Tíminn - 12.04.1962, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.04.1962, Blaðsíða 14
□3JE I Fyrri hluti: Vndanhald, eftir nt Heimildir eru efmrm er við honum blöstu þessa fyrstu daga í nýja embættinu: „Eg tók við hinu nýja starfi mínu á erfiðum tíma, að því er snerti hin fjarlægari Austurlönd. Þar höfðu svartir skýjabólstrar hrannazt upp og allt benti til þess að Japanir myndu bráðlega fara í stríðið. Á hinn bóginn var nauðsynlegt að Við gerðum ekkert það, sem valdið gæti fjandsamleg um árekstri við Japani . . . . Eg hafði rætt við Dill um möguleik- ann á því að Japanir færu í stríð- ið. Hann hafði sagt mér það hrein skilningslega, að hann hefði raun verulega ekkert gert til þess að mæta þeirri ógnun. Hann sagði að við værum nú þegar svo liðfáir og máttvana á öllum vígstöðvum, að þag væri ómögulegt að veikja þær meira meg því að fækka liði þar cða öðrum herbúnaði . . . . Eg held að hann hafi haft alveg rétt fyrir sér, og að hann hafi ekki getað gert meira ... en það gerði engu að síður að- stöðu okkar mjög hættulega, ef Japanir færu í stríðið .... Jafnvel á þessum hættulega tíma og þrátt fyrir skortinn á skip um, flugvélum, skri3drekum og öðrum herbúnaði voru varnarmála ráðherrann og æðstu hershÖfðingj- arnir að íhuga áform um land- göngu í Noregi, Sikiley, ítalíu og ströndum frönsku Norður-Afríku, en slíkt taldi Brooke hið mesta óráð, að svo komnu máli. Svo var það sunnudaginn 7. des ember að dró til mikilla og ugg- vænlegra tíðinda. Tveimur dög- um áður, þegar erlendu sendiherr- arnir voru kynntir fyrir honum, veitti Brooke því athygli að Japan arnir virtust' þungir á brún. „Eg er að velta því fyrir mér,“ skrifaði hann í dagbók sína „hvort við munum hafa þá með okkur öllu lengur." Á laugardag var eng- inn herforingjafundur og að liðn- um vinnudegi í skrifstofu sinni, þegar hann var í þann veginn að fara heim, klukkan fimm, kom símskeyti frá Singapore, þar sem skýrt var frá því, að tvær skipa- lestir, í fylgd með tundurspillum og stærri herskipum, hefðu sézt sigla í vestur frá Saigon. „Við þessa frétt var þegar kall- aður saman herforingjaráðsfund- ur. Cadogan frá utanríkisráðuneyt inu mætti einnig á fundinum. Við rannsökuðum stöðuna nákvæm- lega, en af stefnu skipalestanna varð ekki ráðið hvort þær stefndu til Bangkok, Kra-skagans, eða hvort þær væru aðeins að sigra eitthvað óákveðið í blekkingar- skyni. Annað skeyti barst, meðan á fundi stóð, en það skýrði ekki ástandið neitt nánar, þar eð í því var einungis tilkynnt að skipalest irnar hefðu horfið úr augsýn og ekki fundizt aftur. Hætti við að fara heim, borðaði miðdegisverð í klúbbnum og fór að honum lokn- um til hermálaráðuneytisins aft- ur . . . . “ Daginn eftir bárust svo þær fréttir, að Japanir hefðu ekki að- eins ráðizt á brezku Malayalöndin og Hong-Kong, heldur einnig Fillippseyjarnar og Pearl Har- bour. „Öll okkar vinna síðastliðnar fjörutíu og álta klukkustundirnar var til einskis," skrifaði Brooke, — „Japanarnir hafa nú sjálfir tryggt það að Bandaríkin fari í stríðið . . . . “ Að dómi forsætisráðherrans var ógæfan, sem dunið hafði yfir bandaríska flotann, miklu lítilvæg ari en sú staðreynd að Bandaríkin voru nú samherjar Breta. Sama dag bárust honum þær fréttir, að síðasta, örvæntingarfulla tiíraun þýzka hersins til að hertaka Moskvu — sem gerð var í hríðar byljum og undinheimamyrkri fimm dögum áður — hefði mistek- izt, að hitastigið á rússnesku víg- stöðvunum hefði fallið 40 gr. nið- ur fyrir frostmark; og að þeir Stalín og Zhukov hefðu hafið hina lengi- og velundirbúnu gagnárás sína. Þá nótt kvaðst Brooke hafa gengið til hvílu mettur og ánægð ur og sofið svefni hins frelsaða og þakkláta. Þennan desemberdag, þegar sprengjuflugvélar MacArthurs hershöfðingja voru tættar sundur á Clark-flugvellinum, voru sjö af bandarísku herskipunum níu í Pearl Harbour eyðilögð eða gerð ónothæf. Allar vonir um að banda- riski flotinn gæti komið Malaya- löndum og Austur-Indíum til hjálpar, höfðu brugðizt. Þennan sama dag gengu japanskar her- sveitir á land í Suður-Thailandi, nálægt malayisku landamærunum. Næsta dag fóru herdeildir óvin- anna yfir hið mjóa Kra-eiði, til stranda Indlandshafsins, náðu á Sitt vald brezka lendingarstaðnum við Point Victoria og rufu loft- brautina, sem liðsaukar voru flutt ir eftir frá Indlandi og Evrópu til Singapore. „Þetta hefur algerlega raskað jafnvæginu ó Miðjarðarhafinu og veitt Japönum öll yfirráð á haf- inu, þangað til við getum dregið saman einhvern herstyrk þar,“ skrifaði Brooke tveimur dögum eftir árásina á Pearl Harbour. — „Við höfðu því tekið til athugunar þann möguleika, að senda brezk orrustuskip til þess að endurbæta aðstöðuna.“ En næsta morgun, I 33 þann 10. desember, bárust verst.U stríðsfréttirnar, alít frá því er Frakkland féll. Prince of Wales, sem forsætisráðherrann hafði sagt Stalín að gæti „náð og grand“.ð hverju japönsku skipi“ hafði vsr- ið sökkt, ásamt Repulse, rneð tundurskeyti frá. flugvél, þegar þau voru að reyna að stöðva lest japanskra flutningaskipa úti fyrir strönd Malaya-skagans. „Það táknar,“ skrifaði Brooke þá um kvöldið — „að við höfum misst yfirráðin á hafinu, frá Afríku austur til Ameríku, á Ind landshafi og Kyrrahafinu.“ Forsætisráðherrann hörfaði aldrei eða lét undan síga. ÁfÖU og ógæfa kölluðu ávallt fram hið mesta og sterkasta í fari hans. Nú hugsaði hann um það eitt að flýta sér til Bandaríkjanna og ráðgast við vin sinn og banda- mann, Roosevelt forseta. Og það breytti í engu áformi hans, þótt hann fengi skeyti frá Washington, þar sem sagt var, að af öryggis- ástæðum myndi vera réttara að fresta heimsókn hans fram yfir áramótin. Þann 12. desember lagði hann af stað með Duke of York, systurskipi Prince of Wales. Áður en Churchill lagði af stað í Amerikuför sína, tókst Brooke á fundi, sem haldinn var að kvöldi þess 11. í Downing Street, að fá hann til að taka með sér sem fasta fulltrúa sinn í Washington, þann mann, sem hann treysti og dáði öllum öðrum fremur, fyrirrennara sinn, Sir John Dill. „Þessi ákvörð- un,“ skrifaðj hann, „var ekki tek- in fyrr en eftir talsverðar umræð ur . . . . Eg varð að leggja mig allan fram og leggja á það mikla áherzlu, að með sinni miklu þekk ingu á störfum herforingjaráðsins og öllum hernaðarmálum okkar, væri Dill öllum hæfari til að þjóna tilgangi okkar í Washing- ton. Það var mikið lán, að mér skyldi takast að sannfæra Winst- on, vegna þess að fáir menn gerðu meira til að efla málstað okkar 27 ir þín hefði ekki gott af því að komast héðan? Komast á heim- ili þar, sem hún er metin og virt af öllum og má ráða ríkjum? Væri það ekki. það bezta, sem henni væri gert? Mér skilst að hún sé mikið svekkt. — Svekkt er hún óefað, sagði Sveinn. — Eg veit ekki hvað henni er fyrir beztu. En óþvinguð verður hún að fara héðan. Gestinum duldist ekki lengur andrúmsloftið. Hann velti atvikun um fyrir sér. Fyrir fjórum árum gisti hann á sýslumannssetrinu. Þá sá hann Guðrúnu í fyrsta sinn. Hann varð þegar hrifinn af fegurð hennar og æskubióma. Þá höfðu þau að síðustu átt samleið nokkrar bæjar leiðir. Sýslumaður hafði slegizt í för með honum og fóstursystkinin fengið að fylgja þeim á leið. Sýslu maður hafði oft leyft þeim að ríða meg, séf úr hlaði. En þennan dag lét hann það með öllu af- skiptalaust, að þau færu lengra en venjulega. Virtist jafnvel ætl- ast til þess. Gesturinn hafði þá löngum riðið við hlið Guðrúnar, og átt við hana fjörugar samræð- ur.. Að skilnaði hafði hann beðið, bana um lokk. Nú var hann á leig til útlanda. Glóbjarta hárið skyldi minna hann á fegurð ættlandsins og börn þess, og vekja hjá honum heimþrá og hollan metnað. Hún tók umsvifalaust lítið sax úr barmi sínum, nam lokkinn burtu og rétti honum. En er hannj ætlaði að taka vig gjöfinni kippti hún að sér hendinni og sagði glettnislega. — Láttu mig sjá, að þú hafir geymslustað fyrir lokkinn. t Hann dró öskju úr barmi sínum, unni. gljáfægða hornöskju, hinn bezta grip. — Hér geymi ég hann, sagði hann. En er hann ætlaði að opna öskjuna, kom hik á hann. Guðrún átti það til að vera glettin. Nú þreif hún af honum öskjuna og lauk henni upp. Þar var fyrir dökkjarpur kvenlokkur. Hún skellti öskjunni aftur og rétti honum, stakk sínum lokk á sig. | Og gesturinn gaf upp alla von um' hann. En þetta viðbragð hinnar] ungu meyjar hafði fylgt honum jafnan síðan. Fyrir löngu hafði hann gert það upp við sig, að þessa konu vildi hann-eiga. Hún hafði verið draumur hans, hvert sinn er hann hugsaði heim. Hann hafði langað tii að sanna henni að hún með bjarta lókkinn sinn, stæði nær hjarta hans en nokkur önnur, enda þótt hann hefði beð- ið aðra mey um sams konar gjöf, þegar hann var að kveðja ættland' ið. Á slíkum stundum getur barns leg viðkvæmni búið um sig. Hann hafði frétt um bónorð stúdents- ins og kunnað sýslumanni þökk fyrir neitun hans. Nú ætlaði hann að koma eins og heillagestur, sem bætti ungmeynni það tjón, sem hún hafði beðið. Lærður embætt- ismaður var í sannleika nokkuð annað en vesæll stúdent, sem gerð ist bóndi, stúdent, sem bar ekki gæfu til að komast til þeirrar mannvirðingar sem menntunin veitti. Gesturinn hafði gert sér beztu vonir, en nú horfði óvæn- lega. Skyldi hann nú verða annar biðillinn, sem kæmi erindisleysu í As? Sá var þó munurinn, að sýslumaður vísað'i stúdentinum frá. En nú valt allt á heimasæt- Eftir stundarþögn mælti gestur inn: — Viltu ekki biðja Guðrúnu að tala við mig? — Það skal ég gera, sé hýn ekki að tala við fósturforeldra mína, sagði Sveinn. — Já ef hún er ekki að tala við þau, endurtók gesturinn. Sveinn fór Að vörmu spori kom Guðrún. Hún heilsaði biðlinum hæversk- (iega. Og er hún sá, að hann horfði fast á hana og þóttist finna það á sér, að hann þekkti hana ekki, sagði hún nafn sitt. — Fyrirgefið ungfrú Guðrún, sagði hann. — Þér vitið erindi mitt. Hvers má ég vænta af yður? — Eg bið yður að leita annað. Eg giftist engum, enda væri það gæfuraun hverjum manni að bind ast mér. Eg ber traust til yðar og virðingu fyrir yður. En ég get ekki elskað yður, né nokkurn annan. En án þess að elska skyldi enginn ganga í hjónaband, sagði hún. — Þér hafið orðið fyrir sárri raun. Þér þurfið að komast héð- an. Tíminn, trúnaðarvinur, virð- ingarstaða, aðdáun. AUt er þetta læknisdómur, sem vinnur eðlilega og markvisst í fjarlægðinni. Þar endurheimtið þér lífsgleði yðar. Og ástin er heimanfylgja heil- brigðs lífs. Komið með mér héð-^ an. Við eru.m bæði ung og u.igirj finna veg. Allt fer vei. Það er sannfæring mín. — Eg þakka yður góð ráð og boð, sagði Guðrún. — Eg efast heldur ekki um velhug yðar. En lífið hefur áreiðanlega kjörið yður þátttakanda í sönnu, þrótt- miklu lífi og lífsglei. Þér gangið lífinu á hönd og njótið þess, en ég berst við dauðann. Á því tvennu er svo stór munur að við BJARNI ÚR FIRÐI údentinn % iivammi eigum enga samleið. Svar mitt, neitandi svar, breytist ekki við neinar fortölur. Eg árna yður heilla. Verið þér sælir. Og án þess ag rétta biðlinum höndina, vatt hún sér fram úr stofunni hvatskeytlega og hurðin féll að stöfum. Nokkru síðar var biðillinn ferðj búinn. Sýslumannshjónin voru þáj á skrifstofu sýslusetursins. Gest-| urinn aftók að gera hjónunum viðvart. En bað fóstursoninn fyrirj kveðju. Sýslumaður fékk aðeinsj að sjá gestinn í fjarska, er hanm var að hverfa. Reiddist hann þá. svo mjög, að við sjálft lá, að hannl léti söðla hesta og veita biðlinum eftirför. Þó lét hann það vera en kallaði í þess stað á fóstur- dótturina. Sveinn kom með fóstur systur sína, reiðubúinn að verja1 hana, ef í harðbakka slægi. Sýslumaður sneri sér fyrst að honum. — Hvað er N þér á höndum drengur? — Ekki hef ég kvatt' þig hingað. j — Veit ég það, sagði piltur- inn. — En þú hefur kallað systur mína. Eg renni grun í hvert vera muni erindið og er mætt.ur til að taka svari hennar ef með þarf. 6ýs>lumaður horfði um stund þögull á þessi fósturböm sín. Honum skildist, að ný hætta vofði yfir heimilinu. Nú sá hann í fyrsta sinn, að alda var vakin, og var hyggilegast að kanna ris- hæð hennar og mátt, áður en lengra væri gengið. — Jæja Guðrún. Talaðir þú við Bjöm? svo hét biðillinn. — Hann gerði boð fyrir mig, sagði Guðrún. — Og þú hryggbrauzt hann? — Já. Þag kom hik á sýslumann. Því líkt sem hann vissi ekkl hvernig halda skyldi yfirheyrslunni áfram Hann horfði hvasst til Guðrúnar, var svipþungur en stilltur. Loks sagði hann: — Eg á bágt með að átta mig á þér barnið gott. Er það virki- lega, að þú teljir það ráð, að neita jafngóðum ráðahag. Eða gerðir þú þetta til þess að ná þér niðri á okkur fósturforeldrum þínum? „Sérðu ástæðu til þess að ætla, ag ég þurfi ag ná mér niðri á ykkur?“ spurði Guðrún og lét sér hvergi bregða. Nú þrútnaði sýslumaður. Reið in sauð niðri í honum: „Guðrún,“ 14 T f M I N N, finimtudagur 12. apríl 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.