Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 15

Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 15
Unnu rauðajárn 'Kramhaio al b slðul ar.ir fyrir byggð norrænna manna hafa fundizt þarna, fyrr en Ing- stad tók að grafa. Báðir töldu þeir’ útilokað, Ingstad og Eldjárn, að holur fyrir skipafestarhringa, sem fundizt hafa hér og þar á aust- urströnd Ameríku, gætu sannað nokkuð um byggð þar fyrr á tím- um. Framan af var það byggingar- lag húsanna og byggingarefnið, er talið var sanna, að þetta væru nor rænar rústir, en nú hafa gjallmol- arnir með viðar'kolamolanum fundizt, sem fyrr segir. Getur varla verið, að þeir stafi af öðru en því, að þarna hefur verið unn- ið rauðjárn, en Eskimóar þekkja t.d. ekkert til slíkrar vinnslu. Stórt hús og lítið __ Eru þetta rústirnar, sem lýst er í sögunum? —- Það er kannske ekki hægt að fullyrða, að þetta séu nákvæmlega þær sömu, en þær eru a.m.k. nor- rænar' og eldri en Kolumbus, það sést á ýmsu. — Hvað grófuð þið þarna upp? spurðum við Önnu Stínu. — Við grófum upp eina 20 m langa tóft, langhústóft, og voru þar langeldar og feluholur og steinarnir rauðleitir af eldi. Eld- stæðin eru mjög lík gömlum, ís- lenzkum og grænlenzkum eldstæð- um, svo grófum við lika upp lítið hús, og þar fundum við eldstæði líka. Voru þau af mjög sviðari gerð og noiræn eldstæði. — Grófuð þið upp fleiri rúst- ir? — Við byrjuðum að grafa fleiri en lögin voru þykk og tíminn naumur. En við höldum vitanlega áfram. — Hvenær farið þið vestur? — í maí, og þá viljum við gjarn an hafa annan fomleifafræðing með, helzt íslenzkan. Ennfremur viljum við fá jarðfræðing og fleiri aðstoðarménn. Lífinu fórnað — Er þetta ekki dýrt fyrir þig? spurðum við Ingstad. __ jú, þetta er mikið ver'k, sem við eigúm enn fyrir höndum og seinunnið. En annað hvort verður að rannsaka þetta vel eða ekki, og ég er búinn að eyða svo miklu af ævinni í ferðalög og rannsóknir á norðurslóðum, að það er allt í íagi- , . . __ Hvers vegna komuð pio hingað nú? __ Við höfum aldrei komið til íslands áður. Við komum ekki til að skoða neitt sérstakt, ætluðum bara að litast um og ræða við menn um ýmislegt í sambandi við foi'nleifauppgröftinn og vesturferð ir íslend.inga. Og konan mín ætlar að ræða fornfræðileg vandamál. Anne Stine Ingstad virðist vera m.iög dugmikil kona. Hún hefur verið eini fornleifafræðingurinn við uppgröftinn, haft 4—5 aðstoð- armenn, og maður hennar var mik ið á ferðalagi. Stundum hefur hún búið ein í bátnum þeirra. Hún lærði fornleifafræði í Osló og hef- ur samið ritgerð um steinöldina. — Maður hennar er lögfræðingur að menntun og hefur verið sýslu- maður á Svalbarða og Austur- Grænlandi, og átti það sinn þátt í að vekja áhuga hans fyrir land- könnun og for’nleifarannsóknum., Uann hefur skrifað nokkrar bæk- ur, og er hin síðasta þeirra, „Land et under ledersternen“ þeirra rierkust, en hún fjallar um Græn land frá 1000 og fram um 1500. íslendingasögurnar hafa hjónin lrsið á nor'sku, og styðst Ingstad við norskar þýðingar, en einnig geta þau lesið þær nokkurn veg- inn á íslenzku. Þau hjónin hyggj- ast dvelja hér fram á sunnudags- kvöld og kannske til þriðjudags. Á sunnudaginn flytur Helge Ing- stad erindi á vegum félagsins „Kynningar“, en síðar verður stund og staður nánar auglýst. Glenn sagSi . . . (Framhalo al i síðu) „Þetta var meiri hamagangurinn, maður!" Þetta var í stuttu máli það sem honum fannst um ferðina. Glenn var að loknu flugi sínu fluttur til Grand Turk Islands í Bahama-eyjaklasanum, þar sem hann verður næstu 48 klst. i lækn isrannsókn. Geimrannsóknastofn- un Bandaríkjanna gaf í gær út yfirlýsingu, þar sem segir að blóð þrýstingur, hjartsláttur og andar- dráttur haf'i verið með eðlilegum hætti á meoan á geimfluginu stóð. Serkir á fundi Framhald ai 3 siðu franska stjórnin að viðurkenna samkomulag ráðherranna á leynb fundunum í Júralfjöllum, áður en það verður að veruleika. Meðlimir þjóðarráðsins eru nú ýmist á leiö til Tripoli eða að und irbúa för sína þangað. Almennt var álitið í dag, að þjóðarráðið mundi leggja blessun sína yfir samningana, en einnig var talið, að umræðurnar yrðu langar og harðar. Ben Youssef Ben Khedda, for- sætisráðheira, verður í forsæti hins sögufræga þings í Tripoli. í dag átti útlagasfjórnin með sér langan fund í Túnis til þess að ræða einstök atriði samkomulags- ins. Engin yfirlýsing var gefin út eítir margra klukkustunda fund. í Alsír virðist ekkert benda til, að leyniherinn OAS muni reyna að koma af stað byltingu eins og margir höfðu óttazt, en hryðju- verkin héldu samt áfram af full- um krafti. Zakopane (Framhald af 13. síðu). Heimsrneistari í tvíkeppninni varð Arne Larsen, Noregi, — sem nú er orðinn þekktur um allt sem: glaði bakarinn frá Heggedal. — Hann hlaut 454.33 stig. í öðru sæti varð óvænt Rússinn Kotsjkin, sem varð annar í stökkkeppninni, og hlaut hann 448.77 sti'g. Þriðji varð Norðmaðurinn Ole Hendrik Fager ás með 442.25 stig. Fjórði landi hans Tormod Knudsen með 424.65 stig, og fimmti Rússinn Prajchin með 423.97 stig. — Sigurvegari í göngukeppninni í tvíkeppninni vaið Alois Kaelin frá Sviss. Annar varð Fagerás, sem var fjórum sek úndum á eftir. Arne Larsen varð sjöundi' og Kotsjkin rn'undi. Heimsmeistari í 15 km. göngu varð Svíinn Assar Rönnlund, sem var í sérflokki í göngunni, en í næstu sætum voru þrír Norðmenn. Þegar fyrstu millitímar voru gefn ir upp, eftir 5 km., var Harald Grönningen með beztan millitíma og 13 sek. betri en Rönnlund, en Magnar Lundemo var 10 sek. á eftir Svíanum. Þetta hafði breytzt mjög eftir 10 km. og var Rönn- lund þá með 10 sek. betri tíma en Grönningen. Hann vann síðan nokkrar sek. á Svíann í næstu 2 km., en síðan gaf hann sig, og Rönnlund varð öruggur sigurveg- ari. Grönningen varð í öðru sæti á undan Einari Östby, sem hafði gengið mjög kröftuglega síðustu 5 km. Fjórði varð svo Lundemo, að- eins 3.9 sek. á eftir Grönningen. Þrátt fyrir sigur Svíans eru Norð menn þó stórkostlega ánægðir með frammistöðu sinna manna, og það að vonum. Fimmti í göngunni varð Finninn Mantyranta, sem sigraði í 30 km. göngunni, og sjötti Janne Stefansson, Svíþjóð, en þeir voru langt á eftir Norðmönnunum. Mantyranta sigraði í 30 kíló- metra göngunni á sunnudag á 1:52.39.4. Annar varð Stefansson á 1:52.49.2. Þriðji Florian, ítalíu, á 1:53.13.3. Fjórði Grönningen á 1:53.32.9. Fimmti Östby á 1:53.38.3 og sjötti Rönnlund á 1:53.41.4. — Sixten Jernberg varð tíundi. ASalfundnrimi Aðalfundur miðstjórnar Fram- sóknarflokksins hefst í Fram- sóknarhúsinu n.k. föstudag kl. 2 eftir hádegi. Minningarorð i (Framhald a£ 13. síðu). kona í sveit eða embættismanns- kona í kaupstað. Guðmundur lézt fyiir aldur fram, en Helga hélt uppi heimil- inu af sömu rausn og áður, þrátt fyrir lítil efni. En aldrei varð I neinn gestur hennar annars á- j skynja en gnægð væri í búi, svo útdráttarsamt sem henni hlýtur oft að hafa orðið. En auður hjart-| ans var svo mikill, og þar varð aldrei þurrð á, hversu sem var af ausið. Mér stendur Helga Finnsdóttir fyrir sjónum sem ein hin ánægju- legasta manngerð, sem ég hef kynnzt. Manndómur hennar og menning, glaðlyndi hennar og góð vild sómdi sannri höfðingskonu. Þótt gítarinn hennar sé hljóðnað- ur, endurómar hann enn í hugum þeirra, sem báru giftu til þess að hafa af henni nokkur kynni. Eg kveð hana með mikilli virðingu. J. H. Telja vafasaman gróða Framhald af 6. síðu. drykkj aframleiðendurnir óeðlileg- um verðhækkunum um. Ef verðið verður enn hækkað um 20 aura á flösku, þrátt fyrir að framleiðend- um hefur verið synjað um að hækka verð sitt, þótt framleiðslu- kostnaður hafi aukizt verulega, þykir gosdrykkjaframleiðendum einsýnt, að eins fari fyrir gos- dfvkkjúnvun og sælgætinu, en sala 'a þýí ég'frárnleiðsla hefur dregizt saman um 5,4%—38% sl. fimm ár. Aðeins ein sælgætistegund hefur bætt við sig s.l. fimm ár, en það er lakkrís, sem hefur aukizt í fram- leiðslu um 15,9%, en undir lakkrís flokkast m.a. Opal og Tópas og þ.h. Gosdrykkjaframleiðendum var ekki vel við 10 aura skattinn, en létu þó kyrrt liggja, en þegar hann skal þrefaldaður, finnst þeim nóg kom- ið. Fyrst plokkar ríkið af okkur eins og það telur fært, sögðu þeir, en síðan er lagður 30 aura skattur á til viðbótar. Þótt málefnið sé brýnt og nauðsynlegt, má ekki leggja of mikið á iðnaðinn í land- inu. Nauðsynjamál eru mörg, og ef iðnaðurinn á að kosta framkvæmd þeirra allra með aukaálögum, er vandséð hvernig fer fyrir iðnaði landsins. Undir heilbrigðisyfirvöld Auk Björn Ólafssonar talaði Sveinn Valfells, formaður félags iðnrekenda, og voru orð hang mjög á sama veg og Björns. Taldi hann, að þetta mál ætti að heyra undir heilbrigðisyfirvöldin eins og t.d. berklavamir. Tó'mas Tómasson, for stjóri h.f. Egill Skallagrímsson sagði, að auk alls annars væri gos- drykkja- og ölgerðunum gert að kaupa hluta af hráefnum sínum frá Tékkóslóvakíu, þar sem þau væru 20—25% dýrari en hægt væri að fá þau annars staðar. Vafasamur ágóði Ölgerðin Egill Skallagrímsson h.f., Sanítas h.f. og verksmiðjan Vífilfell, hafa sent Heilbrigðis- og féálagsmálanefnd Efri deildar al- þingis bréf, þar sem sjónarmið þessara framleiðenda eru skýrð og þessari hækkun tappagjalds mót- mælt. Forráðamenn fyrirtækjanna bentu á það á fundinum, að vafa- samt væri, hvern ágóða Styrktarfé- lagið hefði af hækkuninni, ef svo færi sem horfði, að sala gosdrykkja drægist verulega saman. 1 LciSrétting Vegna slæmra prentvillna, sem slæddust i kveðju Karls Kristjáns- sonar, stjórnarformanns Kaupfé- lags Þingeyinga hér í blaðinu í gær, er kveðjan birt aftur: „Þeir menn, sem stofnuðu fyrsta kaupfélag á íslandi — Kaupfélag Þingeyinga — 20. febrúar 1882, tengdu á sinu sviði ódauðlegar þrár og hugsjómr mannkynsins um betri heim, skipulagi samtaka, sem reynzt hefur ekki aðeins héraði þeirra lyftistöng, heldur einnig þjóðfélaginu öllu. , Á tuttugu ára afmæli Kaupfél. Þingeyinga, 20. febrúar 1902, var fyrir áhrif sömu manna Samband íslcnzkra samvinnufélaga stofnað í sama héraði. Með S.Í.S. hefur margfaldazt sjálfstæði og máttur samvinnusam takanna. Samvinnuskipulagið er jafn vel við hæfi á íslandi nú og fyrir fjór um fimmtungum aldar, og ástæða er til að ætla, að svo muni verða, meðan menn viija styðja hverjir aðra til þess að bera úr býtum sem mestan lilut — og þó réttan. Þökk sé þeim, sem hófu merkið. Heill veri með samvinnusam- tökunum á komandi tímurn. Karl Kristjánsson.“ í frásögn af afmæli SÍS á for- síðu blaðsi’ns varð líka sú prent- villa, að orðið „þrjú“ slæddist inn í setningu, þar sem það átti ekki heima og gerbreytti henni. Sú setning, átti að hljóða: „Helztu einkennin á þróun og starfsemi SlS síðustu árí1 o. s. fry., en ekki þrjú síðustu ár. A 9. síðu misprentaðist einnig, að Hallgrímur Kristinsson hefði verið kjörinn formaður stjórnar SÍS, en átti að vera Sigurður Krist insson. Olíufélagið Framhald af 12. síðu. kunn knattspyrnustjarna úr meist- araflokki Vals, og landsliðsbak- vörð'ur ís'lendinga um árabil. En þetta mun vera í fyrsta sinni sem hann getur sér opinberlega frægðar orð í badminton. Frá upphafi til enda var firma- keppni þessi mjög tvísýn og skemmtileg Tennis- og Badminton félag Reykjavíkur er þakklátt þeim fyrirtægkjum, sem styrktu félagið fjárhagslega með þátttöku sinni. Peningar þessir renna að verulegu leyti til að standa straum af þeirri kennslu, sem félagið hefur undan- farin ár veitt ókeypis þeim ungling- um, sem þess hafa óskað, ásamt lán- um á spöðum og boltum. Félagið lítur því bjartari augum fram á veginn, eftir firmakeppnina, en áður. Til sölu Þrír nýir 140 rúmlesta fiski bátar eru til sölu. Bátarnir geta verið tilbún- ir til afhendingar um mán- aðamótin marz-apríl nk. SKIPA- OG VERÐBRÉFA- SALAN SKIPA- LEIGA VESTURGÖTU 5 Sími 13339. Önnumst kaup og sölu verðbréfa. + Eiglnmaður minn, Ásbjörn Guðmundsson andaðist að Heimlli sínu í Borgarnesi laugardaginn 17, þ. m. Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 24. þ. m. og hefst klukkan 2 síðdegls. Valborg Jónsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð vlð andlát og jarðarför Óskars Sæmundssonar frá Eystrl Garðsauka Ásgerður Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Jarðarför* Ástríðar Jóhannesdóttur prestsekkju, Eiríksgötu 19, Reykjavík, fer fram frá Fossvogsklrkju föstudaglnn 23. febrúar næstkomandi klukkan 10,30 fyrlr hádegt. Athöfninni verður útvarpað. U • wvwilll »«1|U •"■"■■aei "Ci'imi/ er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra eða kapelluna á Húsa- íel11, Vandamenn. TÍMINN, miðvikudaginn 21. febrúar 1962 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.