Tíminn - 06.03.1962, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.03.1962, Blaðsíða 4
MnssnemSBH Ofan af Þórsgötu barst fréttin niður á Lindargötu, eins og eldur í sinu. Það er maður að hengja málverk utan á húsvegg í einni göt- unni, sem kennd er við guðina. Þetta var síðdegis einn þennan ^kafheiða sól- skinsdag í vikunni, sem leið, og það er ekki dagleg- ur viðburður í Reykjavík, að þeir, sem bundið hafa tryggð við pensilinn, sýni undir berum himni. Á leið- inni upp eftir mættum við konum, sem gengu í frá- hnepptum poplínkápum, af því að einhver hafði sagt þeim, að vorið væri komið. Verzhinarmenn höfðu lokið upp dyrum og viðruðu sig á tröppunni, og fyrir framan hálf- byggt hús á Þórsgötu stöðvuðu menn bíla sína og fólk, sem átti leið þar um, safnaðist saman til að virða fyrir sér listaverk hins skringilega málara á gráum veggnum. Og þegar við komum nær, sáum við, að málarinn hef- ur áður borið list sína á torg, því að Stefán Jónsson frá Möðrudal sýndi á Lækjartorgi fyrir fáum árum. Stórval og Kjarval — Sæll Stefán, veiztu, að þú ert búinn að hengja þrettán myndir á vegginn. Ertu ekkert hjátrúarfullur? — Er ég ekki sjálfur fjórt- ánda atkvæðið? spurði hann brosandi og stillti sér upp við vegginn með miklum bravúr. Hann stóð þarna hjá mynd- unum slnum í sVartri beztúlpu með dökkan, barðastóran hatt í febrúarsólinni og kærði sig kollóttan um allt þetta smáborg aralega snakk, sem maður heyrði út úndan sér um, að mað urinn hlyti að vera brjálaður að þykjast vera listamaður og leyfa sér ofan í kaupið að hengja myndir af folöldum, hrauni og blómum, sem tákna frið dauðans á vegg Sigurðar Jónassonar við Þórsgötu. í hornið, þar sem listmálarar auðkenna myndir með nafninu sínu, hafði Stefán málað Stór- vál með skýrtm stöfum. Þetta kom mér kunnugíega fyrir sjpn- ir, og ég hafði orð á því við hann, að þetta minnti mig dá- lítið á Kjarval. — Nei, nei, sagði Stefán. Það er ekki rétt. Það er nefnilega svoleiðis, að ég er frá Möðru- dal, og brennimarkið okkar er Möðrud, og svo kemur punktur. Þeir sleppa -alur. En við verð- um að nota þessa stafi, þetta eru fallegir stafir. Sko, ég heiti Stefán, og þess vegna eru fyrstu tveir stafirnir í þessu fanga- marki St, svo er ég Jónsson, og óið í því kemur næst. R er síð- asti stafurinn í Möðrudalur. Eg heiti nefnilega líka Vilhjálmur, og þar færðu vaffið, og al standa saman í Möðrudal. Þess vegna kalla ég mig Stórval. — Þetta er gott hjá þér. — Hvað? — Að heita Stórval. — Já, finnst þér það ekki, sagði Stefán og skellti upp úr. Og ég á Ódáðahraun. Sjáðu, þarna er mynd af því og Herðu- breið í hríðinni og allt saman. Ég hef nefnilega lent í því, sem enginn annar hefur gert. Það var um hávetur 1936, að ég var villtur i grenjandi hi'íð og gaddi á Möðrudalsöræfum. Eg þekki þessi öræfi, og það var bara- guð leg forsjón, sem réð því, að ég komst heim og fékk að sjá drenginn minn aftur. Það dóu alveg frumur í höfðinu á mér, Hann stóS þarna keikjur í svartrl beztúlpunni og kærði sig kollóttan um smáborgaraskapinn. varð að mála. Um kvöldið var myndin búin. Ég hef ekki snert hana eftir það. Nú skilurðu, hvers vegna olíubrákin er þarna uppi við rammann. Ég kinkaði kolli og spurði, hvað blómin ættu að tákna. — Frið dauðans, þetta er friður dauðans, því að það var allt búið. En það voru myndir af fleiru en þeim blómum, sem tákna frið dauðans á sýningu Stefáns frá Möðrudal. — Folaldið er bezta myndin hjá þér, sagði einhver í hðpn- um. — Já, það er saga að segja fr'á þvi. Ég ætlaði nefnilega einu sinni að mála rauða hest- inn, sem ég átti einu sinni. Hann var frá Fjalli í Skagafirði, óskaplega fallegur hestur. En Jón Stefánsson varð á undan mér að mála hann. Hann sá hann ungan fyrir vestan, áður en ég eignaðist hann. Það ér hann, sem sést á myndinni, sem Ragnar lét prenta eftir Jón. Óskaplega fallegur, rauður hestur og mikið grænt í kring- um hann. — Og þú málaðir hann aldrei? — Nei, maður lifandi, það datt mér ekki í hug. Þá hefði ég verið að stæla Jón. En mér datt annað í hug. — Nú, hvað var það? — Mér datt í hug, hvort ekki væri bara reynandi að mála móður hestsins. Og það gerði ég. Það er hún, sem sést í ■ myndinni Vorleikur, sem ég sýndi á Lækjartorgi. Það eru sjálflýsandi litir í þeirri mynd. Hún er orðin mjög fræg. Hún kom í blöðum á Norðurlöndun- um, og Ferró sagði mér, að hún hefði líka komið í ítölsku blaði. — Þetta minnir á Engilberts, s^gði ég og benti á mynd af Ódáðahrauni, sem mér fannst ákaflega sérkennileg. — Nei. Ég hef ekkert af hon- um lært. Æðsta snílld að vera fióður í hraunum þegar þetta gerðist. Ég veit það, og ég næ mér aldrei alveg aft- ur. En síðan á ég Ódáðahraun, og ég mála það oft. — Af hverju er þessi mynd? spurði ég og benti á mynd með mörgum rauðum og bláum blómum í forgrunninum og dökku skýi efst á léreftinu. — Þetta er draumur, skal ég segja þér. Mig dreymdi þetta nóttina, sem Hermóður fórst, allt ein inspírasjón, og ég gat ekkert annað málað allan dag- inn eftir, ekki eitt einasta hæti. Ég varð bara að mála og mála. Ég átti tvo vini, sem þá fórust, og ég sá þá, þar sem þeir helltu olíu í sjóinn, og þeirra eina hugsun var að bjarga sér. Þeg- ar vinir mínir fórust, voru þeir að hugsa um sjómannalagið Bár an blikar, sem ég samdi, þeir voru að hugsa til mín, og ég — En hvaða málarar þykja þér beztir? — Ja, Kjarval er náttúrlega óskaplega duglegur og góður í hraunum. Já, hann er það. Og það að vera góður í hraunum, það er náttúriega alveg há- mark. — Hvað átti ég að gera þangað? — Hefurðu nokkurn tíma verið i myndlistarskóla? — Nei, nei. Aldrei. ' Fram(inir> a 13 íiðu ’ Nokkur af málverkum Stefáns á veggnum viS Þórsgötu. T í MIN N , þriðjudaginn 6. marz 1962 t ‘ \ . I r * '

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.