Tíminn - 20.05.1962, Qupperneq 16
Sunnudagur 20. maí 1962
114. tbl. 46. árg.
Danir gefa
F \ • •• £
goða giof
Á föstudagskvöld 18. þ.m.,
komu til íslands tvö skip á veg-
um dönsku landmælingastofn-
unarinnar, Geodætisk Institut,
STQKKHQLIUR
• REYKJAVÍK
Svart: F. Ekström
Hvítt: F. Ólafsson
19. Halbl — Re8d6
20. Bcla — Dc7c6
21. Ba6fl— Rd6b7
og höfðu þau meðferðis allar
frumheimildir, útreikninga og
mælibækur fyrir þríhyrnings-
mælingum á íslandi, sem
danska landmælingastofnunin
hefur framkvæmt hér á landi.
Gögn þessi exu gjöf dönsku land-
mælingastofnunarinnar til Islands,
og tilkynnti prófessor dr. phil Ein-
ar Andersen, forstjóri stofnunar-
innar, Stefáni Jóh. Stefánssyni,
ambassador íslands í Kaupmanna-
höfn, um gjöfina með bréfi, dag-
settu 8. þ.m. Ágúst Böðvarsson,
forstjóri Landmælinga íslands
veitti gögnunum viðtöku í dag.
í gögnum þessum er að finna all-
ar upplýsingar um þríhyrningamæl
ingar, sem framkvæmdar hafa ver-
ið hér á landi frá aldamótum af
danska herforingjaráðinu og
dönsku landmælinga.stofnuninni,
en öll kortagerð á Islandi er byggð
á þesum mælingum.
Danska herforingjaráðið hóf þrí-
hyrningamælingar hér á landi árið
1900, og voru mælingarnar ætlaðar
sem grundvöllur fyrir kort af Is-
landi í mælikvarðanum 1:100.000.
Verkið stóð þar til fyrri heimstyrj-
öldin skall á, og unnu 90 danskir
(Framh. á 15. síðu)
„Grannií( maðurinn skrífar bréf 1957.
Menningarmiðstöð
vestan Suðurgötu
Dönsku landmælingaskipin við Ingólfsgarð. — (Ljósmynd: TIMINN, GE)
Allar horfur eru á því, að
innan skamms verði reist nor-
ræn menningarstöð á lóð há-
skólans vestan Suðurgötu í ná-
grenni bændahallarinnar, og
munu þá Norðurlönd standa
sameiginlega að byggingunni.
Nefndin, sem hefur annazt
undirbúning málsins, hefur nú
sett saman álitsgerð, sem ligg-
ur hjá einstökum nefndar-
mönnum til yfirferðar.
Líklegt er, að menningarmiðstög
in verði í tveimur deildum. í ann
arri mun verða kennsla og önnur
starfsemi lektora í Norðurlanda-
málunum, bæði fyrir sfúdenta og
fyrir almenning. Sú deild verður
í nánum tengslum við háskólann
og próf þaðan. Hin deildin verður
almenn upplýsingadeild um Norð
urlönd. Hún mun hafa samband
við blöð og útvarp, svo og skóla
og aðrar stofnanir. Hún mun einn
ig vinna að alls konar miðlun í
sambandi við fyrirlestraferðir og
hópferðir utan. Norræna félagið
og önnur vinafélög Norðurlanda
munu fá inni í stofnuninni með
skrifstofuhaild og skjalageymslu,
stjórnarfundi og minni funda-
höld.
Kostar 10 milljónir
Talið er, að stofnkostnaðurinn
verði um 10 milljónir íslenzkra
króna. Ekki er fullráðið, hvort
hin Norðurlöndin fjögur munu
bera þann kostnað ein eða hvort
ísland ber einhvern hluta líka
samkvæmt hinum svonefnda
„Norðurlandaráðskvóta", en sá
hluti verður hverfandi lítill, ef
það ráð verður tekið. Rekstrar-
kostnaður verður greiddur á sama
hátt og stofnkostnaðurinn.
Álitsgerð um mánaðamótin
Nefndin, sem hefur annazt und
irbúninginn, er undirnefnd í
Norrænu menningarmálanefnd-
inni, sem er skipuð af mennta-
málaráðuneytum Norðurlandanna.
Meðlimir hennar eru- Bent Koch
frá Danmörku, sem er formaður,
Þórir Kr. Þórðarson prófessor
frá íslandi, frú Söderlind frá Sví-
þjóð og frk. Andersen frá Noregi,
sem er ritari nefndarinnar. Þessi
nefnd mun skila álitsgerð sinni
til menningarmálanefndarinnar
um næstu mánaðamót, en sú
nefnd tekur síðan ákvörðun á
aðalfundi sínum í haust. Áður
hefur Norðurlandaráð samþykkt
að mæla með þessari stofnun við
ríkisstjórnir Norðurlandanna.
Ferðabæklingur
Ferðaskrifstofan Lönd og leiðir
hefur gefið út bækling um ferð-
imar, sem hún skipuleggur í sum
ar. I bæklingnum er skýrt ítar-
lega frá ferðaáætlunum, brottfar-
artíma, verði, hvað er innifalið
í því og hvað ekki, fararstjóra
og ýmsum öðrum upplýsingum.
Þetta eru ferðir til Grikklands.
Ítalíu, Spánar, Norðurlanda. Skot-
lands, írlands og fleiri landa. Al-
ger nýjung er Volkswagen-ferð
um Evrópu, þar sem menn geta
ekið sjálfir að eigin vild. en ferða
skrifstofan sér um alla fyrir-
greiffslu. Segist ferðaskrifstofan
(Framhalö a (5 síðu
Boraí kríngum Herkastalann
Innan örfórra vikna hefjast
mjög nýstárlegar fornleifa-
rannsóknir í miðbænum. Þá
verður leitað að bæ Ingólfs
k
FUNDUR FRAMSÓKNARKVENNA í REYKJAV.
Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík heldur fund í Tjarnargötu 26 annað kvöld — mánudaginn
21. þ.m., og hefst hann kl. 8,30 e.h. — Stutt ávörp flytja Kristján Benediktsson, Ásta Karlsdóttir,
Hjördís Einarsdóttir, Halla Eiríksdóttir og Ásgerður Guðmundsd. — Auk þess mun Sigríður Thorla
cius segja frá Bandaríkjaför sinni og sýna litskuggamyndir. — Allar stuðningskonur B-Iistans í
^RggjH^my^JwmnaráJ^^tonme^mMsrúm leyfir.
landnámsmanns með bor frá
Raforkumálastjórn.
Blaðið hafði í gær samband við
Þorleif Einarsson jarðfræðing, sem
mun sjá um þessa rannsókn ásamt
Þorkatli Gríms'syni fornleifafræð-
ingi. Þetta er alveg ný aðferð við
fornleifarannsóknir. Boi'inn er lít-
ill 10—20 metra holubor, sem hef-
ur verið notaður til að kanna laus
jarðlög. Hann er þannig gerður, að
. hann tekur sýnishorn af jarðvegin-
um alveg frá yfirborði niður í botn
bolunnar.
í Ætlunin er að bora í kringum
; Herkastalann og Uppsali, þar sem
' mestar líkur eru taldar til, að bær
Ingólfs hafi staðið. Boraðar verða
[ 20—30 holur. Ef sýnishornin sýna
mannavistarlög, svo sem: ösku-
hauga, gólfskánir, hlaðvarpa eða
brunaösku, verða framkvæmdar
frekari boranir á þeim stað.
Sýnishornin má síðan greina
nánar og t.d. ákvarða aldur þeirra.
Er þá ekki að vita nema borinn
rekist á ca. 1100 ára gamalt manna-
vistarlag, og þá er ekki um að vill
ast, hver hefur búið þar.
Stórfeildir
þjófnaðir
BlaSið hefur rtú fengið vit
neskju um að menn þeir, serr
Istálu hjólbörðum af Moskovit:
jbíl úr kassa á geymslusvæð
, Bifreiða- og landbúnaðarvélc
! um síðustu helgi, hafa gerzl
sekir um marga stórfelldf
þjófnaði.
Lögreglan vinnur enn í málinu.
Einn þeirra, sem hér koma við
(sögu, hefur verið til sjós. Hann
verður tekinn til yfirheyrslu, þeg-
!ar báturinn kemur að landi, og
, er þá nánari fregna að vænta af
málinu.