Tíminn - 25.04.1962, Side 16
Miðvikudagur 25. apríl 1962
93. tbl. 46. árg.
Fagrar konur
urðu Fálkan-
um ofviða!
Ritstjórum vikublaðanna
Vikunnar og Fálkans hefur
komið saman um það, að Fálk-
inn skuli ekki koma út í þess-
ari viku. Þetta samkomulag
var gert vegna mynda af þátt-
takendum í næstu fegurðar-
samkeppni, sem Fálkinn ætl-
aði að birta nú í vikunni og var
búinn að prenta einhvern
hluta af.
KAUPIR UT-
VARPIÐ
BÓKASAFN?
Ilið mikla og verðmæta
bókasafn db. Þorsteins Þor-
steinssonar er enn óselt, en
margir munu hafa hug á að
kaupa það. Það nýjasta í
þeim málum mun vera, að
Ríkisútvarpið hafi áhuga fyr
ir að eignast safnið. Blaðið
frétti í gær að útvarpsstjóri
væri farinn að athuga um
þessi kaup.
Vikan hefur hins vegar samning
við Einar Jónsson, framkvæmda-
stjóra fegurðarkeppninnar, um
birtingarrétt á myndum af fegurð-
ardísunum, meðan verið er að
kynna þær. Það er ekki búið, og
lýkur ekki fyrr en í næstu viku.
Þegar búið var að prenta káp-
una á fegufðardísablað Fálkans,
barst Vikunni njósn af tiltækinu,
og leitaði lögfræðiaðstoðar. Mun
Ólafur Þorgrípisson, lögfræðingur,
hafa orðið fyrir valinu. Fyrir milli
göngu hans ræddust ritstjórar
blaðanna við, og komust að því
samkomulagi, að Fálkinn skyldi
ekki koma út i þessari viku, þar
sem of seint er að útbúa annað
blað.
Ljósmyndari Fálkans mun hafa
fengið að taka myndir af stúlkun-
um undir því yfirskini, að birta
ætti myndirnar í \ sýningarglugga
(Framhald á 5. síðu).
FRAMBOD FRAMSOKNAR-
Fulltrúaráð Framsóknar-
félaganna í Kópavogi hefur
ákveðið og lagt fram lista
sinn við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar, og er hann þannig
skipaður:
1. Ólafur Jensson, verkfræð-
ingur, Þinghólsbraut 47.
2. Björn Einarsson, tæknifræð
ingur, Meltröð 8.
3. Jón Skaftason, hæstaréttar-
lögmaður, Álfhólsvegi 20.
4. Andrés Kristjánsson, rit-
stjóri, Digranesvegi 65.
5. Helgi Ólafsson, gjaldkeri,
Bræðratungu 37>.
6. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir,
húsfreyja, Hávegi 7 A.
7. Hjörtur Hjartarson, prent-
ari, Víðihvammi 17.
8. Grímur S. Runólfsson, bif-
reiðarstjóri, Álfhólsv. 8 A.
9. Páll Jónsson, jámsmiður,
Víghólastíg 13.
10. Hrafnhildur Helgadóttir,
húsfreyja, Víðihvammi 28
11. Bergsveinn Breiðfjörð Gísla
son, skipasmiður, Hlégerði 2
12. Erla Eiríksdóttir, hjúkrun-
arkona, Borgarholtsbr. 20 C
13. Árni Jóhannesson, bifvéla-
virki, Kópavogsbraut 48.
14. Grétar S. Kristjánsson, raf-
virki, Fífuhvammsvegi 31.
15. Kristján Guðmundsson,
húsasmiður, Þinghólsbr. 13.
16. Stefán Nikulásson, skip-
stjóri, Meltröð 2.
17. Gísli Gu.;..iundsson, verka-
maður, Álfhólsvegi 33.
18. Frímann Jónasson, skóla-
stjóri, Digranesvegi 38.
I KOPAVOGI
. : .••• -X
ÓLAFUR JENSSON
BJÖRN EiNARSSON
ANDRÉS KRISTJÁNSSON
JÓN SKAFTASON
Kaupmannahöfn, 24.4.
í gærkvöldi hélt félag ís-
lenzkra stúdenta kvöldvöku í
Borgarahúsinu í Kaupmanna-
höfn. Halldór Kiljan Laxness,
heiðursmeðlimur stúdentafé-
lagsins, las úr verkum sínum,
og varð þetta ógleymanlegt
kvöld.
Laxness hefur löngum glatt
stúdenta hér með upplestri úr verk | sæti og hóf lestur leikritsins, sem
um sínum og þá oft áður en þau
hafa komið fyrir almannasjónir.
í gærkvöldi ias hann upp síðasta
verk sitt, óbirt leikrit. Þetta kvöld
verður ekki síður minnisstætt
vegna þess, að Laxness hélt upp á
sextugsafmæli sitt í þessum stúd-
entafagnaði. Eftir að formaður fé-
lagsins, Sigurður B. Jóhannsson,
hafði boðið Laxness velkominn og
óskað honum til hamingju með
sextugsafmælið. reis skáldið úr
Verðlaunum var úthlutað í þriðja skipti úr Menningarsjóði
Þjóðleikhússins á annan i páskum. Verðlaunaafhendingin fór
fram á leiksviði Þjóðleikhússins að lokinni sýningu á My Fair
Lady og afhenti Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri þau.1
Að þessu sinni hlutu leikararnir Guðbjörg Þorbjarnardóttir og
Rúrik Haraldsson verðlaunin og var upphæðin 10 þúsund, sem
hvort hlaut, og skal þeirri fjárhæð varið til utanfarar.
Stjórn sjóðsins skipa nú Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhús-
stjóri, sem er formaður, en aðrir í stjóm eru dr. Gunnlaugur
Þórðarson og Herdís Þorvaldsdóttir.
hann hefur nýlega skíit „Prjóna-
stofan sólin“. Las hann allt leik-
ritið á tveimur og hálfri klukku-
stund.
Ekki verður skýrt frá söguþræði
leiksins, en hann er beisk þjóð-
félagsádeila í táknrænni framsetn-
ingu, hlaðinn miklum húmor og
skemmtu menn sér hið bezta undir
lestrinum. Stúdentarnir þökkuðu
Laxness með glymjandi lófataki.
Því næst hélt Ólafur Halldórsson,
lektor, hyllingarræðu og þakkaði
Laxness þá gleði, sem hann veitti
stúdentum í Khöfn með því að
(Framhald á 5. síðu)
Síðasta uppboð
Sigurður Benediktsson heldui
síðasta málverkauppboð sitt é
þessu vori á föstudaginn kemur
Þeir, sem vilja selja málverk
þurfa að koma þeim til hans í síð
asta lagj í>dag.‘.‘, ' ' —