Tíminn - 01.03.1962, Page 10
Garl Shannon:
ÖRLAGASPOR
ginna Nellu inn í skóginn.
Mér leið afar illa. Hvort það
var út af sárunum eða djöf-
ulsskap Múmú, ellegar snert-
ur af mýraköldu, veit ég ekki.
En feginn var ég, þegar heim
var komið til sjúkrahússins.
Þar var Set læknir að störf
um sínum. Jana var honum
til aðstoðar, og leit yndislega
út, i hvítum kjól.
— Mikki, þú ert særður,
æpti hún. — Hvað hefur kom
ið fyrir þig?
„Eg hata konur,“ svaraði ég
hlæjandi. „Sér í lagi þær, sem
nota hnífa.“
Jana tók spauginu. „Þá er
er ég fegin, að ég skuli vera
ein þeirra.“
„Á þetta að vera játning?"
Þetta hefði ég ekki átt að
segja.
Hún eldroðnaði. „Eg hata
alla karlmenn, sem heita
Mikael. Eg verð hér úti í garð
inum, þegar pabbi er búinn
að ganga frá þér. Þá getur
verið að ég gefi þér tækifæri
til að útskýra hvað átt hefur
sér stað.“
Set læknir bjó vandlega um
sár mín með bindum og hefti
plástri. Ekkert þeirra var
djúpt. Eg tók eftir því, að
hann var þungbúinn og
þreytulegur. „Hvernig at-
vikaðist þetta?“ spurði hann.
Eg skýrði honum í stuttu
máli frá því, sem fyrir mig
hafði komið.
„Hefur nokkuð annað gerzt
nýtt í málinu?“ spurði hann
þá, og reyndi að 'leyna for-
vitni sinni.
„Ekki nema það, að eitt skal
ég segja yður, Set læknir.
Hvað sem þér kunnið að
halda sjálfur, þá er það ekki
kona yðar, sem hefur byrlaö
Follett eitur.“
Glampinn sem brá fyrir 1
augum læknisins, sagði mér
betur, en orð fá lýst, að ég
hafði getið rétt til. Hann
elskaði konu sína.
Röddin brást honum, þegar
hann spurði: „Erug þér hand
viss um það, Leigh------hm,
Mikki?’“
„Fullkomlega . Eitrið var
látið í mat Folletts af Varni
þjóni hans og Múmú, sem er
systir þjónsins."
Set læknir þvoði sér um
hendurnar, og þegar ég fór,
var hann kominn á leið heim
í hús sitt.
Eg hugsaði með sjálfum
mér: „Nella, ef þér skyldi
nokkum tíma koma til hugar
að særa þennan mann, skal
ég sjá um, að þú fáir það, sem
þú átt skilið. Og ég skal heita
þér því, að fara þá ekki eins
klaufalega að og Múmú.“
20. kafli.
Þegar ég kom út á golfvöll
inn, voru þau Jeff Craig
læknir og Jana þar fyrir að
leik. Jeff sá mig tilsýndar, og
ég heyrði að hann kallaði til
Jönu: „Þarna kemur leiðinda
skrjóður, Jana. Við skulum'
reyna að forðast hann.“
„Þú kannt nú ekki að fela
þig fyrir mér,“ kallaði ég til
hans. „Til þess ert þú allt of|
heimskur. Auk þess fyndi ég
af þér lyktina um langan veg.!
Þótt þú sért frámunalega lé- j
legur efnafræðingur, leggur^
þó af þér lyfjapestina.“
„Þú ættir nú ekki að hrópa
27
svona hátt,“ anzaöi hann.
„Það er ekki víst nema að ég
gæti sagt Jönu hitt og þetta
um verkfræðinga."
„Eg veit allt um verkfræð
inga,“ tók Jana fram í. „Þeir
eru rauðhærðir."
„Fáðir þinn hefði átt að ala
þig betur upp,“ sagði ég við^
Jönu. Því næst sneri ég mér|
að Jeff og hélt áfram: „Eg
tek þetta allt saman aftur,
gamli vinur, en það var nú
eitur í viskýinu.“
„Hvemig veiztu það?“
spurði Jeff og horfði hugsi á
mig.
„í fyrsta lagi hef ég reynt
að drekka úr flöskunni aftur
og áhrifin voru þau sömu og
fyrr, kannski ekki alveg eins
afleit. Og í öðru lagi hefur sá
sem blandaði eitrinu í vínið
játað það fyrir mér.“
„Var það Múmú?“ spurði
Jana með ákefð.
„Já, það var hún.“
„Hvers vegna?“ spurði hún
aftur.
„Það verður að vera leyndar
mál fyrst um sinn,“ svaraði
ég. „En ég held mig vera kom.
inn á slóðina.“
„Hefur þú nokkra hugmynd
um, hvers konar eitur þetta
er?“ spurði Jeff, og var ergi
legur yfir því, að hann skyldi
ekkert hafa fundið í víninu.
„Ó, já. Þag er ein af þessum
ga eiturtegundum, sem inn
byggjarnir halda stranglega
leyndum. Þú skalt fá það sem
eftir er af viskýinu til rann
sóknar. En ga eitur er blanda
af plöntueitri og krókódíla-
galli. Gakktu út frá því við
tilraunir þínar. Eitur það sem
ég fékk er ekki banvænt í smá
um skömmtum. Múmú gekk
ekki að þessu starfi með heil
um hug. Eg býst ekki við að
henní hafi verið geðfellt að
ganga af gömlum vini dauð
um meö þessum hætti. En
hún reyndi aftur í morgun.“
Eg sagði þeim frá viðureign
minni við Múmú, úti á tólftu
deild.
Það kom áhyggjusvipur á'
Jönu. „Hún er hættuleg,'
Mikki. Þú verður að forðast
hana.“ Hún dokaði ögn við
og hélt svo áfram: „Mér er
bara ráðgáta, hvers vegna
hún byrlaði þér fyrst eitur,
og reyndi svo ag bjarga þér
aftur.“
Eg brosti til hennar: „Lík-
legast þykir mér, að Múmú
hafi komið auga á, að það
gæti orðið óþægilegt fyrir
þorp hennar, ef ég lægi þar
og drægist upp. Auðvitað
hefði verið reynt að komast
fyrir orsökina, og því hefur
Múmú gert sér grein fyrir.“
„En hvag við erum alvarleg
og það á sunnudagsmorgni,“
sagði Jana og brosti „Hvað
segirðu um að borða héma
morgunverð, Mikki? Jeff er
búinn að lofa sér í mat hjá
vinum sínum.“
Ekkert hefði ég fremur
viljað en dvelja með Jönu
allan sunnudaginn. En ég átti
svo mikig annríki framundan
að mér til mikillar gremju
gat ég ekki þegið boð hennar
j Hún fylgdi mér niður að vagn
inum og á leiðinni datt mér
gott ráð í hug.
„Heyrðu,“ sagði ég. „Komdu
með mér heim og borðaðu
hjá mér. Þá skal ég segja þér
frá öllu sem gerðist í dag, og
svo skal ég sjá um að þú kom
ist heilu og höldnu heim til
þín aftur.“
„Ef þú ert góður húsbóndi
og átt eitthvað gott til, sem
við getum borðað, þá skal ég
vera svo lengi hjá þér, að það
fái eitthvag til að slúðra um
að nýju á plantekrunni,“
svaraði hún og hló til mín.
Meg það hljóp hún inn, en
ég beið úti hjá bílnum þangað
til hún kom aftur. Eg sá að
augu hennar ljómuðu, er hún
tók utan um mig og reyndi að
hrista minn hundrað og sex»-
tíu punda þunga skrokk.
„Hvers vegna hefur þú ekki
sagt mér, ag Nella eigi enga
sök á því, að eitrið fannst í
líkama Folletts? Þú hefur
gert pabba minn himinlif-
andi.
Mér varð hugsað til plant-
ara, er tekið hafði konu ann-
ars manns, til kúlu, sem farið
hafði gegnum hjarta þessa '
plantara, mér datt í hug
læknir, sem var góð skvtta og
mjög smáfættur —. Var Set
læknir annars hamingjusam
ur maður?
Jana endurtók spurningu
sína: — Af hverju sagðiröu
mér það ekki?
— Þegar ég er með þér, get
ég ekki hugsað nema um að-
eins eitt.
— Nú, hvað er það, spurði
hún og roðnaði.
— Að ég elska þig.
Með Jönu við hlið mér var
leiðin heim til mín allt of
stutt.
Hún ýtti sólhjálminum aft-
ur á hnakkann og sagði bros
andi: — Mikki, svona máttuj
aldrei segja, ef einhver heyrir
til.
— Hvers vegna ekki?
— Pabba myndi finnast
það óviðeigandi, ef ég kyssti
mann, sem ég hef aðeins'
þekkt í eina viku.
— Eg hef að minnsta kosti
þekkt þig í milljón ár.
— Það er skrýtið, Mikki,
mælti hún, — en mér finnst
alveg það sama.
Þegar við komum heim til
mín, fengum við okkur vín-
glas, og svo sýndi ég Jönu
safn mitt af afrískum minja
gripum. En þeir Kalli og Dói
Gíó komust allir á loft út af
því, að hvít kona skyldi ætla
að borða hjá mér. Eg sagði
henni frá öllu, sem gerzt
hafði í húsi Folletts, nema
hvað ég sleppti fáeinum atr-
iðum, sem ég vildi rannsaka
nokkru nánar.
— Er ekki hægt að fá úr
því skorið, hvort það var kúl-
an eða eitrið, sem varð hon-
um að bana? spurði hún.
— Við Jeff álítum báðir,
að það hefði verið kúlan.
Follett var áreiðanlega við
beztu heilsu, þegar hann var
skotinn. Arsenikið var þá
ekki farig að hafa nein áhrif.
— Eftir því er þá hinn
raunverulegi morðingi ófund
inn enn?
— Já. Eg nefndi það ekki,
á nafn, að enn væri það ekki j
útilokað, að faðir hennar j
hefði getað unnið verkið. En
svo gat mér líka skjátlazt.1
— Múmú hefur ekki heyrt
skotið. Hún hefur haldið sigi
nálægt húsinu, meðan þau
sátu að snæðingi, Nella og
Follett. Þáð er augljóst, að
Nella hefur ekki kært sig um
að láta Follett aka sér heim.
Þegar svo Follett ók brott 1
vagni sínum nokkru síðar,
hefur Múmú haldið gangandi
í áttina á eftir honum. Þá
NONNA
ÚTSALAN
hefst í dag.
Skíðajakkar.
Drengjajakkaföt.
Stakir jakkar. Buxnaefni.
Bútar. Peysur.
Sokkabuxur. Nylonsokkar.
Mikið af barnafatnaði
Dg efnum.
Mikil verðlækkun.
Vesturgötu 12 Sími 13570.
Skíðafólk
Skíðabuxur úr hreinu nylon
teygjuefni, nýkomnar.
Gott snið. Gott verð.
Fyrir kvenfólk kr. 1045.00
Fyrir karlmenn kr. 1146.00
PÓSTSENDUM.
Sport
Austurstræti 1
Kjörgarði Laugaveg 57
Sími 13503
Plötusmiðii',
járnsmiðir
og rafsuðumenn
óskast nú þegar.
STÁLSMIÐJAN H.F.
Sími 24400.
Afmælishátíð
verður í Lídó 11. marz
Áskriftariisti liggur
frammi hjá Magnúsi
E. Baidvinssyni,
laugavegi 12.
Dökk föt
10
T f M I N N, fimmtudagur 1. marz 1962