Tíminn - 28.04.1962, Blaðsíða 13

Tíminn - 28.04.1962, Blaðsíða 13
MINNING: Kristjón Kristjánsson húsgagnasmídameistarS í dag verður vinsæll samferða- maður, Kristjón Kristjánsson, hús- gagnasmíðameistari, Þrastargötu 4, borinn til grafar frá Neskirkju. Kristjón andaðist í Landakots- spítala 17. þessa mánaðar. Hann hafði veikzt snögglega sólarhring fyrr, er hann var búinn til heim- ferðar að loknu dagsverki í Nes- kirkju. En þar gegndi hann um- sjónarstörfum frá síðasta hausti. Kristjón fæddist á Ketilsstöðum í Holtum, 6. maí árið 1900. For- eldrar hans voru þau hjónin, Krist- ján Sigvaldason og Jónína Vigfús- dóttir, er lengi bjuggu á Ketils- stöðum og síðan í Kvíarholti í sömu sveit. Hann ólst upp í föður- garði ásamt 6 systkinum, þrem systrum og þremur bræðrum. Hann var elztur bræðranna. Á unglingsárum stundað'i hann jöfn- um höndum venjuleg sveitastörf og sjómennsku í vprstöðvum, t.d. Grindavík og Þorlákshöfn. Hugur hans beindist þó einkum að smíð- um. Sérstaklega langaði hann til að nema húsgagnasmíðar. Á þess- um árum var mjög erfitt að kom- ast að sem nemandi í þeirri iðn. Árið 1921, var Kristjón á þil- skipinu „Surprise'Á Á sama skipi var einnig Ásgeir Borgfjörð Einars son, málari í Hafnarfirð'i. Hann hafði einnig áhuga fyrir iðnnámi og urðu þeir Kristjón félagar í blíðu og strfðu um árabil. Friðrik Steinsson, frá Eskifirði var staddur í Reykjavík með skip sitt 1922. Hann réð þá félaga í skipsrúm og voru þeir með honum til haustsins. Þá tóku þeir sér far til Noregs með þeim ásetningi að komast þar að sem lærlingar; hver í sinni iðngrein. Þetta komst þó ekki í framkvæmd, stóð á leyfi yfir- valda þar sem þeir voru útlend- ingar. Þá réðu þeir sig til vinnu á búgarði ná:lægt Stavanger og unnu þar til á öndverðu ári 1924. Þá var Friðrik Steinsson staddur í Noregi leitaði uppi þá félaga og fékk þá á skip sitt. Þegar siglt var frá Noregi, lentu þeir í ofsaveðri á Norðursjó og fengu stór áföll. Margt gekk úr skorðum og brotnaði og áttaviti fór forgörðum. Þó náðu þeir aftur til hafnar í Noregi og dvöldu þar í tvær vikur meðan skemmdir voru bættar. Með Friðriki voru þeir til næsta vetrar, er hann sigldi skipi sínu til Reykjavíkur. í þeirri ferð hrepptu þeir mannskaðaveður fyr- ir Suðurlandi, sem ekki var minni þolraun að komast frá en því, sem áður var nefnt. Eftir skamma dvöl í Reykjavík, réðst Kristjón á norskt skip, með það fyrir augum að komast aftur til Noregs og freista þar gæfunnar að nýju. — Og þar beið húri. Hann var nokkra mánuði í sigl- ingum með hinu norska skipi. Komst síðan til Stavanger og nú komst hann í hið langþráða nám. og keypti þar línuveiðara. HannHann lærði húsgagnasmíð hjá MINNING: Kristján Franklín Björnsson hreppstjóri á Steinum manni, sem hét Helgoland og hjá honum lauk hann sveinsprófi í iðn- inni. Þótt hér sé stiklað á stóru, sýnir þessi frásögn höfuðkosti þeirrar kynslóðar, sem ólst upp á vordög- um íslenzkrar framsóknar. Ungur sveinn hefur hlotið í arf frá for- feðrum óbilandi kjark og þraut- seigju til að ná settu marki, þrátt fyrir vorhret, vandrataðar léiðir og mannraunir. „í Stavanger beið gæfan“. Þar kynntist Kristjón ungri símamey, Sólveigu Larsen. Þau giftu sig 1928. Árið eftir fluttu þau hjónin ásamt fyrsta barni sínu, fárra mán- aða gömlu, til Reykjavíkur. Ekki var öllum erfiðleikum hrundið. Ut- lenda iðnprófið veitti ekki réttindi hér til sjálfstæðs iðnreksturs. Þá var að taka því. Kristjón réðst til Gamla Kompanísins og tók þar sveinspróf að nýju. Hann stofnaði eigið húsgagnaverkstæði 1931 og rak það til æviloka. Eins og flestir fjölhæfir menn, átti Kristján fleiri hugðarmál en iðn sína. Einkum var það söngur- inn, sem tók hann föstum tökum. Meðan hann dvaldi í Stavanger, söng hann í karlakór, og 1931 varð hann félagi í Karlakór Reykjavík- ur, söng annan bassa alla tíð. Kristjón var ágætur félagsmað- ur, hann vantaði aldrei á æfingar nema óviðráðanleg forföll höml- uðu. Auk söngsins var hann ætíð boðinn og búinn til að vinna fyrir kórinn ýjnis störf, sem að kölluðu, sum mjög tímafrek. Má þar eink- um nefna afhendingu aðgöngu- miða að söngskemmtunum til styrktarfélaga kórsins og inn- heimtu árgjalda frá þeim. En þetta starf tók hann að sér eftir að Ösk- ar heitinn Gíslason gat ekki sinnt því lengur. Þessir tveir kórfélagar hafa lengst af verið tengiliður milli kórstjórnarinnar og styrktarfélag- anna og því allra manna kunnug- astir þessum fjölmenna hóp vel- unnara kórsins. ' ’ var einn af heiðursfé- lögum kórsins og tók þátt í öllum utanferðum hans nema þeirri síð- ustu. Um árabil söng Kristjón einnig í kirkjukórum. Nú síðast í kirkjukór Nessóknar. Þá hefur hann einnig í mörg ár aðstoðað við jarðarfarir og sungið yfir moldum hundraða, jafnvel þúsunda þeirra samborg- ara, sem kvaddir hafa verið hinztu kveðju. Mér þykir líklegt, að smíðanátt- úran og sönghneigðin séu arfgeng- ir eiginleikar í ættum Kristjóns og systkina hans. Tveir bræður hans, Kristinn og Helgi, hafa lengi verið félagar í Karlakór Reykjavíkur, en Helgi og Guðmundur báðir lærðir smiðir. Kristján Franklín Björnsson, hreppstjóri á Steinum í Staf- holtstungum. Fæddur 29. febrúar 1884. andaðist að heimili sínu að kvöldi fyrsta sumardags 1962, eftir að hafa fundið til lítils hátt- ar lasleika í 3 til 4 klukkutíma. Hafði fram að þeim tíma verið stálhraustur og fullur lifsgleði alla sína löngu ævi. Kristján minn! Eg ætla aðeins að mæla til þín fáein kveðjuorð. Þótt fáir þekki æviferil þinn og innri mann betur en ég, veit ég líka að þér var aldrei hugleikið að láta hlaða þér lofkesti háa, þurftir þess heldur ekki, því að þú áttir, í ríkum mæli, þann hæfileika, að geta látið verkin tala. I Þrátt íyrir djúpstæðan skoð- anamun í félagsmálum, man ég ekki eftir að okkur yrði nokkru sinni sundurorða á þeim 46 ár- um, er við vorum nágrannar. Er sama að segja um börn þín og barnabörn- Eftir að ég flutti úr sveitinni vorið 1959, og fundum okkar fækkaði, á ég þó í minni margar ógleymanlegar stundir endur- funda á heimilum okkar beggja. Fundum við þá báðir hvað við áttum margra gæða að minnast og hve skoöanamunur okkar var í rauninn ilitill. Að endingu vil ég óska sveit- inni okkar Stafholtstungum, er við unnum báðir, að hún eigi, hér eftir sem hingað til: Menn að missa, meiri og betri en aðrar sveitir. Geir Guðmundsson frá Lundum. Þau Kristjón og Sólveig eignuð- ust fjögur börn, sem öll eru á lífi. En þau eru: Kristján bifreiðastjóri hjá Hreyfli. Karly Jóna, gift amerískum verk fræðingi og búa þau vestanhafs. Róbert Arnar, veitingaþjónn og Sólvin, nemandi á verkstæði föð- ur síns. Við andlát Kristjóns, hefur dreg- ið ský fyrir sólu hjá ástríkri eigin- konu hans, börnum þeirra og öðr- um ástvinum. Einnig við, sem leng- ur eða skemur höfum átt hann að söngfélaga, finnum trega saknaðar- ins. Enginn veit hvenær kallið kemur. Þeir eru fáir, sem ekki trúa á samfundi ástvina bak við landamæri lífs og dauða. Það er huggun harmi gegn. Söngstjóri Karlakórs Reykjavik- ur, Sigurður Þórðarson og kórfé- lagar eldri og yngri minnast með þakklátum huga þrjátíu ára sam- starfs og vináttu þeirra og Krist- jóns Kristjánssonar og votta ekkju hans, börnum þeirra og öðrum ástvinum, sína dýpstu samúð. Hallgrímur Sigtryggsson. Rangæingar Við seljum hinar viðurkenndu Esso brennsluolíui, benzín og smurningsolíur. Enn fremur hina kunnu sjálfvirku Gilbarco olíubrennara, ásamt miðstöðvar dælum og miðstöðvarkötlum. Olíutankar venjuleg- ast fyrirliggjandi í ýmsum stærðum á hagkvæmu verði. Kynnið ykkur verð og greiðsluskilmála á þessum tækjum hjá okkur áður^en þið festið kaup annars staðar. Félagsmenn athugið sérstaklega: Arður er greiddur af þessum, sem öðrum viðskipt- um. KAUPFÉLAG RANGÆINGA Olíusöludeild KEFLVÍKINGAR — NJARÐVÍKINGAR Gamanleikurinn Bör Börsson verður frumsýndur laugard. 28. apríl kl. 8.30 í Ungmennafélagshúsinu í Keflavík. Leikstjóri: Kristján Jónsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 5—7 í Ungmennafélags- húsinu. Leikfélagið Stakkur. Ódýrir hjólbarðar TrúBofunar- hringar afgreiddir samdægurs bindi í ágætu standi, seljast með tækifæris- verði. Fornbókaverzlun Sendum um allt land. HALLDÓR SIGURÐSSON Skólavörðustíg 2. * Islendingasögur Sigurðar Kristjánssonar, 18 Stærð 650—16 og 900—16 Nokkur stykki fyrirliggj- andi. HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN Skúlagötu 55 Kr. Kristjánssonar, Hverfisgötu 26 Sími 14179 „Ekki rétt aö kenna listina við templara eða Oóðtempi- araregluna“ Blaðinu hefur borizt eftir- farandi tilkynning frá lista óháðra bindindismanna, og telur blaðið rétt að birta hana: Sökum endurtekinna frétta i dagblöðum bæjarins, um lista óháðra bindindismanna, ■ þar sem hann er nefndur listi templara, talinn borinn fram af Stórstúku íslands o.fl. af svipuðu tagi, skal fram tekið: Listi óháðra bindindis- manna, H-listinn, er borinn fram af áhugasamtökum bind indismanna. Góðtemplararegl an sem slík. eða Stórstúkan, hefur ekki tekið afstöðu til framboðs listans, eða haft nokkur afskipti af vali manna á listann. Þeir menn og kon ur, sem eru á listanum, eru jöfnum höndum góðtemplarar og aðrir ófélagsbundnir bind- indismenn. Það er því á mis- skilningi byggt að kenna list- ann við templara eða Góð- templararegluna. Þessa leiðréttingu vænti ég að þér birtið góðfúslega í blaði yðar. Reykjavík, 27. apríl 1962, f. h. lista óháðra bindindismanna, B. S. Bjarklind, umboðsmaður listans. T I M I N N, laugardaginn 28. aprfl 1962. 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.