Tíminn - 25.04.1962, Blaðsíða 13

Tíminn - 25.04.1962, Blaðsíða 13
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON Léleg þátttaka í V í ðavangshlaupi IR Víðavangshlaup ÍR — hið fertugasta og sjöunda 1 röð- inni — var háð að venju á sumardaginn fyrsta. Hlaupið var mjög rislágt að þessu sinni, aðeins sex keppendur. Féll því niður keppni í fimm manna sveitum, en eitt félag, KR, sendi þrjá þátttakendur í hlaupið, og hlaut því bikarinn í þriggja manna sveitarkeppni. Sigurvegari í hlaupinu varð Kristleifur Guðbjönisson, KR, sem sigraði nú annað árið í röð. Krist- leifur varð rétt á undan félaga sín- um, Agnari Leví, en hins vegar lagði hann ekki að' sér í hlaupinu, heldur hljóp aðeins til sigurs. Tími hans var 9:24.2 mín., en Agn- ar varð 6/10 á eftir. Þriðji varð Þingeyingurinn Halldór Jóhanns- son á 10:01.4 mín. Fjórði Reynir Þorsteinsson, KR, á 10:43.5 mín. Fimmti Jón Gunnlaugsson, Skarp- héðni, á 11:05.0 mín. og sjötti Kristján Mikaelsson, ÍR, á 11:46.0 mín. Igtglfl Fagnandi leikmenn Glasgow Rangers — fyrirliði Rangers og Skotlands, Caldow, í gullstói. Rangers sigraði i Glasgow Rangers sigraði St. Mirren í úrslitaleik skozku bikarkeppninnar með tveimur mörkum gegn engu, og er það í sextánda sinn, sem þetta frægasta lið Skotlands sigrar í bikarkeppninni. Meðal hinna 127.940 áhorfenda voru rúm- lega tvö hundruð íslenzkir knattspyrnuáhugamenn, sem fóru gagngert til að sjá Þórólf Beck leika í St. Mirren liðinu, en hann er annar íslendingur- inn, sem tekur þátt í úrslita- leik bikarkeppninnar skozku. Fyrir tæpum tveimur áratug- um lék Albert Guðmundsson með Rangers og varð skozkur bikarmeistari. Skozku blöðin skrifa mjög um úrslitaleikinn, og sum þeirra telja hann, þrátt fyrir yfirburði Rangers, beztá úrslitaleikinn í keppninni eftir styrjöldina. Rangers lék oft á tíðum frábæra knattspyrau — með hröðum og vel uppbyggðum leik — en markskotin voru hins vegar ekki alltaf upp á hið bezta. Vörn St. Mirren var traust og mið- vörðurinn og fyrirliði St. Mirren, Clunie, var bezti maðurinn á vellin- um. Framlína liðsins komst hins vegar ekki mikið áleiðis gegn traustri vörn Rangers, sem hefur á að skipa fjórum skozkum lands- liðsmönnum, markmanninum Ritch ie, bakvörðunum Caldow, sem er fyrirliði skozka landsliðsins, og Shcarer og framverðinum Baxter, sem var bezti maður Rangers í leiknum ásamt hinum kornunga út- herja Henderson. Framan af eða fyrsta stundar- fjórðuriginn var leikurinn nokkuð jafn, en síðan komu yfirburðir Rangers meira og meira í Ijós, og fór liðið þá að leika eins og- vel smurð vél. Leikurinn var prúð- mannlega leikinn af báðum liðum, og þess má ef til vill geta, að fyrsta aukaspyrnan var dæmd eftir sex mínútna leik, og það á Þórólf Beck, sem hrinti vinstri útherja Rangers, landsliðsmanninum Wil- son. Og Þórólfur varð einnig fyrst- ur til að gera annað í leiknum. A sjöundu mínútu tók hann fyrstu hornspyrnuna, en ekkert varð úr henni vegna þess að Kerrigan snerti knöttinn með hendinni. Og á tíundu mínútu fékk Þórólfur knöttinn frá McLean en spyrnti smn hörkuskoti yfir markið — fyrsta skoti St. Mirren á mark í leiknum. En næstu mínúturnar átti Rang- ers og hvert upphlaupið kom á eftir öðru, en á einhvern hátt tókst vörn St. Mirren að iíða af storm- inn, og þá meðal annars bjargaði Clunie á marklínunni og William- son í marki varði snilldarlega í annað sinn. i Og á 27. mínútu urðu aðdá- endur Rangers, sem voru um 90% áhorfenda virkilega skelkaðir. Þórólfur fékk knött- inn á markteig, drap hann nið- ur á brjóstinu, og spyrnti við- stöðulaust með vinstra fæti knettinum, og virtist hann stefna í markhornið, en á ein- hvern óskiljanlegan hátt tókst markverðinum að koma hönd á knöttinn og stýra honum fram hjá stönginni. Þetta hefði orðið stórkostlegt mark, hefði spyrna Þórólfs lent í markinu, segja skozku blöðin, og ekki gott að segja hver úrslit hefðu orðið í leiknum, ef St. Mirren Þreyttur íslenzkur leikmaður heldur til búningsklefanna. i hefði náð marki á þessu þýð- j ingarmikla augnabliki. En þetta varð ekki mark og þungi sóknar Glasgow Rangers varð stöðugt meiri. Það hlaut að koma að marki —' en þó liðu 40 mínútur af leiknum áður en Baxt- er, framvörður, skoraði fyrir Rang- ers. Og þetta var eina markið í fyrri hálfleik. St. Mirren byrjaði mjög vel í síð ari hálfleik og hélt uppi nær lát- lausri sókn framan af. En allt kom fyrir ekki. Knötturinn vildi ekki íslenzkir áhorfendur á Hampden-Park — með félagsmerki St. Mirren. í markið. McLean átti tvö hörku- skot á þessu tímabili, Kerrigan missti gott tækifæri, og Ritchie bjargaði með fætinum spyrnu frá Fernie. En síðan fjaraði sóknin út og þegar tólf mínútiír voru af hálf- leiknum skoraði Wilson síðara mark Rangers í leiknum, og þar með var gert út um leikinn. Rang- ers sótti ákaft síðasta stundarfjór'ð- unginn, og voru leikmenn St. Mirren þá nær allir í vörn, en fleiri urðu mörkin ekki. Þrátt fyrir tapið fá leikmenn St. Mirren yfirleitt góða dóma. Clunie er heiðraður með fimm stjörnum i blöðunum, en fimm leikmenn liðs- ins, þeir Þórólfur, Fernie í fram- línunni, McLean, bakvörðurinn Champell, og markvörðurinn Will- iamson með fjórum. Aðrir leik- menn liðsins fá þrjár stjörnur. Hjá Rangers fá þeir Baxter og Hcnder- son fimm stjörnur, en allir eðrir fjórar, nema miðherjinn Millar cg innherjinn McMillan, en þeir ] ust lítið áleiðis gegn Ciunie sem sagður er hafa leikið cinn bezta miðframvarðarleik, som sizt hefv-r á Hampden Paik. stcnrsta leikviii Evrópu. \ T I M I N N, miðvikudagur 25. apríl 1962. 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.