Tíminn - 10.04.1962, Page 15

Tíminn - 10.04.1962, Page 15
(Framhald ai 8. s®D) — Hér virðíst véra allgóð aðstaða til að búa með kýr, — fremur gott um ræ'ktunarland og Stutt á mar'kað. — Þ.að.sýnist manni. — Er, pá eírki afkoma bænda sænfííég? i — Á tímabili virtist hún vera það. Það var skikkanleg afkoma fyrir nokkrum árum. En nu er það staðreynd, að bændur hér vinna utan heim- ilis þó að það leiði til þess, að þeir vanræki búin. Það er vit- anlega af því að þeir fá meira fyrir þá tímana, sem þeir eru í daglaunavinmu og veitir ekki af þvi til að fleyta sér. Hins vegar hlýtur það að grafa grunninn undan aðstöðu til bú- skapar, ef hann er vanræktur til lengdar. Það er engim fram- t£ð í því að búa á þessum jörð- um og stunda daglaunavinnu í þorpinu. — Þykir þér þá einhvers á- vant um verðlagsgrundvöll bænda? — Það er hroðalegt að hugsa til þess að atvinnuvegi séu ekki ætlaðir vextir af stofnfé! Hvað myndu útvegsmenn og iðnaðar- menn segja við því, að þeim væri ætlað að leggja eigið fé í reksturinn í stórum stíl og ættu ekki að fá af því vexti nema kannske einn þriðja þess, sem til boða stenduir íbönkum. Ætli það sé verra að eiga sparifé sitt bundið í banka en í búskap? Svo er það fyrning húsa þeirra, sem atvirinan þarf. Um hana er bændum neitað. Það er ekki í neinu samræmi við af- skriftir þær, sem löglegar eru á húsum annarra atvinnuvega. Ég held að hugsunin bak við þetta hljóti að vera eitthvað á þá leið, að þegar t.d. ekki er hægt að notast lengur við gömlu peningshúsin, eigi bónd- inn bara að hætta. Hvað er um annað að ræða? — Þú heldur að svona sé hugsað. — Já. Ég held að núverandi stjórnaiflokkar hugsi sem svo: Meðan 1 an db ú n a ða rf ramle i ÍM- an fullnægir þörfinni innan- lands er ástæðulaust að vera að hlaða undir bændur. Svo er það framleiðsluskatt- Svo er það framleiðsluskatt- urinn nýi, sem nú er ráðgerður í stjórnarfrumvarpinu uyi stofn lán landbúnaðarins. Það þykir ekki nóg, að bændur búi við þennan verðlagsgrundvöll eins og hann er, heldur á að leggja á þá framleiðsluskatt til að afla þeim lánsfjár. Og þessi fram- leiðsluskattur hlýtur að lenda með öllum þunga á þeim hluta afurðaverðsins, sem bóndanum er ætláður til framfærslu sér og sinna, því að ekki minnkar reksturskostnaðurinn við hann. Eg held, að þessi hugmynd sé fordæmalaus í löggjöf hér á landi og sé með fullum endem- um. Hvað á svo að segja um toll- ana á landbúnaðarvélum? Hvers vegna erii þau fram- leiðslutæki ekki höfð í sama flokki og vélar í fiskibáta? Hvað hugsa þeir, sem þessu ráða? Nú á vélaverðið að koma aftur til bænda í hækkuðu af- urðaverði. Samkvæmt þvi er neytendum ætlað að endur- greiða bændum t^llana, sem þeir greiða í ríkissjoð af vélum og öðrum rekstursvörum. Hver milljón, sem ríkið fær í slíkum tolltekjum, á því að hækka af- urðaverðið í heild jafn mikið. Nú greiðir ríkissjóður afurða- verðið niður eins og allir vita. Hvað er þá betra að láta millj ónirnar hafa þessa hringrás en ag vera vægari í tollheimtu og sleppa við að endurgreiða neyt endum í niðurgreiðslu nokkuð af því, sem þeir eiga að endur- gneiða, bændran í afurðaverði úgp^í’þessa tolia? Eiraiyað hlýtur mönnum að ganga tíi.að liafa þefta svona. Já, eittlmð gengur þeim til. Eg sé tvo möguleiká en heldur ekki fleiri. Annað er það, að þeir treysti þvi, að það, sem bændur raunverulega borga, komí ekki allt. fram í verðlags- grundvellinum, svo að ríkissjóð- ur hagnist á þessari hringrás miðað við það, sem bókstafur kerfisins bendir til. Hitt er það, að miklu þyki skipta að mis- muna bændum. Hátt vélaverð eins og hátt verðlag yfirleitt og þqr með há leiga eftir lánsfé, breikkar bilið milli þeirra, sem standa höllum fæti, eru að byrja eða þurfa að endumýja tæki, byggingar og bústofn hinna, sem bezt standa að vígi. Ef ætlunin væri að drepa úr hópnum þá, sem erfiðast eiga, þá væri þessi stefna hreinasta snjallræði. Eru hér ekki einhverjir bænd ur, sem fylgt hafa Sjálfstæðis- flokknum? — Jú. Til eru þeir. Þeir við- urkenna eins og aðrir, að sjald- an hafi verið erfiðara 'hjá bænd um. En þeir reyna að trúa því, að þetta sé allt óhjákvæmilegt og verði svona að vera vegna þess, sem á undan var gengið. — Ætli landbúnaðurinn mætti samt ekki njóta jafnrétt- is við aðra atvinnuvegi? — Það finnst mér, að bænd- ur ættu að hugsa sér, hvar í flokki, sem þeir annars vilja vera. Ætli togaraútgerðin rétt- ist mikið við ef ákveðið væri, að ætla útgerðarmönnum svo og svo mikið eigið fé í rekstur- inn og reikna ZVi% vexti af því? Og kaup bænda nú er ekki miðað við neinn vinnustunda- fjölda, heldur ársframleiðslu. Akkorðið er ákveðið ,eftir því, hve mikilli framleiðslu bændur hafa skilað. Neytendafulltrúarn ir, sem samið er við, hafa ekki reynt að reikna út, hve mikilli framleiðslu ætti að gera ráð fyr ir með átta stunda vinnudegi og 70—80 frídögum á ári hverju eins og okkur er sagt að heyri til „mannsæmandi lífs- kjörum“ 1 öðrum stéttum. Bændasamtökin eiga sannar- lega ærið verkefni í næstu fram tíð. „Blindur er bóklaus maóur“ Framhald af 7. síðu. legt gildi, fræðigildi, menningar- gildi, að ógleymdu skemmtigildi þeirra. Þess vegna eru þá bóka- söfn og lestrarfélög svo afar mikilvæg, því að þar er að finna uppsprettulindir hins ritaða orðs, sem menn geta drukkið af lífsins vatn þekkingarinnar og auðgað anda sinn. Þorsteinn Þ. Þorsteins son hefur rétt að mæla, er hann segir í kvæðinu: „Bókaskápur- inn“, sem birt er í hinni nýju heildarútgáfu Ijóða hans: Hver opnuð bók, sem geymir líf og liti, er lesandanum hugarsköpua ný, sem inn í sál hans veitir nýju viti og víkkar sjónarhringinn störfum í. Og fyrir oss fslendinga í landi hér er það sérstaklega mikilvægt, menningarlega og þjóðræknis- lega talað, að vér höldum áfram að lesa íslenzkar bækur, því að í þeim speglast sál þjóðar vorr- ar, líf hennar og saga, vonir henn ar og framtíðardraumar. Um leið og ég, í nafni Þjóðræknisfélags- ins og ai eigin hálfu, þakka öll- um, sem átt hafa hlut að hálfrar aldar starfi Lestrarfélagsins hér á Gimli, hjartanlega þeirra menn ingarstarfsemi, óska ég þess af heilum huga, að þessi þarfi og ágæti félagsskapur ykkar megi lifa og blómgast um ókomin ár. Svældur úl (Framhald af 16. síðu). í þess srtað til þeirra meitli. Þá köstuðu þeir táragasi ofán um gluggann, og gafst óeirðaseggurinn síðan upp þegar í stað. Var hann þá handtekinn og fluttur í fanga- geymsluna við Síðumúla, þar sem hann var geymdur að ósk móður sinnar, unz af honum rann æðið. Kristján Þorvarðarson læknir skoðaði síðan piltinn og taldi, að hér væri ekki um geðveiki að ræða. Eftir það sótti móðir piltsins son sínn. — Hann á ekki vanda til að fá jafnsvæsin æðisköst og á laugardaginn, en hins vegar er hann dálítið taugaæstur, og hefur lögreglan áður þurft að hafa af- skipti af honum. Hann er tæpra sextán ára. Ársþing í. B. R. Framhald af bls. 12. í milliþinganefnd til þess að at- huga tillögu um breytingu á lögum bandalagsins voru kosnir Baldur Möller, Ólafur Jónsson og Jón Ingimarsson. Þá var framkvæmda- stjóm falið að kanna möguleika á að festa kaup á bifreið fyrir banda- lagið. Þinginu var slitið kl. 2 eftir mið- nætti. Kampavín og kvenmaður (Framhald ai 4. siðu) kannske stangaveiði, hver veit. — Er ekki vont að vera á snurvoð á svona litlum báti? — Nei, dekkplássið er svo mikið, þegar hann er svona frambyggður. — Hvað á hann að geta geng ið mikið? — Það er nú eftir að sjá það í reynsluferðinni, en hann á að geta gengið allt að tíu hnúta. — Hvað eru eigendurnir margir? — Við erum þrír með hann, ég, Hrafn Benediktsson og Har- aldur Eggertsson. Það er nóg pláss í honum fyrir fimm menn. — Hvar verður hann skráð- ur? — í Reykjavík, en við erum ekki enn þá farnir ag skíra han formlega. Það þarf bæði kven- mann og kampavínsflösku til þess, annars verður nafnið al- veg ónýtt. — Hvað á barnið að heita? — Skýjaborg. — Það var nefnilega sagt, að það væri bara skýjaborg, þegar við vor- um að ráðgera að smíða hann, og það er bezt, að hann haldi því nafni. BIRGIR. Iþróttir Framhald af bls. 12. Víkingur skoraði síðasta mar'kið í leiknum og vann með 9—7. Þótt Víkingur ynni Fram kom það þó miklu meira á óvart, að KR skyldi takast að sigra Ármann, en Ármannsstúlkurnar hafa sýnt ágæta leiki í mótinu. Það blés þó ekki byrlega fyrir KR framan af, og um tíma höfðu Ármannsstúlkurnar fimm mörk yfir, og sigurinn virtist öruggur. En KR barðist af krafti og lét ekki markamuninn á sig fá. Þegar líða tók á síðari hálfleikinn skoraði KR hvert markið á fætur öðru án þess Ármann svaraði, og rétt fyrir leikslok skoraði Gerða Jónsdóttir sigurmarkið fyrir KR. Og þar með hafði KR bjargað sér að þessu sinni, þótt vissulega væri aðstaða liðsins verri en annarra fyrir kvöldið. Þá fór einnig fram einn leikur í meistaraflokki karla, og léku Þróttur og Breiðablik, Kópavogi. Þróttur hafði mikla yfirbui'ði og sigraði með 33—9, og er Þróttur nú nær öruggur um sæti í 1. deild næsta keppnistímabil. Þróttur hef- ur sigrað í öllum leikjum sínum og á aðeins eftir að leika við Kefl- víkinga. Framboðsllstar (Framhald af 1. sfðu). sínum, að þarna geti þeir séð: Sjálfstæðisflokkurinn láti prófkjör ráða um val manna á lista í borg- arstjómarkosningum. Hins vegar mun sannleikurinn sá, að Geir Hallgrímsson vill fá sína menn á listann, hvað sem öllu prófkjöri líður, og Gunnarsmenn verða að víkja. Liggur Gunnarsmönnum þetta svo ljóst fyrir sjónum, að þeir skorast jafnvel undan endur- kjöri, og koma þannig í veg fyrir annars óhjákvæmilegt spark. Með- al nýs fólks, sem Geir vill á list- ann sinn er Guðrún Erlendsdóttir (Á frívaktinni) og Þór Vilhjálms- son, borgardómari og lögfræðingur litvarpsins, auk þess eiginmaður forseta neðri deildar. Talið er að Þorvaldur Garðar muni lifa þetta af, eins og margt annað. Ákveðið hefur verið að Öskar Hallgrímsson, rafvirki, skipi efsta sæti lista Alþýðuflokksins. I öðru sæti verður Soffía Ingvarsdóttir, formaður verkakvennafélagsins Framsóknar og í þriðja sæti áður- nefndur Páll Sigurðsson, trygg- ingalæknir. Vitað var að Magnús Ástmarsson ætlaði að hætta, og raunar engin sérstök tíðindi af þessari listasköpun önnur en þau, að þriðji maður listans skuli vera kominn þangað beint úr prófkjöri hjá íhaldinu. Má svo sem einu gilda, fyrir Alþýðuflokkinn, þótt íhaldið annist prófkjörið, enda sparar það flokknum allt slíkt um- stang. Kratar geta fengið að vita hvert fylgi Páls var í prófkjöri íhaldsins og reiknað siðan út láns- atkvæðin eftir því. Hjá kommúnistum verður bylt- ing að þessu sinni. Þar koma inn Alsír-slagur Framhald af 3. síðu. uðu Molotoff-kokkteilum inn í skól- ann. Engin bankarán voru framin í dag og gizka menn á, að OAS hafi nú safnað að sér nægum fjármun- um í bili. Þeir hafa á þremur mán- uðum rænt upphæðum, sem svara 600 milljónum íslenzkra króna. 40 farast (Framhald af 1. síðu). geymslu. Síðan heyrðist hver sprengingin á fætur annarri. Sprengingarnar ullu miklum skaða á mannvirkjum í nágrenn- inu. Rúður brotnuðu yfirleitt, jafn vel í talsverðri fjarlægð. Fyrstu líkin fundust klukkan 11 og síðdegis í dag höfðu fundizt 18 lík, en miklu fleiri var saknað, og er óttazt, að þeir séu allir látnir. þrír nýir menn af þeim fjórum, sem skipa efstu sætin. Guðmundur Vigfússon og Alfreð Gíslason verða að víkja, en í staðinn verða fjögur efstu sætin skipuð þannig: Skúli Norðdahl, arkítekt, Guð- mundur J(aki) Guðmundsson, Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og Ragnar Arnalds, sem er eiginlega alveg nýtt nafn, en hefur svolítið verið að skrifa í Frjálsa þjóð og nú síðast í málgagn hernámsandstæð. Jafnvel Þjóðvarnarflokkurinn stendur í nokkiu stímabraki þann- ig, að Bergur Sigurbjörnsson segir Gils Guðmundssyni að vera efstum, en Gils segir Bergi að fara í efsta sætið. Dæmið í þessari þráskák stóð þannig í gærkveldi, að mestar líkur voru taldar til að Gils yi'ði að fara í efsta sætið. Togaraverkfall (Framhald af 1. síðu). ur hefur verið sagt frá, og búast má við að yfirmenn- irnir ráði sig cinníg til ann- arra starfa, ag Ioknum upp- sagnarfresti, því að mikil eftirspurn er eft'ir mönnum til alls konar starfa í landi og á sjó. f gær boðaði Torfi Hjart- arson, sáttasemjari ríkisins, til fundar með aðilum í tog- aradeilunni. stóð fundurinn til miðnættis, en ekki gekk saman. Víðavangur (Framhald af 2. síðu). liafa í för með sér, heldur en að bæta með framlögum úr sam eiginlegum sjóðum þjóðarinnar þau áföll, sem menn geta orð- ið fyrir með sífelldum gengis- lækkunum. Gengisklásúla í sam bandi við erlend lán, sem end- urlánuð eru til uppbyggingar í landbúnaði, er óðs manns æði og má aldrei koma fyrir með- an gengið er jafn óstöðugt og reynslan hefur sýnt, ekki sízt í höndum hæstv. núv. ríkisstj. Þess má líka geta í þessu sam- bandi, að erlend lán og aðrar lántökur til sjóða landbúnaðar- ins eru ekki einvörðungu í þágu þeirra einstaklinga, sem fást við Iandbúnaðarframleiðslu. Landbúnaðurinn er mikilvægur atvinnuvegur í þjóðfélaginu, at- vinnuvegur, sem við getum eng- an veginn án verið. Við höfum mikla þörf fyrir 'aukinn land- búnað og það er síður en svo að reynslan sýni að of miklu hafi verið varið til uppbygging- ar þessum atvinnuvegi undan- farin ár. ÞAKKARÁVÖRP Beztu þakkir til barna minna, barnabarna, og allra þeirra, sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu, þ. 28. marz, meS heimsóknum, rausnarlegum gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Ólafur Eiríksson, Skálakoti, V.-Eyjafjallahreppi. Maðurinn minn, Hjörtur Ingþórsson, fulltrúl, lést sunnudaginn 8. þ.m. — Fyrir hönd aðstandenda. Pálína Sigmundsdóttir. Maðurinn minn og faðir okkar, Kristján Sveinsson, Túngötu 20, Keflavlk, andaðist laugardaginn 7. aprfl í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Jóhanna Þorsteinsdóttir og börn. Elglnmaður mlnn, Bernhard Petersen, stórkaupmaður, andaðlst f Landsspitalanum 8. þ.m. Anna Petersen. T f M I N N, þriðjudagur 10. ppríl 1902. IFi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.