Tíminn - 25.04.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.04.1962, Blaðsíða 3
SALAN HANDTEKINN! VOROSJILOFF ENDURREISTUR Starfsamir hryöjuverka- menn í Alsír NTB—Moskvu, 24. apríl. Það vakti mikla athygli í Moskvu, að Vorosjiloff mar- skálkur var á fundi Æðsta ráðs Sovétríkjanna í dag end- urkjörinn í forsætisnefnd, þrátt fyrir hina miklu gagn- rýni, sem hann hefur sætt síð- an í haust. Vorosjiloff hefur gjarna verið talinn draugur frá Stalinstímanum, og á 22. flokksþinginu í haust var 1 hann harðlega gagnrýndur í sam- bandi við herferðina gegn Stalin- ismanum. Síðan hefur hann á ýms- an hátt verið niðurlægður, og kem- ur því endurkosning hans mjög á óvart. Virðist hann hafa verið end- urreistur að nokkru leyti. Vorosjil- off var einu sinni forseti Sovét- ríkjanna, eða til 1960. Krústjoff endurkjörinn Krústjoff var á fundinum í dag endurkosinn forsætisráðherra með miklu lófataki, og var honum falið að mynda nýja stjórn. Einn flokks- leiðtoganna, Nikolaj Podgomij, hélt ræðu við það tækifæri og hyllti Krústjoff fyrir hin marg- þættu störf hans í þágu Leninism- ans. Hann hrósaði jafnframt Krúst- joff fyrir hina miklu sigra Sovét- ríkjanna á sviðum efnahagsmála og vísinda undanfarin fjögur ár. Þetta var fyrsti fundur ráð'sins eftir kosningarnar í marz. Leonid Breijneff var endurkjörinn forseti Sovétríkjanna, sem hann hefur verið, síðan hann leysti Vorosjiloff af hólmi 1960. NTB—Algeirsborg, 24. apríl. Leyniherinn OAS reyndi í dag að sýna fram á, að handtaka Sal- ans hershöfðingja, yfirmanns OAS, hafi ekki veikt styrk leynihersins. Hryðjuverkamennirnir voru mjög starfsamir um daginn, og í Al- geirsborg og nágrenni einu saman voru 13 manns drepnir, þar af 12 Serkir. Fjöldi manna slasaðist. Um 100 Serkir réðust á fjóra evrópiska unglinga, sem drápu Serkja í gær með því að aka yfir hann, drápu þrjá þeirra, en einn slapp. INNBROT OG SPELiVIRKI Á föstudaginn langa var Salan, yfirmaður OAS, handtekinn í Algeira borg og fluttur beina leið til Parísar, og er þessi ínynd tekin af hon um handjámuðum á flugvellinum í Algeirsborg. Með handtöku Sal ans hefur OAS verið veitt rothögg. Mörg spellvirki voru unnin hér í Reykjavík um páskana, eitt hið stærsta á fimleikahúsi Gagnfræða skóla Austurbæjar, en þar voru 39 rúður brotnar með grjótkasti. •Þá var brotizt inn í þrjá sumar- bústaði við Selás og allt brotið, sem hægt var að brjóta í sumum þeirra, rúður, leirtau og húsgögn. í einum sumarbústaðanna hafði verið skorið á fiðursæng til árétt ingar. Þarna var litlu stolið. Aft- ur á móti var, húninum af útidyra hurð Almennra trygginga í Póst- hússtræti stolið, en tiltækið virð- ist fremur í ætt við spellvirki en þjófnað. Tveir rakarar urðu fyrir barðinu á innbrotsþjófum, er brotizt var inn í rakarastofurnar á Laugaveg 10 og Bankastræti 12 og snyrtivörum stolið. Stærsta innbrotið var framig í i veitingahúsið Naust, en þar var | farið inn í fyrrinótt, bakhúsmeg-1 in í eldhúsið og étinn þar hákarl og síldarréttir. Skrifborð yfirmat sveinsins var brotig upp, en þjóf urinn fann þar ekkert verðmæti. Síðan var haldig upp á barinn og setzt að drykkju og sopið á mörgum tegundum. Hirzlur á barnum voru mölvaðar upp. Þar var ekkert að hafa, en þarna uppi skiluðu þjófarnir aft.ur hákarlin- um og síldinni, Gólfig var þakið spýju meg líttmeltum sjávarrétt- um. í skrifstofu niðri í kjallara komust þjófarnir yfir fatageymslu sjóðinn, nokkur hundruð krónur, og fóru með hann og nokkrar áfengisflöskur. Óupplýst Þessi mál eru öll óupplýst. Rannsóknarlögreglan biður þá, sem kynnu að geta veitt upplýs- ingar að láta þær í té, enn frem- ur varðandi kventösku úr krókó- dilaskinnj eða skinnlíki, sem var stolið úr ólæstri forstofu hér í bæ á páskadagskvöld. Innihald töskunnar var m.a. vindlingaveski úr gulli. Kosningarnar ógiltar NTB—Buenos Aires, 24. apríl. í dag lýsti hinn nýi forseti Argentínu, Jose Maria Guido, síðan 16. desember síðast lið- inn, Er þetta mótleikur hans við því, er þingið neitaði í ógildar allar kosningar, sem gærkvöldi að breyta lögunum haldnar hafa verið í landinu um forsetaskiptin, svo að Gu- Rafhlöðurnar biluðu NTB—Canaveralhöfða, 24. apríl. Tunglflaugin, sem Banda- ríkjamenn skutu á loft í morg- un, mun að öllum líkindum hitta mark sitt, en rafhlöður hemnar hafa bilað, svo að hún seridir ekki þær upplýsingar til jarðar, sem ætlazt var til. Eina samband tunglflaugarinnar við jörð er lítið útvarpstæki um borð, en frá því vita vísinda- menn, að tunglflaugin er á réttri braut, Klukkan fimm síðdegis í dag var Ranger IV á 5456 kilómetra hraða rúmlega 200 þúsund kíló- metrum frá jörð'u, og er reiknað með, að hann lendi á bakhlið tunglsins rétt eftir hádegi á fimmtudaginn. Ef svo illa tekst til, að Ranger hitti ekki tunglið, mun hann fara í kringum það og síðan á sporbaug umhverfis iörð og tungl. ido gæti setið áfram sem for- seti þau tvö ár, sem eftir eru af kjörtímabili Frondizis, fyrr- um forseta. Yfirlýsing Guidos bendir á afgerandi breytingu í stjórnarfari Argentínu, en hann mun ætla sér að stjórna með bráðabirgðalögum. Kunnugir menn telja,' að þar með hafi fylgjendur hörkustefnu unnið mikinn sigur, og muni nú strax verða hafnar strangar aðgerð ir gegn Peronistum. Herinn er sterkasta aflið gegn Peronistum, og engar líkur virðast til þess, að unnt verði að koma á löglegri stjórn í landinu, þótt Guido for- seti hafi persónulegan stuðning margra herdeilda, þar á meðal hinnar mikilvægu Camp-Mayo her deildar við Buenos Aires. Ekki tímabært að .,. í opinberri yfirlýsingu segir, að afstaða stjórnmálaflokka, sem hlýða skipunum Perons, fyrrum einræðisherra, hafi neytt Guido forseta til að setja bráðabrigðalög- in um ógildingu kosninganna. í yf- irlýsingunni segir einnig, að bráða birgðalögin verði ekki lögð fyrir þingið, fyrr en það sé tímabært, Með bráðabirgðalögunum eru ó- giltar héraðsstj órnakosningarnar 17. desember í fyrra og 18. marz í ár, nema kosningarnar í höfuð- borginni, Buenos Aires, sem heyr- ir beint undir forsetann. í des- ember var kosið í þremur héruð- um en í marz í meginhluta lands- ins. f desember hélt Róttæki flokk ur Frondizis meirihluta sínum, en í marz unnu Peronistar geysileg- an sigur. Þá reyndi herinn að neyða Fron- dizi til að ógilda kosningarnar, en hann neitaði því. Þá gerði herinn byltingu og setti Frondizi í fang- elsi, en forseti öláungadeildar þingsins, Guido, var dubbaður til forseta. Ólafsfiröingar bera iist fyrir Reyk- víkinga Þau tíðindi munu ekki hafa gerzt fyrr, að leikflokk- ur á litlum stað úti á landi leggi leið sína til höfuffstað- arins og beri list sína á borð fyrir Reykvíkinga. En nú ætla Ólafsfirðingar að ríða á vaðið, og munu þeir að öllum líkindum koma til Reykjavíkur í byrjun maí- .ánaffar og sýna leik sinn í fjarnarbæ. Höskuldur Skagfjörð hef- ur verið leikstjón Ólafsfirð- inga í \eti._. og frum'ýndu þeir „Gildruna“ eftir Robert Thomas á Ólafsfirði 4. marz. Eftir þrjár sýningar á Ólafs- firði fóru þeir í nágranna- byggðirnar, til Dalvikur, Ak ureyi„. og Siglufjarðar. Á öllum þessum stöðum var affsókn ágæt og leiknum af- bragðs vel tekið. Nú hafa leikendur hugsað sér að taka sumarfrí frá daglegu st-irfum tíman- lega og nota það frí til þess að fara í u.þ.b. hálfs mán- ðar Ifeik: ..:,\g, og or fyr- irhugað að byrja 26. apríl á Siglufirði. Þaðan verður haldið ti. Sauðárkróks, Blönduóss, Ásbyrgis, Reykja skóla, Hólmavíkur, Borgar- ness, Akraness, Hafnarfjarð- ar og svo loks til höfuðstað- rins, þar sem leikurinn verður sýndur í Tjarnarbæ. T í M I N N, miðvikudagur 25. apríl 1962. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.