — og fangar úr fangelsum Bandamanna fengu hann einnig. Frá 1. apríl 1951 fékk Frans Schlegelberger full eftirlaun fyrrverandi dóms- málaráðherra eða 2.894 mörk á mánuði. j Stal eggi og var drepinn Enn má þó finna fólk í Þýzkalandi, sem fylgist með gömlum stríðsglæpamönnum og gengi þeirra í Þýzkalandi nútímans. Það fólk er einkum í röðum jafnaðarmanna. Af sið- ferðilegum ástæðum er þó ekki hægt að skjóta loku fyrir, að fyrrverandi nazistaforíngjar fái há eftirlaun. Svo einfalt er það ekki. Ef sanna á sök á stríðs- glæpamann, verður að finna sakarefni á hendur honum, sem dómstóll Bandamanna hef- ur ekki refsað honum fyrir. Samkvæmt alþjóðlegum réttar- reglum er ekki hægt að da____ mann tvisvar fyrir sama glæp- inn. En 1959 var flett ofan af Luftglass-hneykslinu, og fyrir það hefur dómstóllinn í Niirn- berg ekki hegnt Schlegelberger. Pólskur Gyðingur, Luftglass að nafni, hafði stolið eggi og herdómstóllinn í Kattowitz dæmdi hann í tveggja og hálfs árs fangelsi ... Þrátt fyrir það lét Schlegelberger Gestapo taka hann af lífi. Þegar þetta kom í ljós, spurð- ist Schaffer fjármálaráðherra í Kiel þegar fyrir það hjá innan- ríkisráðuneytinu í Bonn, hvort Schlegelberger ætti að fá eftir- launin framvegis. Scháffer fékk r'aunar aldrei ákveðið svar né nokkurn s4uðning frá Bonn- stjórninni, — þar sem hinn gamli nazisti Schröder var og er innanríkisráðhérra Adenau- ers. Þá lýsti Scháffer því sjálfur yfir, að Schlegeiberger hefði engan rétt til að fá greidd eft- irlaun lengur. „Ég vil fá mitt" Auðvitað kærði Schlegelberg- er, og dómstóll í Slésvik-Hol- stein veitti honum nokkra upp- reisn. Eftirlaun þans voru lækkuð ofan í 1244 * mörk. 1 nóvember sama ár ákvað annar dómstóli, að Schlegelberger skyldi fá 2.3000 mörk í eftir- laun auk vaxtanna af þeim eftirlaunum, sem hann varð af með, þegar Scháffer gekk í málið. Einnig ákvað dómstóll- inn, að hann skyldi framvegis fá full eftirlaun. Dómsúrskurð- urinn byggðist á því, að Schleg- elberger hefði í valdatíð naz- ista ekki gert sér fulla grein fyrir því, hversu miklu órétt- læti hann beitti. Þetta mál hefur nú gengið af einu dómstiginu á annað, — í dag er dæmt Scháffer í vil, og á morgun er Schlegelberger orðinn ofan á, — og eftir stutt- an tíma verður málið afgreitt af hæstarétti. Schlegelberger telur sig hafa rétt fyrir sér, af því að Mc Cloy náðaði hann. „Ég hef rétt fyrir mér,“ segir hann, „og ég vil fá mitt.“ En hefur prófessor Schlegel- berger rétt fyrir sér? J Laganna þjónn hjá þrem ' herrum Prófessor Schlegelberger er 85 ára gamall. Hann varð próf- essor í lögum í Berlín 1932. Hann hefur verið ríkisritari í dómsmálaráðuneytinu í valda- tíð þriggja ríkisstjórna og ríkis- leiðtoga: Vilhjálms keisara, Weimarlýðveldisins og Hitlers. 1941—’42 var hann dómsmála- ráðherra Hitlers. Sohlegelberger kom líka hinum svokölluðu for ingjaupplýsingum af stað og á framfæri. Þær upplýsingar voru sendar aðalstöðvum Hitlers á hverjum föstudegi og snertu meðal annars réttaraðgerðir, dóma og lagafrumvörp. — í einu slíku bréfi, sem dagsett er 29. maí 1942, skýrir Schlegel- berger Hitler svo frá, að hann hafi lagt til, að hin ströngu lög um landráð verði látin ná til Frans Schlegelbergor, dómarlnn þýzkl, er maður, sem einskls iðr- ast og ekkert hefur lært. „Eg var aldrei nazisil", segir hann, en litla merkið í hnappagatinu er víst ekki frá Plngklúbbnum. iiðins tíma, þannig að refsað skuli einnig fyrir þau afbrot, sem framin voru fyrir valda- tökuna 1933. í júlí( 1942 lagði Schlegelberger fr'am uppkast að tilskipun, þar sem allir Gyð ’ngar voru sviptir rétti til að áfrýja dómum. Pólverjarefsingarnar Þriðja júlí 1942 sagði Schleg- elberger foringja sínum stoltur frá því, að Pólverji hefði verið dæmdur til dauða í Stuttgart, „Martin Bormann er á lífi hér i Þýzkalandi — öruggasta felustað gamalla nazista nú orðið", segir Heinrtch Linau, sem var hálft sjötta ár í Sachsenhausen-fangels inu og vltnaði síðan gegn mörg- um stríðsglæpamönnum Þrlðja ríklslns. af því að hann hafði haft mök við þýzka konu — með hennar leyfi. Til þessa — segir Schleg elberger, — hefur ekki verið hægt að refsa Pólverjum fyrir þessar sakir, nema um nauðg- anir eða ofbeldi gagnvart ófull- veðja stúlkum hafi verið að ræða. En þessi refsing Pólverj- ans gerir það nú kleift héðan í frá að refsa Pólverja, sem situr blett á skjöld þýzikrar konu með því að hafa mök við hana — með hennar leyfi. Og um Luftglass skrifar Schlegelberg- er dr. Lammers, einum af þjón um Hitlers: „Samkvæmt skip- un foringjans frá 24. október 1941 hef ég framselt Gyðinginn Markus Luftglass, sem dómstóil inn í Kattowitz dæmdi í hálfs annars árs fang^lsi, leyniiög- reglunni til aftöku. Heil Hitl- er!“ Dæmið harðar En það var ekki sama, hver í hlut átti, sem sjá má af þessu: (Framhald á 14. síðu). T í MIN N. miðvikudaEÍnn 2L- fehrúar 1962. 4

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.