Tíminn - 12.04.1962, Síða 16

Tíminn - 12.04.1962, Síða 16
TILLOGURNAR SEM STJORNIN NEITAOI í gær barst blaöinu frétta- tilkynning frá Alþýðusam- bandi íslands, þar sem skýrt er frá gangi hinna tilgangs- lausu viðræðna við ríkisstjórn- ina um kjarabætu'r án kaup- hækkana. í lok þessarar frétt- ar frá ASÍ segir að sambandið hafi vísað málinu til verka- lýðsfélaganna. Ríkisstjórnin Hljómleika hélt hann! Akureyri, 11. apríl. í haust sem leið ætlaði Páll ís- ólfsson að halda hljómleika á Ak- ureyri og spila á hið' nýja pípu- orgel Akureyrarkirkju, en á leið- inni norður hlekktist bílnum á, sem Páll var í, og varð ekki af því að hann færi alla leið. Um dag- inn lagði hann svo aftur af stað sömu erinda og þá með skipi, því hann hefur ótrú á að ferðast með flugvélum og var búinn að fá slæma reynslu af bílferðum. En er Heklan, sem Páll var með, kom til Siglufjarðar, slógust tveir fjársvik- arar í för með Heklunni og Páli til Akureyrar, og á leiðinni inn Eyja- fjörð lenti skipið í árekstri og dróst við það aftur úr áætlun, svo enn varð að fresta tónleikunum. En í gærkvöldi voru þeir endan- lega haldnir, og lék Páll þá á hið nýja pípuorgel, en einsöng sungu þcir Sverrir Pálsson og Jóhann Konráðsson. ’aKmsBaamsmnnr '■■i telur í svari sínu að kjarabæt- ur án kauphækkana hafi verið óraunhæf og ófær leið. í frétt ASÍ er skýrt frá tillögum sambandsins í megindráttum og þykir Tímanum hlýða að birta þær „óraunhæfu" tillögur hér á eftir. „1. Allir útlánsvextir lækki a. m. k. í það, sem þeir voru í árslok 1959, og verði jafnframt tryggt, að vaxtalækkun til atvinnuveganna komi öll fram í hækkuðum laun- um. 2. Söluskattar og tollar verði felldir niður á öllum nauðsynja- vörum, og ríkinu í staðinn tryggð- ar auknar tekjur með fullkomnara skattaeftirliti. Skattar og útsvör verði innheimt hjá launþegum jafnóðum og tekjur falla til. 3. Niðurgreiðslur á aðalneyzlu- vörum almennings verði eigi rýrð- ar frá því sem nú er. 4. Aðflutningsgjöld og vátrygg- ingagjöld verði lækkuð og tryggt, að sú lækkun komi öll fram í lækk- uðu vöruverði. 5. Numiö verði úr gildi bann við greiðslu verðlagsbóta á laun og tryggt, að samningafrelsi og sjálfs- ákvörðunarréttur verkalýðsfélag- anna verði ekki skert. 6. Átta stunda vinnutími verði lögfestur sem hámarks vinnutími í þeim atvinnugreinum, sem fært þykir og yfirvinna takmörkuð sem allra mest að öðru leyti allt án skerðingar heildarlauna. Jafnframt vei'ði yfirvinna barna og unglinga innan 16 ára umfram 8 stundir á dag bönnuð með öllu. 7. Að lokum var sú krafa borin fram við ríkisstjórnina, að hún tryggi varanleik þeirra kjarabóta, sem samkomulag kynni þannig að nást um.“ Sigrún Ragnars er vissulega hreykin af öllum þessum fallegu verðlaunagripum, sem hennl hafa hlotnazt fyrir fegurð sína. Hún er líka himinlifandi yflr viðburðariku ferðalagi um fjarlæg lönd. En bezt af öllu flnnst henni að vera komin aftur heim. Við blrtum vKStal vlð Slgrúnu á 2. síðu á morgun. (Ljósmynd: G. E.). lán frá Bretlandi Ford-umboSið Kr. Krist- jánsson h.f. er um þessar mundir að flytja inn 60—70 nýja fólksbíla frá Ford-verk- smiðjunum í Bretlandi, og fara þeir allflestir til leigubíl- stjóra. Bílar þessir eru ódýr- ari en flestir aðrir boðlegir leigubílar, og þar að auki eru lánaðar í þeim 40—50 þúsund krónur í eitt ár með 6% vöxt- um. Blaðinu er kunnugt um, að lán þetta er ekki frá Ford verksmiðj- unum, en fékkst fyrir milligöngu hjá fjáraflafélagi í Bretlandi, sem kaupir bílana af verksmiðjunni og selur þá aftur með lánakjörum. Þessi lán eru þó einungis veitt at- vinnubílstjórum, vegna þess að ís- lenzkir bankar heimila ekki annað. Þrjár gerðir Þrjár gerðir koma helzt til greina, og eru það Zephyr 4, Zep- hyr 6 og 7-odiac. Langflestir munu hafa pantað Zephyr 4. Það er 5 farþega bíll, með fjögurra strokka vél hraðgengri og fjögurra gíra al- samhæfðum (synchromesh) gir- kassa. Enn fremur er hann fáan- legur með sjálfskiptingu, mjög ein- faldri. Þessir bílar kosta með beinni skiptingu um 160 þúsund krónur til leigubílstjóra en um 185 til annarra. Að útliti svipar þeim einna helzt til Comet, amerísku „smá“ útgáfunnar á Mercury, en bera þó nokkurn keim af hinni svokölluðu „ítölsku" línu. (Framhald á 13. síðu) Framboð kynnt á Akureyri Akureyri, 11. apríl. í fyirakvöld héldu Framsóknar- menn á Akureyri fund í hótel KEA, og var Björn Þórðarson fundar- stjóri. Framsöguerindi fluttu þeir Stefán Stefánsson, bæjarverkfræð- ingur, sem talaði um skipulagsmál bæjarins, Sigurður Öli Erynjólfs- son, kennari, sem talaði um fyrir- (Framhald á 13. síðu) f fyrradag varð harkalegur árekstur við brúna á Hafnará í Mela- sveit, er saman rákust olíuflutningabíll frá Skeljungi og nýlegur Vauxhall, eign Guðmundar Sveinssonar, skólastjóra í Bifröst. Telur Guðmundur, að áreksturinn hafi orðið með þeim hætti, að hemlar biluðu á bíl lians, er hann ætlaði að hemla við brúna á Hafnará, til þess að hleypa olíubílnum fram hjá. Skipti þá engum togum, að bfli Guðmundar skall á varahjóli olíubflsins, sem fest var utan á hægri lilið hans, en olíubíllinn var þá kominn svo utarlega í vegarkantinn, að við höggið brast kanturinn og olíubíllinn valt. Ökumaður hans, Þórður Eggertsson, slapp ómeiddur, en bfllinn er mjög illa farinn, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Guðmundur slapp með skrámur í andliti, og einnig kona hans, Guðlaug Einars- dóttir, sem sat fram í. Aftur í var Sveinbjörg Ásgrímsdóttir, og fékk hún slæma áverka á höfði, en 6 ára dóttir hennar, sem einnig var þar, hlapp án meiðsla. Bfll Guðmundar er talinn gerónýtur. (Ljósm.: KÁRI).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.