Tíminn - 03.03.1962, Blaðsíða 12

Tíminn - 03.03.1962, Blaðsíða 12
 RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Loks hlaut tvö sti í fyrrakvöld sigraði KR Val í meistaraflokki 1. deild á handknattleiksmótinu meS 27 mörkum gegn 21 og hlutu KR-ingar því tvö þýðingar- mikil stig — hin fyrstu, sem þeir hljóta á mótinu. Hins vegar hefur Valur enn ekkert stig hlotið í þremur leikjum og eins og liðið leikur nú eru ekki horfur á öðru en Valur gangi hina þungu braut niður í 2. deild að þessu sinni, en liðið á þó tvo leiki eftir, gegn Víking og ÍR, og ef til vill gæti liðið náð stigum þar, þótt lík- urnar séu ekki miklar eins og nú horfir. 1 fyrrakvöld skoraði Örn Ingólfs- son fyrsta markið fyrir Val, en síðan tóku KR-ingar við og eftir augnablik var staðan orðin 3—1 fyrir KR. Valsmönnum tókst þó að standa sig framan af og jöfnuðu þennan mun 1 4—4 — en eftir það | var um hreinan einstefnuleik að ræða að Valsmarkinu í fyrri hálf- leiknum. KR-ingar skoruðu hvert markið á fætur öðru, en Vals- j mönnum tókst aðeins af og til að: stinga inn marki. í hálfleik var staðan 19—10 fyrir KR og sigur-| inn blasti við — og að því er virt- ist mikill yfirburðasigur. En KR ingar tóku lífinu of létt fyrri hluta siðari hálfleiks. Þá var það Valur, sem réði gangi leiksins og þegar um 15 mín. voni af leik Staðan 1 í 1. deild Staðan í 1. deild á Handknatt- Ieiksmótinu er nú þannig: F.H. 3 3 0 0 109—60 6 Fram 2 2 0 0 61—40 4 Víkingur 2 10 1 38—36 2 K.R 4 10 3 85—92 2 Í.R. 2 10 1 41—60 2 Valur 3 0 0 3 58-104 0 var staðan orðin 20—16 fyrir KR eða aðeins fjögurra marka munur. Áhorfendur voru farnir að halda að KR-ingar hefðu notað allt sitt púður í fyrri hálfleikinn, og það væri aðeins spurning hvenær Val tækist að jafna. Þessi leikkafli var mjög slakur hjá KR-ingum, en þeim tókst þó að hrista af sér slenið síðari hluta hálfleiksins og fóru með nokkuð öruggan sigur af hólmi 27—21, sem var þó miklu minna en búast mátti við eftir fyrri hálfleiknum að dæma. KR-ingar geta leikið ágætan handknattleik — en inn á milli koma alveg „dauðir“ kaflar, sem lýta leik liðsins mjög og þessi lé- legi kafli þeirra í fyrrakvöld hefði getað orðið hættulegur gegn sterk- ara liði en Val. Eins og áður báru Karl Jóhannsson og Reynir Ölafs- son hitann og þungann af leik KR, en þeir eru báðir í fremstu röð handknattleiksmanna okkar. Guð- jón Ólafsson átti einnig ágætan leik í marki, og Herbert og Sigurð- ur Óskarsson eru vaxandi leik- menn. Þrátt fyrir 27 mörk var Egill Árnason, markvörður Vals, bezti maður liðsins og varði oft af mik- illi prýði. Hins vegar er varnar- leikurinn oft í molum, og að þessu sinni virtust aðeins tveir menn geta skorað, því Bergur Guðnason (11) og Örn Ingólfsson (8), skor- uðu 19 af þessu 21 marki. Geir og Sigurður skoruðu sitt markið hvor. Karl var markhæstur KR-inga með 9 mörk, Reynir skoraði 6, Ilerbert og Sigurður 4 hvor, Heinz 3 og Pétur 1. Tveir aðrir leikir fóru fram þetta kvöld. Fyrst léku Víkingur og ÍR í þriðja flokki kaila A og vann Víkingur í skemmtilegum leik með oddamarkinu af 25 (13— 12). Þá léku Haukar í Hafnarfirði og Breiðablik í Kópavogi í meist- araflokki karla, 2. deild. Hafnfirð- ingarnir höfðu algera yfirbuiði og sigruðu með 36 mörkum gegn 12. Mótið heldur áfram í kvöld og þá fara fram 12 leikir í íþróttahúsi Vals og að Hálogalandi, en á morg- un verða þrír leikir að Háloga- landi og leika þá m. a. Fram og Víkingur i 1. deild karla. Það ætti að geta orðið allskemmtilegur leikur. Tveir bræður í fyrstu sætunum Ólafsfirðt 26. febrúar. í gær fór hér fr*m firma- keppni í stórsvigi í mjög góðu veðri, en fremur hörðu færi. Brautarlengd var ca. 850 m með 30 hliðum Keppni þessi var háð með forgjöf. 33 fyrir- tæki tóku þátt í keppninni. 5 fyrstu urðu þessi: 1. B.P. Ármann Þórðarson á 1:00.4 12. Útvarpsviðgerðarst. Hilmars Jó hannesss. Svanb. Þórðars. á 1:01.5 3. Stígandi s,f. Sveinn Stefánsson á 1:02.4 4. Kjötbúð Kaupfél. Ólafsfarðar Einar Jakobsson á 1:03.2 5. Verzl. Lín Björn Guðmundsson á 1:03.2 Beztum brautartíma náðu þessir: 1 Svanberg Þórðarson 50.5 sek. 2. Ármann Þórðarson 52.4 sek 3. Sveinn Stefánsson 53.4 sek. Fyrir mótinu stóð Iþróttafélag- ið Leiftur. B.S. Sigurvegararnir í sveitakeppninni. Frá vinstri Lárus Karlsson, Gunnar Guðmundsson, Einar Þorfinnsson, Ásmundur Pálsson, Kristinn Bergþórsson 03 Hjalti Elíasson. (Ljósmi: Bjarn>sifurK inars Þorfinnsson í sveitakeppni Keppeiin til a$ ákveða landsiiðið hófsf i fyrra- kvöld — Önnur umferö verður á morgun Á þriðjudagmn lauk sveita- keppni meistaraflokks Bridgefél. Reykjavíkur með sigri sveitar Einars Þorfrnnssonar, sem hlaut 52 stig af 54 mögulegum, og er það mjög góður árangur. Svo skemmtilega hittist á, að tvær efstu sveitirnar, sveit Einars og Agnars Jörgenssonar spiluðu sam an í síðustu umferðinni, en sveit Einars vann þann leik örugglega. Röð annarra sVeita í keppninni var þannig. Nr. 2 sveit Agnars með 41 stig. 3. Sveit Stefáns Guð- johnsen með 40 stig. 4. Sveit Egg lúnar Arnórsdóttur með 24 stig. 5—7. Sveitir Elínar Jónsdóttur, Hilmars Guðmundssonar og Jó- Furðuleg framkvæmd Frá fréttaritara Tímans, Isafirði. Hér vestra hefur framkvæmd skíðamÖtsins i Hveradölum, fyrra sunudag, vakið undrun. Mótið var auglýst sem einroenningskeppni í svigi, og með þá keppni fyrir augum fóru tveir keppendur héð- an. Þegar komið er á mótsstað, er tilkynnt sveitakeppni sex manna. Minna mátti ekki gagn gera. Svo er utanbæjarmenn ætla að stofna sveitarkeppni með kepp endum frá Akureyri, ísafirði og Siglufirði, er þeim neitað um þátttöku. Það er engu líkara en forráða- menn þessa móts hafi ekki hug- mynd um tilkynningarskyldu móta. Vonandi eiga þeir eftir að læra það. G.S. hanns Lárussonar með 23 stig. 8—9. Sveitir Brands Brynjólfsson ar og Júlíusar Guðmundssonar með 22 stig og 10. sveit Þorsteins Þorsteinssonar. Fjórar neðstu sveitiraiar falla niður í 1. flokk, og þurfa sveitimar nr. 5—7 því að spila um það, hver þeirra fell- ur niður, en ein þeirra fellur. í sveit Einars spiluðu hinir gam alkunnu bridgemeistarar, Einar Þorfinnsson, Gunnar Guðmunds- son, Kristinn Bergþórsson, Lárus Karlsson, Hjalti Elíasson og Ás- mundur Pálsson, en flestir þess- ara manna hafa komið mjög við sögu bridge á fslandi síðustu tvo áratugina. í fyrrakvöld hófst keppni Bridge sambands íslands um val á lands liði gegn Englendingum, sem koma hingað til landsleiks fyrst í maí. Stjórn Bridgesambandsins' valdi átta pör í þessa keppni, sem verður í sjö skipti, og spilar því hvert par 32 spil við hvert hinna. Reiknað er út í EBL-stigum og þau ; síðan umreiknuð í vinningsstig, þannig, að mest er hægt að fá 10 vinningsstig eftir kvöldið. Eftir fyrsta kvöldið hafa þrjú pör þá vinningstölu, en eftir á þó að yfir- fara útreikninginn nánar. Þau pör sem hafa 10 vinningsstig eru Guð jón Tómasson og Hallur Símonar son, Kristinn Bergþórssoii og Lár- us Karlsson, Jóhann Jónsson og ; Stefán Guðjohnsen. Jón Arason og Sigurður Helgason hafa sjö vinningsstig, Hjalti Elíasson og Ás mundur Pálsson 3, en önnur pör ekkert. Næsta umferð í keppn- inni verður spiluð á sunnudag í Skátaheimilinu og hefst klukkan tvö. Markhæstir Keppnin í meistarafl. karla' 1. deild er nú h’álfnuð og þess- ir leikmenn eru nú markhæstj ir í kcppninni. Ragnar Jónsson, FH, 331 Reynir Ólafsson, KR, 29g Birgir Björnsson, FH, 24| Karl Jóhannsson, KR, 23« Ingólfur Óskarsson, Fram, 22j Bergur Guðnason, Val, I81 Kristján Stcfánsson, FH, 181 Örn Ingólfsson, Val, 17? Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR,14 Pétur Antonsson, FH, 14 Þess ber að geta, að KR hcf-l ur leikið fjóra leiki, FH og Valj ur þrjá, en Fram og ÍR tvo. Innanhússmót I. R. í frjálsum íþróttum í frjálsíþróttum fer fram að Hálogalandi dagana 10. og 11. marz n.k. Keppnisgreinar verða, fyrri dagur: Stangarstökk. þrí- stökk án atrennu, hástökk ungl- inga og hástökk án atrennu. Sfð- ari dagur: Kúluvarp, iangstökk án atrennu, hástökk án atr., lang- stökk unglinga án atr og hástökk Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt Í.R. í pósthólf 13, Reykjavík i síðasta lagi 5. marz. 12 T í M I N N, laugardagur 3. marz 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.